Morgunblaðið - 11.07.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JULI 1991
15
Ólafur Oddsson
„Og heldur finnst mér
þetta framatal undar-
legt. Er það ekki aðal-
atriðið á tímum atvinn-
uleysis, að menn geti
unnið, gert gagn og lát-
ið gott af sér leiða.“
búnaður í framhaldsskólum ríkis-
ins gert störf þar erfiðari við-
fangs. Um þetta eru til úttektir
eftirlitsaðila. Hér er úrbóta þörf,
þótt ýmsir stjórnendur hafi reynt
að gera sitt besta við erfiðar að-
stæður.
Dularfull umfjöllun í blöðum
í þessu sambandi verður að
nefna heldur fjandsamlega og mið-
ur vitræna umfjöllun i sumum fjöl-
miðlum. Um þetta skulu nefnd
dæmi. Kunnur ritstjóri hefur sagt
um vanda móðurmálsins, að „ís-
lenskunni hefur hrakað vegna slæ-
legrar kennslu“. Þetta er mjög
einfalt allt, eins og er hjá þeim
sem vilja útbreiða fordóma: Móð-
urmálskennarar eru latir og leiðin-
legir, og þar með er málið leyst!
— Og ekki er greining vandans
flóknari hjá samstarfsmanni hans,
sem hefur líkt kennurunum við
gíslatökumenn og „Hitler sáluga“
og sagt, að kennararnir séu með
„blóðbragð í munni“ eins og það
er orðað. Hærra er nú ekki „plan-
ið“ hjá sumum mönnum.
Þá „rannsaka" stundum fjölm-
iðlamenn stöðu móðurmálsins.
Tveir blaðamenn ruku á fólk á
fömum vegi og spurðu 40 manns,
hvað orðið „lítilsigldur" þýddi, og
þeir heimtuðu einnig, að menn
beygðu snarlega orðið „kú“ þar á
staðnum. Síðan voru þessir fjöru-
tíu flokkaðir í sex flokka eftir aldri
og kyni, og þar með var komin
niðurstaða um móðurmálsþekk-
ingu íslendinga og sagt: „Það er
ekki að ástæðulausu sem menn
hafa áhyggjur af móðurmálinu".
(Sbr. Mbl. 13.11. 88). Hér er enn
allt mjög einfalt.
Slík „rannsókn“ er nú ekki mik-
ils virði að minni hyggju, enda er
þetta mál miklu flóknara og erfið-
ara viðfangs. Kunnur fyrrv. stjórn-
málamaður notaði fyrrgreinda
„rannsókn“ til þess að reyna að
koma höggi á móðurmálskennara
í því skyni að auka vinsældir sín-
ar, en hann hafði ekki erindi sem
erfiði.
Skólamál eru einn mikilvægasti
þátturinn í velferð þjóðarinnar. Því
skiptir afar miklu, að umfjöllun
um þau efni sé með vitrænum
hætti. Fjalla ber um það sem vel
er gert og beita jákvæðri og rök-
studdri gagnrýni á það sem betur
má fara í því skyni að stuðla að
endurbótum. Það er stundum gert,
og ber að meta það. En stundum
er umræðan því miður á heldur
frumstæðu stigi.
Óhæfuverk fyrri ríkisstjórnar
Fyrri ríkisstjórn setti „þræla-
lög“ á kennara og menntamenn.
Það var hennar stuðningur og
kveðja til þeirra manna, sem árum
og áratugum saman höfðu reynt
að vinna sín störf eftir bestu getu,
oft við frumstæðar aðstæður. Ráð-
herraundirskrift, bókanir í ríkis-
stjórn og endanlegur úrskurður
dómenda í íslenska lýðveldinu voru
þar með einfaldlega gerð merking-
arlaus, hjóm eitt. Þetta er sorglegt
fyrir íslenska lýðveldið, en það
segir og sína sögu um fordóma
og takmarkaðan skilning á gildi
menntunar og fræðslu.
En nú er kominn nýr mennta-
málaráðherra og haft viðtal við
hann í Morgunblaðinu, eins og
vera ber. — Honum er óskað far-
sældar í embættisstörfum. Mennt-
amál þessarar fámennu þjóðar eru
að verulegu leyti í hans höndum.
