Morgunblaðið - 25.05.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.05.1991, Blaðsíða 43
t ÍAM .52 H'TíV í! '‘I'vlíjnU W%J>IW8W 01 1 A. ['Ji': I ■)?<>'/ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1991 43 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Reynum alttaf að leika sóknarknattspymu ÍSLAND gæti tvöfaldað stig sín i 3. riðli Evrópukeppni landsliða hér í Albaníu á morgun, með sigri. Albanía hefur enn ekki fengið stig í riðlinum, eftir f imm leiki, en ísland hefurtvö af fjór- um leikjum loknum — sigur vannst á Albaníu í fyrsta leikn- um á Laugardalsvellinum, 2:0. Landslið íslands hefur átt í mikl- um erfiðleikum með að skora í undanförnum leikjum, nema hvað liðið gerði fjögur mörk í vináttuleik gegn Möltu á dög- unum — mjög veik- um andstæðingum. Sigurður Jónsson gerði mark á Spáni s.l. haust, en síðan hefur ísland ekki skorað í leik gegn sterku liði. Bo Johansson boðaði það, þegar hann tók við stjórn landsliðsins að höfuðáhersla yrði lögð á sóknarleik. „Já, við höfum átt í erfiðleikum með að gera mörk. En ég bendi á að andstæðingar okkar í Bretlandi á dögunum, B-lið Englands og Wales, voru mjög erfiðir. Það eru ekki mörg lið í heiminum, sem sækja þessi lið heim og ná að skora mikið af mörkum. Það verður til dæmis gaman að sjá hvernig Þjóð- verjum gengur í Evrópuleiknum í Wales, sem fer fram fljótlega,“ sagði Bo við Morgunblaðið. Um helgina KNATTSPYRNA Dómarafundir: Arlegur dómarafundur með Landsdómurum verður haldin á mánudaginn i íþróttamiðstöðinni í Laugardag og hefst hann kl. 20. Dómarafundur með öllum unglinga- og héraðsdómurum i KDR og KDK verður haldin á sama tíma á þriðju- dag í ÍSÍ hótelinu kl. 20. Fyrirmæli sumarsins frá Dómaranefnd KSÍ verður kynnt og farið í breytingar á knattspymulögunum. Þá mun David Elleray, þekktur enskur 1. deildar dómari sýna myndband og ræða um ensk dómaramál. Mót: Vormót Kiwanisklúbbsins Viðeyj- ar og Fram fyrir 6. flokk c og 7. flokk fer fram á Framvellinum við Safamýri í dag og hefst keppni klukkan 9:30. Víkingur og Pepsí standa einnig fyrir 7. flokks móti í dag sem hefst kl. 9 í dag á vellinum við Hæðargarð. FIMLEIKAR íþróttafélagið Gerpla i Kópavogi heldur árlega vorsýningu á sunnu- daginn í íþróttahúsinu f Digranesi og hefst sýningin kl. 14. Að þessu sinni verður sýningin helguð 20 ára afmæli Gerplu og boðið verður upp á mörg glæsileg sýningaratriði. HLAUP Neshlaup Gróttu og trimmklúbba Seltjarnarness verður haldið i dag kl. 14 og hefst keppni við sundlaug- ina. Hlaupnar verða tvær vegalengd- ir, 3.5 og sjö km.og verða veitt verð- laun í öllum aldursflokkum. Allt áhugafólk um útivist og góða fjöl- skylduskemmtun er hvatt til þátt- töku. Skráning verður í Gróttuher- berginu á keppnisdaginn kl. 11-13:30. Innritunargjald er kr. 400 fyrir fuliorðna og 200 krónur fyrir böm. Vorskokk ÍR verður haldið á sunnudaginn en það er fimm km aldursflokkaskipt mót fyrir almenn- ing. Nánari upplýsingar gefur Dýri í síma 623704 og 695114 KENDO A sunnudaginn verður haldið í íþróttahúsi Hagaskólans fyrsta Is- landsmótið í japönsku skylmingar- íþróttinni Kendo. Keppni hefst kl. 15 en úrslitin liðlega tveimur klst. síðar. Aðgangur er ókeypis. GOLF „Opna Endurvinnslumótið" verður haldið á Strandavelli að