Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.05.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991 Fiskverðsdeilan: Samið á Sauðárkróki ÁHAFNIR togara Fiskiðju Sauðárkróks hf. samþykktu á mánudag- inn tilboð fyrirtækisins um nýtt fiskverð sem gildir frá 1. apríl og fram að áramótum. Atkvæði áhafna togaranna þriggja voru talin á mánudaginn og voru 24 fylgjandi en 14 vildu ekki samþykkja tilboð útgerðarinn- ar. Samningurinn gildir frá 1. apríl til áramóta og er ekki uppsegjan- legur á samningstímanum. Samkomulagið er í anda þéss sem samið var um á Neskaupstað í síðasta mánuði, stærðarflokkun á þorski og gæðamat. Það er þó nýjung að fyrir lok ársins eiga all- ir í áhöfnum togaranna að hafa lokið námskeiði um gæðamat og gæðastjómun um borð í ísfisktog- urum. ar um stóriðjumál Byggðahreyfingin Utvörður og nokkur almenn samtök á Austur- landi standa fyrir ráðstefnu um orku- og storiðjumál með tilliti til byggðastefnu í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 18. maí n.k. Fleiri prestar hafa ekki verið víg’ðir síðastliðin 47 ár BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, vígði siðastliðinn sunnu- dag sex guðfræðikandidata til preststarfa. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þetta er fjölmennasta prestavígsla frá 1944, eða í 47 ár, en þá voru níu kandidatar vígðir til preststarfa. Viðstaddur athöfnina var for- seti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir. Prestavígslan var einnig sér- stæð fyrir þær sakir að í þetta sinn voru vígðir tveir sérþjónustu- prestar, annars vegar til þjónustu við aldraða og hins vegar héraðs- prestur í Kjalarnesprófastdæmi, sem er nýtt embætti. Guðrún Helga Ásgeirsdóttir þjónar öldr- uðum og Bjarni Þór Bjarnason þjónar sem héraðsprestur í Kjalar- nesprófastdæmi. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Innritun í sumarskólann SUMARSKÓLI verður starfræktur við Fjölbrautaskólann í Breið- holti í sumarbyrjun en skólinn var starfræktur í tilraunaskyni í fyrra- sumar. Sú tilraun mæltist að sögn Erlu Gísladóttur, skrifstofustjóra, vel fyrir bæði meðal kennara og nemenda. Innritun í sumarskólann stendur yfir á skrifstofu fjölbrautaskólans milli klukkan 10.00 og 15.00 út þessa viku. I sumarskólanum eru kenndir 26 námsáfangar úr námsskrá framhaldsskóla. Einingis er þó heimilt að leggja stund á tvö námskeið í skólanum á sumri. Skólinn hefst 27. mai og stend- ur yfir til 24. júní. Kennsla fer fram milli klukkan 17.30 og 22.00 á kvöldin. Prófað verður 26,- 27.- og 28. júní. Bandaríkjunum. Nemendafjöldi á hverju nám- skeiði í sumarskólanum er á bilinu 15 til 20 og er mætingaskylda 90%. Skólagjald er krónur 11.800. í fréttatilkynningu frá fundar- boðendum segir m.a um ráðstefn- una: „Gerð verður úttekt á stöðu orkumála í landinu í heild og fengn- ir menn frá öllum þeim stofnunum sem hlut eiga að máli til að skýra sín sjónarmið. Sérstaklega verður litið til orkulinda á Austurlandi og nýtingar þeirra og fá þá gjarna fram umræðum réttastöðu og for- ræði landshlutans yfir þeim nú og í framtíðinni. Einnig verður athug- að hvort stjórnkerfið sjálft skipti máli í þessu sambandi. Þórarinn Lárusson stjórnarmað- ur í Útverði mun setja ráðstefnuna með stuttu inngangserindi. Fundar- stjórar verða þeir Aðalsteinn Jóns- son formaður BSA og Adolf Guð- mundsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði. Eftirtaldir menn flytja erindi um ýmsar hliðar byggða- og orkumála á Austurlandi: Sigurður Helgason, fyrrverandi sýslumaður N-Múl, Finnbogi Jónsson, Neskaup- stað, stjórnarmaður í Landsvirkjun, Hörður Þórhallsson fyrrv._ sveita- stjóri á Reyðarfirði, Bragi Árnason, prófessor við Háskóla Islands og Theodór Blöndal forstjóri á Seyðis- um firði. Almennar viðræður verða erindi og álit umræðuhópa sem stofnað verður til undir lok ráð- stefnunnar, en Einar Már Sigurðs- son formaður SSA mun slíta hann.