Morgunblaðið - 15.05.1991, Blaðsíða 31
MÖ'ábUNBLAÐÍÐ MIÐVlKUDÁGUR 15. MAÍ 1991 31
Nóra og náttúran
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó:
„White Palace“
Leikstjóri Luis Mandoki. Aðal-
leikendur James Spader, Susan
Sarandon, Eileen Brennan,
Kathy Baker, Rachel Levin.
Bandarísk. Univeisal 1990.
Hann, Max (Spader), er vel
menntaður spjátrungur í góðri
stöðu, af efnafólki í gyðingaelítu
St. Louisborgar. Gáfaður, reglu-
samur, þumbari, Volvomaður,
snyrtimenni. Dáir Brahms. Er í
lægð eftir að hafa misst unga og
fagra konu sína í bílslysi. Er 27 ára
og gæti verið yngri eftir útlitinu
að dæma.
Hún, Nóra (Sarandon), hefur
kannski klárað grunnskólann, er
gengilbeina á hamborgarabúlu, frá
uppflosnuðu heimili, nánustu vinir
vaktfélagamir. Býr í slömmhverf-
inu, Dogcity. Skynsöm, þykir gott
að fá sér neðan í því, eldhress, not-
ar almenningsvagna borgarinnar,
subba, dásamar The Oak Ridge
Boys. Nýbúin að missa einkasoninn
en reynir að láta það sem minnst
á sig fá. Er 43, ber höfuðið hátt,
kynþokkinn streymir frá henni.
Við fyrstu sýn virðast þessar
aðalpersónur hinnar ágætu White
Palace tæpast geta verið frábmgðn-
ari enda bakgrunnurinn eins ólíkur
og hugsast getur. En þau mætast
eins og skip á nóttu og viti menn,
slompdrukkinn liggur hann konuna.
Ekki nóg með það. Nóra státar
kannski ekki af mörgum akadem-
ískum prófum en í þeirri list að
njóta og veita unað undir værð-
arvoðum fengi hún A+, enda gamn-
ar hún lífslöngunina í Max að nýju
og verða með þeim samfarir góðar
um sinn. En ólíkt baksviðið hlýtur
að koma uppá milli þeirra fyrr en
síðar.
Það er góð tilfinning þá sjaldan
myndir koma þægilega á óvart og
White Palace telst einmitt til þeirra
sjaldséðu undantekninga. Hún er
afar manneskjuleg án þess að vera
væmin (svona allt að því ...), er
oftast bráðfyndin og eins skynsam-
leg og maður getur ætlast til miðað
við kringumstæðumar. Persónurn-
ar eru heilsteyptar og þar að auki
myndast óvenju sterkt, útgeislandi
samband á milli Spaders og Saran-
don. Ekki síst í einu besta ástarat-
lotasambandi sem sést hefur í háa
herrans tíð. Þessar senur hafa verið
hálfgerður Akkilesarhæll banda-
rískra kvikmyndagerðarmanna, oft-
ast ömurlega tilfmninga- og nátt-
úrulausar, að maður tali nú ekki
um hjá spílbergunum. Fyrsta ást-
arsenan er allt í senn; eðlileg, heit
og sterk, tilfinningarík, krydduð
gamansemi, sönn.
Að sjálfsögðu er White Palace
ein þeirra mynda sem maður kvíðir
óumflýjanlegu uppgjöri aðalpei-són-
anna en hér sleppa allir heilir fyrir
horn. Það má kannski segja sem
svo að hlaupið sé á nokkru hunda-
vaði hvað snertir hugarfarsbreyt-
ingu Spaders en það er gert á ein-
faldan hátt, flestir áhorfendur skilja
breytta afstöðu hans til þess inni-
haldslausa tilgerðarlífs sem hann
hefur lifað, plastumhverfís snobbs
og ofgnóttar sem hann hefur þrifist
í og yfírdrepsskap vinanna og mað-
ur tekur til fótanna með honum
eftir að hann hefur tekið sína ör-
lagaríku ákvörðun.
