Morgunblaðið - 25.05.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.05.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1991 _________i____i______i____i---------- 21 Bálför Rajivs Gandhis í Nýju Delhí; Athöfnin í senn afar áhrifarík o g sorgleg - segir Ólafur Ragnar Grímsson sem var fulltrúi þingmannasamtakanna Hnattrænt átak „ÞETTA var afar áhrifarík athöfn og sérstæð í augum fólks úr okkar heimshluta. Mannfjöldinn var gífurlegur, bæði í líkfylgd- inni og síðan við bálförina og þetta var sambland mikillar viðhafn- ar, mikillar sorgar en einnig ólgu,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, í símaviðtali við Morgunblaðið í gær þar sem hann var staddur í Nýju Delhí. Hann var fulltrúi alþjóðlegu þingmannasamtakanna Hnattrænt átak við bálför Rajivs Gandhis, formanns Kongressflokksins indverska og fyrrverandi forsætisráðherra er myrtur var sl. þriðjudag. „Við komum að bálkestinum áður en lík Rajivs var sett á hann,“ sagði Ólafur. „Flutt voru ritning- arorð, úr indverskum helgiritum en í landinu eru margs konar trú- arbrögð, einnig úr biblíu kristinna manna. Þetta gerðu ýmsir prestar og trúarleiðtogar. Það hafði verið reistur sérstakur viðhafnarpallur úr múrsteinum og á honum var bálkösturinn hlaðinn. Síðan var líkið lagt ofan á og fylgt við þetta helgisiðum parsa og hindúa; faðir Rajivs var parsi. Þá voru bomar að jurtir og olíur og þarnæst meiri viður á köstinn. Aðallega voru það sonurinn, Rahul, og mæðgurnar, Sonia og Priyanka, sem önnuðust þessi verk. Hindúaprestar sungu ritningarorð meðan á þessu stóð eða í tæpa klukkustund. Þetta var allt í senn afar sorg- legt og áhrifaríkt. Heiðursvörður úr hernum skaut nú af byssum sínum, lúðraþytur kvað við og þá var kveikt í kestinum. Er hann hafði logað nokkra hríð yfirgáfu Sonia og börnin tvö pallinn en ýmsir af leiðtogum og fylgismönn- um Kongressflokksins þustu um leið fram. Ég vil ekki segja að athöfnin hafi þar með breyst í uppþot en það var mikill órói og æsing. Maður óttaðist um tíma um það hvað yrði um þau þijú og erlenda gesti og fyrirmenn sem þarna voru saman komnir inni í þrönginni. Sjálfur fór ég með blómsveig í morgun í húsið þar sem líkið stóð uppi, húsið sem afi hans, Nehru átti. Síðan færði ég Soniu og dótt- ur hans samúðarkveðjur, þær voru þarna í hliðarherbergi. Mér finnst nánast ótrúlegt hvað lagt er á þessar þijár manneskjur. Þau þurfa bæði að hemja sinn eigin trega og taka þátt í athöfninni, einnig taka á móti þessum fjölda indverskra og erlendra gesta sem eru komnir til að votta Rajiv virð- ingu sína.“ Ólafur kynntist Rajiv Gandhi vegna starfa sinna fyrir þing- mannasamtökin og tók fyrir hönd þeirra við Indiru Gandhi-friðar- verðlaununum úr hendi leiðtogans 1987 er þau voru veitt í fyrsta sinn. Að sögn Ólafs er ljóst að Gandhi er mjög harmaður af al- menningi. „Það er alveg greinilegt að árin í stjórnarandstöðunni höfðu þroskað hann mikið. Hann dró úr öryggisgæslunni gagngert til þess að geta verið í nánari tengslum við fólkið. Menn spyija nú: Á Indland einhveija leiðtoga sem vilja hætta lífi sínu á þennan hátt?