Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 4

Morgunblaðið - 25.05.1991, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1991 VEÐURHORFUR I DAG, 25. MAI YFIRLIT: Skammt vestur af Bretlandseyjum er hægfara 1.035 mb hæð, en 998 mb hæð um 300 km suður af Hvarfi. Frá henni ligg- ur lægðardrag norðaustur um Grænlandssund. SPÁ: Suðvestan gola eða kaldi. Þokuloft og súld vestanlands en annars þurrt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg vestlæg átt og hlýtt, einkum þó um austanvert landíð. Þokuloft og súld um suðvestan og vestanvert landið en þurrt og víða léttskýjað eystra. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. TAKN: Heiðskírt Léttskyjað Hálfskýjað Skyjað Alskyjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus y Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —(- Skafrenningur Þrumuveður Formaður Sjómannasambandsins: Fetti ekki fingxir út í aflakvóta Færeyinga ÓSKAR Vig’fússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, segir að hann hafi hingað til ekki viljað fetta fingur út í aflakvóta Færey- inga í íslenskri fiskveiðilögsögfu. Færeyingar hafa fengið heimild til að veiða 9 þúsund tonn af botn- fiski í íslenskri lögsögu í ár sem er nokkuð meira en á síðasta ári. Hefur Kristján Ragnarsson, form- aður Landssambands íslenskra út- vegsmanna, lýst því yfir að hann telji að við höfum ekki efni á að gefa Færeyingum þessar veiðiheim- ildir-og kvóti þeirra sé því út í hött. Vill hann að samningurinn við Fær- eyinga verði sleginn af. Þegar Morgunblaðið leitaði álits Óskars ' Vigfússonar á aflakvóta Færeyinga sagði hann:„Ég hef nú verið frekar jákvæður gagnvart Færeyingum hvað varðar fiskveiði- heimildir en hins vegar ber að líta á að við þurfum á öllum okkar afla að halda í dag. Ég hef samt ekki viljað fetta fingur út í þessa litlu úthlutun sem þarna fer fram.“ Segir Óskar að mál þetta sé mjög lítið til umræðu innan sjómannastéttarinn- ar. Landssamband íslenskra verslunarmanna: Fella verður samn- ingagerð í nýtt form hækka dagvinnulaun fólks, en greinilegt væri að til að mynda verslunin þyldi að greiða hærri laun væri mið tekið af þeirri yfirvinnu sem hún taldi sig geta greitt. Samn- ingar hljóðuðu upp á 45-60 þúsund króna mánaðarlaun, jafnvel þó við- urkennt væri að á þeim launum gæti fólki ekki lifað. Þeir sem ekki hefðu annað þyrftu að leita á náðir félagsmálastofnana og það yrðu býsna margir að gera. „Það er lífsspursmál fyrir okkar fólk að komast út úr því kerfi sem nú er við lýði við gerð kjarasamn- inga, þetta kerfi hefur stórskaðað okkar fólk,“ sagði Magnús. Hann sagði fráleitt að tekið væri mið af einni starfsgrein, þ.e. fiskvinnslunni og hvað hún þyldi að greiða og það síðan látið gilda fyrir alla aðra hópa, þetta væri ekki eðliiegt. Fólk í fisk- vinnslu hefði möguleika á hærri launum í gegnum bónusinn, en verslunar- og skrifstofufólk sæti uppi með grunntaxtana, sem væru nokkurs konar sökklar undir önnur laun. Vinnuveitendur vildu að sjálf- sögðu halda þessu grunnlaunum eða sökklum sem allra lægstum því vit- að væri að ofan á bættist bónus eða yfírgreiðsla. Magnús sagði að verkalýðshreyf- ingin þyrfti að móta launastefnu og sér fyndist umræða um kjaramál væri oft á lágu plani innan hreyfing- arinnar. Sumir hefðu af því meiri áhyggjur að fólk hefði há laun en af þeim sem á lágu laununum væru. Vissulega bæri að fagna því að fólk hefði góð laun sem það gæti lifað sómasamlega af, en þyrfti ekki að leita á náðir félagsmálastofnana. Kröfu þyrfti einnig að gera til vinnu- veitenda og varpaði Magnús fram þeirri spurningu hvort þau fyrirtæki sem greiddu 50 þúsund króna mán- aðarlaun ættu virkilega rétt á sér, þar sem allir vissu að ekki væri hægt að lifa af þessum launum. „Það er illa sett þjóðfélag sem ekki getur borgað fólki laun sem það getur lifað af,“ sagði Magnús. Þinginu verður fram haldið í dag og verða lífeyrismálin þá í brenni- depli, en um þau mál flytja erindi þeir Guðmundur H. Garðarsson stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Þorgeir Eyjólfs- son framkvæmdastjóri sjóðsins. Akureyri MAGNÚS L. Sveinsson formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur segir mikilvægt að horfið sé frá því kerfi sem viðgengist hefur varð- andi gerð kjarasamninga. Atvinnurekendur ákveði einhliða hversu mikið greitt sé, menn setjist niður og athugi hversu