Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 25

Morgunblaðið - 15.05.1991, Page 25
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAI 1991 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991 25 3lfor0ii9siM$Mfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 100 kr. eintakið. Sumarþmg - kær- komið tækifæri fyrir nýia ríkisstiórn Sumarþing heyra til undan- tekninga. Síðast var sumar- þing sett árið 1974 — á Þingvöllum — til að minnast ellefu alda Is- landsbyggðar. Meginverkefni þess þings, sem sett var í fyrradag, er að staðfesta stjórnarskrárbreyt- ingu, þess efnis, að Alþingi starfí framvegis í einni málstofu, með og ásamt tilheyrandi breytingu á þingsköpum. Ekki var gert ráð fyrir að þetta sumarþing tæki önnur mál til um- fjöllunar. Stjómarandstaðan gerði hins vegar kröfu um að Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytti Alþingi stefnuræðu nýrrar ríkis- stjómar. „Það segir reyndar í lög- um að leggja beri fram stefnu- skrárræðu innan hálfs mánaðar frá því að þing kemur saman,“ sagði forsætisráðherra í viðtali við Morg- unblaðið í gær, „en það er viður- kennt að þar er átt við hefðbundið þing sem kemur saman að hausti, en ekki takmarkað aukaþing sem stendur í stuttan tíma og er um afmarkaða þætti.“ Engu að síður brást forsætisráð- þerra á þann hátt við tilmælum stjómarandstöðunnar að stefnu- ræðan verður flutt næstkomandi þriðjudag og þá fer fram umræða um hana. í ljósi þeirra upplýsinga, sem ný ríkisstjórn hefur lagt fram um stöðu ríkisfjármála og viðskiln-. að fyrri stjómar, er heldur ekki óeðlilegt, að umræður fari fram á Alþingi um þau málefni. Að því leyti er þinghaldið nú kærkomið tækifæri fyrir stjómarflokkanna til þess að leggja fyrir þing og þjóð ítarlegar upplýsingar um stöðu mála og tillögur til úrlausn- ar. Ekki er líklegt að þingmenn standi fyrir miklum málatilbúnaði á sumarþinginu. Hitt er svo annað mál, að það er illskiljanlegt hvað ríkisstjóm hveiju sinni leggur mikla áherzlu á að ljúka þingstörf- um á tilteknum tíma og senda þingið heim. Alþingismenn eru á fullum launum allt árið um kring og engin ástæða til annars en þing- ið sitji þann tíma, sem nauðsynleg- ur er til þess að umræður geti far- ið fram um veigamestu mál, sem á döfínni eru. Það skiptir þó ekki meginmáli, hvern veg stjórnárliðar og stjórnar- andstaða haga störfum á sumar- þingi. Mergurinn málsins er, að ríkisstjómin fái það svigrúm, sem hún þarf, til vandaðs málatilbúnað- ar — í samrætni við stefnuyfírlýs- ingu sína, og til að bregðast við þeim brýna vanda, sem við henni blasir, bæði í ríkis- og þjóðarbú- skapnum. Ríkisstjórnin þarf að fá svigrúm til að skipuleggja störf sín. Meða! annars og ekki sízt til að „tryggja stöðugleika í efnahagslífinu og sáttagjörð um sanngjöm laun“, eins og segir í stefnuyfirlýsingu hennar; og til að „ijúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun í at- vinnulífínu, sem skili sér í bættum lífskjörum“. Fyrsta skrefið að því marki er að hemja ríkisútgjöld innan eðli- legra marka, til dæmis sem hlut- fall af þjóðartekjum. Annað skref er að búa íslenzkum atvinnuvegum rekstrarlega jafnstöðu við sam- keppnisgreinar í grannríkjum; sem og að fylgja eftir áformum um nýtt álver. Eða með öðrum orðum að örva efnahagslegar framfarir, það er að auka svo verðmætasköp- un í þjóðarbúskapnum að hún rísi