Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 44
44 MÖRGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
Þuríður Krisijáns
dóttir — Minning
Fædd 9. janúar 1921
Dáin 28. apríl 1991
Samferðamennimir marka mis-
djúp spor í vitund okkar og vinátt-
una er hæpið að meta í mánuðum
og árum.
Leiðir okkar Þuríðar Kristjáns-
dóttur lágu saman fyrir fáum árum,
en vináttan við hana varð fjölskyld-
unni fljótt dýrmæt og takmörk
tímans máðust út, er við kynntumst
betur sögu hennar, hæfileikum, og
lífsviðhorfum. Nú að henni Iátinni
minnumst við hennar með þakklæti
og virðingu.
Kynni okkar Þuríðar hófust er
við gerðum með okkur samning.
Vetrarlangt kom hún hingað á heim-
ilið og tók á móti börnunum úr skó-
lanum, annaðist þau og var þeim
til samlætis, þar til vinnudegi okkar
foreldranna lauk. Það kallaði hún
að vera dagamma og þótti fremur
létt verk, enda vön meiri umsvifum
áður fyrr. En krökkkunum fannst
þetta ágætur félagsskapur og sam-
an áttu þau þrjú góðar stundir,
meðan við sinntum okkar störfum.
Með Þuríði eignuðumst við annan
vin, Kristin Jónsson, félaga hennar
síðustu árin. Þau voru afar samrýmd
og reyndar hrífandi saman, enda
auðséð að þau gerðu hvort öðru líf-
ið bæði skemmtilegra og þægilegra.
Stuttar stundir með þeim eftir eril
og umferð venjulegra vinnudaga
veittu hvíld og nýja orku. Veturinn
leið og börnin stálpuðust, en vin-
fengið hélst með afmælisboðum og
heimsóknum af góðum tilefnum síð-
an.
Og smám saman kynntumst við
áhugamálum Þuríðar, sönglistinni
og skógræktinni en þó fyrst og
fremst því sem var henni eiginleg-
ast, það er ræktun vináttunnar og
fjölskyldutengsla, og þar var miklu
að sinna og að mörgu að hlúa. Þuríð-
ur átti stóran hóp vina, kunningja
og skjólstæðinga. Ég held hún hafi
safnað að sér fólki alla ævina, og
ég tel víst, að flestir þeirra hafi
talið líf sitt auðugra fyrir vikið. Það
var þá ef til vill ekki svo mikil til-
viljun, að leiðir hennar og móður
minnar höfðu legið saman fyrir
hálfri öld í Héraðsskólanum á Laug-
um í S-Þingeyjarsýslu og að á göml-
um myndum var þær að finna í
kátum hópi. Þeim veittist líka létt
að taka upp þráðinn eina dagstund
ævistarfinu síðar.
Þuríður var hrókur alls fagnaðar
á góðum stundum, ræðin, fróð og
sagði afar skemmtilega frá. Spaugi-
leg atvik á ferðalögum urðu tilefni
mikillar kátínu í frásögninni. Á slík-
um stundum var gaman að virða
þau fyrir sér, Þuríði svo hressa og
káta og Kristin kíminn á sinn hljóð-
láta hátt og líklega hreykinn af
persónutöfrum konu sinnar.
Þuríður var líka afar framtaks-
söm í áhugamálum sínum. Hún var
söngelsk og samdi ljóð við lög, sem
Skagfirska Söngsveitin söng og gaf
út á plötu. í kórstarfinu gat hún
þannig ræktað bæði söngáhugann
og samvistir við sveitunga sína og
Blömastofa
Fnöfinns
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tilkl.22,-einnig umhelgar.
Skreytingar við öll tilefni.
það var lýsandi fyrir skapandi og
ungan hugsunarhátt Þuríðar að hún
hafði skipulagt og undirbúið jarð-
veginn fyrir skógrækt kórfélaganna
norður við Varmahlíð og verður það
vonandi að veruleika, þó að hennar
njóti ekki við. í sumar átti svo að
endurbæta litla sumarhúsið hér
skammt frá og una sér í sveitakyrrð-
inni, en frá þeim draumum sofnaði
Þuríður eftir erfið veikindi síðustu
vikna.
