Morgunblaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 33
ieei íam .5i HijOAauMivaiM sioAja^uaHOi/. SS MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991 33 Unnið að margvíslegum rann- sóknaverkefnum á Hvanneyri Hvanneyri. VIÐ Bændaskólann á Hvann- eyri hafa tilraunir verið mikil- vægur þáttur allt frá stofnun hans 1889. Nú eru árlega unnin um 6 til 7 ársverk að tilraunum af tilraunamönnum og kennur- um Bændaskólans. Auk þess má ætla að námsverkefni nem- enda við Búvisindadeild svari til eins og hálfs árs til tveggja ársverka. Oft hafa tilraunaniðurstöður þótt berast seint frá tilraunastöðv- um, en niðurstöður Bændaskólans fara svo til beint upp á töflu nem- enda skólans og Búvísindadeildar. Auk þess er nokkurt samstarf milli skólans og búnaðarsamtak- anna á Vesturlandi, þannig að nið- urstöðurnar berast bændum fyrr en ella. Bændaskólinn bauð áhuga- mönnum um nýþekkingu í land- búnaði til fundar á dögunum og kynntu kennarar þar helstu niður- stöður úr viðfangsefnum sínum. Bjarni Guðmundsson, deildarstjóri Búvísindadeildar, sagði í inn- gangsorðum sínum, að aðalmark- miðið væri að velja verkefni, sem styrkja kennslu og fræðslustarfið við Hvanneyrarskólann og að reyna og staðfæra nýja þekkingu með hagnýtum tilraunum og þró- unarstarfi. Af sviði jarðræktartilrauna taldi Ríkharð Brynjólfsson, að það ætti ekki að slá vallarfoxgras nema einu sinni eftir hæfílegan tíma, þar sem seinni sláttur gæfí ekki aukna uppSkeru. I tilraun sem staðið hefur í 14 ár samfleytt, hefur verið borið í 15 t af sauðat- aði án nokkurs tilbúins áburðar. Uppskera hefur síaukist þessi ár og gróður haldist fjölbreytilegur. Hann getur ekki enn skýrt nægi- lega vel hvað veldur. Af sumarfóð- urjurtum gefur sumarrýgresi betri uppskeru en vetrarafbrigði, bygg gefur góða uppskeru í magni þurr- efnis og næpur geta gefið mjög mikla uppskeru þegar best eru skilyrðin. Magnús Óskarsson skýrði frá samanburðartilraunum á mörgum afbrigðum matjurta, sem almennt eru ræktuð. Leitað er að bestu afbrigðunum og nýjum tegundum, sem gætu hentað við okkar að- stæður. Hann sagðist t.d. hafa reynt afbrigði rauðkáls, sem þrífst vel hér á Hvanneyri og er fræ nú fáanlegt af þessu afbrigði. I máli Árna B. Bragasonar kom fram að nú væru í Hvanneyrarlandi um 70 Kennarar Bændaskólans og starfsmenn Bútæknideildar f.v. aftari röð: Grétar Einarsson, Björn Þor- steinsson, Árni B. Bragason, Bjarni Stefánsson, Magnús Óskarsson, Sveinn Hallgrímsson, Ingimar Sveinsson. í fremri röð: Þorsteinn Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson, Aðalsteinn Geirsson, Ríkarð Brynjólfsson og Gísli Sverrisson. tegundir runna og tijáa, aðallega í skjólbeltum. Björn Þorsteinsson skýrði í stór- um dráttum nýja tækni sem tekin hefur verið upp á Hvanneyri: Notkun ensýma til að mæla sykr- ur, lífrænar sýrur og nítrat. Stofn- kostnaður við tækjakaup er lítill. Þorsteinn Guðmundsson vann við mælingar á jarðvegsgerð á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheið- um og sýndi sniðmyndir af jarð- vegi úr þessum rannsóknum. Jarð- vegssýni af Suðurlandi staðfesta að fosfórmagn eykst í gömlum túnum en kalímagn helst nokkuð óbreytt eftir að ræktunin hefur staðið í nokkur ár. Aðalsteinn Geirsson gerði grein fyrir örveirurannsóknum, þar sem áhersla hefur mest verið á örverum í votheyi. í heyverkuninni snýst nú allt um rúllubagga, sagði Bjarni Guð- mundsson og er