undir sambærilegum lífskjörum hér á landi og í grannríkjum. Stórt skref til umhverf- isverndar að fer ekki á milli mála að með opnun hinnar nýju mót- töku- og flokkunarstöðvar Sorpu í Gufunesi var stigið stórt skref til umhverfisverndar. Sorpeyðing höf- uðborgarsvæðisins er í eigu allra sveitarfélaga á svæðinu og þjónar 57% landsmanna, sem og um- fangsmikilli atvinnustarfsemi. Með þessu skrefi hafa sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu sýnt lofsvert framtak og frumkvæði. Aætlað er að atvinnustarfsemi á höfuðborgarsvæðinu skili árlega um 70 þúsund tonnum af hvers kyns úrgangi — eða um 60% þess heildarmagns sem til fellur. Þáttur fyrirtækjanna í þessari nýju skipan er því mjög mikilvægur. í frétta- bréfi Félags íslenzkra iðnrekenda, A döfínni, er á það bent að margt er hægt að gera til að draga úr úrgangi frá atvinnurekstri. „Mörg dæmi eru þess erlendis frá,“ segir þar, „að átak innan fyrirtækja varðandi úrgang og notkun spilli- efna hafí leitt til spamaðar fremur en aukins kostnaðar." Stóraukin byggð og vaxandi og atvinnustarfsemi á höfuðborgar- svæðinu krefst aukins aðhalds og varúðar í sambýli við umhverfið og lffríki þess. Astæða er til að hvetja bæði heimili og fyrirtæki til að virða vel þær nýju reglur, sem fylgja breyttri sorphirðu. Með sam- átaki geta heimilin, fyrirtækin og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu vísað farsælan veg í umhverfis- vernd — inn í framtíðina. Frá aðalfundi Vinnuveitendasambands íslands á Hótel Sögu í gær. Morgunbiaðið/Þorkeii Aðalfundur Vinnuveitendasambands íslands: Stöðug'leikinn verði tekiiin umfram önnur markmið Á AÐALFUNDI Vinnuveitenda- kaupmáttur hafi farið vaxandi að meiri en á liðnu ári. Bati i viðskip- sambands íslands í gær var sam- undanförnu og ætla megi, að á takjörum hafi gengið eftir og þykkt ályktun þar sem segir að þessu ári verði hann allt að 2% gott betur. „Reynist sá bati varan- legur eru þar efni til endurnýjun- ar kjarasamninga með stígandi kaupmætti við stöðugt verðlag og það þrátt fyrir þá efnahagslegu stöðnun sem einkennir þjóðarbú- skap íslendinga," segir í ályktun- inni. í ályktun aðalfundarins er lögð áhersla á áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum umfram önnur markmið og því verði kjarasamning- ar í haust að grundvallast á af- rakstri atvinnulífs, • stöðugu gengi og að verðlagsbreytingar fari ekki umfram það sem gerist í nálægum ríkjum. Segir í álytkuninni að opinberir aðilar verði að sníða útgjöld að tekj- um. Taumlaus útgáfa ríkistryggðra skuldabréfa, einkum húsbréfa hafí nú knúið fram hækkun vaxta á al- mennum lánamarkaði sem dragi úr fjárfestingu og nýsköpun í atvinn- ulífinu. „Niðurskurður opinberra útgjalda þarf ekki að felast í samdrætti opin- berrar þjónustu, né þess öryggis, sem velferðarkerfið veitir. Kostnaði má hins vegar halda í skeijum með aukinni hagkvæmni, kostnaðarað- haldi og samkeppni," segir í ályktun VSÍ. Segir þar ennfremur að stjómvöld hljóti að kosta kapps um að auka kostnaðarvitund í opinberum rekstri og grynnka á skuldum hins opinbera með því m.a. að selja opinber fyrir- tæki og banka á markaði. Á aðalfundinum var Einar Oddur Kristjánsson endurkjörinn formaður Vinnuveitendasambandsins. Einar Oddur Krisljánsson á aðalfundi VSÍ: Breytingar á tekjuhlutföllum verða ekki við samnmgaborðið Segist treysta því að