Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADIB SUNNUDAGtJR 23. JÚNÍ t991 EVROPSKA EFN AH AGSSV/EBIÐ LAUSIR Þrátt fyrir að fslendingar telji mikilvægan áfanga hafa náðst í deilunni um sjávarútvegsmál á fundi ráðherra EB og EFTA-ríkja í sl. viku virðist svo sem útgáfur af niðurstöðum fundarins séu nánast jafnmargar og hióðirnar sem tóku hátt í hnnum LIMMBORG eftir Kristófer M. Kristinsson MORGUNINN eftir sameiginlegan ráðherrafund Fríverslunarbanda- lags Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB) í Lúxemborg var það útbreitt viðhorf að á fundinum hefði tekist að finna pólitískar lausnir í helstu ágreiningsmálum bandalaganna í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Sólarhring síðar, á fimmtudag, voru útgáfurnar af niðurstöðum fundarins nánast jafnmargar þjóðun- um sem tóku þátt í honum. Aðildarríki EFTA segja að náðst hafi samkomulag um leiðir til að leysa deilurnar um sjávarútvegshags- muni. Talsmenn EB telja hins vegar að ekki hafi náðst samkomulag um annað en að þeir ætluðu að skoða hugmyndir Norðmanna sem mögulegan samningsgrundvöll. Hveqar eru niðurstöður fundarins? Iyfirlýsingu sem Jaques Poos, utanríkisráðherra Lúxem- borgar og forseti ráðherrar- áðs EB, las að loknum fundin- um, sagði m.a. að ráðherrunum hefði tekist að komast yfir einn erfiðasta hjallann sem eftir var, sjávarútvegs- málin, og það ætti að þakka frum- kvæði Islendinga og Norðmanna sem hefði gert kleift að fínna pólitíska lausn á þessu máli. Það lægi síðan fyrir á fundi í Salzborg að staðfesta árangur fundarins í Lúxemborg. Wolfgang Schussel, utanríkisráð- herra Austurríkis og forseti EFTA- ráðsins tók í sama streng. Gagnstætt því sem reiknað hafði verið með vildu ráðherrar EB ræða mun fleiri þætti samninganna í stað þess að einbeita sér að erfíðustu málunum, físki, þróunarsjóði og akstur flutningabíla gegnum Sviss og Austurríki. Á fundinum eyddu ráðherrarnir þess vegna umtalsverð- um tíma í margtuggin atriði. Þessi listi er enn töluvert langur eða á fjórða tug atriða. Eftir fundinn hugðu samningamenn EFTA að sam- komulag hefði orðið um flest þessara atriða en að loknum sameiginlegum fundi með samningamönnum EB á fímmtudag er helst að skilja að EB telji a.m.k. % listans enn óafgreidd- an, þ.m.t. sjávarútvegshagsmuni og þróunarsjóð. Niðurstöðum fundarins var sennilega best lýst af Jóni Bald- vini Hannibalssyni, utanríkisráð- herra, þegar hann sagði við fjölmiðla að það sem hefði komið sér á óvart væri að fundurinn skyldi ekki hafa farið út um þúfur. Háttsettur emb- ættismaður innan EB sagði eftir fundinn að nú væru samningsaðilar a.m.k. komnir í aðstöðu til að prútta. Pólitísk lausn á hverju? Samstaða er um það á milii Norð- manna og íslendinga að á fundinum hafí orðið samkomulag um pólitíska lausn á deilunum um tollfrjálsan aðgang að mörkuðum EB fyrir sjáv- arafurðir, aðrir fundarmenn vírðast draga það í efa. Hins vegar verður að hafa í huga að ráðherrar EB hafa ekkert tjáð sig um þessi efni, það eru embættísmenn EB sem hafa uppi efasemdir af hálfu bandalags- ins. Hafi Norðmenn og íslendingar rétt fyrir sér þá hefur EB fallist á að deilumar verði leystar á þeim forsendum að báðar þjóðirnar fái ótakmarkaðan tollfrjálsan aðgang að mörkuðum EB fyrir sjávarafurðir og EB vlðurkenni að öllu leytl fyrirvara Íslendínga um íjárfestingar útlend- inga í íslenskum sjávarútvegi og fisk- iðnaði en að hluta tíl t norskum sjáv- mamammmamamm arútvegi. í staðinn munu íslendingar og Norðmenn_ skipta á veiðiheimild- um við EB. í rauninni hefur fram að þessu einungis verið rætt um til- boð Norðmanna sem liggur fyrir skriflega. Engar viðræður hafa farið fram á milii EB og íslendinga síðan á tvíhliða fundi_ sem haldinn var 4. júní í