Morgunblaðið - 09.06.1991, Blaðsíða 28
m §
MQRqy^BLAEjlÐ, VELvmtmw.m'v
i 1991 Jim Ungar/Distributed by Universal Press Syndicate
,«3. fi » ri fr r
MM^inUJnQej/DislnbuledbyjJmversa^PressSyridicate
íég sé aSLöggan he.furnáS biLnutru
þCnum. (xfbur."
Já, hann er fölur, en ég
var að þvo ’ann ...
HÖGNI HREKKVlSI
,, £7? þerTA 17 TAi/a- p>/rr P'/ "
Á FÖRIMUM VEGI
Vil njóta gestanna
á meðan þeir stoppa
- segir Aðalheiður Júlíusdóttir í Munaðstungu í Reykhólasveit
Miðhúsum, Reykhólasveit.
rá því er sagt í Þorskfirðinga-
sögu að Ketilbjörn sonur Gilla
hins suðureyska byggði fyrstur bæ
í Tungu sem nú kallast því fallega
nafni Munaðstunga. Frá Munaðs-
tungu lá vegurinn yfir Laxárdals-
heiði norður í Steingrímsfjörð og
má geta þess nærri að í Munaðs-
tungu hefur verið gestkvæmt á
meðan verslun úr Reykhólasveit
og Geiradal fór fram a Hólmavík.
Nu býr í Munaðstungu 76 ára
gömul kona, Aðalheiður Júlíus-
dóttir, og þegar fréttaritara bar
að garði var Aðalheiður að smíða
milligerð svo hægt væri að stía
af lambær.
Við lítum inn í fjárhúsið og þar
er ær með lamb og lambið stendur
fast við móður sína og horfir fo-
vitnum augum. Ærin horfir hins-
vegar með ótta í augum á þennan
óboðna gest, en Aðalheiður strýkur
ánni blíðlega um snoppuna og ótt-
inn hverfur eins og dögg fyrir sólu.
Þegar við komum út á fjárhús-
hlaðið er stansað og smellt af
mynd og svo er gengið til bæjar.
A meðan að Aðalheiður er að
hella á könnuna berst talið að liðn-
um dögum. Hún segir mér frá því
að hún hafi sótt nær alla þunga-
vöru á áburðarhestum í Króks-
fjarðarnes og þá hafi sig ekki
munað um að snara 100 punda
pokum til klakks. í þá dag var ég
bara sæmilega sterk segir Aðal-
heiður og hlær.
Nú er ilmandi kaffið borið á
borðið og fullur diskur af bakkelsi
fylgir í kjölfarið. Kaffið hennar
Aðalheiðar er gott og á meðan að
kaffíð er drukkið þá er spjallað um
heima og geima.
í herberginu er litasjónvarp sem
Aðalheiður segist horfa þó nokkuð
á og spaugstofustrákarnir eru
henni ofarlega í huga.
Að kaffidrykkju lokinni er geng-
ið um húsið og í eldhúsinu er bæði
gamli og nýi tíminn. Tvær eldavél-
ar eru í eldhúsinu, lítil rafmagn-
seldavél og olíukynnt kolaeldavél
„Svo berst talið að
búpeningnum og Aðal-
heiður kann að sníða
sér stakk eftir vexti.
Tveir hestar eru á beit
og tveir til þrír tugir
fjár eru á beit á tún-
inu.“
sem líka hitar miðstöðina. Raf-
magn er í öllum • herbergjum og
útihúsum. Nu er mér boðið að sjá
tugthúsið, en það er lítil snotur
stofa sem er svolítið afsíðis.
Aðalheiður segir að nafngiftin
sé komin til af því að ekki sé mjög
gestkvæmt hjá sér og vilji hún
njóta gestanna á meðan þeir stansi
og bjóði þeim í herbergið inn af
eldhúsinu þá geti hún talað við þá
á meðan hún sé að hella á könnuna.
Reyndar komi pósturinn tvisvar
í viku með póstinn, en hann megi
aldrei vera að því að stoppa.
Nú berst talið að íbúðarhúsinu
og það þurfi viðgerðar og það fá-
ist ekki nokkur smiður til nokkurs
hlutar núorðið.
Þótt húsið sé lítið er það snot-
urt og sjónarsviptir að því úr lands-
laginu ef það yrði látið grotna nið-
ur.
Svo berst talið að búpeningnum
og Aðalheiður kann að sníða sér
stakk eftir vexti. Tveir hestar eru
á beit og tveir til þrír tugir fjár
eru á beit á túninu. Kyrnar eru
horfnar og núna í vor keypt Aðal-
heiður engan áburð.
Aðalheiður segir að það séu til
menn sem vilji kaupa Munaðst-
ungu en hún hafi sagt nei því að
hún vliji ekki gerast leiguliði í ell-
inni. I Munaðstungu sleit hún
barnsskónum og lifði ein fullorð-
insár og enn er elli kerling ekki
komin heim að túngarðinum og
verði hún sem allra lengst á leið-
inni.