Mandoki, sá ágæti leikstjóri, er
snjall að blanda saman gamansemi
og tilfínningamálum. Það kom ljóst
fram I hans einu mynd til þessa,
hinni minnisstæðu Gaby - A Tive
Story. Við verðum að vísu að sam-
þykkja með sjálfum okkur að mynd-
in er nær ævintýrinu en raunveru-
leikanum, en leikur og öll efnismeð-
ferð er slík að það er auðvelt að
leiða þær hugsanir hjá sér. Þau
Sarandon og Spader fara með erfið
og krefjandi hlutverk og eru sem
sköpuð hvort fyrir annað (stundum
í orðsins fyllstu merkingu!) og gera
þessa makalausu sambúð trúverð-
uga. Sarandon er enn með kynþokk-
afyllstu konum kvikmyndatjaldsins
og enginn efast um leikhæfíleikana
(Atlantic City, Bull Durham, The
Witches of Eastwick, o.fl. o.fl.) og
Spader er að festa sig í sessi sem
einna álitlegasti ungi karlleikarinn
vestra. Þá er Brennan eftirminnileg
í litlu hlutverki ruglaðrar eldri syst-
ur Sarandon og Levin, sem er öllum
minnisstæð sem sáu hana í titilhlut-
verkinu í Gaby..., skapar hina
einu, sönnu, afskiptasömu og uppá-
þrengjandi gyðingastúlku. Skraut-
legt og einstakt, allt saman.
AUGLYSINGAR
Vörubílstjórafélagið
Þróttur
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Borg-
artúni, 33 fimmtudaginn 16. maí kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Atvinnumál.
3. Önnur mál.
Reikningarfélagsins liggja frammi á skrifstof-
unni. _ .
. Stjornm.
ÝMISLEGT
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavik, sími 678500
Félagsstarf aldraðra í
Reykjavík
Hinar árlegu sumarferðir ásamt orlofsferðum
að Löngumýri hafa verið skipulagðar og tíma-
settar.
Nánari upplýsingar birtast í Fréttabréfi um
málefni aldraðra, sem sent er öllum Reyk-
víkingum 67 ára og eldri.
Pantanir fara fram í Félags- og þjónustumið-
stöðinni, Bólstaðarhlíð 43, í símum 68 96 70
og 68 96 71 frá og með 14. maí nk. milli kl.
9.00 og 12.00.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Málverk
Finnur Jónsson, olía á striga 100x75 sm.
Úr Laugarnesi, Viðey, Akrafjall, 1919 merkt.
Upplýsingar í síma 26984.
Vísindastyrkir
Atlantshafsbandalagsins
1991
Atlantshafsbandalagið leggur árlega til fé af
mörkum til að styrkja unga vísindamenn til
rannsókna eða námsdvalar við erlendar
vísindastofnanir í aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins á einhverju eftirtalinna sviða:
Náttúruvísindum, líf- og læknisfræði, hug-
og félagsvísindum og verkfræði.
Umsóknum um styrki þessa, „NATO Science
Fellowships", skal komið til Vísindaráðs,
Bárugötu 3, 101 Reykjavík, fyrir 10. júní nk.
Þeim skulu fylgja staðfest afrit prófskírteina
og meðmæla, svo og upplýsingar um starfs-
feril og ritverkaskrá.
Umsóknareyðublöð fást hjá Vísindaráði,
Bárugötu 3. Afgreiðslutími þar er kl. 10-12
og kl. 14-16 daglega.
FÉLAGSSTARF
£ Aðalfundur
W ; Hugins
Aðalfundur Hugins verður haldinn miðvikudaginn 15. maí i Lyngási
12, Garðabæ kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning stjórnar.
Gestur fundarins mun halda lokaræðu. _... ,,
Stjórn Hugms.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
Sumartími
Frá 15. mai til 15. september verður skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
opin frá kl. 8.00 til 16.00 mánudaga til föstudaga.
Kópavogur- Kópavogur
Sjálfstæðiskvenna-
félagið Edda heldur
fund fimmtudaginn
16. maí kl. 20.30. í
Hamraborg 1, 3.
hæð. Dagskrá:
Kosning á landsþing
Landssambands
sjálfstæðiskvenna.
Gestir fundarins
verða Sigríður A.
Þóröardottir og Salome Þorkelsdóttir.
Eddukonur fjölmennið.
Stjómin.
i|lll|j||MBggll|»j|l s 1 auglýsingar
FFLAGSLÍF
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibliulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristiboðssamkoma
á Háaleitisbraut 58
í kvöld kl. 20.30. Ræöumenn
Lilja S. Kristjánsdóttir og Skúli
Svavarsson.
Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja
Kvöldmessa i kvöld, miðvikudag,
kl. 20.30. Sönghópurinn „Án
skilyrða" sér um tónlistarflutn-
ing. Þorvaldur Halldórsson préd-
ikar. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Fimmtudagskvöld 16.
maíkl. 20
Fuglaskoðun og sólarlags-
ganga á Álftanesi
Létt og Ijúf kvöldferð um strönd
Álftaness. Þeir, sem huga að
fuglum, fara hægar yfir (rútan
fylgir hópnum), en hinir lalla um
ströndina. Leiðbeinandi í fugla-
skoðun verður með. Tilvalið að
byrja í Feröafélagsferðum með
þessari göngu. Brottför frá BSl,
austanmegin (stansað m.a. á
Kópavogshálsi og v. Engidal.)
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 & 11798 19533
Opið hús - ferðakynn-
ing íkvöld
miðvikudagskvöldið 15.
maíkl. 20.30
Feröakynningin er í Sóknar-
salnum Skipholti 50a. Feröa-
nefnd kynnir m.a. Sólstööuferð
i Grimsey og Drangey, Vestfjarð-
arferð (Strandir - ísafjaröar-
djúp), Hornstrandaferðir, Laugar
- Þórsmörk, Kjalveg hinn forna,
miðsumaferð á Hálendið, Borg-
arfjörð eystri, Lónsöræfi, Vonar-
skarö - Kverkfjöll, kringum Kerl-
ingarfjöll, Þórsmörk, Land-
mannalaugar, Hveravellir o.m.fl.
spennandi. Einnig kynning á
hvítasunnuferðunum og utan-
landsferðum (Mt. Blanc, Jötun-
heimar í Noregi, Grænlandl).
Myndsýning og spjall um lengri
sem styttri ferðir sumarsins.
Ath. að þegar er mikið pantað
f sumarleyfisferðirnar. Glæsi-
legar kaffiveitingar í tilefni
sumarsins. Aðgangseyrir kr.
500 (kaffi og meðlæti innifalið).
Verðlisti yfir ferðirnar mun
liggja frammi. Allir velkomnir,
jafnt félagar sem aðrir. Gott
tækifæri til að kynnast nánar
ferðaáætlun sumarsins og til
að hitta væntanlega ferðafé-
laga. Eignist Ferðafélagsspilin
kr. 500 stk.
Ferðafélag íslands,
ferðir fyrir þig.
W ÚTIVIST
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVAR114606
Hvítasunnuferðir
17.-20. maí
holl hreyfing
- góður félagsskapur
Dansað í Básum um hvítasunnu
Það er tilvalið að fagna nýju
sumri á þessu óviðjafnanlega
svæði. Gönguferðir viö allra
hæfi, jafnt fjallageitur og þá,
sem eru að byrja í gönguferðum.
Góð gisting og hin ákjósanleg-
asta aðstaða i Útivistarskálun-
um Básum. Kvöldvökur, varðeld-
ur, gömlu dansarnir á pallinum
á laugardagskvöld. Fararstjóri
Björn Finnsson. Verð aðeins
6.100/6.700.
Skaftafell - Öræfasveit
Farið að Jökulsárlóni og í Múla-
gljúfur, gengiö í Morsárdal og
Bæjarstaðaskóg. Fararstjóri
Egill Pétursson.
Örætajökull
Hér býðst tækifæri til þess að
fara á konung jöklanna. Gengin
Sandfellsleið á jökulinn. Ekkert
klifur, enginn sérstakur útbúnað-
ur nauðsynlegur, aðeins góðir
gönguskór og hlý föt. Undirbún-
ingsfundur fyrir ferðina auglýst-
ur síðar. Fararstjóri Reynir Sig-
urðsson.
Gerðu eitthvað eftirminnilegt
um hvítasunnuna og skelltu þér
í Útivistarferð.
Viðey að kveldi
Miðvikud. 15/5. Gengið austurá
Stöðina. Minjar þorpsins skoðað-
ar og saga þess rifjuð upp. Fjöru-
skoðun og fjörubál á Kríusandi í
lok göngu. Brottför frá Viðeyjar-
bryggju, Sundahöfn kl. 10.
Sjáumst.
Utivist.
KENNSLA
Vélritunarnámskeið
Notið sumarið og lærið vélritun.
Vélritunarskólinn, s. 28040.