Morgunblaðið - 04.05.1991, Qupperneq 36
36 __________________________________________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991
Samkór Kópavogs.
Afmælistónleikar
Samkórs Kópavogs
SAMKÓR Kópavogs heldur af-
mælistónleika sunnudaginn 5.
mai kl. 17 i Bústaðakirkju i til-
efni af tuttugu og fimm ára af-
mæli kórsins á árinu. A efnis-
skránni eru íslensk og erlend
lög, m.a. þjóðlög í útsetnjngu
Jóns Ásgeirssonar, lög eftir Árna
Björnsson, Svein Ole Rundgren
og Edvard Grieg. Einnig verður
1 sungin syrpa úr Meyjaskemm-
unni eftir Franz Sehubert og
fleira.
■ FÉLAG harmonikuunnenda í
Reykjavík heldur sjöunda og
síðasta skemmtifund vetrarins
sunnudaginn 5. maí nk. kl. 15.00
í Templarahöllinni. Hljómsveitir
félagsins munu koma fram með
afrakstur vetrarstarfsins, en auk
þess munu félagar koma fram sem
einstaklingar eða leika í dúettum.
- Sérstakir gestir þessa fundar verða
Harmonikufélag Rangæinga og
Félag harmonikuunnenda á Suður-
nesjum. Jón Sigurðsson, sá gamal-
reyndi harmonikuleikari, leikur list-
ir sínar. Alls munu um 30 hljóð-
færaleikarar koma fram á þessum
lokafundi. Það eru allir velkomnir,
jafnt félagar sem aðrir áhugamenn
um harmonikutónlist.
Stjórnandi kórsins er Stefán Guð-
mundsson. Einsöngvarar verða
Katrín Sigurðardóttir og Sigurður
P. Bragason. Píanóleikari verður
Hólmfríður Sigurðardóttir.
Kórfélagar eru í dag 47. Núver-
andi formaður kórsins er Ósk Sig-
urðardóttir og stjórnandi er Stefán
Guðmundsson eins og áður er get-
ið, en hann tók við söngstjórn í jan-
úar 1985.
■ FÆREYINGARKAFFI sem er
árlegur kaffisöludagur í Færeyska
sjómannaheimilinu, Brautarholti
29, er á morgun sunnudag frá kl.
15.00-20.00. Á boðstólum verða
kökur og skerpukjöt. Ágóðinn renn-
ur til sjómannaheimilisins.
■ VORVERK í Gerðubergi
mánudaginn 6. maí kl. 20. Kjartan
Mogensen landslagsarkitekt og
garðyrkjumennirnir Axel Knúts-
son og Samson B. Harðarson
halda fyrirlestur og verða með sýni-
kennslu. Tekið verður fyrir klipp-
ingar, áburðargjöf, uppbindingar á
trjám og plöntum o.fl., o.fl. Að-
gangur ókeypis en þátttakendur
hafi með sér stígvél og klippur.
Vímuvarna-
dagurinn í
Hafnarfirði
VÍMUVARNADAGINN 4. maí kl.
13.00 verða Lionessu- og Lions-
klúbbarnir í Hafnarfirði með
fjölskyldudagskrá á flötinni við
Víðistaðakirkju.
Dagskráin hefst með boðhlaupi
barna úr grunnskólum Hafnarfjarð-
ar. Allir fá barmmerki í tilefni dags-
ins ásamt viðurkenningarskjali fyrir
þátttökuna.
Um kl. 14 hefst ratleikur og er
tilvalið að öll ijölskyldan fari saman
út að ganga og taki þátt í skemmti-
legum leik. Veitt verða vegleg verð-
laun.
Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar verður á svæðinu og leik-
ur létt lög.
Fyrirlestur um
ósýnilega hönd
heildsalans
Hagræðingarnefnd Félags
íslenskra stórkaupmanna efnir
til umræðufundar þriðjudaginn
7. maí nk. í Hallargarðinum í
Húsi verslunarinnar og hefst
hann kl. 12 með hádegisverði.
Gestur fundarins verður Hannes
Hólmsteinn Gissurarson lektor við
Háskóla Islands og mun hann flytja
erindi er nefnist „Hin ósýnilega
hönd heildsalans".
Hallargarðurinn býður upp á létt-
an hádegisverð, súpu og fiskrétt.
Verð kr. 1.500.
Tilkynna skal þátttöku til skrif-
stofu félagsins.
(Fréttati Iky nni ng)
■ ÞANN 5. maí næstkomandi
verður opnaður sölumarkaður í
Hveragerði sem nefdur er
Hveraportið. Hveraportið verður
eingöngu á sunnudögum kl. 13-20
og verður á góðum stað í Tívólíhús-
inu. Þar er nóg húsrými og góð
söluaðstaða til að selja allt mögu-
legt notað og nýtt.
H DANSKI sálfræðingurinn Else
Christensen verður stödd hér á
landi dagana 4.-8. maí. Else hefur
miklá reynslu af starfsemi danskra
kvennaathvarfa og hefur unnið að
rannsóknum á málefnum þeirra.
