Morgunblaðið - 09.06.1991, Qupperneq 15
C 15
Robin Hood: The King of Thieves
(Regnboginn, júlí). Það er erfitt að
ímynda sér nokkurn slá út Kevin
Costner í hlutverki Hróa hattar en
það fer reyndar talsvert eftir því
hvort myndin verður bönnuð ákveðn-
um aldurshóp eða leyfð fyrir alla fjöl-
skylduna. Hróa hattar myndirnar
hafa verið ófáar í gegnum tíðina en
hér er leitast við að finna sögunni
um kappann frá Skírisskógi raun-
sæislegan svip. Hann snýr úr kross-
ferðunum með Mára sér við hlið, leik-
inn af hinum ágæta Morgan Free-
man, og tekur upp hatramma bar-
áttu við sýslumanninn í Nottingham,
leikinn af Alan Rickman. Marian hina
fögru leikur Mary Elizabeth Mastr-
antonio. Bogfími og sverðaglamur,
hetjudáðir, húmor og rómantík hinna
bestu æfintýramynda er lofað og
áhuginn á Costner hérlendis sér um
afganginn en sjöföld óskarsverðlaun-
amynd hans, Dansar við úlfa, er nú
kominn á fimmta tug þúsunda í
aðsókn.
The Naked Gun 2 Vr. The Srnell
of Fear (Háskólabíó, júlí). Fyrri
myndin naut mikilla vinsælda hér
árið 1989 og var ein af stóru sumars-
mellunum þá. Ekki er ástæða til
annars en ætla að sagan endurtaki
sig. Lögreglumaðurinn Frank Dreb-
in, sem Leslie Nielsen leikur, er feng-
inn til að koma í veg fyrir stórfelit
mengunarslys og tekst það sjáifsagt
á sinn yfirmáta klaufalega hátt. Fár-
ánleikafyndninni eru engin takmörk
sett undir leikstjórn David Zuckers
úr hinu undirfurðulega ZAZ-gengi
(David Zucker, Jim Abrahams, Jerry
Zucker). Sýnishornið, sem Há-
skólabíó hefur sportað, lofar góðu
en það er útúrsnúningur á leirkeraat-
riðinu úr hietsölumyndinni Draugar,
sem bróðir Davids, Jerry, leikstýrði
reyndar. Það átti ekki að vera í
myndinni en David þótti það svo
gott að hann setti það inní.
Rocketeer (Bíóhöllin/Bíóborgin,
sept.). Rakettumaðurinn er eina
raunverulega æfintýramynd sumars-
ins í ætt við þær sem George Lucas
og Steven Spieiberg gera og hún
lofar góðu. Það er Joe Johnston sem
leikstýrir en hann kom mjög á óvart
með metsölumyndinni Elskan, ég
minnkaði bömin. Sögusviðið er seinni
hluti íjórða áratugarins þegar nas-
istar vaða uppi og hetja vor, Cliff
Secord, finnur flugbúnað fyrír einn
með tilheyrandi hjálmi og hann
bjargar búnaðinum frá að falla í
hendur þýskaranna. Óþekktir leikar-
ar fara með helstu hlutverk myndar-
innar en í aukahlutverkum eru m.a.
Alan Arkin og Timothy Daiton, sem
leikur illingjann. Secord er hasar-
blaðahetja sem varð til í upphafi
níunda áratugarins en sögurnar um
hann hafa til að bera alla helstu
þætti æfíntýramyndarinnar og undir
leikstjórn Johnstons ætti hin klass-
íska barátta góðs og ills að koma
Rakettumanninum til stjarnanna.
The Terminator 2 (Stjömubíó,
ágúst). Framhaldsmyndin um útrým-
andann Arnold Schwarzenegger er
„Total Recall“ sumarsins. Hasar-
myndaleikstjórinn James Cameron
snýr aftur til að leikstýra þessum
88 milljón dollara tækniþriller
(stjarnan fær 15 milljónir að því sagt
er) og ljóst er að ekkert er sparað
til að trekkja að áhorfendur. Linda
Hamilton endurtekur hlutverk sitt
sem móðirin en sonur hennar er
ástæðan fyrir öllum látunum; hann
mun koma til með að ógna framtíðar-
valdhöfunum svo þeir senda vél-
menni aftur í tímann til að ganga
frá honum ungum. The Terminator
1 er með bestu myndum sinnar teg-
undar og setti Cameron á blað og
ekki er minna vænst af þessari. Ca-
meron hlýtur að hafa lært af mistök-
unum í The Abyss, í svona myndir
þarf að dæla stanslausum hasar nú
til dags ef þær eiga að virka.
