Morgunblaðið - 09.06.1991, Blaðsíða 9
UMHVERFISMAL
/Hvab er vitsmunalegforystaf
Tekið djúpt í árinni
Aralvatn var einu sinni
4. stærsta stöðuvatn á jörð-
inni, mældist 41 þúsund ferkíló-
metri að stærð árið 1960 eða um
það bil 'A af allri stærð íslands.
Nú er það aðeins
17 þúsund ferkíló-
metrar og lífríki
þess úr sögunni.
Vatnið gæti horfið
fyrir fullt og allt
innan 30 ára ef
ekki verður að
gert. Svo afdrifa-
ríkar breytingar á
staðháttum af
eftir Huldu
Voltýsdóttur
náttúrulegum
mannavöldum hafa aldrei orðið áð-
ur og margir líkja þessu umhverfis-
slysi við slysið mikla sem varð í
kjamorkuverinu í Chernobyl um
þjóðarhag með stórfelldum fram-
kvæmdum án þess að hugsa fyrir
afleiðingunum í ríki náttúrunnar og
hvaða áhrif þær kynnu að hafa á
mannlíf i kring þegar til lengri tíma
væri litið. Umhverfisvernd hefur lít-
ið verið til umræðu í Sovétríkjunum
fram til þessa en breytingar hafa
orðið nú á síðustu tímum „glasn-
ost“. Nú má tala og þá koma stað-
reyndir í ljós.
Aralvatn er í Mið-Asíuhluta Sov-
étríkjanna á svæðinu í kringum 45.
breiddargráðu (á svipaðri breidd-
argráðu og löndin við norðanvert
Miðjarðarhaf). Vitað er að á íárun-
um 1926-1960 mnnu 55 kúbikkíló-
metrar af vatni úr ánum Syr og
Amur í vatnið árlega en þær ár
eiga upptök í ijöllunum í suðri,
Pamir og Tian Shan. Frárennsli
úr vatninu hefur aldrei verið neitt
en hins vegar ríkti gott jafn-
vægi milli aðrennslis og upp-
gufunar. Nú flytja þessar ár
ekki dropa í vatnið og afleið-
ingamar em eftir því.
Ákvörðun stjómvalda
árið 1918 var í því fólgin
að veita vatninu úr þess-
um tveim stórfljótum í
gríðarmikla áveitu-
skurði því breyta átti
þurri eyðimörkinni á
svæðinu í bómullarakra.
Rússar vildu vera sjálfum
sér nógir um bómull og
bómull átti líka að verða
ÉH útflutningsvara. Stærsti áveit-
uskurðurinn er sá sem kenndur
er við Kara Kum og er 1.360 km
að lengd en út frá stóm skurðunum
em minni áveituskurðir eins og
þéttriðið net.
árið. Upphaf þessa má rekja til
stjómartilskipana frá Moskvu árið
1918 þegar ráðamenn vildu bæta
Frá Þingvöllum — Sverrir Haraldsson, 1974.
Yfírleitt gefa stjórnmálamenn sín
loforð sem einstaklingur sem em
engum háðir nema sjálfum sér, en
þegar þeir verða atvinnumenn eru
þeir háðir öðmm, flokkum, nefnd-
um, mönnum og meirihluta. Þegar
þeir verða hlutir af heild, þurfa
þeir að stóla á stuðning annarra til
að geta efnt loforðin sem þeir gáfu
sem einstaklingar. Spyija má: Er
ekki nóg að lofa því að leggja sig
allan fram við að vinna þjóðinni
hamingju og heill, og vera henni
óendanlega trúr?
Réttlætið er höfuðbaráttumál
stjórnmálamannsins. Réttlætið er
hugsjónin. Réttlætið gefur lífí hans
og starfí gildi. Og ef hann er rétt-
lætinu trúr, hefur hann ekkert að
óttast. Völd krefjast þroska og vitur
stjómmálamaður notar völd sín ein-
ungis til að framkvæma réttlætið.
