Morgunblaðið - 09.06.1991, Side 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ MEMMINGARSTRAUMAR
SUNNUÐAGUR 9. JÚNÍ 1991
-7—
45.500 á Aleinan heima
Alls hafa nú um 45.500
manns séð gaman-
myndina Aleinn heima að
sögn Árna Samúelssonar
eiganda Bíóhallarinnar og
Bíóborgarinnar en myndin
hefur verið sýnd síðan í jan-
úar og er nú til sýninga um
helgar.
Þá kom fram hjá Árna
að spennumyndin Sofið hjá
óvininum með Juliu Roberts
er komin í 26.000 manns í
aðsókn og staðfestir það
enn vinsældir
Roberts hér á
landi. Um
23.000 manns
hafa séð hina
hrollvekjandi
spennumynd
Robs Reiners,
Eymd, eftir
sögfu Stephens
Kings og um
12.000 manns
hafa séð gam-
anmyndina
Græna kortið
Nálgast 50.000;
Aleinn heima.
1BIO
Það er langt síðan ís-
lensk kvikmynda-
gerð hefur verið jafnfjör-
leg og nú í sumar. Alls
verða teknar upp þrjár
íslenskar bíómyndir og
seinni part sumars verða
tvær íslenskar bíómyndir
frumsýndar.
Ásdís Thoroddsen er
þegar byrjuð upptökur á
mynd sinni, Ingaló á
grænum sjó. Óskar Jón-
asson byrjar tökur á
mynd sinni, Sódóma,
Reykjavílc, i endaðan júní
(sjá annarstaðar) og
Kristín Jóhannesdóttir
byrjar tökur á mynd
sinni, Svo á jörðu sem á
himni, í júlí nk.
Þá mun Friðrik Þór
Friðriksson að líkindum
frumsýna myndina Böm
náttúrunnar í ágúst og
seinni partinn í septemb-
er kemur svo Hrafn
Gunnlaugsson með mynd
sína, Hvíti víkingurinn.
eftir ástralska leikstjórann
Peter Weir.
Árni sagði að um 10.000
manns hefðu séð Clint East-
wood-myndina
Nýliðann og
um sjö þúsund
manns fram-
haldsmyndina
Rándýrið 2r
með Danny
Glover.
Tvær næstu
myndir bíó-
anna verða
Hrói höttur
með Patrick
Bergin í titil-
hlutverkinu og
Senur úr Miklagarði eða
„Scenes from the Mall“,
gamanmynd með Bette
Midler og Woody Allen.
ffHundur“ vinn-
ur verdlaun
Stuttmynd Sigurbjarnar
Aðalsteinssonar,
Hundur, hundur, fékk ný-
lega fyrstu verðlaun á kvik-
myndahátíðinni No Budget
eða Enginn kostnaður í
Hamborg í Þýskalandi.
Segir í fréttatilkynningu
að myndin hafi deilt aðal-
verðlaununum með tveimur
öðrum, bandarískri og
þýskri, en skilyrði fyrir inn-
töku á hátíðina var að
myndirnar væru gerðar í
sjálfboðavinnu og að kostn-
aður mætti ekki fara yfir
sem svarar 300.000 ísl.
krónum.
Leikstjóri og handritshöf-
undur „Hunds“ er Sigur-
björn Aðalsteinsson, Rafn
Rafnsson var kvikmynda-
tökumaður en aðalhlutverk-
ið er „leikið" af Tinnu, átta
ára tík úr Skeijafirðinum. í
tilkynningunni segir að
myndin hafi verið keypt til
sýningar í ríkissjónvarpinu.
Úr myndinni Hundur, hundur.
Utlitsteikning af atriði úr handríti Óskars Jónassonar,
Sódóma, Reykjavík.
Bjöm og Sóley
í „Sódómii"
Björn Jörundur Frið-
björnsson úr hljóm-
sveitinni Ný dönsk og Sóley
Elíasdóttir, sem stundað hef-
ur nám við leiklistarskóla í
London, fara með aðalhlut-
verkin í mynd Óskars Jónas-
sonar, Sódóma, Reykjavík.