há laun fisk- vinnslan í landinu þoli að greiða og það sé síðan haft til viðmiðunar þegar laun í öðrum starfsgreinum séu ákvörðuð. Þetta sé alls ekki eðlilegt, enda komi að auki ofan á laun t.d. fískvinnslufólks bónus, sem verslunar- og skrifstofufólk fái ekki, þannig að sá hópur sitji eftir á hinum lágu launatöxtum. Þetta sagði Magnús á 18. þingi Lands- sambands íslenskra verslunarmanna sem hófst á Akureyri í gær. Þinginu verður framhaldið í dag, laugardag, og því lýkur síðan á morgun, sunnudag. Tvö mál eru einkum til umfjöllunar á þinginu, kjaramál og lífeyrismál. Fráleitt að taka mið af einni starfsgrein við ákvörðun gi'unnlauna Flutt voru tvö erindi um kjaramál á þinginu í gær, en þau fluttu Ás- mundur Stefánsson forseti Alþýðu- sambands Islands og Magnús L. Sveinsson formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Þá flutti Ari Skúlason hagfræðingur ASÍ er- indi um vísitölur. Ásmundur Stefánsson ræddi m.a. um þann árangur sem náðst hefði á liðnu ár, eða frá því samningarnir Frá þingi Landssambands verzlunarmanna. frá því í febrúar 1990 voru undirrit- aðir og nefndi að atvinnuástand væri traustara nú en verið hefði á þeim tíma auk þess sem verðbólga væri komin niður í 7%. Hann lagði áherslu á að stöðugleikinn hefði bætt verðskyn manna og á þann hátt væri hægt að hagræða í inn- kaupum heimilanna, en þau stjóm- uðust í æ ríkari mæli af tilboðum ýmiss konar sem í gangi væru hverju sinni. Með því að kaupa vör- ur á hagstæðasta verðinu næðu heimilin inn ákveðinni meðaltals- lækkun á útgjöldum. Það sama væri uppi á teningnum hvað fyrir- tækin varðar, stjómendur hefðu áður verið í kapphlaupi við verðbólg- una, en hefðu nú tima til að sinna innra skipulagi og áætlunum fyrir- tækjanna betur með meiri árangri. Ásmundur ræddi einnig um þá kjarasamninga sem framundan em og gerði grein fyrir væntanlegum kröfum launafólks. Nefndi hann í fyrsta lagi, almenna kauphækkun, þá sérstakar kauphækkanir til lág- launafólks, lagfæringar til ýmissa hópa, þar á meðal verslunarfólks sem gerði kröfu um að færa taxta að greiddu kaupi. Gerð væri krafa um áframhaldandi stöðugleika, traustar kaupmáttartryggingar og réttlátara skattakerfí. „Það verður augljóslega erfitt að koma þessu öllu heim og saman, við verðum sjálf í verkalýðshreyfíngunni að raða hlutunum í forgangsröð og fínna málamiðlanir sem ganga upp. Það vita allir að við hækkum ekki alla í kaupi umfram alla hina,“ sagði Ásmundur. Magnús L. Sveinsson gerði að umtalsefni gerð næstu kjarasamn- inga og sagði mikilvægt að til kæmu skipulagsbreytingar, þannig að kjarasamningar yrðu gerðir eftir starfsgreinum og það hefði verið kynnt fyrir viðsemjendum inn á hvaða brautir menn vildu fara. Þar væri verið að ræða um einn grunn- eða rammasamning á svipaðan hátt og gert hefði verið á undanförnum árum, en síðan yrði samið við ein- stakar starfsgreinar þar sem nánar væri farið út í einstök sérmál er við eiga. Mikilvægt væri að tekið yrði mið af raunverulega greiddum laun- um við gerð samninganna, þar sem stefnt yrði að því að færa launa- táxta til samræmis við greidd laun. Atvinnurekendur sagði hann ráða alltof miklu um það hversu mikið greitt væri í laun og staðreyndin væri sú að m.a. verslunar- og skrif- stofufólk sæti uppi með hina lágu launataxta. Það kallaði á síaukið launabil sem fyrst ög fremst bitnaði á konum. Magnús sagði að ekki væri tekið mið af getu fyrirtækjanna og einstakra starfsgreina er laun væru ákvörðuð, en afkoma þeirra væri misjöfn. Hann sagði menn trega til að . * fw > 1 VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltf veður Akureyri 10 skýjaö Reykjavík 10 Slild Bergen 6 súld Helsinki 12 skýjað Kaupmannahöfn 13 úrkoma Narssarssuaq 7 skýjað Nuuk +1 alskýjað Ósló 13 skýjað Stokkhólmur 9 skýjað Þdrshöfn 11 skýjað Algarve 24 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Barcelona 21 heiðskírt Berlfn 9 skúr Chicago 23 þokumóða Feneyjar 17 léttskýjað Frankfurt 12 skýjað Glasgow 17 skýjað Hamborg 12 skúr Las Palmas vantar London 16 alskýjað Los Angelos 13 þokumóða Lúxemborg 13 skýjað Madrld 28 heiðskirt Malaga 24 skýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal 21 alskýjað NewYork 18 mlstur Orlando 24 skýjað París 15 léttskýjað Róm 17 þokumóða Vín 9 skúr Washington 22 þokumóða Winnipeg 11 skýjað VEÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.