Þuríður átti stóra fjölskyldu, átta
böm og þau síðan fjölda afkom-
enda. Hún lét sér afskaplega annt
um þau öll, gleymdi engum og nutu
þau stuðnings hennar og leiðbein-
inga. Maðurinn hennar og faðir
barnanna var mikið fatlaður og frá
öðrum veit ég, að lífið var henni oft
erfítt og andsnúið. Líklega hefur
þessi lífsreynsla, en þó fyrst og
fremst eðlislæg manngæska, valdið
því, að á efri árum lét hún sér annt
um ungt fólk, sem minna mátti sín
og studdi þroskahefta einstaklinga
með ráðum og dáð til afreka. Til
verndar slíku fólki átti hún mikið
skap og tilfínningar og var ráðagóð
og baráttuglöð.
Þuríður hafði einarðar skoðanir á
mörgum málum. Pex, neikvæðni og
dugleysi var henni ekki að skapi og
lét hún fólk gjarnan vita af því, er
herini var nóg boðið. Hun taldi, að
fólk væri sjálfu sér verst með því
hugarfari og að það bæri vott um
ístöðuleysi, enda hafði hún fyrir
löngu tamið sér bjartsýni og kjark.
Þegar Ijóst var, að dagar hennar
voru taldir, brást hún við með ein-
stöku æðruleysi og bjó sig undir
það. En Kristinn og börnin hennar
voru líka við hlið hennar, reiðubúin
nætur og daga að hlúa að henni
síðustu vikurnar heima. Þau öll
ásamt ómetanlegri aðstoð heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins
gerðu viðskilnaðinn virðulegan og
hljóðlátan.
Ég og fjölskylda mín vottum
Kristni og afkomendum Þuríðar
hluttekningu okkar. Við munum
minnast Þuríðar Kristjánsdóttur
sem merkiskonu, er skilaði miklu
ævistarfí og var uppspretta gleði á
vegi sínum.
Alda Möller
í dag verður Hulla amma borin
til grafar, en það var hún ávallt
kölluð. Mér þykir sárt að þurfa að
kveðja hana svona snemma. Ég hef
aðeins þekkt hana í sextán ár. Mér
fínnst að hún hefði mátt vera hérna
miklu lengur hjá okkur.
Þegar maður lítur um farinn veg,
ryðjast minningarnar að manni. Frá
því að ég man eftir mér man ég
ömmu svo góða og blíða. Hún var
mikil barnagæla og elskaði börn og
fékk hún sín notið hjá öllum barna-
börnunum sem hún átti. Ávallt þeg-
ar við komum í heimsókn til ömmu
gaf hún okkur alltaf nammi úr
hænunni sinni, sem þótti mjög vin-
sæl hjá okkur.
Maður gleymir seint þeim góðu
minningum sem við áttum saman,
sérstaklega um jólin þar sem hennar
hefur ávallt notið við, flest jól hefur
hún verið hjá okkur mömmu á jólun-
um og ég þakka henni fyrir það,
en ég veit að hún mun vera hjá
okkur öll jól hér eftir og að henni
gleymum við aldrei.
Það er svo margt sem mig langár
að skrifa hér um ömmu, en ætla
að láta þetta nægja.
Elsku Kristinn, mamma og allir
þeir sem þekktu ömmu svo vel
stöndum saman í þessari sorg, og
biðjum góðan Guð um að varðveita
og geyma minningu hennar.
Berglind Jónsdóttir
Þegar aðeins voru liðnir tveir
dagar af nýbyijuðu sumri lést
tengdamóðir mín, Þuríður Kristjáns-
dóttir, eftir tæplega tveggja mánaða
veikindi. Það er erfítt fyrir okkur,-
sem næst henni standa, að átta
okkur á að hún, þessi hrausta og
lífsglaða kona, skyldi svo skyndilega
tekin frá okkur.
Þuríður, sem alltaf var kölluð
Hulla meðal fjölskyldu og vina, var
Skagfírðingur, fædd á Krithóli í
Lýtingsstaðahreppi 9. janúar 1921.
Foreldrar hennar voru hjónin Ingi-
björg Þorsteinsdóttir frá Þorsteins-
staðakoti í sömu sveit og Kristján
Árnason frá Gili í Svartárdal. Þau
hjónin eignuðust 9 böm, sem öll
komust til fullorðinsára nema nafna
tengdamóður minnar sem lést á
fyrsta ári, árið 1916. Systkinin eru
systurnar Guðrún, fædd 1913,
Fjóla, fædd 1918, Ingibjörg, fædd
1922, Þóranna, fædd 1926, allar
búsettar á Sauðárkróki og bræðurn-
ir Árni, fæddur 1924, og Haukur,
fæddur 1928, báðir búsettir á Akur-
eyri. Yngsti bróðirinn, Sverrir,
fæddur 1931, lést 1982, en hann
var búsettur á Eskifírði.
