Morgunblaðið - 09.06.1991, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991
22 C
Karl J. Sighvatsson
tónlistarmaður
Sjaldgæfur persónuleiki, ljóð í
mannsmynd sem spannaði allt svið
hinnar mannlegu tignar, hins
mannlega breyskleika, var Karl
Sighvatsson tónlistarmaður af Guðs
náð. Á sinn hátt var hann einfari
og hélt sínu striki í gegn um þykkt
og þunnt, sínum sérstæða stíl sem
var svo einlægur og sannur eins
og þetta eina eintak sem almættið
skóp í Kalla Sighvats bar glöggt
vitni. Hann var sérfræðingur í
Hammond-orgelinu, einn sá besti í
heimi, og kunni á það til fullnustu
og handlék það með sama öryggi
og litir regnbogans eru óbreytan-
legir. Daginn áður en kallið kom
svo óvænt og nístandi sárt fyrir
vini og vandamenn sungum við og
spiluðum saman með góðu fólki í
Þorlákshöfn og geislandi brosið
hans Kalla var svo tært og fallegt.
Hann hafði stjómað söngfólki Þor-
lákshafnar við setningu 40 ára af-
mælishátíðar Þorlákshafnar og
hann gerði það svo glæsilega að
unun var á að horfa, hann dansaði
í hlutverki stjórnandans eins og lif-
andi listaverk væri. Maður fann að
allir hrifust af fágun hans á þess-
ari hátíðisstund og Vigdís forseti
vildi ábót, því að lokinni auglýstri
dagskrá bað hún Kalla að spila fyr-
ir sig á flygilinn og út úr því hófst
síðan skemmtilegur íjöldasöngur
afmælisgesta. Þegar ég hrósaði
honum fyrir stjórnina og sagði að
hann skapaði svo fagurt landslag
með fasi sínu þá strauk hann hendi
sinni um hár mitt og var svo glaður
í augunuin sínum. Þannig kom hann
svo oft á óvart í hinu smáa sem
segir oft svo stórt. Stundarkorni
síðar vom þessi leiftrandi augu
brostin. Það var svo sárt og svo
þungt að finna þannig smæð okkar
mannanna barna í fallvaltri veröld.
Gríska tónskáldið Theodorakis
er með hávaxnari mönnum og þeg-
ar hann stjórnar hljómsveitum er
allur líkaminn undirlagður. Þannig
var Kalli Sighvats einnig í túlkun
sinni sem stjórnandi og orgel- og
píanóleikari, en svo brothættur og
viðkvæmur eins og þeir vissu sem
þekktu hann vel. Kalli.var einstak-
lega tryggur vinur vina sinna og
það var alltaf jafnskemmtilegt að
heyra hann segja frá áformum sín-
um, tónleikum, gömlu Hammond-
orgeli sem hugsanlega var hægt
að ná í enda einstakur kjörgripur
og aldrei man ég til þess að Kalli
væri neikvæður í nokkru máli. Lífs-
Ijóðið hans var stundum svolítið
öðruvísi en menn áttu að venjast
hversdags, kostirnir hans voru stór-
kostlegir og gallarnir skemmdu
fremur fyrir honum sjálfum en öðr-
um.
Það er skarð fyrir skildi og sárt
verður Kalla Sighvats saknað sem
tónlistarmanns í íslenskri menningu
og sem vinar meðal vina. Hljóm-
setningin hans í mörgum þekktustu
og vinsælustu hljómsveitum lands-
ins hefur hlýjað mörgum um hjarta-
rætur, fólki á öllum aldri og svo
var síðasta nótan slegin og ballið
ekki hálfnað, hvílík ógæfa. Tónleik-
arnir sem við vorum að skipuleggja
daginn fyrir örlagastundina miklu
verða vonandi haldnir í Klettsheili
í Eyjum þótt mikið vanti á að þeir
verði í sömu mynd og ætlað var
með dúndrandi Hammond undir
höndum Kalla, en örlagaþráður
mannlífsins heldur áfram og víst
er að Kalli heldur sjálfur sínu striki
á hljómborði eilífðarinnar, Guðs
órannsakanlegu vegum. Ástvinum
hans votta ég innilegustu samúð.
Megi góður Guð gefa fleiri augu
og fleiri bros eins og Kalli Sighvats
átti, megi minningin um yndislegan
dreng hljórpa í sjaldgæfu ljóði þeirr-
ar jákvæðu ímyndar sem hann var
svo gjafmildur á.