The Silence of the Lambs (Há-
skólabíó, júlí). Ef hasarmynd sum-
arsins verður The Terminator 2 verð-
ur spennumynd sumarsins án efa
þessi þriller eftir samnefndri met-
sölubók Thomas Harris, sem brátt
kemur út á íslensku. Lömbin þagna
er umtalaðasta mynd ársins í Banda-
ríkjunum og á hún því að þakka ein-
um alversta illingja kvikmyndasög-
unnar, Hannibal „The Cannibal"
Lecter, sem breski leikarinn Anthony
Hopkins þykir leika af stakri snilld.
Myndin varð kveikjan að umræðu
um aukið ofbeldi í bókum og bíó-
myndum vestra en hún segir frá leit
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991
Æfintýramynd í anda Lucas og Spielbergs; úr Rocketeer.
Hnífsbeitt handtak; úr myndinni um Ját-
varð klippikrumlu.
Skjaldbökurnar snúa aftur.
Skeggöld, skálmöld; úr þriðju víkingamynd Hrafns Gunnlaugssonar.
Spáð mestri velgengni; Hrói hött-
ur Kevin Costners.
Arnold snýr aftur; Schwarzeneg- The Naked Gun 2'h; Leslie Niels-
ger í The Terminator 2. en í hlutverki Drebins lögreglu-
manns.
lögreglunnar að fjöldamorðingja sem
húðflettir kvenfómarlömb sín. Jodie
Foster og Scott Glenn leika lögreglu-
mennina sem annast rannsókn máls-
ins en þau leita aðstoðar Lecters,
frábærs sálfræðings, hugsjúks morð-
ingja og mannætu, þar sem hann er
geymdur í öryggisklefa geðsjúkra-
húss. Jonathan Demme, frægur fyrir
allt annað en þrillera, leikstýrir og
víst er að hér sé hægt að ganga að
spennunni vísri.
Life Stinks (Bíóhöllin/Bíóborgin,
ágúst). Þetta er nýjasta gamanmynd
háðfuglsins Mel Brooks en hér segir
af því þegar margmilli, sem Brooks
leikur sjálfur, lendir í ræsinu og
kynnist lífínu þar af eigin raun. Orð-
rómur er uppi um að hér sé bráðskop-
leg mynd á ferðinni en víst er að
Brooks er á uppleið, það sýndi síð-
asta mynd hans, geimæfintýradell-
ugrínið Spaceballs. íslenskir kvik-
myndahúsagestir hafa alltaf haft
ofurtrú á manninum og ef honum
tekst eins vel upp í þessari mynd og
þeirri síðustu er aðsóknin gulltryggð.
Hot Shots! An Important Movie
(Bíóhöllin/Bíóborgin, ágúst). Ein af
mörgum gamanmyndum sumarsins
og varla sú sísta. Jim Abrahams úr
áðurnefndu ZAZ-gengi gerir gys að
skæslegu flugherskólamyndunum í
ætt við Top Gun. Charlie Sheen fer
með aðalhlutverkið í myndinni, leikur
n.k. Tom Cruise-eftirlíkingu í flug-
skóla flotans. Reyndar þykir tíma-
setningin á myndinni ekki uppá það
besta vestra því margir segja að
Abrahams sé í leiðinni að gera gys
að hetjunum úr Persaflóastríðinu.
Hann hefur neitað því alfarið. En
reyndar hefur það sýnt sig að honum
er ekkert heilagt ...
Backdraft (Laugarásbíó, sept.)
Undirtitillinn gæti verið: Líf og dauði
í slökkviliði Chicagoborgar. Kurt
Russell og William Baldwin leika
bræður sem keppast við að slökkva
eldana í stórborginni. Brennuvargur
gengur laus og skilur eftir sig eyði-
leggingu hvar sem hann fer, n.k.
Lecter loganna. Handritið bíður uppá
mörg spennandi augnablik í eldhaf-
inu og leikaralistinn er traustur;
Robert De Niro og Donald Suther-
land fara með aukahlutverk. Kurt
Russell er með vinsælli leikurum hér
eftir John Carpentermyndir eins og
The Escape From New York og The
Thing en á eftir að slá í gegn í met-
sölumynd. Ron Howard leikstýrir.
