Morgunblaðið - 25.05.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAI 1991
19
■TASKOUS^É^ 4 RDAILT ■hML ;k j i S i m M SR á Raufarhöfn: Mörgf hundruð mwi
o milljóna skuldir Samið um gjaldfrest á rafmagnsskuld SAMÍIÐ var um gjaldfrest á skuld isins nemur einhverjum milljón- Síldarverksmiðju.ríkisins á Rauf- um kr. Höfðu rafmagnsveiturnar arhöfn við Rafmagnsveitu ríkis- hótað fyrirtækinu lokun ef ekki ins, en rafmagnsskuld fyrirtæk- yrði gengið frá skuldum. Árni Sorensson verksmiðiustióri seffir
Frá skólaslitum Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þosteinn Þorsteinsson
skólameistari er í ræðustól.
Skólaslit Fj ölbrauta-
skólans í Garðabæ
41 STÚDENT var brautskráður frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
laugardaginn 18. maí. Brautskráning stúdentanna fór fram við hát-
íðlega athöfn, sem haldin var í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili, Garðbæ-
inga.
Við athöfnina flutti Þorsteinn
Þorsteinsson skólameistari ræðu.
Hann greindi frá starfi skólans, sem
var um flest með hefðbundnum
hætti, en jafnframt með ýmsum
nýmælum eins og við er að búast
í lifandi stofnun. Nemendur skólans
í vetur voru um 500, en það er
hámark þess sem skólinn getur
rúmað í því húsnæði, sem hann
hefur yfir að ráða. Skólinn er enn
í bráðabirgðahúsnæði, en á þessu
ári er veitt nokkur fjáhæð til undir-
búnings hönnunar nýrrar skóla-
byggingar, sem brýn þörf er orðin
á. Skólameistari afhenti prófskír-
teini og lagði þeim lífsreglur og bað
þau að gæta þess að vera orðvör,
en jafnframt orðheldin.
Gísli Ragnarsson aðstoðarskóla-
meistari og Kristín Bjarnadóttir
áfangastjóri afhentu nemendum
verðlaun, Laufey Jóhannsdóttir for-
seti bæjarstjórnar hélt ræðu og
sömuleiðis fulltrúi nýstúdenta, Daði
Guðmundsson fyrrum formaður
nemendafélags skólans. Kór skól-
ans söng fyrir og eftir athöfnina
og milli dagskrárliða, en stjórnandi
kórsins er Sigurður Halldórsson
fyrrum nemandi skólans.
Bestum árangri að þessu sinni
náði Adam EliaseTi, stúdent af eðlis-
fræðibraut-tölvulínu. Hann lauk
165 einingum, þar af 138 með
ágætiseinkunn. Semidúx skólans
var Auður Skúladóttir einnig af
eðlisfræðibraut-tölvulínu. Auður
lauk 185 námseinginum, en Þor-
björn Rúnarsson, stúdent af nátt-
úrufræðibraut, lauk flestum eining-
um, 191. Lágmarksijöldi eininga til
stúdentsprófs er 140, en óvenju-
margir nemendur fóru langt fram
úr því marki að þessu sinni. Að
venju veittu sendiráð verðlaun fyrir
bestan árangur í tungumálum og
viðurkenningar voru veittar fyrir
framúrskarandi námsárangur í
raungreinum, tölvufræði, stærð-
fræði, hannyrðum, teiknigreinum
og fyrir frábæra ástundun í íþrótt-
um og öðru námi.
þetta aðeins hluta af mörg
hundruð milljóna kr. skuld verk-
smiðjunnar.
„Þetta er ekki sérstakur vandi
verksmiðjunnar á Raufarhöfn og
ég get ekki ímyndað mér annað en
að aðrar verksmiðjur skuldi einnig
rafmagn. Þetta er aðeins hluti af
stærri vanda verksmiðjunnar sem
er upp á fleiri hundruð milljónir kr.
Rafmagnsskuldin er aðeins hluti af
þeim skuldum sem hafa hlaðist
upp,“ sagði Árni.
Árni sagði sama hvert væri leit-
að, hvergi fengjust upplýsingar um
rekstrarhorfur fyrirtækisins.
„Vandamálið er inni á borðum sjáv-
arútvegs- og fjármálaráðherra og
meðan. þeir láta ekki í sér heyra
um þennan vanda veit ég ekki hvað
er framundan."
Hann sagði að búið væri að
fækka starfsmönnum í verksmiðj-
unni niður í sjö. Einhver rekstur
væri þó á Raufarhöfn, þ.e. beina-
vinnsla og vélaverkstæði, það væri
eina starfsemin. Hann sagði að all-
ar endurbætur á verksmiðjunni
lægju niðri. Yfirleitt væru 12-13
manns í vinnu á sumrin og fleiri
ef eitthvað sérstakt væri að gera.
Árni sagði ljóst að starfsemin legð-
ist með öllu niður ef lokað yrði fyr-
ir rafmagn.
Kristinn Sigmundsson
Kristinn Sig-
mundsson
heldur tvenna
tónleika
KRISTINN Sigmundsson óperu-
söngvari heldur hér tvenna tón-
leika á næstunni. Þeir fyrri eru á
sunhudaginn 26. maí kl. 16.00 í
Vestmannaeyjum, en hinir síðari
í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 30.
maí kl. 20.30.
Kristinn hefur starfað í Þýskalandi
síðastliðin tvö ár. Nýlega söng hann
í Hollandi með Peter Schreier Jó-
hannesarpassíu Bachs. Framundan
er söngur í Svíþjóð, Sviss og á Spáni,
einnig mun hann syngja víða í Þýska-
landi.
Kristinn hefur ekki sungið á ís-
landi í tvö ár. Með honum leikur
Jónas Ingimundarson píanóleikari. Á
efnisskránni verða íslensk lög,
söngvar eftir Fr. Schubert svo og
vinsæl amerísk og ítölsk lög og lýkur
tónleikunum á óperuaríum.
(Fréttatilkynning)
S 1
■
VERÐLÆKKUN
A ♦
UTIPLASTMALNINGU
OG FÚAVÖRN
BYKO BREIDDINNI BYKO HAFNARFIRÐI
MJÓDDIN