Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 19
[ f:iMQHGtiNei^ÐIÐ 3UNNUDAQUR. 23/ JiÚJSÍ)lí»91 8 ri9 Víða í Suður-Varanger eru minnis- merki um sovéska hermenn, sem dóu ó þessum slóðum í stríðinu. Þó voru þúsundir sovéskra stríðsfanga fluttar í fangabúðir í Suður Varan- ger og margir þessara fanga óttu ekki afturkvaemt úr fangelsum nas- istanna, eins og sjó mó ó órituninni ó myndinni. Murmansk 0 10 20 50 100 km i__I__I—________I________________I Inari FINN- LAND Ivalo MINNKSHKRKE OVKR SOVJKTISKE KRIGSFANGBR Etter at Tyskland angrep Sovjetunionen sommcren 1941, fcom det i tiden »om íulgte tusenvis av savjotiske lcrigafamjer til S«sr- Varanger, Dot bie opprettet en rekfce fangeloirer rundt om i komtaunen. Fangene ble satt til befestningsarbeider, veiorbeid, lautt— o<j lossearbeid o.a. Forbaldene de Xevet under var priraitive og behandlingen brutal Mange fant derfor sin grav under oppholdet i S0r-Varanyer. ved flere av leirone var dot egne fangegravsteder. Elvenes var det 2 fangeleirer for russere. I den ene satt o de norske lœrerfangene under oppholdet i 1942. Ved dotte raonuJBent 1S fangegravatedet for leirene pS Elvenes. alt ble oa, 300 graviagt ber. Etter krigen bie de dpde flyttet tii den sovjetiske krigskirkegáráen p& Tjdtta i Nordland. Era 1945 og frera til 1970-árene kora en ved flere anledninger tilfeldig over ukjonte fangegraver. Biant annet ble ðet ved gravearbeid av Varanger Kraftlag ved Elvenes grensestasjon funnet ca. 200 sovjetiske krigsfanger i 1958. Disse ble ogs& overflyttet til Tjdtta. Fortsatt ligger nok navnlpse krigsfanger i ukjente graver i S« Varanger. haldsnámi og fara til starfa í norð- urhéruðunum. Þá eru barnabætur hærri í N-Noregi, en annars staðar í landinu. Lítið gagn er þó af þessu ef enga vinnu er að hafa. Andstaða í N-Noregi gegn EB-aðild Staður eins og Kirkenes i Norð- ur-Noregi hefur átt undir högg að sækja á síðustu árum eins og svo margir aðrir bæir á þessum slóð- um. Stærsti vinnuveitandinn á staðnum er Syd Varenger AS, námafélag í eigu norska ríkisins, sem unnið hefur járnblendi og meðal annars selt til Járnblendi- verksmiðjunnar á Grundartanga. Nú eru blikur á lofti í rekstri þessa stóra vinnuveitanda í 10 þúsund manna samfélagi. Mest unnu um eitt þúsund manns hjá fyrirtækinu, en nú eru starfsmennirnir um 750. Fyrirtækið, sem rekur mestu járnnámur V-Evrópu, hefur verið rekið með verulegu tapi síðustu ár og auk þess verður stöðugt erfiðara að ná málmgrýtinu án þess að leggja í mikinn tilkostnað. Akvörðun hefur verið tekin um að draga enn saman seglin á næstu árum og árið 1997 verði starfs- mennirnir 250 talsins. Á næstu árum er ætlunin að bæta hráefnið frá fyrirtækinu, þó magnið minnki verulega. Alger óvissa ríkir um hvað þá tekur við. Mjög er horft til tölvu- vinnslu á vegum hins opinberra og að þar gæti jafnvel verið um 150 störf að ræða. Þá horfa menn vonaraugum til endurbóta á verk- smiðjum i rússnesku borginni Nikkel skammt frá landamærun- um. Reiknað er með að finnska fyrirtækið Auto Compu taki að sér að endurnýja tækjabúnað þar, en Elkem í Noregi sjái um mengunar- varnir, nokkuð sem til skamms tíma fannst ekki í rússneskum orðabókum. Samtals er talið að þarna sé um 5 milljarða króna verkefni að ræða, en þó aðeins um vinnu til skamms tíma. Fyrirtækið