Morgunblaðið - 02.08.1991, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
Hrossakjötsútflutningur:
Flugleiðir sjá um
flutning á kjötinu
GOÐI HF. hefur gert samkomulag við Flugleiðir um að flytja
út tíu tonn af hrossakjöti 11. ágúst næst komandi. Flugfax sá
áður um flutningana til Japans en félagið hefur nú fengið
greiðslustöðvun.
Margrét Hauksdóttir, deildar-
stjóri upplýsingardeildar Flugleiða,
segir að gert hafi verið bindandi
samkomulag við Goða hf. um flutn-
ing á hrossakjöti til Japans 11.
ágúst. Ekki hefur verið gengið frá
samningi um áframhaldandi flutn-
ing á hrossakjöti en viðræður eru
í gangi og segir Margrét að þá sé
verið að ræða um helmingi minni
sendingar eða fimm tonn í einu.
Félag hrossabænda stendur að
hrossakjötsútflutningnum í sam-
vinnu við Goða hf. Halldór Gunn-
arsson er formaður markaðsnefnd-
ar Félags hrossabænda og segir
hann þá ánægða með'þetta sam-
komulag enda flytji Flugleiðir fyrir
þá á sama verði og Flugfax hf.
gerði áður. Halldór segir þó að
flutningstíminn sé nú lengri þar
sem kjötið er fyrst flutt til Evrópu
áður en það fer til Japan og það
eigi eftir að koma í Ijós hvernið
kjötið þoli það.
Kjötið verður flutt með sérstöku
fraktflugi til Ostend í Danmörku
en þaðan fer það með kælibíl til
Parísar þar sem Japan Airlines tek-
ur við því og flytur það til Japans.
Flugleiðir hafa einnig flutt út
hrossakjöt til Japans fyrir Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna en sá flutn-
ingur fer í gegnum London. Um
er að ræða mun smærri sendingar
en þær sem Goði hf. og Félag
hrossabænda standa fyrir og fara
þær jafnvel í fraktrými farþega-
véla.
Að sögn Margrétar hafa Flug-
leiðir áætlað að vera með um
hundrað sérstök fraktflug á þessu
ári.
Morgunblaðið/KGA
Franskur kafbátur í heimsókn
Franskur kafbátur, Beveziers, lagðist að biyggju í fari héðan 5. ágúst. Beveziers er rúmlega 1.700 lesta
Reykjavíkurhöfn í gærmorgun. Aformað er að hann báturog68metralangur.íáhöfnhanseru66manns.
VEÐUR
Norrænuferöir vinsælar:
VEÐURHORFUR I DAG, 2. AGUST.
YFIRLIT: Milli íslands og Noregs er 1.025 mb hæð en um 1.000
km uðvestur af Reykjanesi er 995 mb lægð, sem þokast austur.
SPÁ: Hæg austlæg eða breytileg átt. Þokuloft og súldarvottur við
norður- og austurströndina, skúrir sunnanlands en víða bjart veður
vestanlands og í innsveitum á Norðurlandi. Áfram hlýtt, einkum inn
til landsins.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg austanátt. Smáskúrir eða súld á
Austur- og Suðausturlandi en bjart veður á Norður- og Vestur-
landi. Híti 10-17 stig, hlýjast vestanlands og í innsveitum á Norður-
landi.
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Hæg austan eða breyti-
lega átt og skúrir víða um land. Hitafar svipað áfram.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-JQ“ Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V E'
~ Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
[~<[ Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIH
kl. 12:00 í gær að ísl. tíim
hlti veður
Akureyri 20 léttskýjað
Reykjavík 16 mistur
Bergen 25 léttskýjað
Helsinki 25 iéttskýjað
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Narssarssuaq 14 hálfskýjað
Nuuk 9 rign.á síð. klst.
Ósló 26 skýjað
Stokkhólmur 26 skýjað
Pórshöfn 13 súld
Algarve vantar
Amsterdam 24 skýjað
Barcelona vantar
Berlín 23 skúr
Chicago vantar
Feneyjar 24 þokumóða
Frankfurt 20 rign.ásíð. klst.
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 24 skýjað
London 23 skýjað
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 22 skýjað
Madríd 29 léttskýjað
Maiaga 26 heiðskírt
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 21 skúrásíð.klst.