Árni Johnsen
Helfregnin um snöggt og ótíma-
bært andlát Karls Jóhanns Sig-
hvatssonar færði drunga yfir und-
urfagran sólardag. En Guð gaf og
Guð tók.
Minningarnar hafa þotið um hug-
ann. Góðar minningar um hjart-
fólgna vininn hann Kalla Sighvats.
Kalli kom manni alltaf til að hugsa
um það jákvæða í lífinu. Hann var
sannkallaður sólargeisli .og gleði-
gjafi í tilverunni. Kalli var alveg
einstakur. Það var hreint unaðslegt
að hlusta á hann segja sögur um
hina ýmsu menn og málefni. Man
ég ekki jafn skemmtilegan frásagn-
arhæfileika. Hann lék á als oddi
og ekki skemmdi fyrir þegar hann
fann að hann hreif viðmælandann
með sér. Þá færðist hann allur í
aukana og beitti öllum töfrum sín-
um til að gera frásögnina ógleym-
anlega.
Hin síðari ár hélt Kalli heimiii í
Hveragerði ásamt ástkærri unnustu
sinni, Sigríði. Þar leið honum vel
inn milli ijallanna í guðsgrænni
náttúrunni og kyrrðinni. Hann átti
þar góðar stundir með syni sínum,
Orra.
Kalli var sannkallað náttúrubarn
og tónlistarmaður af Guðs náð.
Enda landsþekktur fyrir tónlist sína
og tónlistarverk. Störf hans innan
kirkjunnar fólust í voldugum orgel-
leik er hann töfraði fram Guði sín-
um til dýrðar.
Þung verða þau spor, er við fylgj-
um vininum okkar til hinstu hvílu.
Eftirsjáin er mikil og þrungin trega.
En við felum Kalla í hendur Guðs
föður og biðjum hinn hæsta höfuð-
smið himins og jarðar að varðveita
hann og blessa að eilífu. Við sem
eftir lifum eigum í hjörtum okkar
minninguna um yndislegan vin. Við
„grátum nú yfir því sem var gleði
okkar“.
Mínar dýpstu samúðarkveðjur og
hluttekningu sendi ég öllum ástvin-
um hans og bið góðan Guð að veita
þeim styrk í sorg þeirra.
Guð blessi minningu Karls Jó-
hanns Sighvatssonar. Hann hvíli í
friði.
„Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“
(SB.1886 V. Briem.)
Vinarkveðja,
Áslaug M.G. Blöndal
Ó blessuð vertu sumarsól
er sveipa gulli dal og hól
og gyllir pllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár
nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulinn.
Þykkur reykjarmökkurinn grúfði
sig yfír hvítdúkuð borðin. Lakkrís-
bindin límdust við skyrtur strák-
anna og stuttpils stelpnanna lyftust
enn ofar í hitasvækjunni. Fyrir utan
hímdu tugir ungmenna í frosti og
byl, þeir óheppnu, það var löngu
uppselt, enda Trúbrot að leika fyrir
dansi. Árið var 1970, og staðurinn
Glaumbær. Þá fyrr um daginn höfð-
um við Kalli hist í fyrsta sinn. Hann
hafði kynnt mig fyrir orgelinu sínu.
í kvöld stóð það þarna í ísköldu
sviðsljósinu og beið. Trúbrot hafði
lokið Ieik sínum í bili. Salurinn ið-
aði af fólki, háreysti, hróp og köll,
einstaka brothljóð, en smám saman
hljóðnar allt. .. Það er stigið uppá
stóla og borð, ljósin dofna í salnum,
næstum myrkur, svei mér ef sjást
ekki líka andlitin, sem hímdu úti í
frostinu fyrir stundu. Það ríkir graf-
arþögn.
Nokkrir furðufuglar úr Mynd-
lista- og handíðáskólanum stíga á
svið, úlpuklæddir og einn í stígvél-
um. Combó Þórðar Hall, gjörið svo
vel. Uppákomur þessa hóps höfðu
vakið nokkra athygli, alltaf eitthvað
nýtt og öðruvísi, hversdagsleikinn
leikinn afturábak eða uppá nýtt,
eða á stundum alls ekki leikinn, en
hvað var þá boðið uppá í kvöld.
