Morgunblaðið - 15.05.1991, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIDVIKUÖAGUR 15. MAÍ 1991
29
Kosið verður í
utannkismála-
nefnd Alþingis
ALLT útlit er fyrir að kosið verði í utanríkismálanefnd sameinaðs
þings næstkomandi fimmtudag. Samkomulag var um að kjósa ekki
í fastanefndir þingsins á þessu vorþingi en stjórnarandstaðan tel-
ur nauðsyn á því að utanríkismálanefnd starfi vegna hinna mikil-
vægu viðræðna um evrópskt efnahagssvæði. Stjórnarliðar urðu
við tilmælum stjórnarandstæðinga.
Á því vorþingi sem nú stendur
yfir hefur verið gert ráð fyrir að
ekki yrði kosið í fastanefndir Al-
þingis, að frátalinni kjörbréfa-
nefnd. Til að afgreiða frumvarp
um breytingar á stjórnarskrá og
frumvarp til laga um þingsköp
Alþingis yrðu skipaðar sérstakar
nefndir. í samræmi við þessar
ráðagerðir leitaði Geir H. Haarde
(S-Rv) eftir því á öðrum fundi
sameinaðs þings í gær að leitað
yrði afbrigða frá þingsköpum fyrir
frestun á kosningu í fastanefndir
í sameinuðu þingi. Ólafur Ragnar
Grímsson (Áb-Rn) sagði að rætt
hefði verið um milli þingflokkanna
að kjör í fastanefndir færi ekki
fram. Ólafur Ragnar vildi hins
vegar láta koma fram að alþýðu-
bandalagsmenn teldu eðlilegt að
kjör í nefndir gæti farið fram, eft-
ir því sem þörf krefði á þessu
stutta þingi. Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins hefði fyrr um daginn
samþykkt að óska eftir því að
kosið yrði í utanríkismálanefnd hið
fyrsta og eigi síðar en á miðviku-
dag eða fímmtudag. Ólafur Ragn-
ar sagði nú standa yfir einar mikil-
vægustu viðræður sem um gæti á
starfssviði utanríkismálanefndar.
Viðræðumar milli Fríverslunar-
samtaka Evrópu, EFTA, og Efna-
hagsbandalagsins, EB, um evr-
ópskt efnahagssvæði. Þess var
einnig farið á leit að utanríkisráð-
herra gerði Alþingi strax og hann
kæmi til landsins grein fyrir þess-
um viðræðum og að umræður
gætu farið fram á þinginu. Ut-
anríkismálanefnd værí formlegur
ráðgefandi vettvangur fyrir ríkis-
stjórn og það væri óeðlilegt að hún
starfaði ekki nú þegar þessar við-
ræður stæðu yfir.
Jón Sigurðsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra sagðist myndu
koma tilmælum Ólafs Ragnars
Grímssonar á framfæri við ut-
anríkisráðherra og myndi beita sér
fyrir því að þinginu yrði gerð grein
fyrir þessum viðræðum svo skjótt
sem verða mætti.
Til nokkurra skoðanaskipta
kom milli þingmanna um hvaða
afgreiðslu tillaga Geirs H. Haarde
skyldi fá, með tilliti til óska alþýðu-
bandalagsmanna. Svavar Gests-
son (Ab-Rv) vildi að sérstaklega
yrði greitt atkvæði um hvort fresta
skyldi kosningu í utanríkismála-
nefndina.
Páll Pétursson (F-Nv) sagði
rétt vera að samkomulag hefði
verið gert um að fresta kosningu
í fastanefndir en jafnframt hefðu
verið gerðir fyrirvarar um að nauð-
synlegt gæti reynst að ræða evr-
ópska efnahagssvæðið. Páll lagði
til að afbrigði yrðu veitt til að
fresta kosningu í nefndir með því
fororði að forseti þingsins beitti
sér fyrir því að kjörið yrði í ut-
anríkismálanefnd á næsta fundi.
