Morgunblaðið - 09.06.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.06.1991, Blaðsíða 3
MORGÍJNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991 GATA . MEÐ SAL Einar Már Guðmundsson rithöfundnr LANDNEMA- TILFINNING í ÞINGHOLTUNUM þekkti MBBjf 1 Einar Már Guðniundsson rit- iiöfundur öll sund og port, samt kaus hann að fiytja í Grafar- voginn því hann vildi komast upp á hæðina, eins og hann segir. Eg hef þá kenningu, að Aust- urbæingum sé alveg sama hvar þeir búa,“ segir Einar Már, sem sjálfur ólst upp í Vogahverfi þegar það var að byggjast. Hann hefur síðan búið í nýjum hverfum og gömlum, hér heima og erlend- is og segir að hvert hverfi sé öðru ólíkara. „Mér leið mjög vel í Þing- holtunum, þekkti þar hvem kött í sjón, og vissulega hvílir ákveðin sál yfir miðbænum. Sagan hefur sest í andrúmsioftið. Vegna bamafjölda þurfti ég stærra húsnæði, sem liggur nú ekki á lausu í gamla miðbænum, auk þess sem tími er kominn til að endurnýjji flest húsin og ég ef til viil ekkí handlagnasti maður í heimi. Það er líka viss freisting að rífa sig upp úr gömlu um- hverfi og takast á við nýtt. Það er tafl við óvissuna og því fylgir þessi landnematilfinning. Ég byggði hér í Húsahverfi í Grafarvoginum því ég vildi kom- ast upp á hæðina og hafa víðáttu í kringum mig, auk þess sem það er hagkvæmt að vera með börnin hérna. Útsýnið er stórkostlegt, borgin blasir við á aðra höndina og íjöllin og hafið á hina. Og frá fjöllunum kemur mikill kraftur sem hleðst upp.“ Götur nýrri hverfanna eru oftar líflegri, enda yngra fólk sem býr þar. Myndin er tekin í Breiðholti. Búferlaflutningar Tafla frá Hagstofu íslands um búferlaflutninga á siðasta ári Fluttír alls Fluttir innan sveiíar- fclags Fluttir milli sveitarfélaga innan landsvæðis Fluttir milli landsvæða Fluttir mifli landa Aífluttir umfram Aðfluttir Brottfluttir brottflutta alls: alls: Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir Brottfluttir Allt landið -681 18.703 19.384 26.037 7.883 7.883 7.654 7.654 3.166 3.847 Höfuðborgarsvæði 516 11.156 10.640 16.921 5.514 5.514 3.524 2.441 2.118 2.685 Reykjavík -106 6.074 6.180 13.095 2.114 2.491 2.414 1.694 1.546 1.995 Önnur sveitarfélög 622 5.082 4.460 3.826 3.400 3.032 1.110 747 572 690 fréttir skrifa er ekki vitað, en það vill nú svo til að íbúar Breiðholts eru á við stærsta bæjarfélag, t.d. eru íbúar Akureyrar töluvert færri, eða um 14.189, og má því ætla að fjölbreytileiki mannlífs sé svip- aður á báðum stöðum. Er af þeim sökum varla skynsamlegt að setja alla undjr sama hattinn. Fasteignaverð Fasteignasölur eru um 60 til 70 á landinu, og með tilliti til fiutn- inga landsmanna hlýtur fasteigna- markaðurinn að vera líflegur. Rætt var við sölumenn á tíu fasteignasölum í Reykjavík og voru þeir spurðir hvaða hverfi væni dýrust að þeirra mati og hvort ein- hver væru eftirsóttari en önnur. Ekki bar þeim alveg saman í þeim efnum. Sögðu margir að dýrustu íbúðirnar væru í nýja miðbænum, Grafarvogi og Ártúnsholti, aðrir sögðu að hæsta fasteignaverð væri í Vesturbæ og Fossvogi. Eftirspurn og hátt fasteignaverð færi þó ekki alltaf saman og gæti gengið miklu betur að selja íbúðir í öðrum hverf- um en hér voru nefnd. En flestir fasteignasalar voru sammála um að eftirspurn væri mest eftir nýjum íbúðum núna og voru ýmsar skýringar nefndar í því sambandi. Ekki þyrfti annað en að aka um gömlu hverfin til að sjá að tími endurnýjunar væri upprunninn hjá flestum húsanna. Oft hefðu þau einnig verið byggð af vanefnum á sínum tíma og kostnaður við endurnýjun því oft óheyrilegur. Hár taxti iðnaðar- manna væri mörgum þyrnir í aug- um. „Þegar Kringlan var byggð hækkuðu iðnaðarmenn taxta sinn um þriðjung því næg var vinnan, en lækkuðu hann ekki aftur þegar byggingu Kringlunnar var lokið. Er því öll vinna iðnaðarmanna á okurverði og lítt fýsilegt fyrir fólk að gera upp íbúðir ef það verður að fá aðkeypta vinnu,“ sagði einn fasteignasalinn. Aðrir nefndu að miðbærinn hefði flust austar í borgina, að æ fleiri sæktu vinnu sína þangað, sem þýddi að styttra væri í nýju hverf- in en áður. Einnig stjómaði tískan stundum búsetu fólks. Fyrir tíu til tuttugu árum var það afar vinsælt- meðal ungs fólks að búa í gömlu húsi, en unga kynslóðin núna velur jöfnum höndum nýtt og gamalt húsnæði. Að sögn fasteignasala er það einnig mjög áberandi hversu mikið er um að fólk með uppkomin börn minnki við sig húsnæði og geri það fyrr en áður tíðkaðist. Yfirleitt hefði það fólk lítinn áhuga á að eyða tíma og peningum í að gera upp húsnæði og óskaði eftir íbúð sem væri í góðu standi. Draumahverfið Reyndar segja gámngar að það séu fasteignasalar sem