Yesterday sungið af sérstökum
gesti kvöldsins Shady Owens við
undirleik þeirra fjórmenninga. Ekki
gat það talist beint frumlegt, eða
hvað? Jú, þannig var að enginn
þeirra mátti leika umrætt Jag, bara
eitthvað allt, allt annað. Ómar lék
Stairway to Heaven á bassann,
Grétar skottís á trommurnar, Áskell
margslungnar ásláttarkviður úr
myrkviðum Afríku á bongótromm-
urnar og undirritaður „0, blessuð
vertu sumarsól" á Hammondið hans
Kalla.
Að flutningi loknum kom Kalli
til mín, sposkur á svip, tók í hend-
ina á mér, bugtaði sig og beygði
og óskaði mér innilega til ham-
ingju. „Hugmyndin var góð,“ sagði
hann og hló, en sagði svo grafalvar-
legur: „Það verður víst að segjast
eins og er, aldrei fyrr hef ég í raun-
inni skynjað fegurð þessa einfalda
lags og texta, ekki fyrr en nú, í
þessum fáránlega flutningi." Svo
hallaði hann sér að mér og bætti
við: „... hins vegar tel ég þig vera
frekar slakan hljómborðsleikara,
félagi.“ Uppfrá þessu urðum við
Kalli vinir.
Dagurinn í gær hafði verið svo
hljóður og friðsæll. í morgun
hringdi síminn, þeir tilkynntu mér
Iát hans. í dag rignir á Flórída.
Hans er sárt saknað, elsku vinar,
hann fór alltof fljótt. . . Guð geymi
son hans ungan og ástvini alla.
Egill Eðvarðsson
og fjölskylda.
í töskunni hans Kalla voru ótrú-
legustu hlutir. Ég minnist hvítra
ullarsokka, granóla, döðlupakka,
ávaxtasafa og svo eðalvítamína,
smyrsl að smyrja hendurnar með
og olía á orgelið. Þarna var og org-
elpartur úr Te deum eftir Berlioz,
skór, uppkast af hans eigin ópusum,
burstar af öllum gerðum, að
ógleymdum sundfatnaði og enn er
ekki allt talið.
Við skemmtum okkur við að geta
okkur til um hve lengi mætti halda
sér uppi með þvílíkan kost í fartesk-
inu og komumst að þeirri niðurstöðu
að miðað við nútíma farkosti mætti
fara í góða hnattreisu með viðkomu
á fáeinum stöðum, án þess að þiggja
annan kost. í hans tilfelli mátti ferð-
ast í gegnum allt Iífið ef aðeins
fáein Hammond-orgel og/eða pípu-
orgel yrðu á veginum. En nú er
Kalli farinn í annað ferðalag án
töskunnar góðu og ég ásamt svo
mörgum ástvinum hans og aðdá-
endum stend eftir og kveð „Papa
Karlos“ eins og við kölluðum hann.
Nestor og uppalandi var hann í
mínum augum og eyrum. Ósínkur
að miðla af mikilli reynslu sinni í
músíkinni. Ekki var músíkin í hans
tilfelli eingöngu fengin með námi
og reynslu, heldur var hún og í blóð-
inu, sérhverri hreyfingu, heitri og
■ kvikri. Innsæi hans var sérstakt og
þó hann væri elstur okkar og búinn
að ganga í gegnum tímabil sem við
aðeins horfðum á sem unglingar,
þá var hann alltaf yngstur, fersk-
astur, frumkrafturinn óyggjandi og
galdur hans hóf sig hátt.
Við stöndum eftir ráðþrota og
spyrjum hver ræður mönnum slík
örlög. En okkur hefur verið kennt
að sættast við æðri mátt og þá um
Ieið styrkjast fyrir ókominn dag.
Ég þakka að hafa 'átt þess kost að
starfa með Kalla, kynnast dreng-
skap hans og veit að ég á alltaf
eftir að búa við það ljós, er stafaði
af nærveru hans og sköpun. Það
ljós styrki nú ungan son hans og
ástvini í sorg og missi. _
Egill Ólafsson
Sumarið lofaði ekki góðu síðast
er ég talaði við Kalla. Þá var jafnan
þungbúið loft, og þoka grúfði sig
yfir heiðina á milli Reykjavíkur og
Hveragerðis, þá leið sem Kalli fór
áður en hann kom að spila á Dans-
barnum á Grensásvegi.