Kimek í Kirkenes sinnir margvís- legum verkefnum fyrir rússneska togaraflotann og á fleiri sviðum vonast menn eftir verkefnum frá Sovétríkjunum. Kirkenes byggir afkomu sína á námuvinnslu og ýmiss konar þjón- ustu, meðal annars við sjávarút- veg. Þar hafa menn því fundið fyrir samdrætti í fiskveiðum í Bar- entshafi. Að sögn Josteins Jakobs- ens, ritstjóra í Kirkenes, er mikil andstaða gegn aðild Norðmanna að EB í Norður-Noregi. Hann sagði að íbúum norðursvæðanna fyndist nógu slæmt þegar afkastamikil skip frá Suður-Noregi hirtu það litla sem fengist af fiski. Strand- floti sjávarþorpanna í Finnmörku ætti litla möguleika í slíkri sam- keppni og fiskurinn næði sjaldnast að ganga inn á grunnið. Ef skip frá öðrum Evrópulöndum ættu nú að bætast við yrði veiðunum sjálf- hætt. Aflabrögð hefðu heldur lag- ast í ár, en strangir kvótar settu mönnum skorður. Stríðið er fólki enn í fersku minni Hvar sem ekið er um í nágrenni Kirkeness má sjá minjar frá seinni heimsstyijöldinni. Sundur ryðgaðir prammar eru í flæðarmálinu, fall- byssupallar standa víða enn, grunnar útsýnispalla eru algeng sjón, margvíslegar minjar frá Þjóð- veijunum eru í nágrenni flugvallar- ins, skotfæri og byssur eru um allt og hefur jafnvel kveðið svo rammt að þessu að ekki hefur ver- ið hægt að byggja á sumum stöð- um vegna voppa í jörðu. Það er eins og menn hafi hreinlega hlaup- ið frá öllu saman þegar Rússarnir nálguðust. Vorið 1941 hugðust Þjóðveijar ráðast inn í Rússland í norðri og taka hina mikilvægu hafnarborg Murmansk. Sveitir Rauða hersins veittu mikla mótspyrnu og her- mennirnir biðu gráir fyrir járnum augliti til auglitis í þijú ár við ána Litza 100 kílómetrum austan við Kirkenes. Um 70 þúsund þýskir hermenn voru í sveitum nasista í S-Varanger. Mikil sókn Rússa í október 1944 hrakti Þjóðveija á flótta. 25. október tóku sveitir Sovétmanna Kirkenes. Stórt minn- ismerki er um þessa atburði í Kir- kenes og víða er að fínna grafir sovéskra hermanna á þessum slóð- um. Þjóðveijar gengu fram af mikilli hörku í Suður-Varanger og brenndu eða sprengdu nánast öll hús í Kirkenes, aðeins sex hús stóðu að stríðinu loknu. íbúarnir höfðu ekki í nein hús að venda og komu sér fyrir eins vel og framast var kostur í námagöngum í Björn- vatn, skammt frá Kirkenes. Sumir reistu sér kofa í göngunum, aðrir tjölduðu yfír sig og sína. Sjúkra- skýli var byggt í göngunum og þar fæddust 10 Norðmenn meðan á stríðinu stóð. í þvergöngum var innréttað fjós, hesthús og fjárhús. Þarna lifðu um 3.500 manns mán- uðum saman. í þessu sérstæða samfélagi stóðu Norðmennirnir saman sem einn maður ákveðnir í að fara hvergi. Þjóðveijar hótuðu að sprengja munna ganganna og skipuðu fólkinu að halda suður á bóginn. Þeir höfðu ekki látið verða af slíkum grimmdaraðgerðum er Rússarnir létu til skarar skríða og frelsuðu fólkið. Þeirra er því minnst með þakklæti fyrir fram- gönguna í stríðinu. Tortryggni í samskiptum Að stríðinu loknu og á árum kalda stríðsins breyttust mjög öll samskipti við Sovétmenn. Þar til aðeins fyrir tveimur árum var land- amæravarsla mjög ströng og al- menningur fékk ekki að fara yfir landamærin til Sovétríkjanna. Breyting hefur orðið á þessu síð- ustu ár og nú eru skipulagðar skoð- unarferðir til Murmansk og reynd- ar víðs vegar um Sovétríkin. Stranglega er þó fylgst