Morgunblaðið - 09.06.1991, Side 19
leei inúi .e auoAíiunM'ja JlAiK&HfifLIQtff uiöAja/iUoaoit
‘morgunbiaðið FJOLMIÐLAR SÚNNUDÁGUR 9. JÚNI 1991
—€■ "13---
Fjölbreytni
er lykilatriði
Sveinn Einarsson í spjalli
um dagskrá sjónvarps
FJÖLDI verkefna er nú í bígerð hjá Sjónvarpinu
sem fyllir 25 ár í haust. Aukin áhersla er á vand-
aðar, leiknar myndir og heimildarþætti. „Þrjú
stórverkefni eru í vinnslu eða burðarliðnum,"
sagði Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri innlendrar
dagskrágerðar, inntur eftir helstu verkefnum
sjónvarpsins á næstunni.
Fyrst er að telja mynd sem gerð
er eftir handriti Matthíasar
Johannessen en Hilmar Oddsson
leikstýrir og aðlagaði handrit.
Myndin sem ber hið óvenjulega
nafn; Sjóarinn, spákonan, blómasal-
inn, skóarinn, málarinn og Sveinn,
er ljóðræn og hlýleg lýsing á högum
útigangsfólks í Reykjavík sam-
tímans með sterkum tilvísunum aft-
ur í fortíð. Verkið hlaut styrk úr
Menningarsjóði útvarpsstöðva og
er stefnt á frumsýningu í nóvember-
lok.
í þessum mánuði hefjast upptök-
ur á mynd í leikstjórn Viðars Vík-
ingssonar sem heitir „Marías" eftir
samnefndu spili og byggir á einni
þekktustu smásögu Einars H. Kvar-
an. Rakin er uppvaxtarsaga stráks
í sveit og fjallað um happdrættið í
sjálfu lífinu. Viðar hefur fært tíma
sögunnar frá aldamótum til upp-
hafs sjöunda áratugsins og spunnið
við hana vegna ólíkra forsenda rit-
máls og myndar. Drengurinn bland-
ast inn í togstreitu tveggja ungra
manna um heimasætu. Hrafn
Gunnlaugsson leikstýrir síðan
„Hjartanu", eftir handriti forsætis-
ráðherra, Daviðs Oddssonar. Þetta
er lítil og fíngerð saga fyrir alla
fjölskyldunna, er fjallar um tvo
smástráka sem
hafa náð sam-
bandi við guð
og reyna að
rækta þau
tengsl, m.a. í
leikjum sínum.
Jóladagatal-
ið, sem naut
mikilla vin-
sælda í fyrra-
vetur, verður
tekið upp aftur með tilheyrandi
ævintýrum en verður myndað um
víðan völl, í stað myndvers áður.
Sigrún Eldjárn leysir þá Sveinbjörn
I. Baldvinsson og Sigurð Valgeirs-
son af hólmi sem handritshöfundur.
Þeir félagar semja hins vegar „Millj-
ón blöðrur" sem er leikinn fram-
haldsþáttur í léttum dúr, deilt er á
spákaupmennsku landans en jafn-
framt hylla þeir ódrepandi lífsvilja
hans. Aðalpersónur þáttanna hafa
sífellt ný áform á takteinum sem
flestar miða að ríkidæmi, með mis-
jöfnum árangri þó.
Ótal heimildarþættir eru í undir-
búningi, t.d. leikin mynd um líf og
störf Jón Leifs í fullri lengd, sem
þegar hefur vakið töluverða at-
hygli, m.a. erlendis. Soffía Auður
Birgisdóttir fjallar um konur í ís-
Davíð Siffrún
Sigurður Soffía
lenskri ljóðlist og Ingi Bogi Bogason
um Jóhann Jónsson skáld. Hrafn-
hildur Schram og Júlíana Gott-
skálksdóttir gera Svavari Guðna-
syni skil. Einar Heimisson mun
skyggnast um Kaupmannahafn-
arnýlenduna á stríðsárunum og
Björn Emilsson kafar til hafsbotns
í þáttum sem nefnast Gull í greipar
Ægis. Árni Johnsen skoðar Dyr-
hólaey og byggðir norrænna manna
á Grænlandi.