Undanfarin ár hefur athygli hennar
einkum beinst að börnum sem dval-
ið hafa í kvennaathvörfum með
mæðrum sínum. Fyrr á þessu ári
kom út bók hennar „Börnekár" þar
sem Else gerir grein fyrir niðurstöð-
um rannsókna sinna á þessum börn-
um. Að mati Else er ákaflega mikil-
vægt að þeir sem vinna með börn-
unum horfist í augu við að þau eru
meðvituð um það sem gerist á heim-
ilum þeirra. Þau hafa séð eða skynj-
að afleiðingar ofbeldisins og eru
full ótta og öryggisleysis. Else legg-
ur því áherslu á að börnunum sé
hjálpað til að ræða reynslu sína og
tilfinningar. Einnig hafa b.örnin rétt
á að fá skýringar á því sem er að
gerast í umhverfi þeirra. Else
Christensen mun veita starfskonum
Kvennaathvarfsins leiðsögn og
fræðslu varðandi börn sem koma
til dvalar í Kvennaathvarfínu. Einn-
ig verður hún með fyrirlestur í
Norræna húsinu þar sem hún kallar
Börn í ofbeldisheimi, að alast upp
á heimili þar sem pabbinn misþyrm-
ir mömmunni. Fundurinn verður
þann 6. maí kl. 20 og því öllum
opinn, aðgangseyrir er 200 kr.
Nemendatón-
leikar hjá
Eddu Borg
Nemendatónleikar og skólaslit
Tónskóla Eddu Borg verða í
Gerðubergi sunnudaginn 5. maí
kl. 14.00. Fram koma nemendur
úr forskóladeild, píanó-, tromp-
et- og hljómborðsleik. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Nemendur voru um 70 talsins í
vetur og 7 kennarar. Skólastjóri
skólans er Edda Borg Ólafsdóttir.
Má geta þess að nemendur úr skól-
anum hafa verið mjög virkir í tón-
leikahaldi í vetur og tóku m.a. þátt
í Listahátíð æskunnar sem nýverið
er lokið.
Formanns-
kjör í Hjúkr-
unarfé-
lagi Islands
Á fulltrúafundi Hjúkrunar-
félags Islands sem haldinn verð-
ur 14. og 15. maí nk. lætur Sig-
þrúður Ingimundardóttir af
starfi formanns félagsins eftir 9
ára formennsku. Ólína Torfa-
dóttir hjúkrunarforstjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og
Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkr-
unarfræðingur hjá Landlæknis-
embættinu, hafa gefið kost á sér
til formanns.
Samkvæmt lögum félagsins skal
formaður kjörinn í allsheijarat-
kvæðagreiðslu til þriggja ára í senn.
Samkvæmt lögum félagsins fer at-
kvæðagreiðslan þannig fram: Fé-
lagsmenn í Reykjavíkurdeild greiða
atkvæði á kjörfundi, sem haldinn
er daginn fyrir fulltrúafund, þ.e.
13. maí nk. Kjörfundur verður á
skrifstofu Hjúkrunarfélags íslands,
Suðurlandsbraut 22, Reykjavík, frá
kl.10 f.h. til kl. 20 e.h. Einnig verða
opnir kjörstaðir fyrir félagsmenn
Reykjavíkurdeildar frá kl. 8 f.h. til
kl. 17 e.h. á eftirtöldum stöðum:
Landspítala, kennslustofu kvenna-
deildar, Borgarspítala á 6. hæð,
Landakotsspítala, kapellunni 3.
hæð, Heilsugæslustöðinni Sólvangi,
Hafnarfirði, í borðsal á jarðhæð,
Reykjalundi, Mosfellsbæ, á skrif-
stofu hjúkrunarforstjóra.
Félagsmenn utan Reykjavíkur-
deildar hafa fengið senda kjörseðla
sem skulu hafa borist kjörstjórn
félagsins fyrir lok kjörfundar 13.
maí.
Þriðjudaginn 7. maí nk. kl. 20
verður félagsfundur með frambjóð-
endum til formannskjörs í fundarsal
Hjúkrunarfélags íslands, Suður-
landsbraut 22, Reykjavík. Allir fé-
lagsmenn eru velkomnir.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla_
er á skrifstofu Hjúkrunarfélags ís-
lands á skrifstofutíma fram til 10.
maí.
(Fréttatilkynning)
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090
Dansleikur í kvöld (rá kl. 22.00 — 3.00.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar skemmtir
ásamt söngkonunni Hjördísi Geirs.
Hinn sívinsæli Þorvaldur Halldórsson skemmtir.
Danssýning
Dansandi fjölskyldan sem hefur unnið m.a. til
íslandsmeistartitils í dansi og er á förum til
keppni á Ítalíu sýna sína frábæru keppnisdansa
hjá okkur um þessa helgi. Ath. Núna er hver að
verða síðastur að sjá þennan frábæra hóp dansa
áður en hann fer utan. Við mlnnum á nýja
dansgólfið okkar sem er það stærsta og besta f
; borginni. ____
(TTl Mætum hress. Verið velkomin. I JE
Dansstuðið er í Ártúni
—iSí
LOK^Ð í SÚLNASAL í KVÖLD
DAU
TVÖ
skemmta
í kvöld.
OPIÐ FRÁ 19 TIL 3.
SYNING / KVOLD
A Næsta sýning:
11. maí,
ATH. síðasta
sýning
SKEMMTIDAGSKRÁ
sem byggir á söngferli hins vinsæla
söngvara, Vilhjálms Vilhjálmssonar.
Húsið opnað kl. 19.
Glæsilegur matseðill. Borðapantanir
í síma 77500.
Fram koma:
Ellý Vilhjálms, Þorvaldur
Halldórsson, Pálmi Gunn-
arsson, Rut Reginalds,
Hermann Gunnarsson,
Ómar Ragnarsson og
Magnús Kjartansson.
Leikstjóri:
Egill Eðvaldsson
Eftir skemmtidagskrá verð-
ur dúndrandi dansleikur til
kl. 3. Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur.
BEEIDVANeUK
SÍMI 77500
Hefst kl. 13.30
Aðalvinningur að verðmæti
;________100 þús. kr.________
Heildarverðmæti vinninqa um
300 þús. kr.
TEMPLARAHOLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 20010