Um þau hjónin Ingibjörgu og
Kristján er sagt í niðjatali að þau
hafí löngum verið fátæk, enda haft
fyrir mörgum börnum að sjá. Þau
hafa verið gestrisin og greiðasöm
og oft hafí verið til þeirra leitað,
þegar erfíðleikar steðjuðu að hjá
nágrönnum þeirra. Þau bjuggu á
Krithóli en síðar í Hamarsgerði, en
þaðan átti tengdamóðir mín sínar
bernskuminningar. Þau létu af bú-
skap árið 1943.
Hulla sleit barnsskónum í sveit-
inni sinni við leik og störf eins og
þá tíðkuðust á barnmörgum heimil-
um. Systkinin voru samrýnd og
glaðvær og höfðu öll unun af söng,
enda er þess einnig getið í niðjatali
að Kristján faðir þeirra hafi þótt
góður söngmaður.
Hugur Hullu stóð til náms og fór
hún í Alþýðuskólann á Laugum í
Þingeyjarsýslu árið 1940 og var þar
tvo vetur. Hún átti góðar minningar
frá veru sinni þar og minntist oft á
að hún hefði kosið að læra lengur
og meira, en því varð því miður
ekki við komið. Árið eftir, þann 27.
nóvember 1943, giftist hún Gunnari
Jóhannssyni frá Mælifellsá og hófu
þau sinn búskap þar. Hann var
Skagfírðingur í báðar ættir, eldri
sonur hjónanna Lovísu Sveinsdóttur
frá Mælifellsá og Jóhanns Péturs
Magnússonar frá Gilhaga. Nokkru
síðar byggðu þau sér íbúðarhús á
Varmalæk og settu þar á stofn
saumastofu, verslun og síðar gróð-
urhús. Gunnar hafði lært skóiðn á
Akureyri og þótti með afbrigðum
handlaginn. Honum var kaup-
mennska og hressileiki í blóð borin
og þótti stundum helst til stórhuga
í hugmyndum sínum og jafnvel
nokkuð á undan sinni samtíð á
ýmsum sviðum. Hann fór ekki
troðnar slóðir á þessum árum frekar
en síðar á lífsleiðinni. Þau hjónin
höfðu um tíma margar stúlkur í
vinnu við að framleiða skinnjakka
og loðhúfur eftir hugmyndum hús-
bóndans. Húsmóðirin unga hefur
án efa haft í mörgu að snúast á
þessum árum, því nú komu bömin
þeirra í heiminn, hvert af öðru.
Elstur er Bragi fæddur 1944,
starfsmaður ÍSAL, giftur Sjöfn
Helgadóttur; Sveinn Þröstur, fædd-
ur 1945, múrari, sambýliskona
Hjördís Mortens; Hjörtur Þór, fædd-
ur 1946, húsasmíðameistari, giftur
Kristínu V. Richardsdóttur; Kristján
Ingi, fæddur 1949, garðyrkjustjóri,
giftur Ásdísi Pálsdóttur; Jóhann
Vísir, fæddur 1951, veggfóðrari,
sambýliskona Ilmur Árnadóttur;
Svanhildur Helga, fædd 1952, skrif-
stofumaður, sambýlismaður Bjöm
Samúelsson, Hrafnhildur, fædd
1955, sjúkraliði, gift Erni Jóhannes-
syni, yngstur er Gunnar Þórir, fædd-
ur 1962, afgreiðslumaður, sambýlis-
kona Rósella G. Mosty. Barnabörnin
eru orðin 21 og barnabarnabörnin 5.
Þau Hulla og Gunnar ráku saum-
astofuna og verslunina til ársins
1954, en þá seldu þau Sveini, yngri
bróður Gunnars, eignirnar og fluttu
til Reykjavíkur með börnin sín, sem
þá vom sex. Gunnar hafði frá unga
aldri haft vöðvasjúkdóm, sem þá var
lítt þekktur en ágerðist mjög um
þetta leyti, og þurfti því að leita sér
lækninga hér heima og erlendis.
Hann var bundinn við hjólastól frá
því hann var innan við þrítugt, en
þau létu það ekki aftra sér frá því
að setja á stofn verslun og síðar
saumastofu hér í Reykjavík, sem
framleiddi landsfrægar leðursokka-
hlífar og ýmislegt fleira.