launþegar komi til samninga af ábyrgð og alvöru EINAR OddHr Kristjánsson, formaður Vinnuveitcndasambands íslands, sagði á aðalfundi sambandsins í gær, að aðeins væru tvær leiðir færar til að bæta kjör hinna lægst launuðu. Annars vegar að bæta almennan hag landsmanna, til að auka það sem væri til skiptanna og hins vegar með almennu líknar og mannúðarstarfi einstaklinga og samtaka þeirra. „Breytingar á launum milli einstakra launþegahópa eiga sér því ekki stað við samningaborðið, heldur verður farvegur þeirra að iiggja inni í fyrirtækjunum sjálfum, með vinnurannsóknum, með hagræðingu og hvers kyns betrumbótum á vinnutilhögun og stjórnun," sagði Einar. Einar fullyrti að í haust yrðu gerð- ir kjarasamningar við launþega sem yrðu í öllum megin atriðum eins og núgildandi samningar. „Það er engin ástæða til annars en að trúa því og treysta að íslenskir launþegar komi til næstu samninga af ábyrgð og alvöru," sagði hann. Sagði Einar að afram ætti að leita að heildarlausnum í samraði og sam- vinnu við launþegahreyfingarnar en við slíka samningsgerð gegndi ríkis- valdið lykilhlutverki. „Hvað biðja aðilar vinnumarkaðarins ríkisvaldið að tryggja? Sú beiðni verður ein og skýr: Aframhaldandi stöðugleika efnahagslífsins, áframhaldandi fast- gengi krónunnar - að ísland verði verðbólgulaust land,“sagði Einár. „Samningarnir á haustinu verða án efa erfiðir, en um þá ætla ég aðeins að fullyrða einn hlut: Þeim mun lægri krónutöluhækkanir sem um verður samið, því meiri líkur á því að samn- ingamir leiði til bættra kjara,“ sagði hann. Finna nothæfa leið í samningum við sjómenn Einar sagði í ræðu sinni að með nýjum kjarasamningi við flugmenn hefðu allar starfsstéttir þjóðfélagsins af fúsum og fijálsum vilja, gengist undir markmið febrúarsamkomu- lagsins frá síðasta ári. Á því væru þó tvær veigamiklar undantekning- ar. Annars vegar væru sjómenn sem hefðu kunnað að nýta sér hækkun fiskverðs og gengið á lagið til að krefjast kauphækkana. „Því miður hafa einstaka skipshafnir gerst of- farar, gerst skiptökumenn og hrein- lega kúgað eigendur skipanna til að hækka fiskverð umfram það sem eigendurnir töldu rétt og skynsam- legt. Til allrar hamingju er hér um undantekningartilvik að ræða, en eigi að síður er það stórkostlega al- varlegt og algjörlega óviðunandi. Atvinnurekendur í sjávarútvegi verða að finna nothæfa leið til að semja við sjómenn um kaup þeirra og kjör. Það er alveg víst að aðrar starfstéttir þessa lands geta ekki og munu ekki sætta sig við að sjómenn einir fái ríflegar kjarabætur en aðrir ekki,“ sagði Einar. Hinn hópurinn sem ekki hefði gengist undir febrúarsamkomulagið sagði Einar vera félagsmenn BHMR. Sagði hann ekkert launungarmál að VSI hefði beitt sér af alefli fyrir því að lögin á BHMR voru sett. „Ef þetta eða eitthvað svipað á eftir að end- urtakast, verða viðbrögð Vinnuveit- endasambandsins örugglega nákæmlega þau sömu,“ sagði'hann. Falskar væntingar Einar sagði margt hafa farið úr- skeiðis að undanfömu enda hefðu kosningaár löngum reynst ógæfuár í íslenskri hagsögu. Sparnaður í þjóð- félaginu hefði minnkað og innflutn- ingur aukist og vænti þjóðin nú mjög batnandi kjara. „Eitt er þó allra verst í þessum væntingum um betri kjör en það eru þessar hástemmdu yfirlýs- ingar stjórnmálaflokkanna, Iaun- þegahreyfinganna og fjölmiðla, að nú skuli sem aldrei fyrr snúa sér