Anna Ólafsdóttir Björnson
(SK-Rn) taldi mörg mikilvæg rök
hníga til þess að draga það ekki
að kjósa í þessa þingnefnd og
ræða hið evrópska efnahagssvæði.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra tók til máls — í fyrsta sinn
á Alþingi. — í hans máli kom fram
að hann hefði átt viðræður við
formenn flokka og þingflokka til
þess að þinghaldið gæti orðið sem
skilvirkast. Forsætisráðherra
hvatti til þess að afbrigði yrðu
veitt til að.fresta kosningu í nefnd-
ir þingsins en jafnframt lýsti hann
því yfir að hann myndi beita sér
fyrir því kosið yrði í utanríkismála-
nefnd á fimmtudaginn og að fram
færi stutt umræða ef samþykkt
yrði um það efni sem menn hefðu
gert fyrirvara um að ræða þyrfti.
Svavar Gestsson (Ab-Rv) sagði
að með hliðsjón af yfirlýsingu for-
sætisráðherra myndi hann ekki
halda ósk sinni til streitu um að
sérstaklega yrði greitt atkvæði um
frestun kosningar í utanríkismála-
nefndina.
Sameinað þing samþykkti af-
brigði um frestun kosninga í
nefndir með 41 samhljóða at-
kvæði.
í fundarlok kom til smávægi-
legra orðaskipta millum Guðrún-
ar Helgadóttur (Ab-Rv) og Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra.
Guðrún sagði forsætisráðherra
hafa boðið í sinni jómfrúarræðu
uppá stutta umræðu, það væri
forseti þingsins sem ákvæði hvern-
ig umræður færu fram og lengd
þeirra færi eftir þingsköpum. For-
sætisráðherra sagðist telja sjálf-
gefíð að þingmönnum væri fijálst
að lýsa því yfir að þeir myndu
beita sér fyrir einu og öðru.
Að þessum öðrum fundi í sam-
einuðu þingi afloknum voru fundir
í þingdeildum og þar voru einnig
samþykkt afbrigði frá þingsköpum
um frestun á kosningu í nefndir
þingdeildanna.
—
Wx -- ' / .''
V .
k.
■
Nýkjörnir forsetar Alþingis. Matthías Bjarnason forseti neðri deildar, Salome Þorkelsdóttir forseti sam-
einaðs þings og Karl Steinar Guðnason forseti efri deildar.
Embættismenn Alþingis:
Salome Þorkelsdóttir
forseti sameinaðs þings
SALOME Þorkelsdóttir (S-Rn)
var kosin forseti sameinaðs
þings í gær. Salome er ekki með
öllu óreynd í þeirri íþrótt og
stjórnlist að stýra þingfundum
en hún var fyrri varaforseti
sameinaðs þings á siðasta þingi.
Fyrsta fundi sameinaðs þings
var framhaldið síðdegis í gær. Og
þá voru kosnir helstu enabættis-
menn Alþingis.
í sameinuðu þingi var Salome
Þorkelsdóttir (S-Rn) kjörin þing-
forseti, Jón Helgason (F-Sl) var
valinn fyrri varaforseti og Gunn-
laugur Stefánsson (A-Al) síðari
varaforseti. Skrifarar voru valdir,
Árni Mathiesen (S-Rn) og Val-
gerður Sverrisdóttir (F-Ne).
Að loknum fundi í sameinuðu
þingi voru fundir í þingdeildum
og kjömir forsetar og skrifarar
deildanna. Matthías Bjamason
(S-Vf) var kjörinn forseti neðri
deildar. Fyrri varforseti er Hjör-
leifur Guttormsson (Ab-Al) og
Össur Skarphéðinsson (A-Rv) er
hinn síðari. Gunnlaugur Stefáns-
son (A-Al) og Kristinn H. Gunn-
arsson (Ab-Vf) vom kjörnir til
skrifarastarfa.
Karl Steinar Guðnason (A-Rn)
var valinn forseti efri deildar.
Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) var
kjörin fyrri varaforseti og Egill
Jónsson (S-Al) hinn síðari. Lára
Margrét Ragnarsdóttir (S-Rv) og
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(SK-Vf) voru valdar sem skrifarar
deildarinnar.
