Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ .MIDVIKUDAGL'R 15. MAI 1991
Nýtt skólahús við MA:
Þrjár tillög-
ur skoðaðar
af dómnefnd
ÞRJÁR tillögur í samkeppni um
nýtt skólahús við Menntaskól-
ann á Akureyri verða skoðaðar
' gaumgæfilega af dómnefnd á
næstu dögum, en þær verða síð-
an lagðar fyrir skólanefnd eftir
um hálfan mánuð.
Efnt var til lokaðrar samkeppni
um skólahúsið, sem reisa á í
tengslum við Möðruvelli, raun-
greinahús menntaskólans. Fimm
arkitektar sendu inn þijár tillögur,
Fanney Hauksdóttir, þeir Finnur
Birgisson og Svanur Eiríksson
sameiginlega og Gísli Kristinsson
og Páll Tómasson sendu einnig inn
sameiginlega tillögu.
Húsið sem byggt verður á að
, tengjast Möðruvöllum, það verður
2.500 fermetrar að stærð og á að
rúma 10 kennslustofur, bókasafn
skólans og nýjan sal.
Tillögum í samkeppninni var
skilað á föstudag og hefur dóm-
nefnd hafið störf, en málið verður
lagt fyrir skólanefnd á fundi 28.
maí næstkomandi þar sem skorið
verður úr um hvaða tillaga verður
fyrir valinu.
Vortón-
leikar blás-
aradeilda
V ORTÓNLEIK AR blásara-
deilda Tónlistarskólans á
Akureyri verða haldnir í
íþróttaskemmunni á morgun,
fimmtudaginn 16. maí, og
hefjast þeir kl. 20.
A- B- C- og D-blásarasveitir
skólans leika fjölbreytta efnis-
skrá, m.a. verk eftir Mozart,
Beethoven, Sigvalda Kaldalóns,
Pál P. Pálsson, Trevor Ford og
Carl Orff. Kynnir á tónleikun-
um verður Jón Stefán Kristjáns-
son leikari og stjórnendur sveit-
anna eru Sveinn Sigurbjörns-
son, Ingvi V. Alfreðsson,
Christopher A. Thornton og
Roar Kvam.
Bíladagar
Framsækinn bíll
í fremstu röð,
sýndur í dag.
Isuzu Trooper.
_ — SAMBAND iSLBNSKRA SAMVINNUfÉLAGA
^©uUMJMJ
7U tiðs
Bílasalo
Þórshamars,
Glerárgötu 36,
Akureyri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
*
Is og aspir
íssalar eru eflaust kátir þessa góðviðrisdaga sem norðanmenn hafa
notið að undanförnu og hið sama má segja um Guðmund Grétar
sem var svo heppinn að fá ís í gönguferð um Innbæinn. En ekki
fá allir að virða heiminn fyrir sér sleikjandi ís í kerru. I gær unnu
starfsmenn umhverfisdeildar Akureyrarbæjar að því að flytja aspir
á flötina við Umferðarmiðstöðina þar sem þær munu væntanlega
setja svip sinn á umhverfið á næstu árum.
Fundur sambandsstjórnar VMSÍ:
Pólitísk öfl standi við loforð
um hækkun skattfrelsismarka
STJÓRN Verkamannasambands íslands telur að næsti kjarasamning-
ur sem gerður verður geti verið án timatakmarkana og byggður upp
á því að allir samningsaðilar taki ábyrgð á að standa um hann vörð.
Stjórnin telur óhjákvæmilegt að til komi sérstök hækkun lægstu
launa, en það verði meginmarkmið komandi kjarasamninga að auk
kaupmátt lægstu launanna og halda því jafnvægi sem febrúarsamm
ingurinn frá síðasta ári skapaði. Fundur sambandsstjórnar VMSÍ
var haldin á Akureyri í gær og fyrradag
Fundur sambandsstjórnar VMSÍ
telur að árangur sá sem febrúar-
samningur aðila vinnumarkaðarins
og þáverandi ríkisstjómar stefni að
hafí náðst í flestum meginmarkmið-
um. Aðeins eitt markmið samnings-
ins, hækkun kaupmáttar launa, og
þá fyrst og fremst hinna lægstu
eigi eftir að koma fram. Fundurinn
taldi þá reynslu sem þessi samn-
ingsgerð færði dýrmæta varðandi
það að halda verðbólgu í skefjum
og halda. aftur af kostnaðarhækk-
unum, sé um að almenn samstaða
í þjóðfélaginu. Fram kemur í drög-
um að ályktun, að þrátt fyrir að
einstökum hagsmunahópum hafi í
krafti stöðu sinnar í viðkvæmum
atvinnuvegum tekist að ganga út
fyrir launaramma samningsins hafi
það ekki breytt meginárangri samn-
ingsins.