Um leið og kvatt er berst talið
að hænsnunum hennar og hún á
líka íslenskar hænur og fallegan
íslenskan hana.
Víkverji skrifar
egar lög eru samþykkt frá Al-
þingi á tilgangur þeirra að
sjálfsögðu að vera augljós og
ákvæði þeirra svo skýr að enginn
vafi leiki á hvað þingmennirnir okk-
ar blessaðir eru að fara. Frá sjónar-
hóli leikmanns virðist því miður
nokkur brestur vera á þessu. Að
minnsta kosti þegar upphefjast deil-
ur um við hvað löggjafinn átti með
einhverri lagagreininni. Það getur
tæpast verið ætlun þingmanna að
láta lögfræðingum eða dómstólum
síðar meir eftir að ráða í þær rúnir
og skera úr um hvað það í rauninni
var sem þeir voru að samþykkja.
xxx
*
Osjaldan kemur fyrir að ýmsir
aðilar leita eftir lögfræðilegu
áliti eins og það heitir. Eru þá hin-
ir lögvísustu menn fengnir til þess
að segja til um hvort þessi eða hinn.
gerningurinn sé lögum samkvæmt
eður ei. Er allt gott um það að segja.
Eðlilegt er og sjálfsagt að menn
vilji hafa allt á hreinu. En hvað
gerist þá? Ef til tveggja lögspekinga
er leitað ber þeim sjaldan saman
og komast gjarnan að þveröfugri
niðurstöðu. Fer það eftir túlkun
þeirra á einhverri lagágrein, sem
er svo óljós og loðin að skilja má
iiana á ýmsa vegu. Og svo kemur
kannski sá þriðji og álit hans geng-
ur á skjön við álit hinna tveggja.
itt nýjasta dæmið er deilan um
lögmæti þess er nýskipaður
þjóðleikhússtjóri sagði upp hluta
áhafnar sinnar. Verður ekki dregið
í efa að það gerði hann í góðri trú
um lagalega heimild sína, enda lá
fyrir „lögfræðilegt álit“ þar um.
En annað „álit“ telur uppsagnirnar
lögleysu. Þannig hefur innan Þjóð-
leikhússins komið upp leiðindamál
með hótunum um málshöfðanir,
átaka sem ekki hefðu þurft að koma
til, ef lagabókstafurinn hefði verið
nógu skýr.
XXX
Löggjafinn verður að taka sig
á. Ekki fara fram hjá neinum
þau hroðvirknislegu vinnubrögð
sem ástunduð eru á Alþingi í hvert
skipti rétt fyrir þinglok. Hvernig
væri til dæmis að sú regla yrði tek-
in upp að áður en lög fara til endan-
legrar afgreiðslu væru þau fengin
í hendur tveimur mönnum, lögfræð-
ingi og góðum íslenskumanni. Þeir
færu grannt yfir þau og bentu á
augljósar missmíðar og ákvæði,
sem yrðu að vera skýrari — svo að
ekkert fari á milli mála við hvað
átt er. Gæti það komið í veg fyrir
margan málareksturinn og þannig
firrt menn fyrirhöfn og óþægindum.
Auk þess gæti það fækkað mjög
þeim málum, sem farið er með fyr-
ir dómstóla og þannig orðið til hins
mesta sparnaðar.
Víkveija hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Hilmari
Garðarssyni, skrifstofustjóra Gjald-
heimtunnar:
Vegna skrifa „Víkveija" í dag,
7. júní, óskast eftirfarandi athuga-
semd birt:
Innheimta fasteignagjalda í
Reykjavík hefur verið eins í fjölda
ára.
Gíróseðlar eru sendir 3svar á ári
með gjalddögum 15. janúar, 1.
mars og 15. apríl.
Fasteignagjöldin eru tryggð með
lögveði í viðkomandi fasteign.
Sé skuld vegna fasteignagjalda
í miðjum maímánuði, er gjaldendum
sent áskorunarbréf, eins og nefnt
er í greininni, og er þar settur 30
daga frestur til greiðslu.
Samkv. lögum koma áskorunar-
bréfin í stað lögtaks og hafa sömu
lögfylgjur, en skilyrði þess að svo
sé er að bréfin séu send í hraðpósti
(express).
Kostnaður vegna þessa er ekki
nema brot af lögtakskostnaði og
er þetta því mjög hagkvæmt fyrir
gjaldendur.
Strax að loknum síðasta gjald-
daga, 15. apríl, er auglýst í öllum
dagblöðum í Reykjavík að ætlunin
sé að beita þessari innheimtuaðferð.
Þessa auglýsingu þarf samkv.
lögum sem um þetta gilda að birta
30 dögum áður en sending áskor-
unarbréfa hefst.