Morgunblaðið - 15.05.1991, Síða 38
38
MORGUNBLAPIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1991
—! TT1 r-H- j 7 ( ' í '—]'1' I/ . ii * i S >,(■'/■—
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
JENSÍNA KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Grettisgötu 20b,
andaðist í Landspítalanum 14. maí.
Ásgeir Sigurðsson,
Birgir Rafn Ásgeirsson,
Ásgeir Ásgeirsson, Ardís Henriksdóttir,
Kristján Ásgeirsson, Magdalena M. Ólafsdóttir,
Guðmundur Ásgeirsson, Gerður V. Colot
og barnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
FINNBOGI ÞORSTEINSSON,
Meistaravöllum 21,
andaðist í Landspítalanum 13. maf.
Lína Knútsdóttir
og börn hins látna.
Eiginmaður minn t
EINAR THORODDSEN
fyrrv. yfirhafnsögumaður.
Hjarðarhaga 27,
lést mánudaginn 13. maí.
Ingveldur B. Thoroddsen.
Sigríður I. Hannes-
dóttir - Minning
Fædd 1. september 1934
Dáin 22. apríl 1991
Mín kveðja er orð, sem á sér ekkert nafn,
aðeins minn hugur mælir — nemur þinn?
Fjarlægð er ekki, allur tími jafn
eins þó að dauðinn signi hvarminn minn.
(Árbók Þingeyinga 1963)
I þetta erindi eftir móður mína
hef ég reynt að sækja huggun harmi
gegn, þessa daga síðan ég frétti
látið hennar Siggu. Minningarnar
streyma fram, löngu liðnir dagar
verða að lifandi myndum fyrir hug-
skotssjónum mínum. Ég er fimm
ára gömul, og það er bjartur sumar-
dagur. Á Staðarhólstúninu hinum
megin við lækinn bylgjast puntur-
inn full sprottinn. Þar sé ég litla
stúlku í grasinu og ég geng yfir
um til hennar og segi: „Vltu koma
og leika við við mig?“ Hún svarar:
„Ég get það ekki núna, því ég er
að tína blóm fyrir mömmu.“
Sjálfsagt hef ég verið búin að
hitta hana Siggu fyrr þetta sumar
eða vor, sem foreldrar mínir fluttu
í Grenjaðarstaðabæinn, en þetta
atvik er það fyrsta sem ég man
okkar kynni, sem varað hefur æ
síðan.
Sigríður Ingibjörg Hannesdóttir
fæddist á Staðarbóli í Aðaldal þann
1. september 1934, dóttir hjónanna
þar, Hannesar Jonssonar frá
Reykjahlíð og Halldóru Magnús-
dóttur, borgfirskrar ættar, næst-
yngst fjögurra systra. Það var stór
barnahópurinn á Staðarbæjunum í
uppvexti okkar. Skyldustörfm voru
mörg, því sjálfsagt var þá að hvert
barn færi að gera gagn, um leið
og það gat vettlingi valdið, og störf-
in uxu með aldrinum. Þetta var
hollt veganesti öllum.
Þegar frístundir gáfust kom svo
hópurinn saman. Systurnar á Stað-
arhóli og Hvoli, börnin á Grenjaðar-
stað og Aðalbóli, fyrir utan sumar-
bömin sem komu í hópinn, jafn
árvisst og farfuglamir á vorin. Og
þá var farið í slagbolta, fallin spýta,
stórfiskaleik, ræningjaleik eða að
rekja pílu. Og ekki má gleyma
gleijabúunum og hornabúunum,
svo eitthvað sé talið. Á veturna
voru svo teknir fram sleðarnir,
skíðin og skautarnir, og aldrei
skorti verkefnin í leik og starfi.
í þessu umhverfi ólst hún Sigga
upp til fullorðinsára. Á unglingsár-
unum tók hún ríkan þátt í íþróttum
í héraði, og ég veit að veturnir henn-
ar í Laugaskóla urðu henni dijúgt
veganesti.
Þegar ég kom heim nýútskrifuð
úr Ljósmæðraskólanum, var hún
Sigga vinkona mín næstfyrsta kon-
an sem ég sat yfir, þegar hún eign-
aðist fyrsta barn sitt, þá trúlofuð
Garðari Guðmundssyni á Ólafsfirði.
t
Ástkær móðir mín,
ÁSTA STEFÁNSDÓTTIR,
Hávallagötu 38,
andaðist í Hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 13. þ. mánaðar.
Reynir Björnsson.
t
Bróðir okkar,
INGVI ÞÓRÐARSON,
Álafossvegi 21,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. maí kl.