stýri fast- eignamarkaðinum en ekki fólkið. Þeir ákveði að eitt hverfi skuli vera dýrara en annað, jafnvel þótt það eigi ekkert skylt við hugmynd- ir fólksins um draumahverfíð. I samtölum við fólk kemur fram, að flestir eiga sér draumagötur og hverfi, eða hafa að minnsta kosti skoðun á því hvar þeir vilja búa. Fjölskyldufólk vill gjarnan búa í hverfi þar sem hættulegar um- ferðargötur eru hvergi nálægar, þar sem skólinn er góður og stutt að fara með yngri börnin í gæslu. Flestir vilja hafa garð við hús sitt. Sumir kjósa að búa í sama hverfi og foreldrar og fjölskylda, aðrir vilja vera sem lengst frá ættingjum sínum. Fólk sem hefur alið upp börn sín og vill minnka við sig hús- næði, kýs frekar að fara í nýtt en gamalt, og vill helst af öllu vera áfram í sama hverfi eða fara á fornar slóðir, þ.e. í það hverfí sem það ólst upp í. Oft virðast smávægileg atriði stjórna búsetu fólks, t.d. getur það skipt máli hjá körlum að börnin gangi í gamla íþróttafélagið þeirra, og má líkja afstöðu gamalla KR- inga í því við trúarbrögð. Konur hins vegar eru afar ákveðnar hvað varðar skólana í hverfinu. Húsnæðið sjálft skiptir einnig mjög miklu máli og oftast meira í samtölum við fólk kemur fram, að flestir eiga sér draumagötur ug fiverfi, eða hafa að miunsta kusti skuð- un á hví hvar heir viljabúa. Það hefur knmið í Ijns í könnunum hér á landi að yngri fjölskyldur sem hurfa á mestu rými að halda, húa of tast hrengst. Jafnvel er til fúlk sem hefur hina mestu and- styggð á gömlu hús- næði ng talar um úbel- andi mannahet hegar aðdáendur hins gamla tala um sál. máli en gatan þegar upp er staðið. Gamlar innréttingar fara oft í taugarnar á konum og karlar verða brúnaþungir þegar bílskúrinn vantar. Mörgum er þó hjartanlega sama hvort eldhúsinnréttingin er komin úr tísku eða ekki, aðalatriðið er að kyrrð og friður ríki í hverfinu. Iðnaðarhverfi í grennd við heimiii með tilheyrandi ljótleika eða háv- aða, svo og hávaði og mengun frá umferð virðist vera eitur í beinum flestra. Hávaðinn utan frá er þó ekki alltaf verstur og höfðu hjón sem talað var við til að mynda tvisvar selt íbúð í blokk, og flust jafnoft á tveimur árum, því hávað- inn frá hljómflutningstækjum ná- granna ætlaði þau lifandi að drepa. Þess má geta að erlendis er bannað að vera með hávaða í sam- býli eftir kl. 21.00 á kvöldin, en á Islandi er oftast miðað við mið- nætti í húsreglum fjölbýlishúsa. Hávaði og músík að næturlagi er víst ekkert einsdæmi á Islandi og telja margir að íslendingar kunni ekki að búa í sambýli. Sé það ein orsök þess að fólk ræðst í að byggja sér raðhús eða einbýlishús án þess að hafa auraráð til þess. Annars má nefna að flestir Reyk- víkingar búa í fjölbýlishúsi, eða um 42,6% Áhrif flutninga Sennilega er það gamla spurn- ingin um auraráð sem stjórnar því hvort og hvert menn flytja. Sumir halda því fram að íslendingar séu síleitandi að einhverju sem þeir viti ekki hvað er og af því stafi þessi ókyrrð í beinunum. Kannski eru þeir alltaf að leita að götu með sál, enda rétt að byrja að fóta sig í húsnæðismálum. Stutt er síðan þeir kúrðu í þröngum torfbæjum og vissu varla að öldum saman höfðu útlendingar búið í glæstum byggingum. Einhverjir munu nú ætla að all- ir þessir flutningar séu óhollir mönnum, og að sögn Helga Vi- borgs sálfræðings og forstöðu- mann sálfræðideildar skóla í Breið- holtshverfi, mun eitthvað vera til í því. „Tíðir flutningar hafa oft slærn áhrif á börn sem eru slök í námi. Tími kennarans fer þá oft í að átta sig á hvar nemandi er staddur í náminu og þjónustan við bamið verður af þeim sökum lak- ari. Mörg börn taka því illa að þurfa að flytja og sýnist mér þau vera viðkvæmust fyrir því á aldrin- um 10 til 14 ára. Eftir að þau era komin í framhaldsskóla virðist það ekki skipta svo miklu máli, því þá er vinahópurinn tengdur skólanum en ekki götunni eða hverfinu.“ Þegar rætt er um götur með sál, er oftast átt við gamlar og grónar götur þar sem andi forfeðr- anna svífur yfir vötnum. Ekki er þó þar með sagt að mikið líf þurfi endilega að vera í umræddum göt- um, enda fylgir sjaldnast líf hinum framliðnu. Því verður ekki neitað að götur nýrri hverfanna eru oftar líflegri, enda yngra fólk sem býr þar, og enn mun það tíðkast að krakkarn- ir í götunni hlaupi inn í eigin hús og önnur til að sníkja kleinu og láta snýta sér, rétt eins og í gamla daga þegar allir þekktu alla. En lífið er ein hringrás og sú kynslóð sem elst núna upp í nýju hverfi á sennilega eftir að fussa og sveia yfir nýjum og sálarlausum hverfum framtíðarinnar og tala um gömlu, góðu götuna heima.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.