að því að hækka laun hinna lægst laun- uðu. Þetta er hörmulegast fyrir þær sakir að enginn meinar neitt með þessu tali nú frekar en áður. Fyrir þessu liggja skjalfestar sannanir. Enginn hópur launþega er tilbúinn til þess í reynd að samþykkja að Morgunblaðið/Þorkell Einar Oddur Kristjánsson. annar hópur, sem er Iægra launaður fái meiri kauphækkanir en þeir sjálf- ir,“ sagði Einar. Sagði hann einnig að í tilefni af umræðu um að auðveldlega megi bæta kjör hinna lægst launuðu með skattabreytingum mætti rifja upp, að á síðustu tíu árum hefði löggjaf- inn gert mjög mikið í þá veru. I sum- um tilfellum væri jaðarskattur fólks kominn upp í 62%. „Þetta er vanda- mál sem þjóðirnar í kringum okkur hafa lent í og eru að leitast við að koma sér út úr. Hvað svo sem allri umræðu um „réttlætið" líður, hef ég efasemdir um að tekjuhlutföllum á íslandi verði breytt svo einhveiju nemi. Nema þá á mjög löngum tíma í hægri þróun,“ sagði hann. Veija verðgildi krónunnar Einar sagði að það markmið febrú- arsamninganna að stöðva kaupmátt- arhrap hefði tekist og gott betur þvl nú benti margt til að kaupmáttur taxtakaups verði 2% hærri á þessu ári en því síðasta. „Þeir möguleikar sem við eigum eru, að auka hér kaup- mátt um þetta eitt og hájft til tvö prósent á ári.“ Sagði hann að stöðug- leikapólitíkin hefði það eitt aðal- markmið, að veija verðgildi krónunn- ar. Staða atvinnurekstrar væri veik og íslensk fyrirtæki byggju flest við slæma eiginfjárstöðu en atinnurekst- urinn stæði þó frammi fyrir stórauk- inni samkeppni á næstu árum, hvetj- ir svo sem samningar við ríki Evrópu kynnu að verða. Um markmið kjarasamninganna í haust sagði Einar m.a.: „Ef við náum ekki að bæta kjör hins dugmikla al- menna launþega, þá er í fyrsta lagi fjarstæða að tala um að bæta kjör þeirra sem sjúkir eru og sorgmæddir eða á einhvern hátt veikburða. í öðru lagi er þá eins víst að þeir munu flýja íslenskan vinnumarkað, þeir dug- mestu og viljugustu í þjóðfélaginu, þá megum við síst missa.“ Sagði hann að aðilar vinnumarkaðar yrðu að vinna að því sameiginlega og með atfylgi ríkisins að bæta kjör launþega og hag atvinnufyrirtækjanna. Kvaðst hann ekki vantreysta verkalýðs- hreyfingunni því hún hefði staðið með vinnuveitendum eins og klettur í gegnum þykkt og þunnt. Barátta gegn svartri atvinnustarfsemi í lok ræðu sinnar vék Einar að þeirri spurningu hvort vinnuveitend- ur væru trúverðugir í augum við- semjenda sinna. „Það er ekki sjálf- gefið að svarið sé „Já.“ Það er eitt öðru fremur, sem ég held að bæði særi og æri heiðvirt launafólk, en það er að horfa upp á fólk sem virð- ist fátt skorta af veraldargæðum, en borgar þó enga skatta og lætur sem það hafi litlar tekjur. Margir setja samasemmerki milli slíks fólks og vinnuveitenda. Þó það sé mjög ósann- gjarnt. Samtök atvinnurekenda hafa á liðnum árum ekki tekið upp sér- staka baráttu gegn svartri atvinnu- starfsemi og nótulausum viðskiptum. Það eigum við að gera. Þessir aðilar veita atvinnustarfseminni í landinu, sem fylgir lögum og reglum, greiðir skatta og skyldur, mjög óheiðarlega samkeppni," sagði Einar. Yfirlýsing ráðherrafundar EB og EFTA í Brussel: Tryggja þarf heildaijafnvægi ábata, réttínda og skyldna HÉR fer á eftir í opinberri þýð- ingu sameiginleg yfirlýsing ráð- herrafundar Evrópubandalags- ins og Fríverslunarbandalags Evrópu í Brussel 13. maí sl.: 1. Ráðherrar aðildarríkja og framkvæmdastjórnar Evrópubanda- lagsins og ráðherrkr ríkja Fríversl- unarsamtaka Evrópu og Liechten- stein komu saman til fundar í Bruss- el 13. maí 1991. 