Morgunblaðið - 02.08.1991, Qupperneq 21
Litháen
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
21
***1/2 US. Ent. - ***AI. Mbl.
***P. Á. D.V. „Prýðis afþreying".
Hörku aðsókn - 10.000 manns
á tveimur vikum.
Frábær leikur, mikil spenna,
gott grín.
Látió þessa ekki sleppa.
Sýnd í A-sal kl. 5 - 7 - 9 og 11.10. Bönnuð börnum innan 12 ára.
Yfirvöld auka eftirlit
á landamærastöðvum
Vilníus. Reuter.
YFIRVÖLD í Litháen efldu öryggisgæslu á landamærastöðvum sínum
í gær og rannsóknarlögreglumenn leituðu að vísbendingum sem
gætu varpað ljósi á morðin á sjö litháískum landamæravörðum á
miðvikudag. Aðstoðarforsætisráðherra Litháens, Zigmas Vaisvila,
sagði á lokuðum þingfundi að árásin, sem gerð var um kl. 5 á mið-
vikudagsmorgun, hefði verið vandlega undirbúin og gerð til að ögra.
„Eftirlit hefur verið hert með
þeim sem koma inn á litháískt land-
svæði og nú leitum við leiða til að
auka öryggi tollgæslu- og landa-
mæravarða," sagi Vaisvila í sam-
tali við sovésku fréttastofuna Tass.
Vytautas Landsbergis, forseti
Litháens, ávarpaði þingfundinn og
krafðist þess að Sovétstjórnin kall-
aði allar sovéskar öryggissveitir
heim frá Litháen. Hann benti á að
tengsl gætu verið milli þessara
morða og hryðjuverkanna sem
OMON- eða svarthúfusveitirnar
svokölluðu, sem eru vopnaðar ör-
yggissveitir sovéska innanríkis-
ráðuneytisins, hafa framið á landa-
mærastöðvum í Litháen og Lett-
landi undanfarna mánuði. Ekkert
mannfall hefur orðið í þeim árásum
en sumum varðanna hefur verið
misþyrmt. Yfirmenn OMON í Lithá-
en hafa vísað á bug ásökunum um
að hafa átt nokkurn þátt í morðun-
um á miðvikudag.
Morgundagurinn hefur verið
lýstur sorgardagur í Litháen og
mun útför landamæravarðanna
fara fram á vegum yfirvalda.
Imelda Marcos:
Kæra lögð fram
vegna skattsvika
Manila. Reuter.
STJÓRNVÖLD á Filippseyjum undirbúa nú málsókn á hendur Imeldu
Marcos, ekkju einræðisherrans Ferdinands Marcos, vegna skatt-
svika. Lagði Francisco Chavez, rikisendurskoðandi, Filippseyja, fram
fyrstu kæruna í gær. Sagði hann fjölmargar aðrar eiga eftir að
fylgja í kjölfarið. Kæran er í 38 átta liðum og ef Imelda verður
sakfelld vegna þeirra alla á hún yfir höfði sér allt að 55 ára fangelsi.
Ferdinand og Imelda flúðu frá
Filippseyjum árið 1986 eftir að
Ferdinand hafði verið steypt af stóli
og stjórn Corazon Aquino tekið við
völdum. Ferdinand lést á Hawaii
árið 1989 en Imelda hefur hafst við
í Bandaríkjunum síðan. Hefur henni
fram að þessu verið meinað að snúa
aftur til heimalands síns en í fyrra-
dag lýsti Corazon Aquino því yfir
að henni væri fijálst að koma til
eyjanna.
Imeldu var gert að sækja vega-
bréfsáritun hjá ræðismanni Filipps-
eyja í New York í gær og kom þá
í ljós að áritunin gilti einungis í
einn mánuð og aðeins aðra leiðina,
þ.e. til Filippseyja. Fyrr um daginn
hafði hún lýst því yfir að hún hlakk-
aði til að fara til Filippseyja en eft-
ir heimsókn sína á ræðismanns-
skrifstofuna sagði Imelda að ein-
hver bið gæti orðið á för hennar.
Ætlaði hún að ráðfæra sig við lög-
fræðinga sína um hvað best væri
að gera í stöðunni. James Linn, lög-
fræðingur Marcos, sagðist mæla
gegn því að hún færi til Filippseyja
á þessum forsendum.
Grænland:
Hruníferða-
þjónustunni
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ er ekki aðeins, að þorskur-
inn hafi yfirgefið Grænlend-
inga, heldur hafa ferðamenn-
irnir gert það líka. I allan vetur
var rekinn í Danmörku áróður
fyrir svokölluðum „ævintýra-
ferðum" og stefnt að því að
selja 3.000 miða en útkoman var
930. Er þetta dæmigert fyrir
hrunið í grænlensku ferðaþjón-
ustunni.
