Morgunblaðið - 25.05.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR ’’
LAUGARDAGUR 25. MAI 1991
41
„Eghéltadég
væri búin ad vera
sem spjótkastari“
- sagði Iris Grönfeldt, sem tryggði sér gullið
ÍRIS Grönfeldt gaf ekkert eftir
í spjótkastkeppninni, þar sem
hún stóð uppi sem sigurvegari
á Smáþjóðaleikunum í Andorra
t gær. Iris kastaði spjótinu
56,20 m, sem er nýtt Smá-
þjóðamet.
4T
Eg er mjög ánægð með þennan
árangur. Sérstaklega þar sem
strekkingsvindur var í bakið og
óhagstætt að kasta spjóti. Ég kom
hingað til að vinna
gull,“ sagði íris, sem
hefur náð lágmark-
inu fyrir heims-
meistarakeppnina í
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrífarfrá
Andorra
Tvö
gullí
júdó
Íslendingar unnu tvö gull í júdó.
Eiríkur Kristinsson lagði Trev-
isan frá Möltu á ippon í 71 kg flokki
og Freyr Gauti Sigmundsson vann
Hediger frá Liechtenstein í 78 kg
flokk á ippon eftir eina mín., en
glíma Eiríks stóð yfir í fimm mín.
Tókýó í ágúst. „Satt best að segja
hélt ég að ég væri búin sem spjót-
kastari. Ég er búin að taka mér frí
frá spjótkasti í eitt ár og snúið mér
að kringlukasti og kúluvarpi," sagði
íris, sem ætlar nú að endurskoða
hvað hún'gerir með kringluna og
kúluna. „Fyrir utan hið óhagstæða
veður er þetta gott kast miðað við
það að ég fékk ekki að keppa með
spjótunum mínum. Mótshaldarar
vildu ekki viðurkenna spjótin.
Sögðu að þyngdarpunkturinn væri
ekki réttur í þeim. Ég varð því að
fá lánað lélegt spjót, en samt kast-
aði ég 56,20 m,“ sagði íris, sem
hélt um tíma að hún hefði bætt
íslandsmetið sitt, sem er 62,02 m,
sett á Bislett-leikvanginum í Ósló
1988, eða sama ár og hún meiddist
á hægri öxl. „Ég sá 60 m línuna
lyftast upp, þannig að ég reiknaði
með að spjótið hefði farið vel yfir
60 m. Mér fínnst ég vera vel upp-
lögð og geti bætt mig verulega sem
spjótkastari. Það var gaman að taka
á móti gullpeningnum og heyra
þjóðsöng Islands leikinn,“ sagði ír-
is, sem kastaði 54,42 m, 51,34 m,
56,20 m, 51,26 m.
Birgitta Guðjónsdóttir keppti
einnig i spjótkastskeppninni og
hafnaði í fjórða sæti. „Það munaði
ekki miklu að hún kæmist einnig á
verðlaunapallinn," sagði íris. Birg-
itta kastaði spjótinu lengst 47,84
m, en stúlkan sem varð í þriðja
sæti kastaði 48,26 m.
íris Grönfeldt fékk gull og setti Smáþjóðaleikamet í spjótkasti.
Aðeins álta dúfum
frá verðlaunapalli
Gunnar Kjartansson, hagla-
byssuskotmaður, var aðeins
átta leirdúfum frá að lenda á verð-
launapalli. Hann hafnaði í fjórða
sæti í úrslitakeppninni, fékk 196
stig, en næstur á undan honum
kom maður frá San Marínó, sem
fékk 204 stig. Sigurvegarinn fékk
221 stig.
1 aðalkeppninni skaut Gunnar
niður 176 dúfur af 200 möguleg-
um. „Ég er mjög ánægður að fá
meðaital 22 út úr hverri átta
umferðanna," sagði Gunnar, sem
skaut niður 184 dúfur á Kýpur
fyrir tveimur árum. „Það er skort-
ur á keppnisreynslu, sem háði
mér. Síðast keppti ég á alþjóðlegu
móti fyrir tveimur árum, en mót-
heijar mínir keppa þetta á sjö
mótum á ári og eru miklu reynd-
ari. Kýpurmenn hafa til dæmis
verið með sovéskan þjálfara og
verið grimmt í æfingabúðum,“
sagði Gunnar, sem mátti vel við
una.