2. Af hálfu Evrópubandalagsins var fundi stýrt af Jacques Poos, utanríkisráðherra Lúxemborgar og formanni EB-ráðsins, en' af hálfu EFTA-landanna af Wolfgang Sc- hussei, efnahagsmálaráðherra Austurríkis og formanni EFTA- ráðsins. Fulltrúi framkvæmda- stjórnar Evrópubandalagsins á fundinum var Frans Andriessen, varaforseti hennar. Georg Reisch, aðalframkvæmdastjóri EFTA, sat einnig fundinn. 2. a. Ráðherrar staðfestu þann ásetning sinn að leiða til lykta við- ræður um víðtækan EES-samning á jafnréttisgrundvelli fyrir sumar, sem skyldi tryggja gagnkvæma hagsmuni samningsaðilanna til hins ýtrasta en ná jafnframt til allra þátta samstarfs þeirra og tryggja jafnvægi þess. 3. Eftir að hvor aðili um sig hafði gefið skýrslu um samningastöðuna lýstu þeir ánægju með þann veru- lega árangur sem náðst hefur í samningaviðræðunum frá því að þeir hittust síðast í desember 1990. 4. Þeir tóku fram að samkomulag hefði náðst um fjölmarga mikilvæga þætti EES-samnings og komust að þeirri niðurstöðu að leiðir virtust færar til úrlausnar á þeim atriðum sem enn væru eftir. Þeir minntu á að lokasamningur hlyti að byggjast á því að viðunandi lausn fyrir samn- ingsaðila fengist á öllum þeim svið- um sem viðræðurnar ná til, jafnt varðandi efnisatriði sem stofnana- hliðar. Einnig þyrfti að tryggja heildaijafnvægi ábata, réttinda og skyldna. Þeir hvöttu samningamenn sína til að draga ekki af sér í leit- inni að leiðum til úrlausnar þeirra mála sem enn eru ófrágengin. 5. Með vísan til þeirra atriða sem talin ei-u upp i sameiginlegri yfirlýs- ingu 19. desember 1990 minntust þeir á eftirfarandi atriði þar sem þróun hefur átt sér stað. 6. Þeir fögnuðu þeim árangri sem náðst hefur við skilgreiningu lausn- ar á rekstrarvanda kerfis sem tryggt gæti jöfn samkeppnisskilyrði um allt EES, þar með talið að því er varðar ríkisstyrki. Þeir tóku fram að dregið hefði saman með samn- ingsaðilum við að skilgreina í megin- atriðum verkaskiptingu og samstarf milli framkvæmdastjórnar EB ann- ars vegar og sjálfstæðrar EFTA- stofnunar sem hefði samsvarandi umboð og svipað hiutverk og fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins hins vegar. Þeir hvöttu samninga- menn sína til að leiða samninga til lykta eins fljótt og auðið yrði, þar með talið um nánari útfærslu þess hvernig skipta mætti málum milli stofnananna tveggja sem og um hlutverk dómstóls. 7. Þátttakendur fögnuðu því að samkomulag hefði náðst um raun-. hæfar lausnir sem tryggðu jafnt örugga vernd á sviði heilbrigðis-, öryggis- og umhverfismála sam- hliða fríverslun. Þetta mun tryggja að þorri viðeigandi samþykkta Evr- ópubandalagsins kemur að fullu til framkvæmda innan EFTA-landa frá 1. janúar 1993. Á tilteknum öðrum sviðum verður hindrunum aflétt inn- an EES frá 1. janúar 1993 á grund- velli samþykkta Evrópubandalags- ins þó löggjöf einstakra EFTA-landa geti gilt á aðlögunartíma. Sam- komulag náðist um að aflétta hindr- unum í viðskiptum með vélknúin ökutæki frá 1.1. 