Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 5
, M0RGUNBI4í>If).S.UNWUPAG.UR S3..JÚNÍ .1991 5 Steingrímur Sigurgeirsson framkvæmdastjóri Samtaka ungra ihaldsmanna á Norðurlöndum, Charl- otte Helmersson fráfarandi framkvæmdastjóri, Ólafur Þ. Stephensen forseti, Magnus Dahl fráfar- andi forseti, og Gunnilla Ottoson varaforseti. Samtök ungra íhaldsmanna á Norðurlöndum: íslendingnr kjörinn forseti í fyrsta sinn A AÐALFUNDI Samtaka ungra íhaldsmanna á Norður- löndum sem haldinn var hér á landi í vikulokin helgina var Ólafur Þ. Stephensen, háskóla- nemi og blaðamaður, kosinn forseti samtakanna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslendingur gegnir þessari stöðu. I stjórn samtakanna sitja þrír menn og auk Ólafs var Steingrím- ur Sigurgeirsson blaðamaður kjörinn framkvæmdastjóri. Vara- forseti var kjörinn Gunnilla Otto- son frá Svíþjóð. Ólafur hafði áður verið varaforseti samtakanna síðastliðin tvö ár. Steingrímur sagði í samtali við Morgunblaðið að með kjörinu, sem er til tveggja ára, færðist skrif- stofa samtakanna til íslands. Hann sagði að auk kosninganna hefði verið efnt til ráðstefnu um öryggis- og varnarmál í Evrópu og farið var í skoðunarferð í Keflavíkurherstöðina. Þeir sem fiuttu erindi á ráðstefnunni voru Björn Bjarnason alþingismaður og Arnór Siguijónsson sem sæti á í varnarmáladeild utanríkisráðu- neytisins. A Omar Kristjánsson, aðaleigandi Þýsk-íslenska: * Ihugar að skjóta málinu til mann- réttindadómstólsins ÓMAR Kristjánsson, aðaleigandi og framkvæmdasljóri Þýsk-íslenska hf., hefur falið lögmanni sínum að skoða það hvort grundvöllur sé fyrir því að slqóta dómi Hæstaréttar sem féll á föstudag í máli sínu og fyrirtækisins til mannréttindadómstólsins í Strassborg. Hann á von á því að skriður komist á þetta mál í næstu viku. „Dómurinn er mér mikil von- brigði. Eftir að sakadómur gekk í fyrra var ákveðið að fá álit frá fjöl- mörgum hæstaréttarlögmönnum, þar af fjórum fyrrverandi hæsta- réttardómurum og tveimur fyrrver- andi forsetum Hæstaréttar. Þeirra álit er þvert á það sem Hæstiréttur hefur nú dæmt. Ég leitaði einnig til Knut Waapen, virtasta refsirétt- arprófessor á Norðurlöndum, og hans álit gekk einnig_ þvert á dóm Hæstaréttar," sagði Ómar. Hann sagði að engir útreikningar lægju fyrir um vaxtakostnað af sektargreiðslu Þýsk-íslenska. „Það vill nú svo til að þetta fyrirtæki mun standa undir þessum greiðsl- um. Það verður farið í að skoða þetta mál eftir helgina og við skoð- um það að sjálfsögðu líka hvort við eigum eitthvað frekar í þessari stöðu. Það er hægt að vísa þessu máli, eða að minnsta þeim hluta þess sem teljast mannréttindabrot, til mannréttindadómstólsins í Strassborg. Tveir hæstaréttarlög- menn hafa bent mér á það og ég hef falið Jóni Steinari Gunnlaugs- syni, lögmanni mínum, að skoða það. Ef svo er þá munum við láta reyna á það hvort dómstólum á ís- landi leyfist að dæma með ríkinu þegar það á í deilum við fyrirtæki og einstaklinga. Þeir tíu hæstarétt- arlögmenn sem ég leitaði til segja ailir að sá sakadómur sem gekk standist ekki lög. Það er mjög margt sem bendir til þess að það sé eðlilegt og sjálfsagt að gera þetta. Ef fyrirtækið telur sig geta sótt rétt sinn þarna þá verður það gert með öllum þeim tilkostnaði sem þarf,“ sagði Ómar. Færeysk-íslensk- ur jass í Púlsinum HUÓMSVEITIN James and the Gang heldur tónleika í Púlsinum 24. og 25. júní nk. Illjómsvcitin leikur jasstónlist og er skipuð færeyskum og íslenskum tónlist- armönnum. Hljómsveitina skipa James Olsen söngvari, Arnold Ludvig bassaleikari og Rógvi á Rógvu trommari, en þeir eru allir við nám í tónlistarskóla FÍH, og íslendingamir Sunna Gunnlaugs- dóttir hljómnborðsleikari og Jóel Pálsson saxófónleikari. Sveitin mun leika þekkta jass- standarda, en þess má geta að þess- ir tónlistarmenn léku allir á Rúrek jasshátíðinni í síðasta mánuði. Hamborg 17.700 kr. Þetta er tilboð sumarsins! Morgunflug kl. 09:00 með ATLANTSFLUGI alla laugardagsmorgna í sumar frá 29. júní til 24. ágúst." ** Ótrúlegt tilboð á hótelum: Með sérsamningum geta Samvinnuferðir Landsýn boðið gistingu á SAS PLAZA hótelinu í Hamborg, rétt við járnbrautarstöðina, á 7.200 fyrir tvo. Þetta er glæsi- hótel, rétt viðverslunargöturborgarinnarog búiðöllum þeim þægindum, sem hugurinn girnist. Og morgunverðarhlaðborð er innifaliðl* Höfum einnig gert frábæra samninga við eftirfarandi hótel: RAMADA RENAISSANCE, INTER-CONTINENTAL, HAMBORG MARRIOTT OG HOLIDAYINN CROWNE PLAZA. ALLA LAUGARDAGAI SUMAR Vinsamlegast athugið að í síðustu auglýsingu misritaðist gildistími. Gildir frá 1. júlí - 15. ágúst. Samviiwuferlir-laiidsýii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70* Símbréf 91 - 2 77 96*Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 39 80 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.