Morgunblaðið - 25.05.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAI 1991
11
VERÐLAUNASAMKEPPN
- LEIT AÐ NAFNI -
Flugbjörgunarsveitirnar og Hjálparsveitir skáta hyggjast nú sameina landssambönd sín
og stofna eitt öflugt björgunarfélag. Tilgangurinn er að efla björgunarstarf á Islandi.
Kostir þessarar sameiningar eru ótvírœðir fyrir almenning í landinu og sveitirnar
sjálfar: Samnýting mannafla og tœkja, skilvirkara skipulag og yfirstjórn, markvissari
þjálfun ogfrœðsla.
Flugbjörgunarsveitirnar og Hjálparsveitir skáta hafa verið með öflugustu
björgunarsveitum landsins um áratuga skeið. Þær hafa sinnt björgunarstarfi og
starfi að almannavörnum eins og alþjóð veit.
Allt starf er unnið í sjálfboðavinnu: Tímafrekt þjálfunarstarf, útköll til leitar í
lofti, láði og legi - hvenær sólarhrings sem er - á öllum árstímum.
Fyrstu Flugbjörgunarsveitirnar eru stofnaðar skömmu eftir Geysisslysið á
Vatnajökli 1950. Þær eru nú 6 talsins með u.þ.b. 500 félaga. Fyrsta
Hjálparsveit skáta var hinsvegar stofnuð nokkru eftir Alþingishátíðina á
Þingvöllum 1930. Þær eru nú 22 með u.þ.b. 1500 félaga, þar af um 1000 í
virkri útkallsþjálfun.
VERÐLAUNASAMKEPPNI:
íJ';
Glæsileg verðlaun!
1. verðlaun: Utanlandsferð að eigin vali
kr. 150.000.-
2. - 11. verðlaun: Bakpokar, KARRIMOR, frá Skátabúðinni.
"Nafnasamkeppni"
Pósthólf 5126
125 Reykjavík
Hér með er efnt til opinnar verðlaunasamkeppni um heiti á hinum nýju
samtökum. Nafnið þarf að vera þjált, en að öðru leyti eru
gefnar frjálsar hendur. Samkeppnin er öllum opin.
Tillögum, merktum sendanda, skal skila fyrir
laugardas, 1. júní og senda til:
Dómnefnd velur síðan það heiti úr tillögunum, sem hún telur best.
Dregið verður úr tillögum komi fram fleiri en ein um verðlaunaheitið.
LANDSSAMBAND
FLUGBJÖRGUNARSVEITA
A) LANDSSAMBAND
JSD HJÁLPARSVIITA SKÁTA