Morgunblaðið - 11.07.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991
29
Hugleiðing um nýlistar-
snobbið á Kjarvalsstöðum
eftir Guðmund
Guðmundarson
Eftir heimsfrægt Epinal-spýtna-
drasl, sem flæddi um Kjarvalsstaði
fyrir tveim árum, var maður að
vona að aðstandendur þessarar
stofnunar myndu fara varlega í að
gera þennan helgireit listarinnar,
sem þarna á að vera til húsa, að
einskonar miðstöð ögrandi fíflaláta
og snobbs á ömurlegri nútímalist.
Eg hef verið að bíða eftir að ein-
hveijir létu til sín heyra um sýning-
ar Yoko Ono „Fluxus" og nú síðast
Christo á Kjarvalsstöðum. En það
eina, sem birst hefur er uppskrúfað
þrugl um hvað þetta sé nútímalegt
og stórkostlegt, án þess að nokkurt
sérstakt verk sé tekið til listdóms.
En fjölmiðlamir láta ekki á sér
standa að blása upp sápukúlur um
hvað þetta sé allt merkilegt og
áhugavert.
Mér er sagt að sjaldan eða aldrei
hafi mætt annar eins mannfjöldi á
Kjarvalsstaði og við opnunarhátíð-
ina á listaverkumk Yoko Ono.
Eg man fyrst eftir þessu nafni
fýrir áratugum, þegar fjölmiðlar
tilkynntu með miklum fyrirgangi
að Lennon hefði gifst Yoko og frétt-
asnápum var boðið inn á svítuna,
þar sem þau .skötuhjúin voru upp í
rúmi og Lennon tilkynnti að þau
væru þarna til að lofsyngja friðar-
viðleitni sína og í leiðinni ætlaði
hann að gera Yoko barn og til að
tryggja árangur myndu þau dvelja
í rúminu í eina viku af þessu tilefni.
Þetta var að sjálfsögðu heims-
frétt og fjölmiðlarnir upptengdruð-
ust með myndbirtingum og
stríðsfyrirsögnum að þessu tilefni.
Sýning Yoko Ono
Þegar komið var í anddyri Kjarv-
alsstaða og menn ætluðu að ganga
inn í sýningarsalinn blöstu við þeim
mjög þröngir skilveggir og þurfti
því að skáskjóta sér inn. Mér kom
í hug að ef einhver kona á 9. mán-
uði hefði farið þarna af forvitni er
„Sandkassaleikurinn á
Kjarvalsstöðum hlýtur
að örva menn til dáða
í markleysu og öðrum
hliðstæðum dyggðum,
sem hámenntaðir list-
fræðingar einir eru
færir um að meta að
verðleikum.“
ekki að vita, nema hún hefði lent
í sjálfheldu líkt og Skarphéðinn
forðum í Njálsbrennu „tepptur við
gaflhlað og glotti við tönn“ en þetta
átti að sjálfsögðu að bera vott um
hugkvæmni.
Er ég eins og allir aðrir skaust
á ská til að skoða þessa sérstæðu
sýningu, þá fannst mér furðulegt,
hvað hægt er að blása upp jafn
ómerkilega hluti og þarna gaf að
líta.
Nefni aðeins 3 dæmi af ótal
mörgum sem úr er að velja. Gat
var á máluðum vegg, sem stóð út
á gólfi og var gatið ætlað til þess
að sýningargestir gætu framkvæmt
svokallaðan „gerning“. Stungið
hendinni í gegnum gatið, svo við-
staddir gætu notið þessarar sér-
stæðu „uppákomu"!
Á einum stað höfðu bæði eldhús-
stóll og mynd verið söguð í sundur
um miðju og hengd upp á vegg.
Hinn helmingurinn var á borði
ásamt sundursöguðu útvarpstæki,
rafmagnsofni og brauðrist. Hvílík
dásemd! Eða hugarorkan sem farið
hefur í þessi sérstæðu listaverk. Það
er ekki að undra þótt slíkir lista-
menn séu þjáðir af andlegri þreytu.
Ekki má gleyma á annað hundr-
að krossum úr kassafjölum með
kringlóttum speglum í miðju og
handskrifuðum áletrunum á efri
hluta krossins á ýmsum tungumál-
um. Þessi lönguvitleysa með skítug-
um fjölum og hálfbrotnum speglum
er ennþá á Kjarvalsstöðum, þegar
þetta er ritað (30. júní) við inngang-
inn öllum til leiðinda.
Allt á þetta að hafa jákvæðan
og ögrandi boðskap að flytja.
Að sjalfsögðu gaf að líta á stund-
um furðulegar hugdettur en að
þarna hafi verið um stórkostlegan
listviðburð að ræða. Æ nei! Síður
en svo.