Mér er það mjög minnisstætt er
ég kom á heimili tilvonandi tengda-
foreldra minna fyrir meira en aldar-
fjórðungi. Yngsta barnið var 2ja ára
og allur hópurinn enn heima nema
Bragi, sem var þá byrjaður að búa.
Ég man að Hulla tók mér mjög alúð-
lega og ég veitti því strax athygli
hve hún var þá þegar lífsreynd og
hafði að mér fannst jákvæð og öðru-
vísi lífsviðhorf en ég átti að venj-
ast, en því átti ég eftir að kynnast
enn betur síðar. Hulla hafði bjart
og fallegt yfírbragð og gott lund-
erni. Hún var lítið fyrir að hlaða
um sig veraldlegum hlutum og var
að mér fannst ótrúlega nægjusöm
alla tíð. Hún hugsaði þeim mun
dýpra og oft ræddum við saman um
hvað væri eftirsóknarvert í lífinu
og hvað ekki og vorum oftar en
ekki sammála, þótt báðar værum
við fastar fyrir og ákveðnar í skoð-
unum. Við sögðum stundum í gríni
að við virtumst vera andlega skyld-
ar, enda varð það svo að við leituð-
um oft ráða hvor hjá annarri og
reyndist það okkur báðum vel.
Þau Gunnar höfðu gefíst upp á
fyrirtækjarekstrinum, þar höfðu
skipst á skin og skúrir. Hann vann
um þetta leyti á öryrkjavinnustofu
Múlalundar við töskuframleiðslu og
síðar sem sölumaður. Á þessum
árum má segja að allur hennar tími
hafi farið í umönnun eiginmanns
og barna, enda var það ærinn starfi
fyrir eina manneskju. Oft var hún
þreytt og hafði lítinn tíma aflögu
til að sinna eigin hugðarefnum, það
var helst að hún gæfí sér stund til
að taka sér góða bók í hönd, af því
hafði hún mikla ánægju. Hún var í
eðli sínu mikið náttúrubarn, sem
naut þess að fara norður í sveitina
sína og anda að sér norðlensku ijall-
alofti og angan úr mó. Engri mann-
eskju hef ég kynnst sem hafði jafn
mikla þörf fyrir að komast í beijamó
á haustin. Eitt haustið kom hún því
til leiðar áð við, öll fjölskyldan henn-
ar, sem gátum komið því við, fórum
um helgi í sumarhús í Þingvalla-
sveit. Þá var skemmtilegt að fylgj-
ast með henni, hún vissi nefnilega
af blábeijum uppi í hlíðinni fyrir
ofan húsið og átti erfitt með að eira
innivið. Langtímum saman sat hún
ein með sjálfri sér við beijatínsluna
og kom svo til baka með fulla beija-
fötu, sælubros á vör og norðlenskan
blábeijaglampa í augunum. í svona
umhverfi naut hún sín til fulls.
Hulla hafði frá unga aldri haft
mikinn áhuga á kveðskap og var
sjálf vel hagmælt. Eftir hana liggja
mörg falleg ljóð, þar sem hún kem-
ur á framfæri ýmsum óskum og
heilræðum í bundnu máli. Á afmæl-
um og öðrum tyllidögum sendi hún
gjarna litla vísu til barna sinna,
barnabarna og annarra vina og
ættingja.
Fyrir um það bil tuttugu árum
urðu mikil þáttaskil í lífí tengdamóð-
ur minnar er þau Gunnar slitu sam-
vistir. Líf þeirra hafði oft verið erf-
itt en líka viðburðaríkt og alls eng-
inn dans á rósum. Hann bjó eftir
þetta á dvalarheimili Sjálfsbjargar,
en hann var einn af stofnendum
félagsins og mjög virkur í baráttu
fyrir bættum aðstæðum fatlaðra.
Gunnar rak síðustu árin antikversl-
un hér í Reykjavík, hann lést 9.
janúar 1979 aðeins 57 ára að aldri.
Á legstein hans er ljóð eftir Hullu:
Fjötrar þeir er fætur þína bundu
framar aldrei hefta munu fór,
en fijáls og glaður fagnar þeirri stundu
er fleyi þínu ýtir burt úr vör,
Eftir þetta fór tengdamóðir mín
út á vinnumarkaðinn og starfaði í
mörg ár sem gangbrautavörður við
Langholtsskólann. Þetta starf átti
vel við hana og krakkarnir sem fóru
um brautina daglega urðu mjög
góðir vinir hennar. Þegar hún lét
af vörslunni fór hún til starfa á
barnaheimili í Kópavogi og veit ég
fyrir víst að þar ávann hún sér fljót-
lega vinsældir meðal starfsmanna
og barna. Á þessum ánim fluttist
æskuvinur hennar, Jóhann Jóhann-
esson frá Reykjum í Tungusveit,
hingað suður og bjuggu þau saman
þar til hann lést árið 1982. Hann
hafði aldrei gifst og átti engin börn.