Tökur á myndinni hefjast
27. júní nk. og sagði Óskar
í samtali við Morgunblaðið
að hann byggist við að þeim
lyki um miðjan ágúst.
Með önnur hluíverk í
myndinni fara Helgi Björns-
son, Eggert Þorleifsson,
Þóra Friðriksdóttir, Stefán
Sturla Sigutjónsson, Þröstur
Guðbjartsson, Margrét
Hugrún Gústafsdóttir, Sig-
uijón Kjartansson, Ari Matt-
híasson og margir fleiri.
Kvikmyndatökumaður
verður Sigurður Sverrir
Pálssoií, Kjartan Kjartans-
son sér um hljóð, Hrafnkell
Sigurðsson um búninga og
leikmynd er í höndum Þórs
Vigfússonar. Framkvæmda-
stjóri er Hallur Helgason og
aðstoðarframkvæmdastjóri
Ingvar Þórðarson. Mikil tón-
list verður í myndinni en hún
verður bæði innlend og er-
lend.
Óskar hefur lýst Sódómu,
Reykjavík sem grín og glens-
mynd og nokkurs konar út-
tekt á næturlífmu í Reykja-
vík á vorum dögum en hún
gerist að talsverðum hluta á
skemmtistaðnum Sódómu.
Myndin gerist öll á tæpum
sólarhring í Reykjavík en
Björn Jörundur „leikur bif-
vélavirkja sem þeysist um
bæinn þveran og endilangan
í leit að sjónvarpsíjarstýr-
KVIKMYNDIR-~™
Jafngóóur ogfyrir 50 árumf
Borgarí
Karte
HÚN varð fimmtug í síðasta mánuði myndin sem iðulega
trónir í efsta sæti hvaða lista sem er yfir tíu bestu mynd-
ir sem gerðar hafa verið. Borgari Kane („Citizen Kane“,
fyrst átti hún að heita „John Citizen, USA“, síðar „Amer-
ican“) eftir Orson Welles hefur ekki glatað grammi af
stórfengleik sínum á hálfri öld og gerir það vart úr þessu.
Myndin hefur verið sett
í almenna bíódreif-
ingu í Bándaríkjunum í til-
efni aímælisins en hún hefur
ekki staðið til boða á almenn-
mmmmmmmm um kvik-
mynda-
sýningum
þar í landi
siðan hún
var sett í
endurdreif-
ingu 1956.
Óiíkt
myndum
eins og Arabíu-Lárensi eða
Spartacus, tvö nýleg dæmi
um myndir sem gengið hafa
í gegnum gagngerar endur-
bætur, er ekki hægt að bæta
einum ramma í Borgara
Kane. Welles hafði alræði-
svöld við gerð myndarinnar
og hann skilaði af sér full-
eftir Arnald
Indriðoson
komnu verki, sem hefur sýnt
sig að stenst tímans tönn.
Borgari Kane er stóra
minnismerkið um undrabar-
nið Welles, sem var ekki
nema 25 ára þegar hann
gerði hana. Reyndar ætlaði
hann að láta sína fyrstu
mynd byggjast á sögu Jos-
ephs Conrads, „Heart of
Darkness". Hann gerði góð-
ar myndir eftir Kane, „The
Magnificent Ambersons" er
ein, en aldrei neina sem
komst nálægt því að vera
jafngóð eða betri.
Það er Paramount-kvik-
myndafyrirtækið og Turner
Entertainment sem sjá um
dreifinguna vestanhafs en
óvíst er hvort Borgari Kane
komist hingað í bíó. Gerðist
það væri það sannkallaður
kvikmyndaviðburður. Kyn-
Frumsýningardagurinn í New York;
stórfengileg á tjaldinu
slóðir hafa aðeins séð mynd-
ina í sjónvarpi. Hún fékk
nýtt líf þegar myndbanda-
væðingin hófst en fróðir
menn segja að heilmikið
glatist við að sjá hana á litl-
um sjónvarpsskjá. Hinar
mikilfenglegu stærðir mynd-
arinnar eru smækkaðar oní
nánast ekki neitt. Að horfa
á hána á litla skjánum er
betra en ekkert en maður
finnur strax að henni er troð-
' ið í sáralítið númer.