„FIuxus"
Þó tók steininn úr, þegar komið
var í austursalinn. Þar var sýning
á róttækum viðhorfum í nútímalist.
Flúx-grúppan snýr að sjálfsögðu
baki við borgaralegri list samtímans
en stundar orðaleiki (á ensku),
uppákomur og gerninga en verkin
á Kjarvalsstöðum voru sögð
„skugginn af sjálfu sér“ éða eins-
konar heimild um atburði og get
ég að sjálfsögðu fallist á að þau
voru skuggaieg hringavitleysa, sem
hæfir vel listsnobbum og verði þeim
að góðu!
Samkvæmt upplýsingum í Morg-
unblaðinu er „flúxus“ heimild um
hugarfar eða kenndir og „krefst
hvorki hæfni né tímafrekra æfinga,
skemmtileg, tilhaldslaus og fæst við
markleysu“\
Er það ekki einmitt þetta sem
koma skal? Bráðnauðsynlegt fyrir
okkar menningu að fylgjast vel með
í markleysunni!
Christo
Hann hefír að sögn öðlast heims-
frægð fyrir að pakka inn hlutum,
sem ekki virðast til slíks fallnir.
T.d. þinghúsið í Berlín, brú í París,
klettar við strönd Ástralíu og 11
eyjar við 'Flórída, svo aðeins fá
dæmi séu tekin. Og nú vinnur hann
að stóru verkefni, sem hann kennir
við regnhlífar. Ætlunin er að reisa
þúsundir sex metra hárra regnhlífa
í 18 km línu í Japan í bláum lit og
25 km línu í Bandaríkjunum.í gulum
lit! _
Á sýningunni á Kjarvalsstöðum
eru aðallega Ijósmyndir af þessum
listaverkum en þó fáum við að bera
augum mjög sérstætt og merkilegt
listaverk, sem trónir á miðju gólfi.
s
Guðmundur Guðmundarson
Þarna er staflað upp 16 olíutunn-
um, 12 ýmist ryðgaðar eða skítug-
ar, nema bæði sé og síðan 4 inn-
pakkaðar. Á maður að hlæja eða
gráta? Var einhver að fussa og
sveia?
Þetta sérstæða listaverk er að
sjálfsögðu virt á tugi eða hundruð
milljóna. Hvorki meira né minna!
Eg held það hljóti að hafa geysi-
lega þýðingu fyrir okkar listmenn-
ingu að fá svona gagnmerkar sýn-
ingar hingað, ekki síst fyrir þá 65Ö
nemendur, sem íslenska ríkið kostar
til listnáms um þessar mundir!
Sandkassaleikurinn á Kjarvals-
stöðum hlýtur að örva menn til
dáða í markleysu og öðrum hlið-
stæðum dyggðum, sem hámenntað-
ir listfræðingar einir eru færir um
að meta að verðleikum.
Það væri býsna fróðlegt að fá
uppgefinn kostnaðinn við sýningu
Christo, þar sem mjög fáir létu plata
sig inn á hana.
Það skal þó fúslega viðurkennt
að ég efast ekki um mjög sérstæðjL.
innpökkunarhæfileika Christo og
þætti gaman að fá að vita, hvort
hann gæti e.t.v. pakkað inn í eitt
skipti fyrir öll hámenningar-snobb-
inu í nútímalist á Kjai'valsstöðum?
Höfundur erframkvæmdastjóri í
Reykjavík.
Frá mótinu í Vatnaskógi Morgunblaðið/Árni Helgason
Mót KFUM og KFUK í Vatnaskóffi
Stykkishólmi.
HIÐ árlega mót KFUM og KFUK
og kristniboðssambandsins var
haldið í Vatnaskógi fyrir
skömmu. Yfirskrift mótsins:
Hinn sami er Drottinn allra.
Mótið hófst með samkomu föstu-
dagskvöldið 28. júní með hugleið-
ingu og sameiginlegri bæn. Laugar-
dag voru svo Ijórar samkomur:
Vitnisburðastund þar sem allir
fengu tækifæri til að segja frá
reynslu sinni. Á miðnætti á laugar-
dagskvöld var svo miðnætursam-
koma og var efni hennar: Hvernig
eiga þeir að heyra, án þess að ein-
hver prediki?
Einnig voru barnasamkomur á-
mótinu.
Á sunnudag var guðsþjónusta.
Hver getur predikað nema hann sé
sendur? Friðrik Hilmarsson talaði
én Ólafur Jóhannsson þjónaði fyrir
altari. Síðan var altarisganga sem
4 sáu um. Valdís Magnúsdóttir og
Kjartan Jónsson kristniboðar leiddu
kristniboðssamkomu og Jón Viðar
Guðlaugsson frá Akureyri flutti
predikun við mótslit. Árni
SJÁLFSTIEÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
■60
SAMHANI) UNCKA
SIALIS JÆDISMANNA
Hestaferð SUS
verður farin helgina 19.-21. júlí. Síðustu forvöð til að tilkynna þátt-
töku er föstudaginn 12. júli. Frekari upplýsingar á skrifstofu SUS.
