Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAB/SIVIAsuiInudagur 23. JÚNÍ 1991
ATVINNIIA UGL YSINGAR
Sunnuhlíð
Hjúkrunarheimili aldraöra í Kópavogi
Starfskraft vantar
í eldhús til afleysinga.
Upplýsingar í síma 604167, Sigurgeir.
Lausar stöður
hjá Siglingamálastofnun ríkisins
1. Staða skipaskoðunarmanns
Staða skipaskoðunarmanns hjá Siglinga-
málastofnun ríkisins er laus til umsóknar.
Starfið felst að verulegu leyti í eftirliti öryggis-
búnaðar flutninga- og fiskiskipa. Æskilegt
er að umsækjendur hafi lokið farmannaprófi
og hafi skipstjórnarréttindi. Þekking á norð-
urlandamáli og ensku nauðsynleg. Allar nán-
ari upplýsingar um starfið veitir Páll Guð-
mundsson, deildarstjóri eftirlitsdeildar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu eða Siglingamálastofnun fyrir
12. júlí 1991.
2. Staða rafmangstæknifræðings
Staða rafmagnstæknifræðings hjá Siglinga-
málastofnun ríkisns er laus til umsóknar.
Æskileg er reynsla og þekking á rafbúnaði
skipa svo og kunnátta í Norðurlandamáli og
ensku nauðsynleg. Allar nánari upplýsingar
um starfið veitir Páll Hjartarson, deildar-
stjóri tæknideildar.
'Jmsóknir, ásamt upplýsingum um aidur,
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
ráðuneytinu eða Siglingamálastofun fyrir 19.
júlí 1991.
Viltu uppskera í sam-
ræmi við afköst?
Óskum eftir að ráða nokkra snjalla sölu-
menn/-konur til þess að selja góðar og sér-
stakar vörur. Ýmsir möguieikar eru í boði,
s.s. dagvinna, kvöldvinna eða helgarvinna,
símasala eða sölukynningar, aðaistarf eða
aukastarf.
Við leitum að hressu fólki hér á Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem vill breyta til eða
auka tekjur sínar og hefur áhuga og dugnað
til að starfa að nokkru leyti sjálfstætt en þó
í skemmtilegum og jákvæðum hópi.
Ef þú hefur náð 25 ára aldri, hefur fágaða
framkomu, reynslu í sölumennsku og áhuga
á að kynna þér málið frekar, hringdu þá til
okkar í dag, mánudag eða þriðjudag, milli
kl. 9 og 13 í síma 67 68 69.
Alþjóða verslunarfélagið hf.
Ertu kennari
með metnað?
Geturðu hugsað þér að vinna við aðstæður
sem eru e.t.v. allt aðrar en Kennaraháskólinn
bjó þig undir að starfa við - í umhverfi þar
sem nemendurnir eru ekki 600 heldur rétt
rúmlega 60 - þar sem ekki er aðeins einn
árgangur í bekk heldur a.m.k. tveir - þar sem
ekki er búið að hugsa allt fyrir þig heldur
færðu að reyna á skipulagshæfileika þína,
sköpunargáfu og getu til að takast á við hin
fjölbreyttustu kennslustörf?
Ef svo er þá höfum við í Flateyrarskóla þörf
fyrir þig!
Hafðu samþand við Hinrik, formann skóla-
nefndar, í síma 94-7828 (vs) og 94-7728 (hs)
eða Vigfús, skólastjóra, í síma 94-7670 (vs)
og 94-7814 (hs).
Grunnskólinn á Flateyri.
Ritari/
aðstoðarmaður
Fjármálafyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að
ráða ritara/aðstoðarmann forstöðumanna.
Starfið sem er mjög fjölbreytt, felst m.a. í
umsjón með skrifstofu, greiðslu reikninga,
gagnavinnslu, undirbúningi funda og nám-
skeiða, umsjón með prentun og rekstrarvör-
um, umsjón með vélum og tækjum og um-
sjón með skjala- og bókasafni. Einnig mun
viðkomandi annast tilfallandi ritarastörf,
móttöku viðskiptavina og símavörslu fyrir
forstöðumenn.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi stúd-
entspróf, víðtæka reynslu af ritarastörfum
og þægilega framkomu.
Æskilegt er að umsækjendur séu á aldrinum
30-40 ára.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Alleysmga- og radntngaþjonusla
Lidsauki hf. W
Framtíðarvinna
Sigurplast hf. óskar eftir starfsfólki til verk-
smiðjustarfa. Um er að ræða vaktavinnu á
þrískiptum vöktum og er vinnutíminn frá kl.