Líklega hefur engin mynd
eftir nýliða í greininni valdið
jafnmiklu fjaðrafoki og feng-
ið jafnmikla og góða gagn-
rýni og Borgari Kane. Welles
var auðvitað ekki einn að
verki. Með honum voru
frísklega þenkjandi sam-
starfsmenn sem létu reyna
á möguleika kvikmyndar-
innar. Herman J. Manki-
ewicz skrifaði handritið
ásamt Welles (það var
reyndar lengi deilt um
hvor átti hvað í handrit-
inu) sem íjallaði um
græðgi og valdasýki og
var byggt á ævi helsta
pressubaróns , aldarinnar,
Williams Randolph Hearst
(hann gerði sitt til að
stöðva gerð myndarinnar).
Tökumaður var Gregg
Toland sem stillti mynda-
vélinni upp þar sem eng-
um hafði áður dottið í hug;
Bemard Herrmann sá um
tónlistina og klipparar
voru Mark Robson og Ro-
bert Wise. Frásögnin fer
fram og aftur í tíma í stíl
fréttamynda en eitt af ein-
kennum myndarinnar er
djúpfókusinn sem gerir
áhorfandanum kleift áð
sjá hluti nær og íjær í
sama myndramma með
sama skýrleikanum.
En sjón er sögu ríkari,
sérstaklega á stóru, hvítu
tjaldi kvikmyndahússins.
Það yrði viðburður í lagi.
ingu mömmu sinnar og Sól-
veig leikur unga stúlku sem
bruggar landa og flækist
fyrir honum“, sagði Óskar.
I Lífvörðurmn heitir mynd
sem stórstjarnan Kevin
Costner mun bráðlega leika
í en mótleikari hans verður
söngkonan Whitney Hous-
ton. Costner leikur titilhlut-
verkið, lífvörð frægrar
söng- og leikkonu, sem hún
ræður þegar bijálaður aðdá-
andi tekur að elta hana á
röndum. Myndin er byggð á
handriti Lawrence Kas-
dans, sem hefur skrifað
ekki ómerkari handrit en
„The Big Chill“ og „The
Accidental Tourist".
Warner Bros. gerir myndina
en Kasdan og Costner eru
framleiðendur ásamt Jim
Wilson, sem var með Costn-
er við gerð Dansa við úlfa.
Mick Jackson, sem leik-
stýrði Steve Martin mynd-
inni „L.A. Story“, sem
væntanleg er í Stjörnubíó,
mun stýra Lífverðinum.
MBandaríski leikarínn Lou
Diamond Phillips, sem
gerði garðinn frægan með
La Bamba, er tekinn til við
að skrifa sín eigin handrit.
Nýjasta mynd hans heitir
„Ámbition" og gerir hann
sjálfur handrit hennar og
leikur aðalhlutverkið, rithöf-
und sem tekur að lifa sig
meira en góðu hófi gegnir
inní hugarheim sálsjúks
morðingja sem hann er að
skrifa um.
MNýjasta mynd hins ágæta
leikara Beau Bridges (litli
bróðir Jeffs) heitir „Marri-
ed to It“ og er gamanmynd
um þrenn hjón. Mótleikarar
Bridges eru Stockard
Channing, Mary Stuart
Masterson, Cybill Shep-
herd og Ron Silver úr
Óvinum — ástarsögu.
Leikstjóri er Arthur Hiller.
MMichael Keaton, sem býr
sig nú undir að leika Leður-
blökumanninn í annað
sinn, fer með aðalhlutverkið
í myndinni „One Good
Cop“ þar sem hann leikur
lögreglu í New York sem
tekur við uppeldi barna fé-
laga síns þegar sá fellur frá.