Þátttaka tilkynnist í síma 91-682900.
AUGLYSINGAR
Reykjanes
Þórsmerkurferð
Farin verður Þórsmerkurferð á vegum Kjördæmasamtaka ungra sjálf-
stæðismanna á Reykjanesi. Farið verður helgina 12.-14. júlí. Gist
verður í tjöldum í Húsadal. Þeir sem vilja panta miða hafi samband
við Börk í simum 621080 og 41204 eða við Valdimar í simum 690312
og 53884.
Stjórnin.
IIFIMDAI-I Ult
Sumarferð Heimdallar
í Þórsmörk um helgina
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik, efnirtil sumar-
ferðar í Þórsmörk helgina 12.-14. júlí.
Farið verður með hópferðabíl frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, klukkan
19.00 á föstudag og komið til baka síðdegis á sunnudag.
Tjaldað verður í mynni Húsadals. Á laugardaginn verður boðið upp
á gönguferð um Mörkina fyrir þá sem vilja undir leiðsögn Jóns Stein-
þórssonar. Um kvöldið verður siðan grillveisla að hætti Heimdellinga.
Mjög hagstætt verð, m.a. er innifalið: Ferð báðar leiðir, tjaldstæöi,
morgunverður og grillveisla.
Miðapantanir í síma 682900 frá kl. 8.00-16.00.
Heimdallur.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3& 11798 19533
Notið góða veðrið til úti-
veru með F.í.
Helgarferðir 12.-14. júlí
1. Þórsmörk - Langidalur. Gisti-
aðstaðan í Skagfjörðsskála
Langadal er ein sú besta í
óbyggðum. Góð leið til að kynn-
ast Mörkinni er þátttaka í ferð-
um Ferðafélagsins. Gönguferðir
við allra hæfi. Við minnum enn-
fremur á miðvikudags- og
sunnudagsferðirnar. Tilvalið að
eyða nokkrum sumarleyfisdög-
um með dvöl milli ferða.
2. Landmannalaugar - Eldgjá.
Góð gisting í Ferðafélagsskálan-
um. Nú er búið að opna í Eldgj-
ána. Gögnuferðir.
3. Þórsmörk - Fimmvörðuháls
- Seljavallalaug. Gengið úr
Mörkinni um þessa vinsælu leið
að Skógum. Bað i Seljavallalaug
að lokinni göngu. Gist í Þórs-
mörk,
4. Eiríksjökull - Surtshellir.
Göngu á Éiriksjökul gleymir eng-
inn. Tjöld.
„Laugavegurinn" Nokkur sæti
laus i 6 daga ferð sem hefst
núna á föstudagskvöldið kl. 20.
Upplýs. og farm. á skrifst.,
Öldugötu 3, símar: 19533 og
11798. Pantið og takið miða í
helgarferðirnar fyrir hádegi á
föstudag.
„Fanna skautar faldi
háum“
Munið sunnudagsferðina 14. júlí
á Skjaldbreið i tilefni þess að 150
ár eru talin liðin frá því að Jónas
Hallgrímsson orti kvæðið „Fjallið
Skjaldbreiður". Brottför kl. 09 frá
BSÍ, austanmegin. Gerist félagar
og eignist nýju árbók Ferðafé-
lagsins: Fjalllendi Eyjafjarðar að
vestanverðu II.
Feröafélag íslands.
félag fyrir þig.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Túngötu 12, Keflavík
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
HÚTIVIST
3RÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Helgin 12.-14.7.
• Básar á Goðalandi
• Fimmvörðuháls - Básar
• Þjórsárdalur- Hekla
Tjaldað í Þjórsárdal. Gengið á
Heklu á laugardag, að Háafossi
og í Gjánna á sunnudag. Sund-
laug í nágrenninu. Fararstjórar.
Kristinn Kristjánsson og Eyrún
Ósk Jensdóttir.
Laugardagur 13. júlí
Kl. 06 Hekla
Gengið verður upp frá Fjallabak-
inu viö Rauðuskál og með
Heklugjánni og upp á topp. Þá
verður beygt vestur af fjallinu
og komið niður á Bjalla við Næf-
urholt. Gangan tekur um 8-9
klst. og er leiðin um 20 km.
Nokkuð bratt á fótinn en hvorki
klifur né klöngur. Sjáumst!
Útivist.
Almenn samkoma í kapellunni í
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Stefán Baldvinsson.
ÍKFUK
KFUM
KFUM og KRUk'
Bænastund í dag kl. 18.00 á
Holtavegi.
Skipholti 50b
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir innilega velkomnir.