7.30 á mánudagsmorgni og til kl. 15.30 á
föstudögum.
Vinsamlega hafið samband við Magnús Ólafs-
son, verkstjóra, í síma 688590 milli kl. 14 og 17.
Sigurplast,
plastverksmiðja.
Kennarar
Garðaskóla vantar bekkjarkennara í 7. bekk.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
657694 og yfirkennari í síma 74056.
Skólafulltrúi Garðabæjar.
SJÓNVARPIÐ
Starf umsjónar-
manns Textavarps
er laust til umsóknar
Um er að ræða nýtt starf sem tengist opnun
Textavarps næsta haust. Umsjónarmaðurinn
mun leiða kynningu og þróun þjónustunnar.
Einnig mun hann hafa forgöngu um uppbygg-
ingu, áferð og framboð efnis Textavarpsins.
Umsækjendur skulu hafa góða almenna
menntun, ríkt frumkvæði, hæfileika til að
vinna sjálfstætt, þekkingu og reynslu á töivu-
sviði, góða tungumálakunnáttu og góða sam-
starfshæfileika.
Umsóknum sé skilað til Sjónvarpsins á eyðu-
blöðum sem þar fást, fyrir 3. júlí 1991, en
ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 1991.
Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmda-
stjóri Sjónvarpsins, eða starfsmannastjóri
Ríkisútvarpsins í síma 693900.
RÍKISÚTVARPIÐ
POídsiIiks
KRÓKHÁLSI 6
Prentari
Plastos hf óskar að ráða vanan prentara til
starfa í plastdúkaprentun. Umsækjandi þarf
að geta hafið störf fljótlega.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Eymars-
son, verkstjóri milli kl. 13 og 15 í síma
671900.
Garðabær - síma-
þjónusta - kaffistofa
Áhaldahús Garðabæjar óskar eftir að ráða
starfsmann til afgreiðslu- og símaþjónustu
auk aðstoðar í kaffistofu. Laun skv. samning-
um Starfsmannafélags Garðabæjar.
Upplýsingar um starfið veitir bæjarverkstjóri
í síma 53611.
Bæjarverkfræðingur.
*sZ_ -rý SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Ixis-S REYKJAVlK
Lausar stöður
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík
auglýsir eftirtaldar stöður við nýtt sambýli
fyrir ungt fólk, sem tekur til starfa í haust,
lausar til umsóknar:
1. Deildarþroskaþjálfa til að leiðbeina og
aðstoða íbúana. Hann þyrfti auk þess að
geta tekið að sér stjórnunar- og skipu-
lagsstörf og leyst af forstöðumann í sum-
arfríum. Viðkomandi þyrfti að geta hafið
störf um mánaðamótin júlí-ágúst.
2. Þroskaþjálfa til að leiðbeina og aðstoða
íbúana.
3. Meðferðarfulltrúa í fullt starf og hluta-
stöður.
Reynsla og menntun á sviði uppeldis- og
sálfræði eða skyldra greina er æskileg.
Upplýsingar veitirforstöðumaður, Júlíus Hall-
dórsson, í síma 621388 (skrifstofa) eða
620083 (heima).
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
svæðisstjórnar. Umsóknir berist fyrir 5. júlí.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra,
Nóatúni 17,
105 Reykjavík.
Frá Fræðslu-
skrifstofu Suðurlands
Lausar kennarastöður
við grunnskóla í Suðurlandsum-
dæmi.
Umsóknarfestur til 7. júlí.
Barnaskólann Vestmannaeyjum, meðal
kennslugreina, smíðar, tónmennt, íþróttir og
almenn kennsla.
Hamarsskóla Vestmannaeyjum, meðal
kennslugreina sérkennsla, myndmennt, tón-
mennt, raungreinar.
Grunnskólana á Selfossi, meðal kennslu-
greina kennsla yngri barna, kennsla í 7. bekk,
stærðfræði, eðlisfræði, líffræði, sérkennsla,
íþróttir, myndmennt, handmennt, tónmennt.
Grunnskóla Fljótshli'ðarhrepps.
Grunnskólana á Hvolsvelli, meðal kennslu-
greina handmennt, íþróttir, kennslayngri barna.
Grunnskólann á Stokkseyri.
Reykholtsskóla.
Fræðslustjóri.
- vaktavinna