Morgunblaðið - 02.08.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
29
Stefán Kristjáns-
son - Minning
Fæddur 4. ágúst 1949
Dáinn 26. júlí 1991
Að kveldi 26. júlí var hringt í
mig og mér tilkynnt sú sorgarfrétt
að Stefán Kristjánsson hefði látist
af slysförum. Manni verður orðfátt
og orð verða fátækleg þegar góður
drengur er tekinn svona snöggt frá
og kvaddur hinstu kveðju. Stebbi
minn, maður trúir ekki en verður
að trúa. Ekkert getur lýst sorginni
og hinum mikla söknuði sem þá
hellist yfir mann. Þegar við erum
á besta aldri er dauðinn svo fjarlæg-
ur okkur og við skiljum ekki til-
ganginn þegar kallið kemur svona
snögglega. Það er svo fjarlægt að
hugsa til þess þegar leiðir skiljast
að kveldi að eiga ekki eftir að hitt-
at aftur.
En hvað er lífið? Maður veit aldrei
hvenær kallið kemur. Ekki grunaði
mig að það yrði í síðasta sinn sem
við ættum eftir að hittast í afmælis-
hófi frænda okkar og var þá glatt
á hjalla hjá okkur Stebba eins og
alltaf þegar við hittumst. Mér þótti
vænt um Stebba og ekki fannst
bónbetri maður ef aðstoðar var
þörf því alltaf vildi hann öllum
hjálpa, þegar til hans var leitað.
Eg læt því lokið þessum fátæklegu
kveðjuorðum til elsku frænda míns
sem kvaddur var alltof fljótt en
eftir lifir minning um góðan og
heiðarlegan dreng. Að lokum bið
ég góðan guð að styðja og styrkja
Valgerði og börnin á þessum erfiðu
tímamótum því þeirra er harmurinn
mestur.
Eg fel í fosjá þína
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll bömin þin, svo blundi rótt.
(M.Joch.)
Sigríður Þyrí Pétursdóttir
í dag verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju Stefán Kristjáns-
son bóndi og verkamaður í Yzta-
Koti í V-Landeyjum. Hann lést í
vinnuslysi við steypustöðina á Hvol-
svelli föstudaginn 26. júlí síðastlið-
inn. Þessa frænda míns og vinar
ætla ég nú að minnast með nokkr-
um orðum.
Stefán Kristjánsson fæddist f
Yzta-Koti þann 4. ágúst 1949 sonur
Margrétar Stefánsdóttur (f. 1918)
þar og Kristján Péturssonar (f.
1921) frá Stóru-Hildisey í A-Land-
eyjum, kunnum byggingarmeistara
í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar voru Stefán
Jónsson (1875-1923) frá Butru í
A-Landeyjum bóndi í Yzta-Koti frá
1917 til dauðadags og Sigurbjörg
Gísladóttir (1887-1973) húsfreyja í
Yzta-Koti.
Stefán Jónsson var fæddur í A-
Landeyjum, sonur hjónanna í
Butru, Jóns Þorleifssonar (1845-
1906) og Margrétar Hjaltadóttur
úr V-Skaftafellssýslu.
Sigurbjörg Gísladóttir var fædd
á Seljavöllum undir A-Eyjafjöllum,
dóttir hjónanna þar, Gísla Guð-
mundssonar (1852-1890) frá Selja-
völlum og Margrétar Sigurðardótt-
ur(1857-1949) frá Hvammi undir
Eyjafjöllum. Gísli fórst í lendingu
við Austurfjallssand vorið 1890.
Margrét bjó nokkur ár eftir það
áfram á Seljavöllum með seinni
manni sínum, Hjörleifi Jónssyni
(1872-1931) úr Eyvindarhólasókn
en frá 1901 í Stóru-Hildisey.
Sigurbjörg bjó ekkja í Yzta-Koti
í hálfa öld með börnum sínum, kunn
að dugnaði og mannkærleika.
Heimili hennar var rómað fyrir
hreinlæti og myndarskap og þaðan
fór enginn svangur. Lengi var þar
einnig til heimilis mágkona Sigur-
bjargar, Jóhanna Sigríður Jónsdótt-
ir (1878-1967) frá Butru, lausa-
kona, öllum samferðarmönnum sín-
um ógleymanleg fýrir ósérhlílfni og
mikið vinnuþrek.
Börn Sigurbjargar og Stefáns í
Yzta-Koti auk Margrétar eru Gísli
Júlíus (f. 1915) bóndi í Yzta-Koti
og Marta (f. 1921), nú sjúklingar
á Ljósheimum á Selfossi.
Stefán Kristjánsson ólst fyrstu
tíu ár ævi sinnar upp með móður
sinni heima á Yzta-Koti en frá 1960
í Stóru-Hildisey. Þangað flutti hann
ásamt móður sinni þegar hún gift-
ist Guðmundi Péturssyni (1915-
1982) bónda þar.
