Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 18
'MÖKGUNBLXÐÍÐ SUNNUÐAÖUR W'■ JÖNP Í991
fi!18
Jafn langt er frá Osló
til Kirkeness og til
Rómarborgar.
Eiturskýin berast langar
leióir fró verksmiðju- og
nómaborgum Sovétríkj-
anna inn yfir Noreg og
Finnland. Eftir mikla
baróttu einstaklinga og
stjórnvalda hafa stjórn-
völd í Sovétríkjunum nú
lofað úrbótum í meng-
unarmólum. Fyriróri
síðan hlekkjuðu nokkrir
Norðmenn sig við svo-
kallaða þriggja landa
vörðu þar sem Noreg-
ur, Finnland og Sov-
étríkin mætast og var
myndin tekin af bar-
óttuhópnum gegn
dauðaskýjunum, eins
og hann kallar sig.
Tortryggni í N-Noregi í samskipt-
um við Sovétríkin — en um leið
vonarpeningur í atvinnumálum
eftir Ágúst Inga Jónsson
Samskiptin við björninn í austri setja mjög svip sinn á alla umræðu
á þeim svæðum Noregs, sem liggja að Sovétríkjunum. Hernaðarmann-
virki á Kolaskaga eru Norðmönnum þyrnir í augum og tregða Sovét-
manna við að fækka vopnum þar. Norðmenn óttast mjög tilrauna-
sprengingar á Nowaja Zemlja eins og allt annað sem snertir kjarna-
vopn og kjarnorku, en tilraunirnar fara fram um 700 kílómetrum
austan við Vardö. Baráttan um fiskinn í Barentshafi er stöðugt til
umræðu og hrikaleg mengun frá verksmiðju- og námubæjum Sov-
étríkjanna er ekki aðeins innanríkisvandamál Rússa. Eiturskýin ber-
ast langar leiðir, eins og frá borginni Nikkel, sem er aðeins nokkra
tugi kílómetra frá bæjum í Pasvikdalnum, hinum megin landamær-
anna. Á þessum slóðum kunna flestir að segja sögur af persónulegum
samskiptum við Sovétmenn, bæði góðar og slæmar. A hinn bóginn
horfa Norðmennirnir mjög til Sovétríkjanna með aukin viðskipti í
huga. Þeir hafa ekki heldur gleymt stríðinu og afrekum sovéska hers-
ins, sem eftir mikla bardaga náði þessu svæði Norður-Noregs undan
fjölmennum her nasista hálfu ári áður en stríðinu lauk.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ferðaðist um miðjan maí-
mánuð um þessi nyrstu og
austustu héruð Noregs og
verður greint frá þessari
ferð um Suður-Varanger og
víðar um Finnmörku næstu sunnu-
daga. Vega-
lengdir eru
ótrúlega miklar
á milli bæja
þarna og nefna
má að strand-
lengjan í Suður-
Varanger er
356 kílómetrar,
Nyrst i
Noregi
1. grein
landamærin að Sovétríkjunum eru
196 kílómetrar og Finnlandi 140
kílómetrar. Annað sem gestur
verður fljótt var við er blöndun
menningarsvæða. Þarna ægir sam-
an norsku, samísku og finnsku.
Trúarbrögð eru breytileg og sögu-
______________ legar hefðir.
Aðeins lítil
ræma af Finn-
landi er austar
en Kirkenes,
sem er stærsti
bærinn í sveit-
arfélaginu, Suð-
ur-Varanger, og
Steinkirkjan i Grense Jakobselv var vigð órið 1869 og fékk nafn Óskars
konungs er hann var þar ó ferð órið 1 873. Rússarnir höfðu fram til þessa
virt landamærin fró 1826 að vettugi og fiskað í órósunum beggja vegna
þeirra. Eftir að kirkjan var byggð tóku hinir trúuðu Rússar fullt tillit til landa-
mæranna.
bærinn er álíka austarlega og Ka-
iró og Istanbúl. Nyrsti hluti Alaska
er álíka norðarlega og Suður-Var-
anger. Ef ferðalangur fer frá Róm
til Kirkeness er hajm aðeins rúm-
lega hálfnaður í Osló. Reykjavík
er á sömu breiddargráðu og Þránd-
heirnur, langt fyrir sunnan Kirke-
nes. Ef borið er saman við Island
þá liggur heimskautsbaugurinn um
Grímsey, en Kirkenes er um það
bil 350 kílómetrum norðan við
bauginn.
Skattaívilnanir til fólks
í norðurhéruðunum
Fólki hefur fækkað mjög í Norð-
ur-Noregi á undanförnum árum
og kemur þar margt til. Langan
veturinn og myrkur mánuðum
saman, minnkandi fiskafla í Bar-
entshafi og erfiðleika í náma-
vinnslu má nefna, en einnig veru-
lega byggðaröskun samfara olíu-
vinnslu Norðmanna. Nokkur stöð-
ugleiki hefur komist á að nýju og
hafa stjórnvöld veitt ómældu fé í
þessar dreifðu byggðir. Markmiðið
er að fólki fækki ekki meira en
orðið er. Reynt hefur verið að
treysta stoðir atvinnulífsins með
byggðastyrkjum og aðstoð ýmiss
konar.
Hvað einstaklinginn varðar má
nefna að ef miðað er við tveggja
milljóna króna árslaun, sem eru
góð meðallaun í Noregi, greiðir sá
sem býr í Norður-Noregi 150 þús-
und krónum minna í skatta, en sá
sem býr t.d. í Ósló. Auk þess er
sama upphæð afskrifuð af náms-
lánum þeirra sem lokið hafa fram-