Brussel. Á þeim fundi kynntu Islendingar hugmyndir um tvíhliða viðræður um samskiptasamning sem m.a. fæli í sér gagnkvæm skipti á veiðiheimildum. EB hefur hins vegar enn sem komið er ekki svarað íslend- ingum. Á fundinum í Lúxemborg ít- rekuðu íslendingar hugmyndir sínar og staðfestu að þeir væru til umræðu um skipti á 2.600 tonna þorskígildum t.d. í langhala, gulllaxi eða kolmunna fyrir loðnu eða rækju frá EB. Samn- ingamenn EB telja að hugmyndir íslendinga gætu dugað sem umræðu- grundvöllur en því er hafnað af hálfu Islendinga. Af þeirra hálfu er um lokatilboð að ræða, við það verður engu bætt. Það er að sama skapi ljóst að hugmyndir Norðmanna- og Islendinga eru bundnar því skilyrði að fullt tollfrelsi fáist, verði ekki af því verða tilboðin. dregin til baka. Innan EB er mikil tregða að fallast á fullt tollfrelsí og gildir þá eínu hvort Spánverjar, Danir eða Frakkar eiga í hlut. Sennilegt er talið að full- trúar EB á ráðherrafundi EFTA í Salzborg í Austurríki á þriðjudag geri grein fyrir afstöðu bandalagsins til þeirra hugmynda sem liggja fyrir og geri EFTA gagntilboð. Þróunarsjóður Eftir fundinn í Lúxemborg töldu margir að samkomulag hefði náðst um fyrirkomulag þróunarsjóðs EFTA sem ætlað er að stuðla að lífskjara- jöfnun innan EB. Niðurstaðan er hins vegar sú að ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í þessum efnum. EFTA-ríkin hafa hækkað tilboð sitt úr 750 milljón ECU í 1000 milljónir ECU (rúmlega 70 milljarða ÍSK) en EB krefst a.m.k. 1400 milljóna ECU og vill að stór hluti þess verði greidd- ur út sem styrkir. Spánveijar hafa farið fram á að sjóðurinn greiði 1000 milljónir á ári í fimm ár nánast ein- göngu í formi styrkja. Hugmyndir EFTA-ríkjanna ganga út á að sjóður- inn verði byggður upp þannig að ein- stök EFTA-ríki ábyrgist lán úr hon- um sem verði tekin á almennum lána- markaði og sömuleiðis niðurgreiðslu vaxta á lánunum. EFTA-ríkin hyggj- ast þess vegna ekki mynda sérstakan sjóð. Sjóðurinn yrði starfræktur í fimm ár en vextirnir niðurgreiddir í tíu ár eftir að útlánum lýkur. Allt bendir til þess að erfitt verði að ná samkomulagi ef EB stendur fast á kröfunurn um óafturkræf lán úr sjóðnum. Umferð flutningabíla Samningar á milli Austurríkis og Svíbb annars vegar og EB hins vegar um ferðir flutningabíla frá EB um þessi lönd hafa farið fram tvíhliða samhllða samningum um EES. Af hálfu EB er viðunandi lausn á þeim skilyrði þess að samningurinn um EES verði undirritaður. Austurríkismenn eiga í miklum vandræðum heima fyrir vegna and- stöðu umhverfissinna við umferð flutningabílanna sem veldur umtals- verðri mengun í þröngum fjalladöl- um. Þeir hafa þess vegna farið fram á að EB sýni málstað þeirra skilning og gefi þeim kost á að vinna að sam- komulagi heimafyrir jafnt og í Bruss- el. Svisslendingar hafa gert EB tilboð som m.a. gerir ráð fyrir undanþágu frá hámarksþunga flutningabíla frá EB sem fara í gegnum Sviss. Há- marksþunginn hefur verið 28 tonn en Svisslendingar eru tilbúnir til að hleypa 50 flutningabílum með 40 tonna öxulþunga daglega í gegn. EB vill hins vegar fullt ferðafrelsi fyrir bílana hvort heldur er í gegnum Sviss eða Austurríki. Onnur mál Það er almennt viðhorf þeirra sem Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Jón Baidvin Hanni- balsson utanríkisráðherra á fundi leiðtoga aðildarríkja EFTA í Vínarborg í síðasta mánuði. Á mánudag koma ráð- herrar EFTA á ný saman í Austur- ríki að þessu sinni í Salzborg og á þriðjudag eiga þeir fund með full- trúum Evrópubandalagsins um myndun Evrópska efnahagssvæðis- ins. Belgískur togari að veiðum við Island: Krafa Evrópubanda- lagsins hefur verið sú að EFTA-rík- in veiti EB-ríkjum einhliða veiði- heimildir í skiptum fyrir tollfrjálsan