Allir embættismenn voru kjöm-
ir mótatkvæðalítið, forseti samein-
aðs þings hlaut t.a.m. 50 at-
kvæði. Þess má geta að Karl Stein-
ar Guðnason hlaut eitt atkvæði
sem forseti neðri deildar. Það at-
kvæði var ógilt þar eð Karl Stein-
ar á sæti í efri deild og varð þar
fyrir valinu sem deildarforseti.
Stjómarskrá og þing-
sköp á dagskrá í dag
íf
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins
boðar til kynningarfunda um rannsóknir og nýjungar í fiskiðn-
aði. Fundirnir eru haldnir á vegum utibúanna á ísafirði, Akur-
eyri og Neskaupstað.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
Mánudaginn 13. maí kl. 20.00 á Hótel ísafirði.
Fimmtudaginn 16. maí kl. 20.00 í húsnæði sjávarútvegsdeild-
ar Háskólans á Akureyri við Glerárgötu.
Miðvikudaginn 22. maí kl. 20.00 í Egilsbúð á Neskaupstað.
Dagskrá fundanna verður sem hér segir:
20.00 Starfsemi útibúanna.
Á Isafirði: Ágústa Gísladóttir útibússtjóri.
Á Akureyri: Arnheiður Eyþórsdóttir útibússtjóri.
Á Neskaupstað: Þorsteinn Ingvarsson útibús-
stjóri.
20.15 Hverju skila rannsóknir í fiskiðnaði?
Grímur Valdimarsson, forstjóri.
20.30 Vannýttar fisktegundir.
Sigurjón Arason, deildarstjóri.
20.45 Betri nýting hrognkelsa.
Halldór Þórarinsson matvælaverkfræðingur.
21.00 Kaffihlé.
21.30 Umhverfismál í fiskiðnaði.
Stefán Einarsson, efnafræðingur.
21.45 Ný viðhorf í hreinlætismálum.
Hjörleifur Einarsson, örverufræðingur.
22.00 Hagræðing og þróun í frystihúsum. Hannes Árna-
son, verkfræðingur.
22.15 Þróun tilbúinna fiskrétta.
Guðmundur Stefánsson, deildarstjóri.
22.30 Almennar umræður
Útibússtjórar stýra fundunum.
FRUMVARPINU til sfjórnskip-
unarlaga um breytingu á stjórn-
arskránni og frumvarpi til laga
um þingsköp Alþingis var út-
býtt til þingmanna í gær og
verða til fyrstu umræðu í dag.
Stuttar þingfréttir
Kæru hafnað
Heimastjórnarsamtökin sendu
Alþingi kæru vegna meintra kosn-
ingaspjalla. Samtökin mótmæltu
m.a. fjárveitingu til kosningabar-
áttu flokka sem sæti áttu á þingi,
einnig var meintri mismunun í
umfjöllun ríkisfjölmiðlanna mót-
mælt. Alþingi barst einnig erindi
frá Flokki mannsins þar sem tekið
var undir þessar umkvartanir.
Þegar kjörbréf voru rannsökuð var
einnig fjallað um þessar ákærur.
Ekki voru talin efni til að taka
þessar umkvartanir til greina.
Meginverkefni þessa vorþings er
að afgreiða þessi tvö frumvörp.
Frumvarpið um breytingar á stjórn-
arskránni svo Alþingi geti framveg-
is starfað í einni málstofu var sam-
þykkt á síðasta þingi en til þess að
það öðlist lagagildi verður nýkjörið
þing að staðfesta það með sínu
samþykki. Samhliða stjórnarskrár-
frumvarpinu er nú lagt fram frum-
varp til Iaga um þingsköp Alþingis.
Frumvarpið um stjórnarskrárbreyt-
inguna er lagt fram í efri deild en
þingskapafrumvarpið í þeirri neðri.
Gert er ráð fyrir því að sérstakar
þingnefndir verði skipaðar til að
fjalla um þessi tvö frumvörp.
Halidór Mrorinsson Sigurjón Aroson Hjörleifur Einorsson Stefón Einorsson Þorsleinn Ingvorsson
ALLIR VELKOMNIR!