“ H BONN - Búist var við í gær að þýska stjórnin tilnefndi Helmut Schlesinger sem seðlabanka- stjóra í stað Karls Ottos Pöhls, sem hefur sagt af sér embættinu. Schlesinger er nú aðstoðarseðla- bankastjóri og aðhyllist stranga aðhaldsstefnu í peningamálum. Hann er 66 ára að aldri, fer á eftirlaun eftir tvö ár og er gert ráð fyrir að Hans Tietmeyer taki þá við embættinu, en þangað til verður hann aðstoðarseðlabanka- stjóri. ■ SEOUL - Roh Tae-woo, for- seti Suður-Kóreu, hefur skipað Chung Won-shik, fyrrum menntamálaráðherra landsins, í embætti forsætisráðherra í stað Ros Jai-bongs, sem sagði af sér á miðvikudag í kjölfar látlausra íjöldamótmæla í landinu. Chung er fjórði forsætisráðherra landsins á jafn mörgum árum. Hann er þekktastur fyrir að hafa rekið hundruð kennara og bannað sam- tök þeirra. Aftenposten: Islendingar hafa sterk- ari stöðu en Norðmenn NORÐMENN og íslendingar segjast vera á sama báti en samt eru þeir, hvorir í sínu lagi, í óða önn að undirbúa tvíhliða viðræður við framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins. Kom þetta fram í norska blaðinu Aftenposten í gær og þar segir, að íslendingar njóti meiri skilnings en Norðmenn innan EFTA-ráðsins og innan EB einnig. Aftenposten hefur það eftir að mikil eining ríki innan EFTA; Eldrid Nordbö, viðskiptaráðherra Noregs, að í undirbúningi séu tvíhliða viðræður um sjávarútvegs- málin, annars vegar milli Norð- manna og EB og hins vegar milli íslendinga og EB, en það kemur fram hjá henni, að innan EFTA- ráðsins og einnig innan EB njóti íslendingar meiri samúðar en Norð- menn. Segir hún það að sjálfsögðu stafa af því, að um 80% af útflutn- ingi íslendinga er fiskur. Fréttaritari Aftenpostens segir, að minnsta kosti á yfirborðinu, og hann veltir því síðan upp hvernig fari fyrir þessari samstöðu verði íslendingar teknir fram yfir Norð- menn í lokasamningunum um Evr- ópska efnahagssvæðið. Nordbö við- skiptaráðherra leggur hins vegar áherslu á, að stefna norskra stjórn- valda sé sú sama og áður, að ekki verði fallist á að tengja saman veiði- heimildir og fijálsan markaðsað- gang fyrir sjávarafurðir. Krystyiiia Cortes í íslensku óperunni sunnudaginn 26. maí 1991 kl. 20. Bach: Krómatísk fantasía og fúga Mozart: Fantasía í c moll K 475 Sonata í c moll K 457 Debussy: Estampes: 1. Pagodes 2. Soirée dans Grenade 3. Jardins sous la pluie Chopin: Fantasía í f moll Miðasala við innganginn VORLINAN Embln STRANDGÖTU 29, HAFNARFIRÐI f .7/7///////// I N T £ R N A T ('o N A L ■ PRAG - Tékkar sem málað hafa sovéskan skriðdreka í mið- borg Prag bleikan til að mótmæla hernámi Sovétmanna í landinu geta valdið því að samband Tékkó- slóvaka við Sovétmenn spillist, að sögn Vaclavs Havels forseta. Drekinn var settur á stall í borg- inni á sínum tíma til að minnast þess er sovéskt herlið frelsaði hana úr höndum nasista 1945. Havel bað fólk að taka tillit til Sovét- manna er teldu minnismerkið tákn um fómirnar í stríðinu gegn Adolf Hitler og lagði til að drekinn yrði fluttur á tæknisafn en annað minnismerki sett á sama stað. ■ STOKKHÓLMI - Fjórir af hveijum tíu Svíum eru hlynntir inngöngu í Evrópubandalagið. Jafnmargir hafa enn ekki tekið afstöðu, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir sænska útvarpið. Samkvæmt niðurstöðunum hafna 14% Svía aðild að EB, en 6% segj- ast ekki hafa áhuga á málinu. Fram kom að 60% þeirra 1.200 sem spurðir voru töldu að matvör- ur mundu lækka í vérði við inn- gönguna. RENAULT CLIO ... staðfestir yfirburðir 60 sérfræðingar bílatímarita frá 17 löndum gáfu Renault Clio hæstu einkunn eftir reynsluakstur. Clio var kjörinn „Bíll ársins 1991“ með einkunninni 312 stig - heilum 54 stigum meira en sá japanski bíll hlaut sem komst næst Clio. BÍLL ARSINS 1991 RENAULT Bilaumboðið hf Krókhálsi 1, simi 686633, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.