Þar kynntist ég Kalla fyrst eftir
að ég fór að fara þangað á helgum
til að hlusta á hljómsveitina Manna-
korn spila og Pálma syngja sín fall-
egu lög. En með þeim spilaði Kalli
á orgelið. Þann 3. maí talaði ég
síðast við Kalla og þáði hjá honum
góð ráð. Þá var ekkert sumar. Það
var hins vegar glaða sólskin og
fallegt sumai-veður þegar mér barst
fréttin af láti Karls Sighvatssonar
tónlistanhanns. Ég hafði nýlokið
vaktinni minni á strætó og var á
leið heim þegar vinnufélagi minn
sagði mér að Karl Sighvatsson
hljómborðsleikari væri dáinn. Á
þessum heita degi varð mér skyndi-
lega kalt, hrollurinn læsti sig um
mig og hálfgerð kuldaflog gengu
um skrokkinn.
Það virtist nefnilega ekki nema
örskotsstund liðin frá því að Kalli
kom til mín eitt kvöldið niðri á
Dansbar áður en hann byijaði að
spila og leið honum mjög illa. Þá
var hann harmi sleginn og mikið
miður sín þar sem góð vinkona
hans hafði dáið svo ung með svip-
legum hætti. Hvorugum okkar datt
þá í hug að annar okkar ætti þá
ekki nema nokkrar vikur ólifaðar,
hann Kalli Sighvats. Eftir það átt-
um við eftir að spjalla oft saman
og gera að gamni okkar þó alvara
lísins væri skammt undan og dauð-
inn.
Þær voru oft notalegar stundirn-
ar á Dansbarnum á Grensásvegi
undir fallegri og fjörugri músík
þeirra félaga um helgar, og oft í
miðri viku leiddi ég hugann að hinu
breiða brosi hans Kalla við orgelið,
sem honum einum var lagið að
kalla fram með tilheyrandi augna-
ráði. Það kom mér ávallt í gott
skap. Ekki þurfti ég annað en að
minnast Kalla við orgelið. í ljúfum
dansi undir músík þeirra félaga
varð oft mikil kátína á milli dans-
félaga þegar fylgst var með tilburð-
um tónlistarmannsins við sköpun
sína. Hann var hreint frábær.
Kalli mætti oft snemma á Dans-
barinn til að undirbúa tækin fyrir
kvöldið. Mér er minnisstætt þegar
hann koma með son sinn snemma
kvölds til að setja í stand áður en
fólkið tók að streyma inn. Nærvera
þeirra feðga var bæði ánægjuleg
og heimilisleg. Eitt sinn eftir ball
gekk Kalli fram með inniskóna sína
í höndunum, þegar kona vatt sér
að honum og dásamaði hann fyrir
heimilislegheitin. Það sama kvöld
lýsti Kalli áhyggjum gínum af hálku
sem þá var á leiðinni. Farðu var-
lega, sagði ég þá við Kalla áður en
hann lagði á heiðina. Hann gerði
það, því enn átti hann eftir að spila
nokkrum sinnum á Dansbarnum
með félögum sínum eftir það.
Guð geymi Kalla Sighvatsson
tónlistarmann, vin minn, sem ég
þekkti svo stutt.
Einar Ingvi Magnússon
Líknargjafinn þjáðra þjóða
þú, sem kyrrir vind og sjó,
ættjörð vor í ystu höfum
undir þinni miskunn bjó.
Vertu með oss, vaktu hjá oss,
veittu styrk og hugarró.
Þegar boðinn heljar hækkar,
Herra, lægðu vind og sjó,
(Jón Magnússon)
Þessi fallegi sálmur var fluttur í
Þorlákskirkju í Þorlákshöfn á sjó-
mannadaginn, 2. júní sl. Það var
hátíðarguðsþjónusta, sóknarprest-
urinn og prófasturinn, séra Tómas
Guðmundsson, setti séra Svavar
Stefánsson inn í embætti sóknar-
prests í hinu nýja Þorlákshafnarpre-
stakalli, Sigríður Ella Magnúsdóttir
söng einsöng, Söngfélag Þorláks-
hafnar söng, orgelleik annaðist org-
anisti kirkjunnar, Karl J. Sighvats-
son. Ekki spillti veðrið hátíðinni,
það var glaða sólskin og blíða.
En ekki var þessi fagri dagur að
kvöldi kominn þegar þau hörmulegu
tíðindi bárust að Karl Sighvatsson
væri ekki lengur meðal okkar. Hann
lést í bílslysi aðeins fáum tímum
eftir að guðsþjónustu lauk í Þor-
lákskirkju. Eftir stöndum við undr-
andi og ráðvillt, þegjandi og magn-
laus frammi fyrir dauðanum.