1995 á grundvelli samþykkta Evrópubandalagsins. EFTA-lönd geta þó haldið eigin lög- gjöf þar til lagðar hafa verið fram nýjar bandalagsreglur sem farið verður með samkvæmt því verklagi sem tilgreint verður í samningnuni. Fyrir vissar afurðir (þ.e. áburð sem inniheldur kadmium, CFC, Halons) hefur verið samþykkt ótímabundið aðlögunartímabil sem tekið verður til endurskoðunar 1995. Þau svið sem enn bíða úrlausnar varða nú aðeins hættuleg efni, tilbúin efni og lausnir og meindýraeitur. Samningamenn eru hvattir til þess að starfa enn að lausn þessara mála. 8. Að því er varðar önnur atriði vöruviðskipta tóku þátttakendur fram að góður árangur hefði náðst um opinber útboð, skaðsemisábyrgð, prófanir, vottorð og EB-merki, liug- verkaréttindi. Samningurinn mun fela í sér aukið samstarf í tollamálum og bættar og einfaldaðar uppruna- regiur. Innan ramma samningsins verður unnið að frekari umbótum. 9. Ennfremur var til þess tekið að sá árangur hefði náðst að báðir aðil- ar samþykkja að stál skuli falla und- ir EES-samninginn að svo miklu leyti sem ákvæði tvíhliða fríverslun- arsamninganna um vörur Kola- og stálbandalagsins gilda ekki, en þau ákvæði verða áfram í fullu gildi. Frekari árangur hefur náðst á orku- sviðinu þar sem samkomulag er um að samningurinn skuli taka til hluta af samþykktum Evrópubandalagsins. Ræða þarf frekar þær samþykktir Evrópubandalagsins sem kveða á um framboðsörðugleika. 10. Þeir fögnuðu ennfremur því samkomulagi sem náðst hefur i tengslum við hindrunarlausa fjár- magnsflutninga og þjónustuviðskipti. EFTA-löndin munu taka upp viðeig- andi samþykktir Evrópubandalagsins frá 1. janúar 1993 með þeim undan- tekningum þó að um vissa þætti munu gilda aðlögunartímabil. Þau EFTA-ríki sem í hlut eiga munu beita núgildandi löggjöf sinni um fjár- magnsflutninga fijálslega á aðlögun- artíma. Athuga verður nánar út- varpstilskipun Evrópubandalagsins. Ennfremur fögnuðu þeir samkomu- lagi sem náðst hefur um drög að samstarfi á sviði efnahags- og gjald- eyrismála. 11. Þeir tóku fram að frekari ár- angur hefur náðst á flutningasviðinu sem skiptir höfuðmáli innan EES vegna tengsla við frjáls vöru- og þjón- ustuviðskipti. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að finna þyrfti víðtæka lausn um flutninga. Þeir hvöttu samningamenn sína til að ljúka þeim tvíhliða viðræðum sem nú eiga sér stað gegnum flutninga sem fyrst og hafa í huga sérstök hagsmunamál nokkurra jaðarsvæða EES. 12. Enn er starf óunnið varðandi búsetu- og atvinnuréttindi. 13. Þeir tóku fram að samkomulag hefði náðst um það að á nokkrum sviðum almenns eðlis þar sem sam- þykktir bandalagsins verða teknar upp af EFTA-löndunum (félagarétt- ur, félagsmálastefna, umhverfís- stefna) munu almennt gilda aðlög- unaríímabil I allt að tvö ár. Þeir fögnuðu því samkomulagi sem náðst hefur til að styrkja og breikka samstarf utan hins fjórþætta frelsis Ö'aðarverkefni) innan ramma starf- semi Evrópubandalagsins, t.d. á sviði rannsókna og þróunar, þar með talin upplýsingaþjónusta, umhverfísmála, menntunarmála, þjálfunar og æsku- lýðsmála, félagsmálastefnu, neyt- endaverndar, lítilla og meðalstórra fyrirtækja, ferðamála og sjónvarps að svo miklu leyti sem þessi málefni falla ekki undir aðra hluta samnings- ins. Þeir tóku fram að nú hefði veru- lega dregið úr ágreiningi um þá þætti sem ættu að verða hluti af EES-samningi til þess að tryggja traustan lagagrundvöll fyrir víðtækt og kraftmikið samstarf. Þeir hvöttu samningamenn sína til að starfa enn að lausn þeirra ör- fáu mála sem enn bíða úrlausnar. 