Rangárvöllum í dag. Leiknar vcrða átján holur mcð og án for- gjafar. Ræst verður út frá kl.8:00. SIGLINGAR Keppnistímabii siglingarmanna , hefst i dag með fyrsta móti ársins. Keppni á kjöbátum hefst utan mynn- is Reykjavíkurhafnar kl. 10:00. Keppni á kænum og seglbrettum hefst í hádeginu í Akranesvogi. Það er Siglingarklúbburinn Vogur sem stendur fyrir þessari keppni. Landsliðsþjálfarinn benti einnig á að keppnistímabil íslenskra knatt- spymumanna væri svo til að hefj,- ast, aðeins einum leik væri lokið í „alvörumóti", íslandsmótinu, og sumir landsliðsmannanna hefðu leikið á möl á mánudaginn var. Með tilliti til þess væri spennandi að sjá hvemig menn næðu sér á strik hér. Albanir líka í vandræðum með að skora „Eg á von á því að þetta verði öðruvísi leikur en gegn Englandi og Wales á dögunum. Albanir hljóta að leggja allt í sölurnar til að vinna og ég veit að þeir verða erfiðir við að eiga, þó liðið sé ekki skipað sömu leikmönnum og áður — þeir spila eins knattspyrnu. Frakkar komu hingað og unnu aðeins 1:0, Tékkar vom hér nýlega og unnu 2:0 — en Albanir fengu fjögur mjög góð tækifæri til að skora. Þeir hafa ein- mitt verið í vandræðum með að gera mörk og verða það vonandi áfram.“ Albanir hafa enn ekki skor- að í leikjum sínum í riðlinum, en fengið á sig 19. íslendingar hafa hins vegar gert fjögur mörk og fengið á sig fimm. Bo riíjaði það einnig upp að Svíar komu hingað fyrir tveimur árum, fengu tvö færi og nýttu þau bæði — unnu 2:1 og markvörður þeirra átti stórleik. „Eg viðurkenni auðvit- ÍÞR&mR FOLX ■ ÍSLENSKU liðin tvö flugu saman til Tirana á fímmtudag frá Ziirich, en síðan skildu leiðir á flug- vellinum. A-liðið hélt til hafnarborg- arinnar Diirres, sem var um hálftíma keyrsla, en 21 árs liðið fór til borgarinnar Elbasan, sem er ekki nema um 60 km leið, en það tók á þriðju klukkustund að keyra þangað. ■ VERKFALLIÐ, sem nú stend- ur yfir í Albaníu og hefur breiðst mjög út undanfarið eftir því sem heimamanna segja, olli því að á fimmtudaginn var ekkert heitt vatn á Hótel Adriatic í Diirres, þar sem landsliðið býr. Vegna verkfallsins var engin olía til og því aðeins ískalt vatn í sturtunum. Flestir leik- manna létu sig hafa það eftir fyrstu æfinguna, en nokkrir röltu þó yfir á næsta hótel, sem er alveg við hliðina, og fóru þar í heita sturtu. Þar er hitað upp með kolum og nóg til af þeim. ■ HOTEL Adriatic var byggt árið 1956 og hefur verið sannkallað glæsihótel á þeim tíma. Salarkynni eru glæsileg, en staðnum hefur ekki verið sérlega vel við haldið. Engu að síður lítur húsið og um- hverfið nokkuð vel út. Islendingun- um líður vel og hafa ekki yfir neinu að kvarta. M AÐSTÆÐUR hafa komið mönnum nokkuð á óvart. T.d. er stundum ekkert mál að hringja héðan til Islands, en aftur á móti er nær útilokað að ná hingað frá íslandi. ■ EGGERT Magnússon, formað- ur KSÍ, segir gríðarlega mikilvægt að sigur vinnist í Tirana á morg- un. „Það er allt lagt undir til að vinna nú. Það er óskaplega mikil- vægt upp á framtíðina að sigi'a." ■ ÍSLENDINGAR hafa skorað fjögur mörk í riðlinum hingað til, þar af Atli Eðvaldsson tvö og Sig- urður Jónsson eitt, en þeir eru hvorugur með nú. Fjórða markið gerði síðan Arnór Guðjohnsen. ■ EFTIRLITSMAÐUR á leikn- um verður Linck frá Lichtenstein. H DÓMARINN kemur frá Búda- pest í Ungverjalandi. að að lið Albana er skipað allt öðr- um leikmönnum nú, en, eins og ég sagði áðan, leika þeir eins í dag.