Hann reyndisf tengdamóður minni
vel.
Hún hætti störfum fyrir þrem
árum og sagði þá að nú væri tími
til kominn að fara að njóta lífsins.
Með sanni má segja að það hafí
gengið eftir, því hún hafði nokkru
áður kynnst ágætum manni, Kristni
Jónssyni, sem var ekkjumaður. Þau
áttu góð ár saman, en því miður
alltof fá. Þau tóku virkan þátt N.
ýmsu félagsstarfí aldraðra, ferðuð-
ust saman innanlands og utan og
nutu lífsins á marga lund.
Hulla hafði lengi átt sér þann
draum að eignast lítinn landskika
og koma sér upp sumarbústað. Á
s.l. hausti varð þessi draumur henn-
ar loks að veruleika, þegar hún og
Kristinn keyptu sér lítinn bústað í
landi Varmalands í Mosfellssveit.
Það stóð til að laga hann og stand-
setja í sumar og hafði hún brenn-
andi áhuga á þessu verkefni og
hugsaði með tilhlökkun til sumars-
ins.
Hulla var í eðli sínu mjög félags-
lynd og hafði mikla unun’af söng.
Hún var ein af stofnendum átthaga-
kórsins Skagfírsku söngsveitarinn-
ar, árið 1970. Hún hafði góða sópr-
anrödd og söng með kórnum æ síð-
an, nú síðustu árin með Söngfélag-
inu Drangey, senm er kór eldri fé-
laga úr sveitinni. Þessi félagsskapur
gaf henni ómælda gleði og ánægju
og þar eignaðist hún góða vini og
félaga á þessum 20 árum. í fyrra,
þegar söngsveitin átti 20 ára af-
mæli, fékk hún mikla löngu.n til að
láta eitthvað gott af sér leiða til
handa sveitinni. Hún dreif sig norð-
ur í „fagra fjörðinn Skaga“, ásamt
föruneyti, ræddi við forsvarsmenn
Skógræktarfélags Skagfirðinga og
fékk úthlutað tæpum 4 ha lands í
landi Reykjarhóls við Varmahlíð.
Landið er í umsjá Skógræktarfélags
Skagfírðinga. Fékk hún Kristján son
sinn til að gera frumteikningu að
skipulagi landsins og ánafnaði síðan
söngsveitinni, á afmælinu, með ósk
um að félagarnir færu framvegis
norður árlega og ræktuðu þar garð-
inn sinn í eiginlegri merkingu.
Eftir að tengdamóðir mín veiktist
svo skyndilega í mars sl. kom vel í
ljós hve þar fór óvenjulega raunsæ
og lífsreynd kona, sem hafði svo oft
áður reynt hvað lífíð getur skyndi-
lega tekið breytta og óvænta stefnu.
Hún tók örlögum sínum ávallt með
ótrúlegri þrautseigju og viljastyrk
og ekki síður nú er hún vissi ná-
kvæmlega hvert stefndi.
Ég vil að endingu þakka Hullu
ömmu, eins og við kölluðum hana
gjaman á mínu heimili, fyrir sanna
vináttu öll þessi ár og einnig fyrir
allt, sem hún veitti bömum mínum,
Ríkharði og Þuríði, sem góð amma.
Við öll, börnin hennar, hefðum ósk-
að þess að hún hefði fengið að njóta
samvista með Kristni, sem henni
þótti svo vænt um, miklu lengur.
Við þökkum honum af heilum hug
alla þá elsku og nærgætni sem hann
sýndi henni frá því þau kynntust
fyrst og fyrir að annast hana heima
í veikindum hennar nú síðustu vik-
urnar.
Einnig vilja börn og tengdabörn
Þuríðar koma á framfæri sérstöku
þakklæti til hjúkrunarfólks Heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins,
sem gerðu henni kleift að dvelja
heima til hinstu stundar.
Megi minningin um góða
mömmu, ömmu, langömmu og
tengdamömmu lifa í hugum okkar
allra, barnanna hennar.
Kristín V. Richardsdóttir