Morgunblaðið - 09.06.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991
C 17
ljúka níu mánaða námsdvöl við
stærsta bókasafn veraldar, banda-
ríska þing- og þjóðbókasafnið, Libr-
ary of Congress. Mér hefur oft orð-
ið hugsað til Björns Sigfússonar
þessa síðustu mánuði. Alltaf gerði
ég ráð fyrir að hitta hann fljótlega
við garðshornið á Aragötu 1, skoða
hjá honum plönturnar og segja hon-
um frá öllu. Þá óraði mig ekki fyr-
ir, að áður yrði hann kallaður til
starfa í öðrum garði.
Kæra Kristín og Hörður, ég og
fjölskylda mín sendum ykkur og
öðrum í íjölskyldunni innilegustu
samúðarkveðjur. Megi minningarn-
ar um góðan vin og íjölskylduföður
styrkja ykkur og lýsa veginn um
ókomin ár.
Guðrún Karlsdóttir
frá Stóru-Borg
Þar sem aðrir hafa skrifað all
ítarlega um Björn Sigfússon. há-
skólabókavörð, sem er nýlátinn,
verður það sem hér fer á eftir fyrst
og fremst persónulegar endurminn-
ingar. Ég kynntist dr. Birni þegar
ég kom til starfa í Háskólabókasafn
haustið 1962, en þá veitti hann mér
tilsögn í bókasafnsfræði sem hin
síðari ár hafa verið kennd í félags-
vísindadeild. Var ég síðan viðloð-
andi Háskólabókasafnið til 1978
svo margs er að minnast.
Björn var ákaflega hispurslaus
og hreinskilinn maður og varð ég
fyrir miklum áhrifum af honum.
Hann gerði sér engan mannamun
og hikaði ekki við að fara sínar
eigin leiðir, ekki vegna sérvisku
heldur vegna þess að hann fyrirleit
alla eftiröpun og yfirborðsmennsku.
Ég minnist til dæmis að ég spurði
hann eitt sinn hvernig ætti að vinna
ákveðið starf og hann leiðbeindi
mér fúslega með það. En hann
bætti við: Ég reyni reyndar oft að
skipta um starfsaðferð til þess að
hugsa upp á nýtt. Ef maður gerir
allt af vana hættir maður að hugsa.
Þar sem ég var stærðfræðideild-
arstúdent fól hann mér oft verkefni
sem féllu undir raunvísindi. Hann
var einnig vel heima í mörgum
greinum náttúruvísinda og sagði
mér að það hefði verið erfitt val
að loknu stúdentsprófi að velja á
milli þeirra og íslenskra fræða sem
urðu ofaná þar sem hann var hand-
genginn þeim frá æskuárum. Björn
virtist í rauninni vera síungur. í
viðtali sem ég átti við hann áttræð-
an sagði hann m.a.:
Maður lifir ekki í einum og sama
mannsaldri. Maður hefur ekki leyfi
til að segja: Þetta er minn manns-
aldur sem nú eruð of ung eða göm-
ul. Það er reynandi að lifa sig inn
í sömu aldursvíddir og þeir. Þetta
hef ég vitað af því að ég ólst upp
hjá gömlu fólki, aðallega kellingum,
fyrir utan það að ég lærði ævinlega
mikið af föður mínum. Fortíðin var
ákaflega lifandi hjá kellingunum
meðfram fyrir það minni sem þær
höfðu um kynslóðirnar gleymdu,
sem fæddar voru um 1800. Eldri
amma mín var fósturbarn sinnar
ömmu, sem hafði fæðst fyrir
frönsku byltinguna. Þarna barst
mér sjór af þjóðsögum og öðrum
gömlum fróðleik.
Björn var öllum góður, bæði
skyldum og vandalausum. Það
reyndiég ekki síst, því vegna starfs-
aðstöðu hjá honum og bróður hans,
Halldóri Sigfússyni skattstjóra, gat
ég lokið háskólanámi sem annars
hefði verið mjög erfitt á tímum
þegar námslán voru lítil eða engin.
Er því minning hans mér ákaflega
kær.
Páll Skúlason
GALLERÍ
SIGURÞÓRS JAKOBSSONAR
VÍÐIMEL 61 - SÍMI 91 -25212
OPÐ DAGLEGA 13^-lS00
t
Ástkær unnusti minn, faðir, bróðir, son-
ur og stjúpsonur,
KARL JÓHANN SIGHVATSSON,
tónlistarmaður,
sem lést af slysförum 2. júní síðastlið-
inn, verður jarðsettur frá Dómkirkjunni
mánudaginn 10. júní kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á einkareikning Orgel-
sjóðs Þorlákskirkju nr. 7817 í Landsbankanum, Þorlákshöfn.
Sigríður H. Pálsdóttir,
Orri Grfmur Karlsson,
Sigurjón Sighvatsson,
Sighvatur Karlsson,
Ragnar Ingólfsson
og vandamenn.
Morgunverðarfundur Verslunarráðs fslands
í Skálanum, Hótel Sögo,
miðvikudaginn 12. júní 1991 kl. 01.00-9.30
VIDHORFIN Í GJALDEYRISMÁLUM
0G TENGING KRÓNUNNAR VID ECU
Mörgum spurningum er ósvarað um framtíðar-
stöðu íslands varðandi fjárfestingu og viðskipti
með gjaldeyri. Er jafnvel tími til kominn að tengja
krónuna við Evrópumyntina ECU? Sú spurning
er nú til skoðunar.
Frummælendur:
Birgir ísleifur Vilhjólmur Egilsson,
Gunnarsson, framkvæmdastjóri VÍ
Seðlabankastjóri
Ólofur Davíðsson,
framkvæmdastjóri Fll
Aðgangur með morgunverði kr. 800.
Þátttaka tilkynnist fyrirfram í síma 678910.
Metsölublaó á hveijum degi!
HUGSAÐU UM BÆTIEFNIN
— en gleymdu ekki undirstööunni!
og gefur auk þess zink, magníum, kalíum, A-vítamín og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg.
Gencomplex"
frtexisóámín, st&nefrú og Gtnseng extraksm G1L