NewYork vantar
Orlando 26 alskýjað
París 19 skýjað
Madeira 23 hálfskýjað
Róm 25 skýjað
Vín 20 skúr á síð. klst.
Washington 23 mistur
Winnipeg 13 heiðskirt
Meira um fjölskyldur en
minna um bakpokafólk
„REKSTUR Norrænu hefur gengið skinandi í sumar, við nálgumst
aftur toppinn sem náðist 1987 og 88,“ segir Jónas Hallgrímsson um-
boðsmaður ferjunnar á Seyðisfirði. Hann segir júní hafa verið betri
nú en fyrr og farþegar yfir sumarið verði liklega um 14.000. Áber-
andi sé hve miklu minna sjáist nú
skyldum, oft með húsbíla.
Jónas segir að eftir tvö góð sumur
í siglingum Norrænu hafí komið tvö
slök, 1989 og 90. En nú séf.allt í
uppsveiflu. Þeir ferðalangar sem
sigli hingað upp og utan sumarmán-
uðina þrjá hafí með sér milli 1.800
og 2.000 farartæki. „Farþega-
straumur hefur verið jafnari þetta
sumarið en undanfarin, júnimánuður
var mun betri nú en fyrr. Ég þakka
það helst auknum auglýsingum er-
Björgólfur Guðmundsson.
Björgólfur
Guðmundsson
framkvæmda-
sljóri Gosan
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson,
fyrrum forsljóri Hafskips, hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Gosdrykkjaverksmiðjunnar Sani-
tas - Gosan, sem framleiðir m.a.
Pepsi, 7Up og fleiri gosdrykki og
dreifir Löwenbrau bjór. Hann tók
til starfa í gær.
Að sögn Wemers Rasmussonar
stjórnarformanns, hefur enginn eig-
inlegur framkvæmdastjóri verið
starfandi við fyrirtækið frá því að
Pharmaco keypti rekstur þess af
Sanitas en Sindri Sindrason, fram-
kvæmdastjóri Pharmaco og Ottó B.
Ólafsson, framkvæmdastjóri Delta,
hafa haft yfírumsjón með rekstri.
af bakpokafólki en meira af fjöl-
lendis og svo lægra verði ferða í
sumarbyijun."
Af útlendingum sem sigla með
Norrænu eru Þjóðveijar flestir, álíka
margir og íslenskir farþegar. Jónas
segir líka mikið um að Frakkar og
fólk frá Norðurlöndum taki feijuna,
því hafi raunar fjölgað, sérstaklega
Svíum og Dönum. Hann segir ein-
hlítar skýringar á þessum breyting-
um illfundnar, en telur gott gengi í
sumar byggjast á kynningarstarfí
erlendis, ekki síður en blíðviðri hér
heima.
Ólögleg laxveiði úr sjó;
Tugir tonna
veiddir í net
í sumar
„ÓLÖGLEG laxveiði úr sjó
skiptir tugum tonna í sumar,“
segir Gylfi Guðjónsson, full-
trúi Landssambands fiskeldis
og hafbeitarstöðva í sam-
starfsnefnd gegn ólöglegum
fiskveiðum. „Þetta er neta-
veiði að langstærstum hluta.
Hún skerðir mjög möguleika
á laxveiði í smærri ám og veld-
ur alvarlegum vanda hjá litl-
um hafbeitarstöðvum. Aðal-
atriðið er að fólk átti sig á því
tjóni sem veiðar þess valda.“
Gylfi segir veiðarnar með
ýmsum hætti, bæði ferðafólk og
heimamenn leggi fyrir lax.
„Menn veiða mikið í ýsunet og
fara á hraðbátum í vitjanir eða
leggja net í ijörur og taka upp
á flóðum. Lax hefur verið lagður
inn í frystihús sem þorskur,
menn beita ýmsum brögðum."
Gylfí nefnir net í Steingríms-
fírði og við Snæfellsnes sem ný-
leg dæmi um ólöglegar veiðar.
Hann segist vita til að heldur
hafi dregið úr ólögmætum veið-
um við ísafjarðardjúp. „Þar virð-
ist fólk vera að átta sig á þeim
skaða sem veiðarnar valda ein-
staklingum og fyrirtækjum.
Hugarfarsbreyting fólks er ein-
mitt besta leiðin úr þessum
vanda, en auðvitað er aukin lög-
gæsla nauðsynleg líka.“