Og réttlætið er ekki breytilegt held-
ur eilíft og býr í náttúrunni og
hjarta mannsins. Sannur stjómmál-
amaður vill láta gott af sér leiða
og afnema öll óréttlát lög og rang-
ar reglur. Stjórnmálamenn vilja í
rauninni allir það sama. Hugmynd-
afræði er aðeins fatnaður sem
stjórnmálamenn klæðast á daginn,
en þegar þeir sofa á nóttunni
dreymir þá alla sama drauminn um
réttlætið, frelsið og ástina.
Ekkert er þó erfiðara en að vinna
að réttlætinu. Hvort sem okkur lík-
ar betur eða verr þá gerist hið góða
ekki ósjálfrátt. Hið vonda og hið
rangláta æðir um eins og öskrandi
ljón. Barátta stjórnmálamannsins
getur verið erfíð og honum stendur
sífellt til boða að falla á kné og til-
biðja eigið veldi. List stjórnmála-
mannsins felst í því að fylgja rödd
samviskunnar hvað sem á dynur.
Og treysta aðeins á sjálfan sig.
Stjómmálamaðurinn verður að vera
óhræddur að skýra frá sannfæringu
sinni, jafnvel þó hann eigi það á
hættu að öll heimsbyggðin reki upp
skellihlátur.
Enginn stjórnmálamaður er full-
kominn, en frummynd þeirra og
viðmið er afar fullkomið. Kröfurnar
eru því og eiga að vera miklar.
Stjórnmál em siðferðileg í eðli sínu
því allar stjórnmálalegar ákvarðanir
varða menn og koma þeim vel eða
illa, og em réttar eða rangar.
Ábyrgðin er því mikil eins og í öllum
öðmm störfum.
Speki: Aðeins þegar stjómmála-
maðurinn hlýðir eigin samvisku,
hlýðir hann þjóð sinni.
Sköpunar-
þörf Sásem
ekki á þess kost
að upplifa sköp-
unargleði fer
mikils á mis.
SÁLARFRÆÐI /Hva& erfrelsi í listsköpun?
Sköpunargleði
Sköpunargleði taka menn sér oft í munn þegar rætt er um störf
listamanna, rithöfunda og annarra þeirra sem vinna svonefnd skap-
andi störf. En þar getur auðvitað verið um ótalmargt að ræða. Ein-
att er þetta hugsað svo að í mönnum búi einhver þörf til þess að
skapa, tjá sig í orði eða sýnilegri athöfn. Þegar þessi þörf fær útrás
í einhvers konar sköpun fylgir því gleði, hamingjukennd.
Upphaflega getur sköpunarþörf
vafalaust beinst í ýmsar átt-
ir, þó að oft verði vart við sérstak-
lega sterkar hneigðir á tilteknu sviði
(t.a.m. tónlist). Er þá gjarnan dreg-
in sú ályktun að
um arfgenga
hneigð eða hæfi-
leika sé að ræða,
einkum þegar
hneigðir margra
skyldmenna
ganga í sömu átt.
Til þess að
sköpunarþörf fái
notið sín í verki er yfírleitt nauðsyn
á undirstöðuþjálfun og í nútíma-
þjóðfélagi eru möguleikar til slíkrar
þjálfunar að jafnaði nokkuð góðir.
Með því móti aflar viðkomandi sé
nauðsynlegrar tækni og fínnur leið-
ir til eðlilegustu og áhrifaríkustu
tjáningar.
Allir virðast vera á einu máli um
að hverjum manni sé brýnt að fá
sköpunarþörf sinni útrás og að sá
sem ekki á þess kost að upplifa
sköpunargleði fari mikils á mis. Þvl
leggja nútíma uppalendur áherslu
á þennan þátt uppeldisins. En þar
er margs að gæta og margt að
varast. Eitt er t.a.m. að ekki er
ávallt víst að saman fari hæfíleikar
og hneigð á tilteknu sviði eða áhugi
eins og það er kannski oftar orðað.
Áhuginn getur hæglega beinst í
aðra átt þó að hæfíleikar séu þar
eitthvað minni. Uppalandinn þarf
vissulega að taka fullt tillit til þessa.
