Morgunblaðið - 25.05.1991, Síða 35

Morgunblaðið - 25.05.1991, Síða 35
UDflOM íeoí 1AM .es SgöACMADUAJ QIQAJSVI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1991 35 Sjávarútvegsstofnun HÍ; Ráðstefna um hval- veiðar og hvalafriðun Altaristaflan frá 1770, máluð af Jóni Hallgrímssyni. Gömlu meistararnir í Gallerí Borg RÁÐSTEFNA um hvalveiðar og hvalafriðun verður haldin í tengslum við þing Alþjóðahval- veiðiráðsins í Reykjavík. Að ráð- stefnunni, sem haldin verður þriðjudaginn 28. maí og hefst klukkan 13 í stofu 101 í Odda, húsi Háskólans, standa Sjávarút- vegsstofnun Háskóla íslands og samtökin Lífsbjörg í norðri. Bjargfuglaegg úr Eyjum í Kolaportinu Bjargveiðimenn úr Bjarnarey í Vestmannaeyjum munu selja ný- orpin svartfuglsegg í Kolaport- inu í dag, laugardag, og einnig bjóða þeir upp á fýlsegg. Bjargveiðimennirnir lágu við í Bjamarey um eggjatímann, en Bjarnarey er eina úteyjan í Vest- mannaeyjum þar sem enn er sigið hefðbundið og skipuiega á svart- fuglabælin í bjarginu. Lengstu sigin eru nokkuð á annað hundrað metra löng þar sem bjargmaðurinn tekur tuga metra löng rið á milli staða í berginu og út frá því.Aður fyrr voru tekin allt að 10 þúsund egg í Bjarnarey, en til þess þurfti mikinn fjölda bjargveiðimanna. Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningarnar hvort hvalir séu óvenju gáfaðar skepnur, hvort sér- staða þeirra sé slík að ástæða sé til að veita þeim hvalréttindi í líkingu við mannréttindi og hvort siðferðilega rangt sé að veiða hvali undir öllum kringumstæðum. Frummælendur verða dr. Margaret Klinowska frá Cambridge háskóla í Englandi, dr. Milton Freeman frá Alberta háskóla í Kanada og Finn Lynge frá danska utanríkisráðu- neytinu. Fulltrúum hvalfriðunar- sinna var boðin þátttaka en þeir höfnuðu sökum tímaskorts. í frétt frá Sjávarútvegsstofnun- inni segir, að nú sé ljóst að hvalaum- ræðan snúist ekki eingöngu um ofveiði og vistfræðilega hlið veið- anna. Þær raddir fái æ meiri hljóm- grunn að banna eigi hvaiveiðar með öllu, jafnvel þótt ekki sé um ofveiði að ræða. Rökin fyrir og gegn friðum séu margvísleg og m.a. hafi birst grein í bandarísku lögfræðitímariti nýlega þar sem farið var fram á að hvalir öðluðust hvalréttindi í líkingu við mannrétindi. Ábyrg hag- nýting nátttúruauðlinda sé málefni sem varði lífshagsmuni íslendinga og þar sem á þingi Alþjóðahvalveið- iráðsins sé tekist á um grundvallar- reglur auðlindanýtingar sé ástæða til að kalla til opinnar og almennrar umræðu um þetta mál. UM HELGINA verður sölusýn- ing á verkum gömlu meistar- anna í Gallerí Borg við Austur- völl. Myndir eftir Ásgrím Jónsson, Snorra Arinbjarnar, Þorvald Skúlason, Kristínu Jónsdóttur, Gunnlaug Blöndal, Mugg og fleiri verða til sýnis og sölu, einnig tvær stórar olíumyndir eftir Kjarval sem ekki hafa verið sýndar áður, báðar málaðar um 1950. Einnig verður á sýningunni ait- aristafla frá 1770, máluð