Teenage Ninja Turtles 2 (Bíó-
höllin/Bíóborgin, ágúst). Ninja
skjaldbökurnar eru betur kynntar hér
á landi núna þegar von er á fram-
haldsmyndinni en þegar fyrri myndin
kom í Háskólabíó um jólin. Teikni-
myndimar eru komnar í sjónvarpið
og leikföngin fást í búðunum. Fyrri
myndin varð metsölumynd uppúr
þurru en þessari seinni vegnaði ekki
eins vel vestra. Nu segir af leit
pítsuætanna Donatellos, Rafaels,
Michaelangelos og Leonardos að
uppruna efnaúrgangsins sem breytti
þeim úr litlu skjaldbökunum í ninja-
hermennina skæðu.
The Hard Way (Laugarásbíó,
júlí). Michael J. Fox reynir að fóta
sig í bíómyndunum eftir að trílóg-
íunni um tímaferðalög Marty Mac-
Flys lauk og leikur hér á móti James
Woods í grínspennumynd John Bad-
hams. Fox leikur heimsfrægan kvik-
myndaleikara sem á að fara að leika
löggu og ákveður að kynnast starfinu
með því að vinna um tíma við hlið
alvörulöggu, þ.e. James Woods.
Dæmigerð sumarmynd á alla kanta
eftir útlitinu að dæma.
Only the Lonly (Bíóhöllin/Bíó-
borgin, júlí). Einhver vinsælasti dú-
ettinn vestanhafs þessa dagana eru
John Hughes og Chris Columbus en
þeir eru mennirnir á bak við ótrúlega
velgengni gamanmyndarinnar Al-
einn heima. Reyndar er sá litli Mac-
aulay Culkin fjarri góðu gamni, nú
fer John Candy, einn af uppáhaldsiei-
kurum Hughes, með aðalhlutverkið,
lögreglumann sem á ráðríka móður
er skiptir sér óeðlilega mikið af
kvennamálum sonarins. Þetta er
dæmigerð gamanmynd af Hughes-
skólanum en það má mikið vera ef
hún kemst einhverstaðar nálægt
„Aleinum" í aðsókn.
Edward Scissorhands (Bíóhöll-
in/Bíóborgin, júní). Tim Burton leik-
stjóri „Játvarðar" er með frumle-
gustu leikstjórum Bandaríkjanna og
skaut sér upp á stjömuhimininn með
Leðurblökumanninum. Sagan um
Játvarð klippikrumlu er frá honum
sjálfum komin en líkist nokkuð sög-
unni um Gosa. Hún er um vísinda-
mann (Yincent Price) sem smíðar
fullkominn dreng (Johnny Depp) en
deyr áður en verkinu lýkur og skilur
hann eftir með flugbeitta hnífa í stað
handa. Játvarði er ómögulegt að
snerta fólk án þess að leggja það í
hættu en býr til fegurstu útskurði.
Vinona Ryder leikur kærustuna
hans.
What About Bob? (Bíóhöllin/Bíó-
borgin, sept.) Bill Murray leikur geð-
sjúkling sem eltir lækninn sinn, Ric-
hard Dreyfuss, í fríið og gerir honum
allt til miska. Leikstjóri er Frank
Oz. Gamanmynd með tveimur stór-
stjörnum sem reyndar veitir ekki af
svolítiili metsölu til að hressa uppá
sig. Síðasta gamanmynd Murrays,
Quick Change, var illa vanmetin, og
Dreyfuss á nokkrar góðar myndir
að baki eftir að hann sneri aftur í
bíó. Það er góður leikur að spyrða
þá saman en samkomulagið var víst
ekki alltaf uppá það besta, fréttir
bárust af tökustað um handalögmál
þeirra á milli.
Robin Hood (Bíóborgin/Bíóhöllin,
júní). Það er ekki oft sem gefst tæki-
færi á að sjá tvær Hróa hattar mynd-
ir sama sumarið en sem fyrr eru
vegir Hollywoods órannsakanlegir.