Eins og þetta ágrip gefur til
kynna ræður fjölbreytnin ríkjum í
verkefnavali, enda er það lykilatriði
að allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Okkur var að berast í hendur ný
þjónustukönnun og erum mjög sátt-
ir við hve mikið er horft á ólíka
þætti, og hversu áhorfendur gefa
innlendum þáttum góða einkunn.
Skemmtiefni hefur eflst mjög upp
á síðkastið og er meðal þess sem
áhorfendur biðja um meira af; söm-
uleiðis t.d. leikna framhaldsþætti.
Auðvitað heyrast gagnrýnisraddir
en mín reynsla er sú, að oftar en
ekki komi þær frá fólki sem ekki
fylgist vel með dagskránni. Órök-
studdum sleggjudómum svörum við
að einungis einn veg; reynum að
hafa enn betri dagskrá á boðstól-
um.“
Viðar
Stöð 2:
Ihugar útsend-
ing*ar textavarps
Á STÖÐ 2 er í athugun að hefja útsendingar textavarps.
Að sögn Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs hefur sú athugun staðið í 3 mánuði og er niðurstöðu
að vænta á næstu vikum. Segir Baldvin að kanna verði
nánar ýmit tæknileg atriði, auk þess sem enn sé leitað leiða
við fjármögnum slíkra útsendinga.
Textavarp er útsending þar
sem upplýsingar, t.d. um
veður, fréttir, færð og flugsam-
göngur birtist á sjónvarpsskján-
um og hægt er að flettta í upp-
lýsingunum. Til að taka á móti
sendingum textavarps þarf sér-
stakan útbúnað á sjónvörp.„Við
vitum ekki enn hversu mörg
tæki geta tekið við útsendingum
textavarps, í einhveijum tækjum
er upplausnin of gróf til að ís-
lenska letrið sjáist og okkur
vantar m.a. upplýsingar um
hversu stór hluti áhorfenda á
slík sjónvörp. Fyrir þá sem hafa
góða skjái en vantar útbúnað til
að fletta í textavarpinu, er hægt
að bæta við móttökutæki," segir
Baldvin.
Hann segir áætlaðan bytj-
unarkostnað við útsendingar
textavai-ps vera um 3-4 milljónir
króna. Ef auka eigi gæði útsend-
ingarinnar eða bæta upplýsing-
arnar þurfí að kosta meiru til.
„Við erum nú að kanna fjár-
mögnunarhliðina, t.d. þann
möguleika að fyrirtæki geti
keypt sig inn i textavarpið, er-
lendis eru síður í textavarpi seld-
ar í stórum stíl.“
Undirbúningur að útsending-
um textavarps er hafinn hjá
Sjónvarpinu og segist Baldvin
ekki telja of mikið að vera með
tvær slíkar útsendingar þar sem
þær verði svo ólíkar. „Breyting-
arnar á þessu sviði eru mjög
örar og möguleikarnir óþijót-
andi. I Bretlandi binda menn
miklar vonir við framfarirnar í
textavarpinu; gæði útsending-
anna eru meiri, hægt er að koma
upplýsingum á framfæri jafn-
skjótt og þær berast og nú er
hægt að panta t.d. flugmiða í
gegnum textavarpið."
Baldvin sagði fjölda nýjunga
í skoðun hjá Stöð 2 og þar væri
helst að nefna útsendingarbúnað
sem gerði eigendum svokallaðra
sjóræningjalykla ómögulegt að
ná læstum útsendingum stöðvar-
innar.
4. úrslitaleikur
þessara frábæru körfuknattleiksliða
í beinni útsendingu Stöðvar 2
í samvinnu við Mylluna
sunnudagskvöldið
Beint frá Los Angeles
\
Lo Angeles Lakers
ámóti
Chicago Bulls
MYLLAN
9. júni,
kl. 23.30.
Magic Johnson, Los Angeles Lakers
Michael Jordan, Chicago Bulls