Morgunblaðið - 09.06.1991, Page 25
C 25
MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991
Guðjón Guðjóns-
son - minning
Mig langar með nokkrum orðum
að kveðja mág minn, Guðjón Guð-
jónsson, sem lést 17. maí síðastlið-
inn.
Sorgin fyllir hug og hjarta okk-
ar allra sem þekktum hann. En
minningarnar um yndislegan
dreng eigum við öll.
Það sem einkenndi Guðjón mest
var sönn góðmennska, bæði við
menn og dýr.
Litlu frændsystkini hans voru
mjög hænd að honum og litu upp
til stóra frænda. Enda var
væntumþykjan og ánægjan yfir
þeim einstaklega mikil hjá honum.
Vegna flutninga erlendis náði son-
ur minn aldrei að kynnast honum,
en umhyggju Guðjóns á minni
„Deyr fé
deyjarffændr
deyr sjálfr it sama
ek veit einn
at aldri deyr
dómr um dauðan hvem.“
Það var ekki fyrr en mér fannst
að ég þyrfti að koma strákunum
mínum í sveit, í samband við h'fið,
að ég kynntist Jóhannesi og konu
hans, Soffíu. Sá kunningsskapur
varð að vináttu og betri og einlæg-
ari vin hef ég aldrei átt.
Marías
meðgöngu gleymi ég aldrei. Alltaf
var hann boðinn og búinn til að
aðstoða okkur öll.
Guðjón var sannkallaður vinur
vina sinna, og var vinskapur við
systkini og fjölskyldu mikill. Það
var dæmigert fyrir hann, að þegar
litla systir hans missti sinn ást-
kæra kött, kom Guðjón með lítinn
kettling handa henni. Enda leið
honum illa ef hann vissi um sorg
eða leiðindi hjá öðrum. Hann var
alltaf tilbúinn að hjálpa, ef hann
gat. Smá atvik verða oft að stórri
gleðistund hjá öðrum, en því
gleymum við alltof oft.
Mamma hans, Kristjana, hefur
oft sagt mér frá bráðfyndnum upp-
átækjum hans frá því hann var
Hann reyndi að njóta lífsins
þrátt fyrir erfiðar aðstæður, og oft
reið ég yfir Kleifaheiði, sagði hann,
með tvær flöskur í hnakktöskunni,
drakk aldrei nema aðra sjálfur, hin
var handa kunningjunum. Kímni-
gáfa hans var frábær og smekkur
fyrir góðum kvæðum, bæði var
hann hagmæltur sjálfur og kunni
hafsjó af kvæðum, bæði eftir Há-
kon í Haga og um Hákon í Haga.
Minningarnar eru margar og
allar góðar. Einn stráka minna var
hjá honum í sjö sumur og býður
þess „alltaf bætur“.
Nú veit ég að Þórhildur sér eft-
ir elskulegum föður og votta ég
henni innilega samúð mína.
Sveinn K. Sveinsson
Blómastofa
Fríöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opiö öli kvöld
tii kt. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
lítill og mikið hefur verið hlegið.
Guðjón var alltaf ofarlega í huga
hennar enda einstaklega sterkt og
gott samband milli þeirra tveggja.
Hann virti hennar ráð og skoðun.
Ófá kvöldin sátu þau saman og
spiluðu á spil og hlustuðu á tónlist
saman. Tónlist skipaði stóran sess
hjá honum og náði áhugi hans allt
frá þungarokki til klassískrar tón-
listar.
Guðjón undi sér vel í sveitinni
og eru ófá sumrin sem hann dvaldi
þar, nú síðast á Ytri-Hóli í Eyja-
firði. Honum þótti vænt um dýrin
og hefði eflaust orðið góður bóndi
eins og hugur hans stefndi til.
Endalaust gæti maður skrifað
um Guðjón þótt ævi hans væri
stutt, enda gaf hann meira en
margur á langri ævi. Lífið, sem
virtist svo bjart, breyttist á augna-
bliki þegar myrkur sorgarinnar
heltekur hjarta okkar. Orð vega
svo lítið á þessari stundu en í hjarta
okkar sem þekktum hann lifir hann
áfram og verndar okkur öll.
Elsku Lilla, Sigrún, Matti, Ómar
og Erla, guð gefi ykkur styrk í
þessari djúpu sorg. Við vitum að
hann tekur á móti okkur þegar
okkar tími kemur. Blessuð sé
minning hans.
Jónína Skaftadóttir
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öli tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
Minning:
Jóhannes Sveins-
son, Innri-Miðhlíð
Fæddur 9. maí 1902
Dáinn 3. júní 1991
Ingólfsson
- Kveðjuorð
Hinn 7. júní sl. hefði Marís Ing-
ólfsson orðið 32 ára hefði hann lif-
að, en hann lést 9. september á liðnu
ári.
Ég vil þakka vini mínum fyrir
okkar góðu kynni. Eftir lifir minn-
ingin um góðan dreng.