Um markmið komandi samninga
segir í drögunum, að auka verði
kaupmátt lægstu launa og viðhalda
því efnahagslega jafnvægi sem
febrúarsamningurinn skapaði. Til
að það geti orðið þurfi að ganga
til margþættra aðgerða í skatta-
efnahags- atvinnu- og félagsmál-
um. Stefna verður að því að halda
uppi fullri atvinnu, leggja áherslu
á nýtingu orkulinda og uppbygg-
ingu orkufreks iðnaðar og endur-
skoða þarf núverandi fiksveiði-
stefnu. „Hækka þarf skattfrelsis-
mörk og verður eftir því gengið að
hin pólitísku öfl standi við loforð
sín í þeim efnum,“ segir í drögun-
um. Þar kemur einnig fram að tekj-
utengja þurfi barnabætur, taka upp
tekjutengdar húsnæðisbætur, efla
félagslega húsnæðiskerfið og
byggja a.m.k. 1000 íbúðir árlega,
lækka virðisaukaskatt af kjöti,
mjólk og fiski, veita auknu fjár-
magni ríkis og sveitarfélaga til upp-
byggingar dagheimila, jafna orku-
verð og húshitunarkostnað, leggja
á annað skattþrep á tekjur yfir 170
þús. skattleggja fjármagnstekjur,
afnema skattaívilnanir vegna hluta-
bréfakaupa og taka beri ákvörðun
um jöfnun lífeyrisréttinda allra
landsmanna.
„Óhjákvæmilegt er að til komi
sérstök hækkun lægstu launa. Sú
launahækkun verður að vera innan
þeirra markmiða sem samningar
setja varðandi efnahagslegt jafn-
vægi,“ segir í samþykkt fundarins.
Einnig að næsti kjarasamningur
gæti orðið án tímatakmarka og
byggður á því að allir samningsaðil-
ar, aðilar vinnumarkaðarins, sam-
tök bænda og ríki og sveitarfé-
laga taki ábyrgð á því að standa
vörð um markmið hans. Telji ein-
hver aðili slíks samnings að einn
eða fleiri ábyrgðaraðilar hans
Á árinu 1990 jukust innlán og
innistæðubréf Sparisjóðs Ólafs-
fjarðar úr 432.799 þúsund kr. í
563.846 þús. kr. eða um 30,3% en
hækkun lánskjaravísitölunnar var
17,15%. Útlán jukust um 19,2%.
Laust fé sparisjóðsins í sjóði og
óbundnum bankainnistæðum var
jákvætt um 21.111 þúsund kr. í
árslok. Á árinu störfuðu að meðal-
tali 6 manns hjá sparisjóðnum og
námu launagreiðslur samtals
11.740 þúsundum.
hafi hlaupið frá markmiðunum eða
rofið friðarskyldu samningsins geti
hann krafist viðræðna um ágrein-
inginn, en verði að öðru leyti frjálst
án samráðs við önnur heildarsam-
tök sem að honum standa, að lýsa
sig óbundinn af samningnum og
geti krafist viðræðna um endurnýj-
un hans.
Rekstrarhagnaður samkvæmt
rekstrarreikningi nemur 10.341
þúsund kr. og er hann færður til
hækkunar á varasjóði. Eigið fé í
árslok nemur 93.444 þúsund kr.
Eiginfjárhlutfall er 17,6% en sam-
kvæmt lögum má hlutfall ekki vera
lægra en 5% hjá sparisjóðum.
Sparisjóður Ólafsfjarðar er
sjálfseignarstofnun í eign Ólafs-
fjarðarbæjar. Sparisjóðsstjóri er
Þorsteinn Þorvaldsson.
SB
Ölafsfjarður:
Hagnaður Sparisjóðs-
ins 10 milljónir króna
Ólafsfirði.
AÐALFUNDUR Sparisjóðs Ólafsfjarðar var haldinn sl. föstudag.
Á fundinum kom fram að staða sjóðsins styrkist stöðugt. Hagnað-
ur nemur 10,3 milljónum króna og eigið fé sparisjóðsins er nú
93,5 milljónir króna.