“ Bo sagðist leggja fyrir leikmenn sín að reyna að leika eins og hann hefur reynt að láta þá gera til þessa. „Við verðum að byggja leik okkar eins upp og hingað til. Við ætlum okkur að sækja sem fyrr — ef þeir byija með látum og neyða okkur til að bakka, þá gerum við það auðvitað, en reynum síðan að bijótast út úr þeirri stöðu og sækja. Við reynum alltaf að leika sóknar- knattspyrnu — gerum það þegar einhver möguleiki er á því.“ Fyrirliðinn Atli Eðvaldsson verð- ur fjarri nú vegna leikbanns og sagði landsliðsþjálfarinn að auðvit- að saknaði liðið hans, „en hinir strákarnir hafa einnig gott keppnis- skap, þeir vita að nú þurfa þeir að vinna þetta verk án Atla, og gera það. Og ég veit að Gunnar [Gísla- son] mun standa sig vel f stöðu Atla.“ Hvað aðra leikmenn varðar sagðist Bo sérstaklega spenntur að sjá hvernig Eyjólfur Sverrisson kæmi út. „Ég hef ekki séð hann spila mikið. Þá verður gaman að sjá hvernig Rúnar [Kristinsson] leikur, hann hefur staðið sig frá- bærlega undanfarið,“ sagði hann. lOútileikir Síðan Svíinn tók við hefur íslenska liðið aðeins spilað tvívegis á heimavelli, gegn Albönum og Frökkum, en 10 sinnum á útivelli. „Þetta er mjög gott — besta leiðin til að menn öðlist góða reynslu er að leika á útivelli. Menn þurfa að venjast því, það þýðir ekki að dútla endalaust á heimaslóðum, þar sem menn þekkja vel til, ekkert bjátar á og ekkert er á móti mönnum. Þess vegna voru leikirnir í Eng- landi, Wales og Möltu um daginn mjög mikilvægir. Þegar reynsla úr slíkum leikjum er fyrir hendi geta lið farið að vinna stig á útivelli og til að ná langt verður það einmitt að takast," sagði landsliðsþjálfar- inn. Adeins sigur kemur nútil greina Sævar Jónsson verður fyrirliði landsliðsins á morgun. „Stefn- an hlýtur að vera að flytjast upp um styrkleikaflokk og nú eigum við raunhæfa möguleika á því. Þess vegna kemur ekkert annað til greina en sigur, við verðum að vinna,“ sagði Sævar. Hann benti samt á að menn yrðu að gera sér grein fyrir að Albanir væru ekki auðunnir á heimavelli eins og úrslitin sýndu. „En albanska liðið er stór spurning og í raun vit- um við ekki mikið um það. Því verð- ur erfitt fyrir Bo að finna út hvern- ig á að leggja dæmið upp, en með eðlilegum leik eigum við að hafa það af.“ Eyjólfur Sverrisson tók í sama streng. „En hver og einn verður að gefa allt sem hann á, því öðru vísi næst þetta ekki. Þetta verður ekki auðvelt og við verðum að gæta okkar.“ Skapti Hallgrímsson skrifarfrá Durres Steinn og Sigurð- ur ráðnir þjálfarar STEINN Helgason og Sigurður Hannesson hafa verið ráðnir þjálfarar A-landsiiðs kvenna í knattspyrnu til tveggja ára. Fyrsta verkefnið felst í leikjum gegn þýsku úrvalsliði í júlí, en leikir í Evrópukeppninni fylgja f kjölfarið. Landsliðið tekur þátt í Evrópu- keppninni eftir langt hlé og leikur í riðli með Skotum og Eng- lendingum, en á næstunni verður samið um leikdaga. „Ég vona að við fáum einn leik í haust og síðan þijá næsta sumar,“ sagði Steinn við Morgunblaðið. Þýska úrvalsliðið kemur til lands- ins á vegum þýska knattspymu- sambandsins og verða tveir eða þrír leikir 3.