Sigurður Pétursson
^SKIPAPLÖTUR - INNRÉTTINGAR
Jfá PLÖTUR í LESTAR
U I I ¥ ■ | SERVANTPLÖTUR
3 I I 1 I I SALERNISHÓLF
1J 1 1 BA0ÞIUUR
^| ELDHÚS-BOR0PLÖTUR
LAGER -NORSK HÁGÆÐA VARA
Þ.ÞORCRlMSSON&CG
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
Legstoinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
!S S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
...
I SKEMMW83I 48.SIMI 76677
LEGSTEINAR
MOSAIKH.F.
Hamarshöfda 4 —■ sími 681960
Kveðjuorð:
Donald F. Ream
Mætur tengdasonur íslands, val-
mennið Donald F. Ream, er látinn
langt um aldur fram. Ekki þekkti
ég hann í sínu fyrsta lífi, er hann
vann vísindastörf á vegum banda-
ríska ríkisins, en kynntist honum
vel eftir að hann hóf nýtt líf á ís-
landi með eiginkonu sinni, Ragn-
heiði Jónsdóttur listmálara, fyrir
tveimur, áratugum. Donald var að
mörgu leyti óvenjuleg manneskja
og Ameríkani. Ekki veit ég um
aðra vísindamenn sem sest hafa í
helgan stein á besta aldri til að
ígrunda rök tilverunnar, taka nær-
myndir af landslagi og listaverkum
og búa til flugdreka. Sumir þessara
dreka eru mikil listasnn'ði, eins og
íbúar við Landakotstún hafa eflaust
séð.
Donald var fjölgáfaður en hóg-
vær úr hófi fram, rökhyggjumaður
sem táraðist við óbærilega fegurð,
hvort sem er í tónlist, myndlist eða
bókmenntum, hláturmildur en hald-
inn djúpristum dapurleika, sérstak-
lega í kjölfar sviplegs andláts konu
hans, Ragnheiðar, árið 1977. Enda
var hún það bjarg sem þessi sterki
en stundum bjargarlausi maður
reisti á íslenska tilveru sína. Eftir
lát Ragnheiðar tók Donald aldraða
foreldra hennar upp á arma sína
og annaðist þá af einstakri ræktar-
semi.
Árum saman, og allt til þess síð-
asta, var það draumur Donalds að
reisa konu sinni veglegan minn-
isvarða og gefa út bók með verkum
hennar. Sjálfur ætlaði hann að
kosta þá bók að miklum hluta, en
þessi áform strönduðu á áhugaleysi
íslenskra útgefenda. íslenskum
söfnum gaf hann einnig verk Ragn-
heiðar til varðveislu. Einsemd og
rótleysi ráku Donald til Spánar þar
sem hann giftist á ný, en komst
að því að honum leið hvergi betur
en meðal vina sinna á íslandi. Og
hér á Islandi virtist hann aftur hafa
fundið sér lífsförunaut við hæfi, frú
Björgu Hafsteins, þegar sjúkdómar
gerðu vart við sig. Fráfall þessa
stóru og hlýja vinar okkar var hins
vegar óvænt.
Fjölskyldu Donalds, bæði í
Bandaríkjunum og á íslandi, send-
um við innilegar samúðarkveðjur.
Aðalsteimi Ingólfsson og fjölskylda
+
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir
HANSÍNA JÓNSDÓTTIR,
Kambsvegi 33,
Reykjavik,
lést af slysförum fimmtudaginn 6. júní.
Hafsteinn Guðmundsson,
Jónína Hafsteinsdóttir, Ármann Einarsson,
Guðmundur Hafsteinsson, Þórhildur S. Sigurðardóttir,
Hafsteinn Hafsteinsson, Kristín Magnúsardóttir,
Gerður H. Hafsteinsdóttir, Runólfur E. Runólfsson
og aðrir vandamenn.
Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför
MARGRÉTAR GISLADÓTTUR
fv. vistmanns elliheimiiisins Grundar.
Bjarni Gíslason,
Sigurbjörg Gísladóttir.
Við þökkum af alhug auðsýnda vináttu við andlát
SVERRIS ERLENDSONAR
fyrrverandi skipstjóra.
Dóra Bergþórsdóttir,
Anna Sverrisdóttir,
Ásgerður Sverrisdóttir,
Guðjón Ingi Sverrisson,
Bergþór Konráðsson,
Hallfríður Konráðsdóttir
Steinn Jónsson,
Guðbjörg Hauksdóttir,
Hildur Halldórsdóttir,
Axel Gíslason
og barnabörn.
+ Hjartans þakkir til allra þeirra, sem studdu og auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elsku sonar okkar
og bróður,
ÓLAFS GÍSLA GÍSLASONAR.
Látraströnd 14.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf AldaÓlafs, Gisli Ólafs,
Fríða Kristín, Carlos Martinez,
Anna Hlíf, Arngrímur Baldursson,
Bryndís Marsibil, Björn Gíslason Eric Bertrand,
og aðrir aðstandendur.