aðgang að mörkuðum bandalags- ins. Þessari kröfu hafa íslensk stjórnvöld þráfaldlega hafnað og sagt hana frágangssök í viðræðun- um. að samningunum standa að verði þessi stóru ágreiningsmál leyst muni önnur smærri ekki verða látin spilla árangri samninganna. En á meðan svo er ekki verða þessi mál að þvælast fyrir á slíkan hátt og gerðist í Lúxemborg. Sum þessara mála eru næsta viðkvæm s.s. fyrirvara Svisslendinga vegna erlends vinnuafls og fjármálastarf- semi. Það er hins vegar ljóst að tækn- ileg atriði hvort sem þau varða út- blástur bíla, snefilefni i varalit eða aðlögunartíma einhverra kantóna í Sviss vegna fjölskyldna farandverka- fólks verða ekki leyst á ráðherra- fundum, Það vekur þeBB Vegita Ultdr- un að þau mál skuli vera á dagskrá á fundi sem ætlað var að bijóta nið- ur stóru þröskuldana. Lausn á síðustu stundu Sameiginiegi ráðherrafundurinn var haldinn í tengslum við ráðherra- fund EB í Lúxemborg. Það tafði fyr- ir á fundinum að þessa daga voru starfsmenn framkvæmdastjórnar EB í verkfalli til að mótmæla fyrirhugað- ir kjaraskerðingu. Evrópubandalagið taldi sig þess vegna skorta að ýmsu leyti forsendur til að meta hugmynd- ir EFTA á fundinum þar sem viðeig- andi_ sérfræðingar væru ekki til stað- ar. í upphafi fundarins hittust ráð- herrarnir ásamt samningamönnum og embættisliði á 100 manna fundi þar sem hvor aðili fyrir sig gerði grein fyrir afstöðu sinni. Þá strax, var ljóst að mikið bæri í milli og þess .vegna var ákveðið að setja á fót vinnuhópa til að fjalla annars vegar um fisk og hins vegar um þró- unarsjóð. Jafnhliða hófu forsetar EFTA ráðsins og ráðherraráðs EB þreifingar með fulltrúum fram- kvæmdastjornarinnar til _að leita mögulegra málamiðlana. Á meðan biðu fundarmenn ýmist í fundarsöl- um eða ráfuðu um ganga. Að loknum þriggja klukkustunda óformlegum þreifingum komu ráðherrar hvors bandalags fyrir sig saman til að meta árangurinn sem var næsta rýr. Á þessu stigi voru flestir þeirrar skoðunar að fundurinn væri farinn út um þúfur. Á EFTA-fundinum kröfðust Norðmenn þess að öllum yrði vísað á dyr nema ráðhemim og aðalsamningamönnum. Hvað fram fór eftir það á að vera leyndarmál en Norðmenn kynntu þá fyrir öðrum EFTA-ríkjum hugmyndir sínar um mögulegan samningsgrundvöll í físki. Otti við leka og fjölmiðlafár heimafyrir var ástæða þess að þeir fóru fram á að fundarseta yrði tak- mörkuð. Eftir lokaða fundinn fóru ráðherramir til sameiginlegs kvöld- verðar með EB ráðherrum þar sem þeir sátu einir að borðum í lokuðum sal. Dræm þátttaka EB ráðherra á þessum fundum vakti athygli en ein- ungis tveir þeirra sátu kvöldverðinn annars mættu þar aðstoðarráðherra eða fulltrúar ráðherra. Sama gildir í rauninni um fundina fyrr um dag- inn. EB ráðherrar voru ýmist farnir eða voru uppteknir við önnur mál- efni. Lokaður fundur ráðherranna stóð frá því klukkan hálf tíu um kvöldið til tvö um nóttina og þann tíma bárust engar fréttir af fundin- um. Um tvöleytið birtust ráðherrarn- ir eða fulltrúar þeirra brosmildir og saddir, EES var í höfn, pólitísk lausn var fundinn á öllum helstu ágrein- ingsefnunum. Utanríkisráðherra Lúxemborgar sagði að fundurinn hefði sannað að EES stæði fyllilega fyrir sínu. Ekkert hafði verið sett sameigin- lega á blað á fundinum, hver ráð- herra bar sína kompu þar sem hann hafði skrifað það sem hann taldi skipta máli. Þremur sólarhringum síðar telja margir þeirra embættis- manna sem fengu það hlutverk að vinna úr fundinum að útilokað sé að allir séu að tala um sama fundinUi Súmir fuliyrða jafnvel að líkast sé þvi að BUtttií* ráðhefrana hafi verið á annarri piánetu. Sennilega er ekki um annað að ræða en að standa fast á sínu og bíða átekta,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.