Það hlýtur að vera þung ábyrgð.
Honum skal þakkað — og eins
öðrum, sem hið sama gerðu —
fyrir drengilega afstöðu á þingi
gegn fyrrgreindu óhæfuverki fyrri
ríkisstjórnar, en sú afstaða var
ekki til vinsælda fallin. Óskandi
er, að ráðherrann verji skólana og
efli starfsemina þar. Þá er afar
brýnt, að reynt verði að stuðla að
sáttum og þokkalegum samskipt-
um við þá sem eiga að annast
fræðilegt uppeldi og menntun ís-
lenskra ungmenna. Þetta þarf að
gera, ekki endilega kennaranna
vegna, heldur vegna framtíðar-
hagsmuna íslensku þjóðarinnar.
Höfundur er íslenskufræðingur
og kennari.
hrmlestrarhAmskeio
Sumarnámskeið í hraðlestri hefst þriðjudaginn 16. júlí nk.
Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma?
Vilt þú vera vel undirþúin(n) undir námið í haust?
Nú er tækifæri fyrir þá, sem vilja margfalda lestrar-
hraða sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturna.
Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
10 ARA
1 V/SA j
Rowenla
Rowenla
Rowenfa
Djúpsteikingarpottur Brauðrist m/skynjara Gufustraujárn kr. 3.950,-
kr. 6.900,- kr. 3.649,- M/Titan botni kr. 4.995,-
Tryggðu gæðin með Rowenta
Útsölustaðir um land allt:
REYKJAVÍK OG NÁGRENNI: GLÓEY HF„ Ármúla 19 • RAFGLIT HF„ Blönduhlíð 2 • H.G. GUÐJÓNS-
SON, Stigahlíð 45-47 • HEKLA HF„ Laugavegi 172 • HAGKAUP, Kringlunni-Skeifunni • UÓS OG
RAFTÆKI, Strandgötu 39, Hafnarfirði • UÓSABÆR, Faxafeni 14 • RAFBÚÐ DÓMUS MEDICA, Egils-
götu 3 • RAFBÚÐ SAMBANDSINS, Holtagörðum • RAFVÖRUR, Langholtsvegi 130 •REYKJANES:
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA-SAMKAUP, Keflavík •VESTURLAND: KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA, Borg
arnesi • KAUPFÉLAG SAURBÆINGA, Skriðulandi • VESTFIRÐIR: JÓN FR. EINARSSON, Bolungarvík
• VERSLUNIN STRAUMUR, ísafirði • NORÐURLAND: KAUPFÉLAG V-HÚNVETNINGA, Hvammstanga
• KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi • KEA-JÁRN OG GLER, Akureyri • RADÍÓNAUST, Geisla-
götu 14, Akureyri • KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA, Húsavík • VERSLUNIN HEGRI, Sauðárkróki • AUST-
URLAND - AUSTFIRÐIR: KAUFÉLAG STÖÐFIRÐINGA, Stöðvarfirði • KAUPFÉLAG STÖÐFIRÐINGA,
Breiðdalsvík • KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum • KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Seyðisfirði •
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Reyðarfirði •KAUPFÉLAG A-SKAFTFELLINGA, Höfn ÍHornafirði • SUÐUR-
LAND: KAUPFÉLAG RANGÆINGA, Hvolsvelli • KAUPFÉLAG ÁRNESINGA, Selfossi.
Heímasmidjan húsasmiojaw hp.
Kringlunni, sími 685440 “ msmsm Skútuvogi, sími 687700
Sedan
DAIHATSU
CHARADE
Það eru fáir ef nokkrir bílar í
þessum stærðarflokki sem búa yfir
öllum þessum kostum. Daihatsu
Charade Sedan er búinn 90 hest-
afla vél með beinni innspýtingu
sem skilar miklum krafti um leið
og hún er sparneytin og búin full-
kominni mengunarvörn.
Vökvastýrið gerir hann líka ein-
staklega lipran og skemmtilegan í
akstri og hann fæst einnig
sjálfskiptur.
- Charade Sedan er góður kostur!
CHARADE SEDAN KOSTAR FRÁ KR.
866.000 stgr. á götuna.
FAXAFENI 8 • SÍMI91 -68 58 70