14. Þátttakendur tóku til þess árangurs sem náðst hefur á landbún- aðarsviðinu. Þeir staðfestu þann ásetning sinn að draga úr hömlum á viðskiptum með landbúnaðarafurð- ir innan EES í samræmi við landbún- aðarstefnu hvers lands fyrir sig. Sérstakt þróunarákvæði verður hluti af EES-samningnum. Ennfremur munu EFTA-löndin afnema eða draga úr innflutningsgjöldum frá 1.1. 1993 á afurðum sem skipta miður þróUð svæði innan Evrópu- bandalagsins sérstöku máli. Sérstak- lega verður unnið að því marki að afnema viðskiptahindranir af völdum reglugerða um heilbrigði dýra og jurta. Að því er hið síðastnefnda varðar munu EFTA-löndin taka yfir að svo miklu leyti sem unnt er sam- þykktir Evrópubandalagsins. Enn- fremur verða gerðar raunhæfar ráð- stafanir frá 1.1. 1993 í formi gagn- kvæmra tvíhliða samninga milli Evr- ópubandalagsins og EFTA-landanna innan EES-ramma. Loks verður greitt fyrir viðskiptum með unnar landbúnaðarafurðir. Þeir samþykktu að halda yrði áfram samningavið- ræðum um þessa þætti og leiða þær til lykta sem fyrst með tilliti til þess hversu þungt landbúnaðargeirinn vegur við að tryggja jafnvægi í samningnum en einnig sem þáttur í því að draga úr svæðisbundnu, fé- lagslegu og efnahagslegu misræmi. 15. Þeir minntu á að sjávarútveg- ur væri jafnmikilvægur þáttur EES- samnings og lögðu á það áherslu að biýnt væri að herða róðurinn við samningaviðræður til þess að ná fram lausn sem gæti sameinað á viðunandi hátt hagsmuni beggja hliða fyrir lok samningaviðræðn- anna. Að því er sjávarútveg varðar vísa ráðherrar sérstaklega til fjórðu greinar þessarar yfirlýsingar þar sem sagt er að lokasamkomulag fari eftir því hvort lausn fáist um alla þætti samningaviðræðnanna sem sé viðunandi fyrir hvern um sig; að lok- um verður að nást heildaijafnvægi ábata, réttinda og skyldna fyrir sér- hvern samningsaðila. 16. Brýnt er ennfremur að vinna að því að finna leiðir til að ná því mikilvæga markmiði að draga úr svæðisbundnu efnahagslegu og fé- lagslegu misræmi. Þetta markmið er nauðsynlegt til þess að ná viðun- andi jafnvægi í EES-samningi. Þeir tóku til þess að Evrópubandalagið hefur lagt fram beiðiji um að sett verði á stofn fjárhagsstofnun sem muni beita sér á viðeigandi hátt til þess að ná þessu markmiði og til þess að EFTA-löndin eru reiðubúin að athuga þetta. Ganga þarf nú frá framkvæmdaatriðum. 17. Að því er varðar laga- og stofnanahliðar ítrekuðu þátttakend- ur þær meginreglur sem settar voru fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá 19. desember 1990. Þeir töldu að starfhæfar stofnanalausnir þyrftu að nást til að ná sem mestu réttar- samræmi innan evrópsks efnahags- svæðis án þess þó að stefna í voða hvorki sjálfræði samningsaðila við ákvarðanatöku, sameiningarferli Evrópubandalagsins né séreðli EB- löggjafar. Hafandi þetta í huga tóku þeir sérstaklega fyrir eftirfarandi atriði: 18. Þeir voru sammála um nauð- syn þess að samningurinn skyldi hafa að geyma almennt öryggis- ákvæði sem hægt væri að beita í hvert skipti sem alvarleg efnahags- leg þjóðfélags- og/eða umhverfis- vandamál í atvinnugrein eða í héraði væru að koma upp. Samningsaðilar gætu með einhliða yfirlýsingum, sem milliríkjaráðstefna bókaði, komið á framfæri því sem þau vildu um mög- ulega beitingu þessa almenna örygg- isákvæðis. Þeir staðfestu einnig þau atriði varðandi þetta sem tekin voru frarn í sameiginlegu yfirlýsingunni frá 19. desember 1990. 