“ Þjóðviljinn: Svavar skrif- ar leiðara AÐ undanförnu hefur Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, ritað leiðara í Þjóðviljann, merkta með bókstafnum S. Árni Bergmann, annar ritstjóra Þjóðviljans, sagði að Svavar ætlaði að hlaupa í skarðið á meðan Helgi Guðmundsson,' hinn ritstjóri blaðs- ins, væri í sumarleyfi, en hann kem- ur aftur til starfa í júní. Svavar er ekki ókunnugur á Þjóð- viljanum því þar var hann blaða- maður og síðar ritstjóri um árabil, eða þar til hann varð ráðherra árið 1978. „Ég held ég megi segja að sumar- skólinn hafi mælst mjög vel fyrir í fyrra,“ sagði Erla Gísladóttir, skrif- stofustjóri, í stuttu samtali við Morgunblaðið. „Kennarar voru til dæmis almennt ánægðir en námið var auðvitað stíft og einhveijir töluðu um að helst hefði þurft að vera aðeins meiri tími til að melta námsefnið. Annars vakti eftirtekt hve nemendur voru áhugasamir og skiluðu vel vinnu sinni. Mér hefur fundist á nemendunum að þeim þyki gott að geta tekið námskeið í sumarskólanum, sem annars hefðu tafið fyrir þeim í námi, og sumir kjósa að taka námskeið sem þeir óttast eða hafa átt í erfiðleikum með,“ sagði Erla en í samtalinu kom fram að einhveijir nemendanna í fyrra hefðu ekki fengið sumarvinnu um vorið og kosið að nota tímann og flýta fyrir sér í námi. í fyrra voru auk nema úr íjölbrautaskólun- um nemendur úr framhaldskólum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni höfuborgarinnar sem fengu námið metið í sínum skóla. ) Hugmyndin að sumarskólanum ‘vaknaði að sögn Erlu í fyrravetur og var þá sótt um leyfi til mennta- málaráðuneytisins sem veitti leyfið í 17. maí og var þá hafist handa við undirbúning fyrir vorið. Sumar- skólar sem þessi eru algengir víða um heim til dæmis í Bretlandi og Aðlögun sauðfjárframleiðslu að innanlandsmarkaði: Starfsreglur um kaup fullvirðisréttar STARFSREGLUR um hvernig staðið verður að aðlögun fullvirðisrétt- ar í sauðfjárframleiðslu að innanlandsmarkaði, samkvæmt ákvæðum búvörusamningsins frá því í vor, verða á næstunni kynntar Búnaðar- félagi íslands, búnaðarsamböndum og ráðunautum, en landbúnaðar- ráðherra hefur samþykkt tillögur framkvæmdanefndar búvörusamn- inga um hvernig að aðlöguninni verður staðið. Samkvæmt búvörusamningnum mun ríkissjóður kaupa upp fullvirð- isrétt sem svarar 3.700 tonnum fram til 31. ágúst næstkomandi, og verða bændum greiddar 600 kr. á kíló. Einnig mun ríkissjóður kaupa allt að 55 þúsund kindur í haust, en afurðir af þeim eiga ekki að koma fram á innlendum markaði. Heimild er í lánsfjárlögum til að gefa út skuldabréf fyrir 4/5 hlutum þess sem samningar við bændur hljóða upp á, en fimmtungur upp- hæðarinnar verður greiddur með peningum. Orðsending til viðskiptavinn (A)mstrong á íslandi (X)-mstrong World Industries Hér meó tilkynnist að Vatnsvirkinn hf., hefur tekið vió sölu og dreifingu á (Afmstrong einangrunarefnum á Islandi. (A)-mstrong einangrunarefni eru viðurkennd um heim allan og hafa verið á markaði hér á landi í fjölda ára. W VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 - 685966 ■ÉÉÉI LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416 Egilsstaðir: Ráðstefna Útvarð- Frá athöfninni í Dómkirkjunni sl. sunnudag. Frá vinstri: Séra Axel Árnason, séra Þór Hauksson, séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands, herra Olafur Skúla- son biskup Islands, séra Ingileif Malmberg, séra Bjarni Þór Bjarnason, séra Egill Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.