Guðmundur Pétursson og Kristj-
án Pétursson sem áður var nefndur
voru bræður, synir Péturs Guð-
mundssonar (1893-1959) og Soffíu
Guðmundsdóttur (1892-1976). Pét-
ur og Soffía voru lengi búandi í
A-Landeyjum, fýrst í Selhjáleigu
en síðan lengi í Stóru-Hildisey. Þau
voru bæði ættuð úr A-Landeyjum.
Hálfbróðir Stefáns er Pétur Guð-
mundsson (f. 1960) bóndi í Stóru
Hildisey.
Stefán varð snemma þroskaður,
stór og sterkur, mikil verkmaður
hvort sem var við sveitarstörf eða
á vetrarvertíð í Þorlákshöfn. Skap-
lyndi Stefáns var ljúft og jafnt.
Hann var ávarpsgóður og mikill
vinur vina sinna.
Á yngri árum keppti hann í frjáls-
um íþróttum fyrir Ungmennafélag-
ið Dagsbrún og Héraðssambandið
Skarphéðinn. Sérstakt dálæti hafði
hann á spretthlaupum. Mörgum
jafnöldrum hans er minnisstætt
hversum góðum tíma þessi stóri og
þungi maður náði í 100 metra
hlaupi að því virtist fyrirhafnar-
laust. Stefán náði að hlaupa 100
metra á 11,3 sek á íþróttamóti við
Gunnarshóla í A-Landeyjum þann
13. ágúst árið 1967. Það var þá
fjórði besti tími sem félagsmaður í
Héraðssambandinu Skarphéðni
hafði náð í keppni.
Eiginkona Stefáns var Sigrún
Adolfsdóttir (f. 1954) frá Önundar-
horni undir A-Eyjafjöllum. Þau
bjggu fyrst í Ytri-Njarðvík en síðan
fáein ár á Önundarhorni í sambýli
við foreldra Sigrúnar. Börn þeirra
eru olafur Guðni (f. 1973) og Sigur-
björg (1975). Stefán og Sigrún slitu
samvistir.
Sambýliskona Stefáns síðustu
árin var Valgerður Sigurjónsdóttir
(f. 1955) frá Galtalæk í Landssveit.
Valgerður var ekkja með tvö börn
þegar hún og Stefán tóku saman.
Þau heita Guðmundur Páll (f. 1976)
og Sigríður Anný (f. 1978). Börn
Stefáns og Valgerður heita Kristján
Gísli (f. 1984) og Grétar (f. 1990).
Stefán og Valgerður bjuggu fyrst
á Hellu en síðan í félagsbúi með
Pétri bróður hans í Stóru-Hildisey
og loks í Yzta-Koti frá 1987. Ásamt
búskap þar með kindur, hross og
nautgripi stundaði Stefán vinnu
utan heimilis. Fyrst við afleysngar
á búum í A-Landeyjum en síðan
við steypustöðina á Hvolsvelli.
Við frændurnir vorum búnir að
þekkjast frá blautu barnsbeini.
Margs er að minnast. Við lékum
okkur saman smádrengir heima í
Yzta-Koti, tókum ófermdir guttar
þátt í hátíðarhöldunum í Reykjavík
í ágúst 1961 þegar haldið var upp
á 175 ára afmæli kaupstaðarrétt-
indanna og ókum ungir menn á
kraftmiklum bílum um malarvegi
Suðurlandsundirlendisins. Skipti þá
ekki máli hvort þurfti að aka úr
Landeyjum vestur í Þjórsárver í
Villingaholtshreppi eða aðeins aust-
ur undir Eyjafjöll til þess að kom-
ast á sveitaball.
Við fráfall Stefáns er mikill
harmur kveðinn að fjölskyldu hans.
Vinur og frændur sakna hans sárt.
Ég sendi sambýliskonu og börnum
hans öllum innilegar samúðarkveðj-
ur og sömuleiðis öldruðum foreldr-
um og öðrum vandamönnum.
Þorgils Jónasson.
„Dáinn, horfinn." Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfír.
En ég veit að látinn lifír.
Það er huggun harmi gegn.
Hvað væri annars guðleg gjöf,
geimur heims og lífíð þjóða?
Hvað væri sigurinn sonarins góða?
Illur draumur, opin gröf.
(Jónas Hallgrímsson.)
í dag kveðjum við í hinsta sinn
vin og vinnufélaga, Stefán Krist-
jánsson. Það er ætíð sárt að sjá á
bak góðum vini, og traustum fé-
laga. Þungbærast er þó þegar vinur
á besta aldri er fyrirvaralaust
kvaddur héðan. Það tekur sinn tíma
að átta sig á slíkum forlögum og
sætta sig við þau.
Stefán fæddist í Ysta-Koti í Vest-
ur-Landeyjum, 4. ágúst 1949. For-
eldrar hans eru Margrét Stefáns-
dóttir og Kristján Pétursson.
Okkur langar með þessum fá-
tæklegu línum að rifja upp kynni
okkar af Stefáni, sem voru á þann
veg að þar bar aldrei skugga á.