Ástandið er einna verst í Nuuk,
höfuðstaðnum, en nokkuð skárra
í Suður-Grænlandi og við Diskó-
flóa. Sem dæmi má nefna, að í
sumar hefur herbergjanýting hót-
elsamsteypunnar „Hans Egede“ V
Nuuk aðeins verið 35% og ekki
að furða þótt fyrirtækið eigi við
fjárhagsörðugleika að stríða. Hef-
ur hrunið í ferðaþjónustunni bitnað
á öllu samfélaginu en í fyrra sagði
landstjórnarmaðurinn Kaj Egede,
að ferðaþjónusta ætti að vera höf-
uðatvinnuvegur Grænlendinga ár-
ið 2000. Þorskinum væri lítt
treystandi og svo væri komið í
fyrsta sinn í heila öld, að enginn
námagröftur væri í Grænlandi.
MIGHAEL J.
nx
AS
HOLLYWOOD’S
MOST SPOILED
MOVIESTAR.
Góða verslunarmannahelgi
LAUGARAS= =
LEIKARALÖGGAIU
Metsölubloð á hverjum degi!
Danmörk:
Tilfellum heilaskaða fækkar verulega
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
TIÐNI heilaskaða hjá verka-
mönnum sem unnið hafa með
lífræn leysiefni hefur lækkað um
helming á aðeins fimm árum í
Danmörku. Árangur þeirra rót-
tæku aðgerða sem gripið var til
í því skyni að minnka notkun
efnanna er nú farinn að skila sér
í lægri tíðni heilaskaða. Enn er
þó talsvert um notkun þeirra í
málmiðnaði.
Hámarki náði fjöldi heilaskaðatil-
fella árið 1986 þegar 1.605 tilfelli
voru tilkynnt til vinnueftirlitsins.
Tilfellin voru orðin meira en helm-
ingi færri á síðasta ári eða 790.
Heilaskaði var þekktur undir
nafninu „málaraveikin“ en nú eru
það aðallega málmiðnaðarmenn
sem helst er hætt við því að hljóta
heilaskaða vegna notkunar Ieysi-
efna.
Leikara-
löggan
Hussein dyravörður
Tveir hollenskir verslunareigendur rembast hér við að koma líkneski
af Saddam Hussein Iraksforseta upp fyrir utan verslun þeirra í
Amsterdam sem selur notaðar afgangsvörur frá bandaríska hernum.
Hefur „Husseiii“ gætt dyra verslunarinnar og laðað að viðskiptavini
allt frá því að Persaflóastríðið hófst fyrr á árinu. í dag er eitt ár
Iiðið síðan Irakar gerðu innrás inn í Kúveit.
Japan;
Tívolíi
frestað
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíösdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EINS og áður hefur verið skýrt
frá í blaðinu, er uppi samstarf
milli fyrirtækisins, sem rekur
Tívolí í Kaupmannahöfn, og jap-
ansks fyrirtækis um byggingu
skemmtigarðs í Japan í líkingu við
hið eina sanna Tívolí. Áætlunin
var að garðurinn yrði opnaður
1993. Danska fyrirtækið selur jap-
anska fyrirtækinu hugmyndina að
garðinum, sér um hönnun hans
og átti síðan að fá hluta af veltu
garðsins. Nú er hins vegar komið
babb í bátinn í Japan og óvíst um
framkvæmdir.
Ætlunin var að japanska fyrirtæk-
ið byggði garðinn í borginni Okay-
ama á lóð, sem borgaryfirvöld ætluðu
að kaupa af þessu tilefni og leigja
fýrirtækinu. Síðan kom upp fjár-
málahneyksli í japanska fyrirtækinu
og danska Tívolí tók upp samstarf
við annað fyrirtæki. Málið varð síðan
kosningamál í borgarstjómarkosn-
ingum og fyrirtækið fékk ekki lóð.
Ætlunin er að leita annarrar lóðar,
líklega einhvers staðar í nágrenni
Okayama og hrinda áætluninni í
framkvæmd þar. Það verður þó ekki
fyrr en 1995, sem hægt er að opna
þann garð og hugsanlega síðar, ef
það dregst að finna garðinum stað.
Forstöðumenn Tívolí í Kaup-
mannahöfn segja að þeir bíði ekki
tjón, því samningurinn við japanska
fyrirtækið standi áfram.
NEW YORK’S
ANGRIEST
COP