19. Þeir lögðu einnig áherslu á mikilvægi þessa að tryggja hið fyllsta réttarsamræmi. Til þess að ná því markmiði þyrfti að þróa á þeim sviðum sem snertu evrópskt "* efnahagssvæði stöðugt ferli upplýs- ingaskipta og samráðs samhliða lög- gjafarferli Evrópubandalagsins. Ennfremur þyrfti að gefa sérfræð- ingum EFTA-landanna kost á því að eiga hlut að máli að svo miklu leyti sem hægt er og eftir því hvaða svið er til umfjöllunar við vinnslu tillagna framkvæmdastjórnar tii nefnda EB. í þessu samhengi tóku þeir fram að þegar framkvæmda- stjóm undirbýr tillögur sínar mun hún leita til sérfræðinga EFTA-land- anna á sama hátt og til sérfræðinga aðildarríkjanna. Einnig tóku þeir fram að hægt væri að ræða raunhæf- ar lausnir fyrir tiltekin sérstök vand- „ amál og ennfremur að staða EFTA- landanna í nefndum sem varða jaðar- verkefni mundi að fullu mótast af ■ mögulegri fjárhagslegri þátttöku þeirra í viðeigandi verkefnum.1 20. Þeir minntu á að ákvarðanir í evrópsku efnahagssvæði væru teknar samhljóða af Evrópubanda- laginu annars vegar og EFTA-lönd- unum með einum rómi hins vegar og minntu á að kæmu upp alvarleg og umfangsmikii vandkvæði á þeim sviðum sem heyra undir þjóðþing EFTA-landanna þá yrðu þau vand- kvæði tekin til athugunar af sameig- inlegu nefndinni. Hún mundi fyrst af öliu reyna að finna viðunandi lausn fyrir báða aðila sem gerði það kleift að halda öllum samningnum I gildi án þess þó að útiloka þann möguleika að grípa síðar, gerðist þess þörf, til almenns öryggisákvæð- is og gagnaðgerða í réttu hlutfalli. 21. Þátttakendur lögðu áherslu á nauðsyn þess að koma á innan evr- ópsks efnahagssvæðis skilvirku eft- irlitskerfi sem framkvæmdastjórn annaðist annars vegar en af hálfu EFTA stofnun sem starfaði á svipað- an hátt hins vegar. Þar þyrfti einnig sjálfstæður úrskurðaraðili að koma til. 22. Að því er varðar sjálfstæðan úrskurðaraðila verður að taka tillit til eftirfarandi meginreglna: — Tilefndir verða sjö dómarar frá EFTA-löndunum; — Settur verður á fót sjálfstæður EES-dómstóll en í honum munu sitja fimm dómarar frá Evrópudómstóln- um og þrír af EFTA-dómurunum sjö. Hann mundi starfa innan Evr- ópubandalagsdómstólsins og hafa umboð til að kveða upp úrskurði: • Varðandi lausn deilumála (þar með talið, þegar við á, túlkun EES- reglna) samkvæmt beiðni sameigin- legu nefndarinnar eða samningsaðil- anna. • varðandi deilur milli eftirlits- stofnunar EFTA og EFTA-lands. • varðandi mál sem fyrirtæki eða ríki taka upp gegn ákvörðunum EFTA-stofnunar á sviði samkeppni (þ.m.t. varðandi ríkisstyrki). — Styrkja verður réttarsamræmi innan EES með því að gera EFTA- löndum kleift að koma fyrir Evrópu- dómstólinn og með því að koma á verklagi svipuðu því sem starfrækt er á grundvelli Lugano-samningsins. 23. Þeir tóku fram að aðildarríki EFTA væru reiðubúin til þess að setja ákvæði í innri löggjöf sína f þá veru að regiur samningsins um evrópskt efnahagssvæði skuli hafa forgang í þeim tilfellum sem þær rekast á við Önnur ákvæði innri lög- gjafar þeirra. 1 Framkvæmdastjórn mun senda EFTA bréf til út- skýringar á framkvæmd þessarar greinar. Sjá yfirlýsingu utanríkisráð- herra Islands á blaðamanna- fundi í Brussel í gær, á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.