með því að fólk fái ekki að skoða hernaðar- lega mikilvæg svæði á Kolaskag- anum. Veruleg tortryggni einkenn- ir samskiptin þó þau hafi aukist jafnt og þétt hin síðari ár. Vissara er að hafa tímann fyrir sér ef fólk ætlar frá Kirkenes yfír til Sovétríkjanna. Blaðamaður reyndi að fá vegabréfsáritun hjá sovéska sendiráðinu í Reykjavík, en daginn fyrir upphaf ferðar var honum sagt að það tæki lengri tíma en eina viku að að ganga frá slík- um pappírum og fékkst því ekki áritun. Ýmsir möguleikar munu þó vera í þessum efnum. Þannig frétti blaðamaður að í Kirkenes væri hreinlega hægt að kaupa árit- un. Ef ferðamaður hefði nægan tíma tæki þijár vikur og lítinn eða engan pening að fá áritun, þijá daga og 3 þúsund krónur eða hálf- an dag og 16 þúsund krónur að verða sér úti um nauðsynlega pappíra. Með auknum löndunum rússn- eskra togara í Vadsö og Vardö og viðgerðum í Kirkenes hefur sjó- mönnum sem ráfa um göturnar fjölgað. Svipað og í Reykjavík og á Akureyri eru þeir ólmir í að að kaupa gamlar Lödur og varahluti í bíla. Einnig sækjast þeir mjög eftir gallabuxum og öðrum vest- rænum fatnaði. Á móti bjóða þeir margvíslega rússneska vöru til sölu og þá mjög oft varning tengd- an Rauða hernum. Sem dæmi má nefna að maður nokkur keypti leð- urstígvél og loðhúfu á 500 krónur íslenskar. I raun eru það ótrúle- gustu hlutir sem eru falir fyrir gjaldeyri. í Vadsö er talsvert um að rússn- eskir ferðamenn komi á farþega- skipi til að skoða og skemmta sér yfir helgi. Einkum eru þetta betri borgarar frá Murmansk og ná- grenni. í fyrra gerðist það að ung stúlka úr þessum hópi var tekin af lögreglu er hún vildi selja heima- mönnum blíðu sína. Gjaldið sem hún setti upp fyrir greiðann var eitt kíló af kaffi. í fyrrasumar gerðist það einnig, • að norskur maður var að renna fyrir lax í Grense Jakobselv er rússneskur landamæravörður birt- ist á bakkanum hinum megin og sagði að hann hefði verið með færið Rússlands megin við miðju árinnar. Norðmaðurinn hélt nú ekki og stóð svo í stappi nokkra stund, fullyrðing á móti fullyrð- ingu. Norðmaðurinn gaf sig hvergi þó Rússinn miðaði að honum byssu og reyndi Norðmaðurinn að flýja. Rússinn hélt á eftir honum yfir ána og skaut að Norðmanninum, sem sakaði ekki. Atvik þetta þótti engu að síður mjög alvarlegt þar sem skothylkið úr byssu Sovétmannsins fannst á norsku landi. Enn er ekki vitað hvor mannanna hafði rétt fyrir sér varðandi veiðiskapinn. Önnur saga frá sömu slóðum, en talsvert eldri. Börn og ungling- ar frá húsunum í Grense Jakobselv fóru mjög oft á sumrin í útilegur á bökkum árinnar. Iðulega gerðist það þá á síðkvöldum að rússneskir landamæraverðir kæmu yfír ána og þyðu ýmsan varning í skiptum fyrir hluti úr farangri krakkanna. Þarna við ána gerðist það einnig fyrir nokkrum árum, að norskur veiðimaður festi uppáhaldsspúninn sinn í trjágrein á hinum bakkanum. Hann lét sig hafa það að fara yfir ána til Rússlands og hélt að hann hefði komist óséður til baka aftur. Þegar hann kastaði spúninum síð- an aftur sigri hrósandi birtist bros- andi andlit rússnesks landamæra- varðar í runnanum hinum megin. Mennirnir tóku tal saman, mest megnis með höndunum og lát- bragði, rúlluðu sér vindling úr tó- baki Norðmannsins og skildu síðan í bróðerni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.