mikil eftirspum eftir nýjustu upplýsingum af þeim vettvangi. í samanburði með gjöf á gryfjuvotheyi og rúlluböggum af sömu túnspildu virtust kýr éta ögn meira af því fyrrnefnda og mjólka þar af leiðandi meira að meðaltali. Þegar kofasalti var blandað í rúllubagga jókst átmagn gripa svipað og þegar þurrefnis- magn var aukið með forþurrkun á velli úr 25 til 30% í 55 til 60%. Gæði votheys í rúllum jókst greini- lega ef vafíð var 5 eða sjöfalt í stað þrefaldrar pökkunar eins og algengast er. í vetur dugði íjór- föld pakkning ekki við þær veður- farsaðstæður sem ríktu í Borgar- firði. Af sviði búfjárræktartilrauna sagði Sveinn Hallgrímsson skóla- stjóri frá athugunum sínum á feld- fé í Skaftafellssýslu. Ingimar Sveinsson hefur mælt og vegið folöld frá fæðingu til 18 mánaða aldurs og sagðist hann hafa orðið var við talsverðan áhuga á þessu verkefni af hálfu hestamanna. Við fæðingu eru 43 folöld 30 til 43 kg að þyngd, eftir 18 mánuði eru þau á bilinu 211 til 310 kg. Hann sagði þrif þeirra fara mikið eftir aðbúnaði t.d. er hreyfingarþörf þeirra mikil og ormahreinsun nauðsynleg, ef þau hafa verið í þéttsetinni stóðhestagirðingu. Bjami Stefánsson hefur á sinni hendi vaxtarmælingar loðdýra. Hann stýrir fóðurtilraunum með mismunandi fítugjafa og fleiri þáttum í umhirðu loðdýranna. Magnús B. Jónsson hefur lengi fylgst með feldeiginleikum Ioðdýra og vinnur að endurskoðun á mati erfðaeiginleika á því sviði. Á Hvanneyri er Bútæknideild Rannsóknarstofnunar landbúnað- arins og sagði Grétar Einarsson, deildarstjóri, að mestur tími færi nú í prófanir á flóknum heyvinnu- vélum eins og t.d. rúllubaggatækj- um. Síðastliðið ár var um 30% heyforða bænda verkað í rúllum og til þurfti um 460 t af plast- filmu. Eitt af verkefnunum var að prófa gæði hennar. Gísli Sverris- son skýrði tölvulíkan af dreifíngu tilbúins áburðar á túnspildu. Með líkaninu er reynt að meta hvemig unnt er að dreifa áburðinum sem jafnast á túnið. Við Bútæknideild er nú unnið að mælingum á spennu í rafgirðingum auk ýmissa annarra verkefna í samvinnu við ýmsa aðila. Bændaskólinn hefur undanfarin ár gefið út íjölrit með niðurstöðum tilraunanna og var það á fundar- degi í lokafrágangi. - D.J. í HVAÐA VEÐRISEMER Með Meco þarftu ekki að hafa áhyggjur af veðrinu, það er alltaf hægt að grilla. t \ Hönnun MECO: Loftflæðið gerir Meco að frábæru útigrilli: • Það sparar kolin. • Brennur sjaldnar við. • Hægt er að hækka og lækka grindina frá glóðinni. • Tekur styttri tíma að grilla og maturinn verður safaríkari og betri. • Auðveld þrif. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SIMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 (/a) ttoUK, SveáyaKÉegtA i somkí/ujum, vmmmm fyrir steinsteypu. Léttir meðfærilegir viöhaldslitlir. Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0 Ármúla 29, Reykjavik, sími 38640 /Adlo/hi Verð frá kr. 37.500.- / 2 vikur, 2 fullorðnirog 2 börn Verð frá kr. 55.600.- / 2 vikur, 2 ístúdíói /Móu ' Verð frá kr. 43.450,- í 3 vikur, 2 fullorðnir og 2 börn 2-11 ára Verð frá kr. 59.800.- í3 vikur, 2 ístúdíói BROTTFARARDAGAR: 26. maí 9. júlí 20. ágúst 4. júní 16. júlí 27. ágúst 11. júní 23. júlí 3- september 18. júní 30. júlí 10. september 25- júní 6. ágúst 17. september 2. júlí 13. ágúst BROTTFARARDAGAR: (ntMtw .1 FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMAR 28388 - 28580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.