Það var um haustið 1988 að
Karl var ráðinn til starfa í Hvera-
gerðisprestakalli sem organisti við
fimm kirkjur og stjórnandi tveggja
kóra, Kirkjukórs Hveragerðis og
Kotstrandarsóknar og Söngfélags
Þorlákshafnar. Ef til vill hefur ein-
hvern undrað á því að hann sem
hafði aðallega getið sér orð sem
jassleikari og poppari gerðist
skyndilega kirkjuorganisti og það í
þessu stóra prestakalli. Við félag-
arnir í Söngfélagi Þorlákshafnar
gerðum okkur þó fljótlega grein
fyrir því að þarna var óvenju næm-
ur listamaður á ferð, það skipti
ekki máli hvað átti að æfa, fyrir
jarðarför, jólin, eða eitthvað létt
fyrir þorrablótið, alls staðar var
Kalli heima, þó voru eftirspilin eftir
messurnar ef til vill eitt það eftir-
minnilegasta, þá lokaði hann gjarn-
an augunum og spilaði og spilaði,
hvað það var sem hann var að flytja
var ekki alltaf á hreinu, en fagurt
var það engu að síður.
Kirkjutónlistin hreif hann, það
leyndi sér ekki, að sjálfsögðu var
hann að sinna annarskonar tónlist
á sama tíma og stundum var erfitt
að koma því heim og saman. Ég
hef nú látið tíðrætt um kirkjur og
kóra og ástæðan fyrir því er sú að
þá hlið á Kalla þekkti ég eingöngu.
Ég hitti hann í fyrsta sinn á kóra-
móti í Skálholti fyrir þremur árum,
þá var hann búinn að sækja um í
Hveragerði, þá var organistalaust
í Þorlákshöfn og það talaðist þann-
ig til hjá okkur að hann sækti um
þar líka, og varð það úr. Tónlistin
var honum allt, en þó var einn sólar-
geisli í lífi hans ofar öllu öðru, það
var litli sonurinn Orri, sem nú hefur
misst mikið, við sendum Orra og
öllum vinum og ættingjum Kalla
innilegar samúðarkveðjur. Guð
blessi ykkur öll.
Við erum ákaflega þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast þessum
frábæra listamanni og starfa með
honum þessi ár.
Og ef þið getið ekki annað en grátið, þegar
sálin knýr ykkur til að biðja, þá verður hún
að knýja ykkur sporum, uns sorg ykkar
breytist í gleði.
(Kahlil Gibran)
Fyrir hönd Söngfélags
Þorlákshafnar,
Halla Kjartansdóttir
Við vorum ekki öll ýkja boru-
brött sem settumst að á heimavist-
inni í Reykholti haustið 1965, til
vetrardavalar á fyrsta vetri Vil-
hjálms Einarssonar við skólastjórn
þar og ekki hátt á okkur risið
frammi fyrir lærifeðrunum, en í
hópi þeirra var nýr kennari, sem
sérstök ógn stóð af í upphafi.
Þó var einn í hópnum með bor-
una bratta, ijórtán ára kotroskinn
tappi neðan af Skaga með orgelið
sitt í farteskinu, maður allur hinn
sérstæðasti, í útliti, limaburði,
framgöngu, fasi og hæfileikum.
Það var merkilegt að fylgjast
með því, hvernig þessi unglingsbít-
ill bræddi smámsaman stórbrotið
þel og vann hug okkar stríðlynda
og síðan ástsæla kennara Jónasar
Árnasonar, en sá var ógnvaldurinn
í kennarahópnum og gekk það þó
ekki alltaf hávaðalaust, að sögn
Jónasar, enda báðir stórir upp á
sig, þó annar ætti að teljast nem-
andi.
í kennslustundum lá bítillinn á
því lúalagi, að koma kennaranum
á kjaftasnakk um pólitík, því ungl-
ingurinn hafði pata af því að hann
ætlaði sér í pólitik og hleypti hann
honum ekki upp með undanbrögð.
Var oftast ljörugt í tímum og brátt
náðu þeir saman í tónlistinni.
Löðuðust þeir hvor að öðrum og
fram hvor í öðrum sköpunargleðina,
svo undir tók í skólanum og fleiri
hrifust með og fundu í sér æðina.
Návist þessara tveggja manna
gerði veruna í Reykholti, sem ell.a