^AfOORRA
Valur og
Jón Kr. fóru
ákostum
Valur Ingimundarson
Jón Kr. Gíslason
VALUR Ingimundarson og Jón
Kr. Gíslason léku við hvern sinn
fingur þegar ísland tryggði sér
rétttil að leika gegn Lúxem-
borg í úrslitaleik í körfuknatt-
leik karla. íslenska liðið vann
Andorra, 79:65, í gærkvöldi.
alur skoraði 19 stig og flest
eftir frábærar þriggja stiga
körfur, en Jón Kr. stjórnaði leik
íslenska liðsins eins og herforingi.
„Valur hefur fundið sig vel í tveim-
ur síðustu leikjum okkar og er til
alls líklegur í úrslitaleiknum gegn
Lúxemborg," sagði Torfi Magnús-
son, þjálfari íslenska liðsins.
Strákarnir byrjuðu vel og komust
yfir, 20:6, en heimamenn náðu að
minnka muninn mest í fjögur stig.
Þá settu leikmenn íslenSka liðsins
á fulla ferð og unnu öruggan sigur.
Valur Ingimundarson skoraði flest
stig, eða 19. Guðmundur Bragason
skoraði 12, Falur Harðarson 11, Jón
Arnar Ingvarsson 11, Jón Kr. Gísla-
son 8, Sigurður Ingimundarson 8,
Axel Nikulásson 4, Albert Óskars-
son 2, Guðni Guðnason 2 og Teitur
Örlygsson 2.
Jón Kr. Gíslason, fyrirliði landsliðs-
ins, leikur sinn 100. landsleik gegn
Lúxemborg í dag.
■BLAKLANDSLIÐ kvenna tap-
aði, 0:3, fyrir Kýpur í gær. Stúlk-
urnar verptu eggi í fyrstu hrinu,
sem þær töpuðu, 0:15. Síðan töpuðu
þær 8:15 og 8:15.
MSÆRÚN Jóhannsdóttir, sem
lék sinn 20. landsleik, var kölluð í
lyfjapróf eftir leikinn og var hún
því ekki samferða vinkonum sínum
aftur að hótelinu, sem íslendingarn-
ir búa á.
MEGILL Eiðsson varð sjötti í 110
m grindahlaupi í gær, en Ólafur
Guðmundsson keppti ekki vegna
meiðsla í baki.
Sjöís-
lendingar
eiga Smá-
þjódamet
Sjö Islendingar eiga Smáþjóða-
met í frjálsum íþróttum. Pétur
Guðmundsson í kúluvarpi (18,61
m) og Guðmundur Karlsson í
sleggjukasti (63,64 m). Fimm stúlk-4
ur eiga met. íris Grönfeldt f spjót-
kasti (56,20 m), Guðrún Amardótt-
ir í 100 m grindahlaupi (14,19
sek.), Þórdís Gísladóttir í hástökki
(1,86 m), sem hún setti í Mónakó
1987, Oddný Ámadóttir í 400 m
hlaupi (55,12 sek.), sem hún setti
á Kýpur 1989, og Soffía Gestsdótt-
ir í kúluvarpi (12,54 m), sem hún
setti í San Marínó 1985.
Islandsmet karia í
4x1 OO m fjórsundi
Karlasveitin bætti íslandsmet-
ið f 4X100 m fjórsundi un
nálægt þijár sek. og setti Smá-
þjóðaleikamet. Sveitin, sem var
skipuð Eðvarð Þór Eðvarðssyni,
Amþóri Ragnarssyni, Magnúsi
Má Ólafssyni og Gunnari Ársæls-
syni kom í mark á 4:00,16 mín.
Sundfólkið vann þrenn gullverð-
laun, tvenn silfur og fem brons-
verðlaun í gær. Arnþór Ragnars-
son varð þriðji í 100 m bringu-
sundi á 1:07,54 mín. og Óskar
Guðbrandsson sjötti á 1:10,39
sek.
Ingibjörg Amardóttir varð önnur
í 200 m flugsundi (2:25,51 mín.)
og Arna Þ. Sveinbjömsdóttir
þriðja (2:32,58 mín.)
Magnús Már Ólafsson varð þriðji
í 200 m skriðsundi (1;57,63 mín.)
og Hörður Guðmundsson áttundi
(2:14,11 mín.)
Helga Sigurðardóttir varð önnur
í 200 m skriðsundi (2:12,28 mín.)
og Biyndís Ólafsdóttir þriðja á
2:15,87 mín.
Amar Freyr Ólafsson varð fjórði
í 200 m flugsundi á 2:21,71 mín.