Þá eru sumar tegundir listsköpunar
í tísku á tilteknum tíma en aðrar
ekki og getur það villt uppalendum
sýn. Loks skiptir meginmáli hvemig
undirstöðuþjálfun fer fram. Hún
þarf vissulega að vera af því tagi
að barnið (oftast) skilji og skynji
að hún opni því leið að þeirri tján-
ingu sem það sjálft sækist eftir.
Annars er til lítils barist.
Fræðimenn greina stundum á
milli innlægrar þarfar eða áhuga
og útlægrar. Innlæg þörf er sú sem
sprottin er upp innanfrá, á rætur í
einstaklingnum sjálfum. Utlæg þörf
er hins vegar tilkomin fyrir utanað-
komandi áhrif og er hún oft tengd
öðrum óskyldum eða líttskyldum
þörfum.
Hugsum okkur nú einstakling
sem hefur allt frá blautri bernsku
haft einstakt yndi af að teikna og
fara með liti. Með aldri og þjálfun
þroskast þessi hæfíleiki og að því
kemur að hann verður aðalfarvegur
tilfínninga hans og upplifunar. Við-
komandi fær formlega menntun og
um tvítugsaldurinn er hann orðinn
þjálfaður og fær myndlistarmaður.
Smám saman verður hann þekktur.
Fólk kemur að skoða myndir hans
og kaupir þær. Verkin hækka í
verði. Eftirspurn eykst. Frægðin
blasir við. Sumum tekst að láta
þetta sem vind um eyru þjóta. Þeir
halda sínu striki, breyta yfir í ann-
an stíl eða tjáningarform ef þeir
telja það henta sköpunarþörf sinni
betur, jafnvel þótt aðdáendur snúi
við þeim baki. Sköpunarþörfín er
sterkari en annað. Aðrir ánetjast
útlægum þörfum. Frægðin, fjár-
hagslegur ávinningur sest í fyrir-
rúm. Áður en varir er hin fijálsa
leikandi sköpun orðin að atvinnu-
mennsku. Listamaðurinn finnur að
hann endurtekur sjálfan sig í sífellu,
neisti sköpunaragleðinnar fölskvast
eða slokknar. Hann kann að að
halda vinsældum sínum, frægð og
tekjum, en veit sjálfur að hann slær
falskar nótur. Stundum leiðir af
þessu andlega kreppu sem lamar
athafnir, I öðrum tilvikum flata
meðalmennsku.
Þegar talað er um frelsi í list-
sköpun hygg ég að þar hljóti frem-
ur öðru að vera átt við frelsi til
þess að hin innlæga sköpunarþörf
og gleði sem af henni leiðir geti
notið sín sem hindrunarminnst. En
um það frelsi sitja margir árar og
þarf því að vera vel á verði.
eftir Sigurjón
Bjömsson
werzalitr
SÓLBEKKIR^i
fyrirliggjandi.
Þola
vatn
IIIÍhSST
Mt SENDUM f PÓSTKRÖFU
to Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla29 • Reykjavík • sími 38640
TVÍ
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands óskar eftir að
ráða viðskiptafræðing til að kenna fjárhags- og
rekstrarbókhald. Samhæfa þarf kennsluna tölvu-
búnaði skólans og öðru námi nemenda.
Tölvuháskólinn hefur til umráða net með Victor
MX 386 tölvum annars vegar og IBM PS/2 hins
vegar sem tengjast AS/400 tölvu frá IBM.
Umsóknir skulu sendar Þorvarði Elíassyni eigi
síðar en 20. júní nk.
Tölvuháskóli VÍ,
Ofanleiti 1,
__________ 103 Reykjavík.
SUMARBÚÐIR KIRK JUNNAR
Heiðarskóla, Borgarfirði
Við getum bætt við nokkrum börnum á aldrinum 9-12 ára í tvo
síðustu flokkana, 8.-19. júlí og 22. júlí - 2. ágúst. Sund, íþróttir,
gönguferðir, heimsókn á sveitabæ, kvöldvökur og kristin fræðsla.
Dvalargjald fyrir hvern 12 daga flokk er kr. 20.000, allt innifalið.
Innritun fer fram í Bústaðakirkju milli kl. 17 og 19 alla virka daga
nema föstudaga. Sími 37801.