13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd.
Systkini hins látna.
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Ægisfðu 50,
andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 14. maí.
Jón Sigurðsson og börn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
NANCY J. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Háeyri,
Bergi,
andaðist í sjúkrúsi Keflavíkur 6. maí. Jarðarförin hefur farið fram.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
GUÐMUNDUR RAFN KAABER,
Gerðhömrum 13,
lést á heimili sínu 13. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. maí nk. kl.
15.00.
Svanhildur Guðmundsdóttir, Sverrir Örn Kaaber,
Erna Guðrún Kaaber,
Katrín Kaaber,
Berglind Guðný Kaaber.
t
Móðir okkar og fósturmóðir,
EMILÍA VIGFÚSDÓTTIR,
Sunnuhlið, Kópavogi,
áðurtil heimilis íHófgerði 12,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 13. maí.
Viktorfa Finnbogadóttir,
Erla Jakobsdóttir,
Arnór Ragnarsson.
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
SIGURJÓN AXELSSON,
lést 13. maí.
Stefanía Vilborg Sigurjónsdóttír, Axel Eiríksson,
Grimur Axelsson,
Hjalti Axelsson.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
PÉTUR OTTESEN JÓNSSON
rakarameistari,
Sogavegi 164,
Reykjavík,
lést á öldrunardeild Borgarspítalans þriðjudaginn 14. maí.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Kristfn Elíasdóttir,
Elsa Pétursdóttir,
Steinarr Guðjónsson.
t
Faðir okkar,
SIGURÐUR ÁGÚSTSSON,
Birtingarholti,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 12. maí sl.
Útförin fer fram frá Hrepphólakirkju föstudaginn 17. maí kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá B.S.Í. kl. 11.30.
Börnin.
t
Útför föður míns, tengdaföður og afa,
HILMARS ÁRNASONAR,
Brekku við Vatnsenda,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. maí kl. 10.30.
Hjörleifur Hilmarsson, Hafdís Magnúsdóttir,
Hilmar Hjörleifsson, Baldur Hjörleifsson.
Þangað fluttist hún þetta sumar
1957 og þau giftu sig og stofnuðu
heimili. Fyrst á Brekkugötunni hjá
foreldrum Garðars, en síðan byggðu
þau sér húsið á Hlíðarvegi 50. Sam-
hent skópu þau sér og börnunum
sínum fjórum einstaklega fallegt
heimili.
Hver var hún svo í raun, þessi
kona, sem við kveðjum nú, svo langt
um aldur fram? Svarið er einfalt.
Hun var sérstök mannkostamann-
eskja, svo fæstir kynnast mörgum
slíkum í lífinu. Hennar einstaka
skaphöfn, dugnaður og glaðlyndi,
laðaði alla að henni í leik og störf-
um.
Og þegar erfiðleikar börðu að
dyrum, þá var hún annars styrkur.
Á heimilinu á Hlíðarveginum ríkti
líka gestrisnin eins og hún best
getur verið á íslandi. Þar átti við
máltækið: „Gott hús er gestum
heill.“
Og eftir að bömin stofnuðu sín
eigin heimili fannst manni í raun
og veru að þau væru eins og útibú
frá Hlíðarvegi 50. Þar var eftir sem
áður allra staður, barna, tengda-
barna og barnbarna. Og þannig
vildi Sigga hafa það.
Maður sem átti leið um Ólafs-
fjörð daginn sem hún dó, sagði við
mig: „Ég hef aldrei séð annað eins,
það blakti fáni í hálfa stöng við
næstum því hvert hús í bænum.“
Kannski segir það meira en mörg
orð. Ef allir væru eins og hún
Sigga, þá væri heimurinn betri en
hann er.
Ég minnist litlu stúlkunnar 5 ára
gömlu, sem ekki mátti vera að því
að leika sér í augnablikinu, af því
hún var að tína blóm fyrir mömmu.
alla sína ævi var hún að tína blóm
handa samferðafólki sínu, vinum
og vandamönnum og flest sínum
nánustu. Hún gengur til hvíldar að
loknurn starfsdegi með hreinan
skjöld. I lífsbókinni finnst ekki gróm
eða óhreinindi. Við stöndum eftir í
hljóðum trega og þakklæti fyrir það
sem hún var okkur, og gaf okkur
öllum, sem þótti vænt um hana.
Guð fylgi vinu minni á nýja veg-
inum og hafi hún þökk fyrir allt.
Brynhildur Lilja Bjarnadóttir
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóra blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.