írski leikarinn Patrick Bergin (eigin-
maðurinn í Sofíð hjá óvininum) fer
með hlutverk hetjunnar í Skírisskógi
en á næstum örugglega eftir að tapa
slagnum fyrir Kevin Costner. Mun
þó hala talsvert inn á eftirvænting-
unni og umtalinu um Hróa og verður
litið á hana sem upphitun fyrir Costn-
er.
Barton Fink (Laugarásbíó, sept.)
Coenbræður, Joel og Ethan, komu
öllum á óvart á Cannes þegar þeir
hrepptu Gullpálmann fyrir þessa
mynd. í ljós kom að Siguijón Sig-
hvatsson var ekki fjarri góðu gamni,
flármagnaði myndina að hálfu og
hefur sýningarréttinn utan Banda-
ríkjanna. Myndin segir frá leikrita-
skáldi frá New York sem kemur til
Los Angeles að skrifa bíóhandrit og
lendir í slæmum félagsskap á hótel-
inu sem hann býr á. Myndin er sögð
gamansamur þriller. Coenbræður
hafa gert frábærar myndir, frumleg-
ar og skemmtilegar en aðsóknin hef-
ur ekki verið uppá það besta. Það
brejdist kannski með Barton Fink.
Gullpálmamyndin Tryllt ást, sem
Siguijón átti einnig þátt í, fékk
24.000 manns í aðsókn hér heima.
Point Break (Bíóhöllin/Bíóborg-
in, sept.) Enginn skyldi afskrifa
Patrick Swayze svo glatt. Hann átti
sinn þátt í því að gera Drauga að
metsölumynd síðasta sumars og það
er aldrei að vita hvað hann gerir í
ár. Hér leikur hann n.k. brimbrettag-
úru og ætti að taka sig vel út bringu-
ber í sólinni. Demi Moore er reyndar
ijarri góðu gamni og fátt yfirnáttúru-
legt við brimbrettalistina.
King Ralph (Laugarásbíó, júní).
John Goodman kóngur yfir Bret-
landi? Þær hafa varla komið frum-
legri hugmyndirnar frá Hollywood.
Heila konungsíjölskyldan þurrkast
út við hátíðarmyndatöku og næstur
í beinan legg er sá vörpulegi Good-
man, sem kemur til Bretlands að
taka við krúnunni og læra siði hefð-
arfólksins. Talandi um fíl í postulíns-
búð. Ágætir breskir leikarar fara
með hlutverk í myndinni eins og
Peter O’Toole og John Hurt en leik-
stjóri er David S. Ward, brokkgengur
leikstjóri en frægastur fyrir handritið
að The Sting. Goodman er vel kynnt-
ur hér á landi eftir sjónvarpsþættina
Roxanne.
Hudson Hawk (Stjörnubíó, sept.)
Bruce Willis er innbrotsþjófur sem
lendir í slagtogi með mönnum sem
ætla að smíða vél byggða á löngu
týndri uppfinningu Leonardo Da Vin-
cis, sem malar gull úr blýi. Þetta er
rándýr gamanæfintýramynd en Will-
is á sjálfur hugmyndina að sögunni.
Framleiðandi er Joel Silver, frægur
fyrir að spreða dollurum í hasar-
myndir (Die Hard) en leikstjóri er
Michael Lehmann, nýliði í greininni
með eina mynd að baki (Heathers).
Auðvitað ber að taka allar spár
af þessu tagi með varúð, metsölu-
mynd sumarsins vestra í fyrra var
Draugar (Ghost) en hún komst
hvergi á blað spámanna fyrr en allt
í einu hún tók að þjóta upp vinsælda-
stigann. Óvæntir smellir er boðorð
dagsins. Auk ofangreindra mynda
bjóða bíóin uppá fjölda annarra yfir
sumarmánuðina og verða þær helstu
taldar hér upp: lögguþrillerinn Blue
Steel, mafíumyndin Miller’s Crossing
eftir þá Joel og Ethan Coen, Teenag-
ent, n.k. Bondmynd táninganna,
Avalon eftir Barry Levinson, Return
to the Blue Lagoon, þrillerinn De-
sperate Hours, rokkheimildarmyndir
Madonna, flugherskólamyndin Fire
Birds, Chuck Norrismyndin The
Delta Force 2, mynd Bernardo Ber-
toluccis, The Sheltering Sky, rétt-
ardramað Class Action, gamanmynd-
in L.A. Story, gamanmyndin Merma-
ids og nýjasta mynd Roberts De
Niros, Guilty by Suspicion.