-10. júlí. Steinn sagði að þeir væru mikilvægir fyrir Evr- ópukeppnina, „en það sem vantar er að æfa meira og vetrarþjálfunin hefur mikið að segja í því efni.“ Steinn sagðist lítið vita um vænt- anlega mótheija í Evrópukeppninni, en reynt yrði að haga undirbúningn- um sem best. Þjálfararnir ætla að velja hóp á næstunni og sagði Steinn að gera mætti ráð fyrir blöndu af yngri og eldri stelpum. „Það hafa orðið framfarir síðan við spiluðum síðast landsleik. Ungu stúlkurnar núna hafa miklu betri grunn en áður var og og sennilega verður um 10 ára munur á þeim yngstu og elstu í hópnum." Eyjólfur Sverrisson verður í byijunarliðinu í fyrsta sinn í „alvöru" landsleik. Byijunariid íslands Eins og staðan er í dag verður byijunarlið íslands gegn Al- baníu í Tirana á morgun, sunnu- dag, þannig: Bjami Sigurðsson úr Val verður í markinu. Sævar, félagi hans, Jónsson verður hægri bakvörður, Guðni Bergsson frá Tottenham „sópari“ og Gunnar Gíslason, Hácken, mið- vörður fyrir framan hann — tekur stöðu fyrir- liðans Atla Eðvaldssonar, sem verður í leik- banni. Annaðhvort Ólafur Kristjánsson úr FH eða Valsarinn Einar Páll Tómasson verður vinstri bakvörður og er það í raun eina staðan í liðinu, sem Bo Johansson er ekki viss um hveqiim hann eigi að fela. Miðvallarleikmenn verða síðan Þorvaldur Örlygsson, Nottingham Forest, hægra megin, Rúnar Kristinsson, KR, og Ólafur Þórðarson, Lyn, inni á miðjunni, og Sigurður Grétarsson, Grasshoppers, vinstra megin. í framlínunni verða svo Eyjólfur Sverr- isson, Stuttgart, og Amór Guðjohnsen, Borde- aux — ef hann mætir. Amór lék með Borde- aux í Frakklandi í gærkvöldi og á að koma til Tirana í dag frá Frakklandi með viðkomu í Róm. Komi hans hins vegar ekki verður Valsarinn Anthony Karl Gregory í byrjunarlið- inu í hans stað. Sævar Jónsson verður fyrirliði í leiknum í dag. Varamenn verða Ólafur Gottskálksson úr KR, Anthony Karl Gregory, Val, Hlynur Stef- ánsson, ÍBV, Andri Marteinsson, FH, og ann- aðhvort Einar Páll eða Ólafur. U-21 liðin leika í dag Hólmberí Friðjónsson, þjálfari U-21 liðsins, sem mætir Albönum í dag, sagðist í gær ekki alveg ákveðinn hvernig hann ætlaði að hafa byijunarliðið í leiknum gegn Albönum. Hann sagði að liðið myndi leika með þijá í vörn, fímm á miðj- unni og tvo frammi. Líklegt byijunarlið er þannig að Kristján Finnbogason úr KR stendur i markinu, Kristj- án Halldóreson, ÍR, Þormóður Egilsson, KR og Ágúst Ólafsson, Fram, verða i vöminni. Á miðjunni verða Steinar Guðgeirsson, Fram, Finnur Koibeinsson, Fylki, Steinar Adolfsson, Val, Amar Grétarsson, UBK og annað hvort Þorsteinn Jónsson úr Þór Akureyri eða Ágúst Gylfason úr Val. Frammi verða Ríkharður Daðason úr fYam og annað hvort Grétar Steindórsson úr UBK eða Valdimar Kristófers- son úr Stjömunni. Tennisklúbbur Víkings býður upp ó fjölbreytta starfsemi í sumar: Tennisskóla fyrir börn og unglinga 6-12 ára. x Æfingar fyrir unglinga. Kennslu fyrir fólk á öllum aldri með reyndum þjálfurum. Starfsemin ferfram á tennisvöllum Víkings í Fossvogi. Lægri vallarleiga fram til kl. 16.00 virka daga. Skráning og upplýsingar í síma 33050 daglega frá kl. 13.00-22.00. Stjórn Tennisklúbbs Víkings. FOTBOLTI / KVENNALANDSLIÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.