af Jóni Hallgrímssyni fyrir séra Rafn Jónsson á Hjaltabakka. Jón Hallgrímsson, f. 1730 - d. 1808, var þekktasti málari hér á landi á seinni hluta 18. aldar. Jón mun hafa numið málaralist erlendis. Taflan er vængjatafla, 56 cm að hæð og 80 cm að lengd. Miðmynd- in sýnir hina heilögu kvöldmáltíð. Á vængjunum eru myndir af bræðrunum Móses, sem heldur á steintöflum með boðorðunum tíu og Aroni, sem Móses vígði til æðstaprests ísraelsmanna sam- kvæmt fyrinnælum Guðs. Kirkjan á Hjaltabakka var lögð niður árið 1985 og mun altaris- taflan hafa verið seld til Danmerk- ur eftir það, en hún var keypt aftur til landsins árið 1988 og er nú í einkaeign. Sýningin í Gallerí Borg er opin um helgina frá kl. 14.00-18.00 og einnig næstu viku 14.00-18.00, henni lýkur föstudaginn 31. maí. Flóamarkaður ÁRLEGUR flóamarkaður Upp- eldis- og meðferðarheimilisins í Sólheimum 7, Reykjavík, verður haldinn á sunnudaginn kemur, 26. maí, kl. 14-17 í Safnaðarheim- ili Langholtskirkju. Þar verða til sölu mjög ódýr föt, búsáhöld og skrautmunir. Uppboð verður á húsgögnum og góðum munum kl. 15.00. Einnig verður tombóla og biómamarkaður. Meðferðarheimilið í Sólheimum 7 er heimili fyrir unglinga á aldrinum 12-16 ára sem þurfa á aðstoð að halda. Heimilið sem er ein heild innan Unglingaheimilis ríkisins tók til starfa 1. september 1985 og geta 7 unglingar búið þar á hveijum tíma. Á heimilinu er iögð mikil áhersla á tómstundastarf og skipa ferðalög, bæði innanlands og utan, stóran sess í því starfi. í sumar er fyrirhug- að ferðalag hér innanlands og er nú unnið að fjáröflun til þeirrar ferðar. Kirkjureið Fáks ÁRLEG kirkjureið Fáks verður sunnudaginn 26. maí. Farið verður frá félagsheimilinu í Víðidal kl. 9.30 og hesthúsum félagsins við Bústaðaveg kl. 10.30. Messað verður kl. 11.00. Blásarasveit leikur, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Signý Sæmunds- dóttir syngja stólvers. Gunnar Ey- jólfsson og Klemens Jónsson lesa ritningarlestur. Stefán Pálsson bankastjóri predikar. Prestur verður séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti verður Jón Stefánsson. Lawgavegi 45 - *. 21255 í kvöld: ÍSLANDSVINIR Þessa helgi halda þeir upp á árs afmæli hljómsveitarinnar. Auk þeirra verða gestahljóðfæraleikarar. DRAGSHOW LAUGARDAGSKVÖLD CIONNE WARWICH AND THE CINDARELLAS DIANA ROSS AND THE SUPREMES ALDURSTAKMARI' ÁiDÓ VITASTIG 3 v,r SÍMI623137 ‘Jl Laugard. 25. maí opið kl. 20-03 BLÚSKVÖLD POTTÞÉTT KVÖLD - VINIR DÓRA SVÍKJA ENGAN JAPISS ?a+}j & Cíúj frá Vestmannaeyjum skemmta gestum Rauða ljónsins í kvöld. Snyrtilegur klæðnaður. STORSYNING A HEIMSMÆLIKVARÐA 2$ éáemtUi tnén átouutqUyi" 'lfoáo- öna ÞRÍRÉTTA MATSEÐILL 687111 Oh,Oh whata kiss" og Belinda " í l sœti í kvöld. THE KOCKIIVIi (illOSTS i \ r^m wgLi JBB wá . /■‘ijSÉrH \ UjM ■ 1 ^ MMi i v aH wcv —W/ttw 1 m ■V ' :;!m/ wi Jaœafi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.