Hann var búinn að vera starfs-
maður steypustöðvarinnar á Hvols-
velli nær samfellt frá hausti 1988,
og áður alltaf af og til, bæði hjá
fyrrverandi og núverandi eigendum
steypustöðvarinnar. Hann hafði því
lengstan starfsaldur þeirra sem þar
starfa nú. Það var sama hvað störf
hann gekk í, hvort það var akstur,
viðgerðir eða vinna við blöndun í
stöð. Öll þessi störf leysti hann af
hendi af mikilli samviskusemi og
trúmennsku sem han átti í svo rík-
um mæli. Hans framkoma í starfi
sem leik einkenndist af hógværð
•og glettni og að finna spaugilegu
hliðarnar á hlutunum. Ekki síst ef
eitthvað blés á móti. Hann var ein-
staklega hjálpsamur og fljótur að
rétta hjálparhönd ef á þurfti að
halda. Það þurfti sjaldnast að kalla
eftir hjálp ef Stefán var einhvers
staðar nálægt. Hann var alltaf kom-
inn, svo vel var hann vakandi í starfi
og meðvitandi hvers eðlis viðfangs-
efnið var hveiju sinni.
Hann gekk ávallt fumlaust til
verka og var mjög gætinn. Því
finnst okkur ótrúlegt að einmitt
hann skyldi verða fyrir þessu hörm-
ulega slysi. En enginn má sköpum
renna og þetta sýnir okkur að eng-
inn er óhultur í henni veröld, þar
sem hættur geta leynst á hverju
strái.
Fátækleg orð duga skammt þeg-
ar sorgin kveður dyra, en þau eru
samt það fyrsta sem hægt er að
grípa til. Minningin um hann getur
aldrei orðið að kulnuðum glóðum,
heldur Ijósbera, sem heldur hátt á
lofti kyndli minninganna. Leiðir
skilja að sinni. Móðir jörð hefur
búið honum hinstu hvílu í skauti
sínu.
Við sem þekktum Stefán syrgjum
nú góðan dreng, en mest er þó sorg
sambýliskonu hans, barna og ann-
arra ættingja. Megi Guð gefa ykkur
styrk til að horfa fram á við og
minnast fortíðarinnar með gleði
yfir þeim árum sem þið áttu með
Stefán.
Vinnufélagar
Heyylirbreiðslur
Eins og undanfarin ár höfum við á
boðstólnum heyyfirbreiðslur, sem ekki fúna,
í mörgun stærðum.
Sendum í póstkröfu.
Baldur sf.,
Stokkseyri, sími 98-31310.
Gunnar Ásgeirs-
son - Kveðja
Góður vinur okkar og nágranni-
Gunnar Ásgeirsson er látinn.
Það var alltaf mikill ferskleiki
og kraftur sem fylgdi Gunnari þeg-
ar hann kom í heimsókn og viss
vorboði sem fylgdi þeim hjónum
þegar þau komu að undirbúa hvíta-
sunnuhelgina í sumarbústaðnum
sínum hér í Þingvallasveit. Þau
töluðu oft um að þeim finndist þau
vera komin, þegar allt var tilbúið
fyrir sumardvölina og þau sest að
í sveitinni. Þetta skildum við vel sem
búum í þessari fallegu sveit. Hérna
voru Gunnar og Valgerður búin að
útbúa sér einstakan unaðsreit, fal-
legt land við Þingvallavatn, ræktað
miklum og fallegum skógi sem þau
gróðursettu í gegnum árin svo og
sérlega hlýlegan og fallegan sumar-
bústað og sundlaug.
Það var þeim mikið hjartans mál
að deila þessu með öðrum og að
sem flestir fengju að njóta þess
með þeim. Það var alltaf mikil eftir-
vænting hjá börnum um hvenær
Gunnar opnaði laugina eins og þau
orðuðu það og ekki stóð á að hann
léti vita þegar allt var tilbúið til
notkunar, bæði fýrir bömin og full-
orðna fólkið. Alltaf var boðið uppá
eitthvað að afloknum sundferðum.
Það var einstaklega notalegt að
fara í laugina eftir langan vinnudag
og vera svo boðinn inn í bústað til
þeirra hjóna í hressingu og spjall,
það var góð afslöppun og ánægju-
stund.
Það var fátt sem kom Gunnari
ekki við, hann var hugmaður mikill
og fylgdist vel með öllu sem var
að gerast. Alltaf var hann boðinn
og búinn til að aðstoða, sama hvað
var, það var svo skemmtilegt þegar
hann var kominn í sumardvölina,
birtist í dyrunum og sagði að nú
væri sendillinn kominn í sveitina,
því alltaf athugaði hann hvort ekki
vantaði eitthvað þegar hann skrapp
í bæinn eða hringdi áður en hann
kom austur, nú og oft kom sér vel
að fá lánuð verkfærin hans og ótal
margt annað ótalið.
Gunnar hafði mjög gaman af
söng og tónlist og fyrir kom að
hann tók sér gítar í fang, sem til
var á heimilinu, og spilaði og söng,
öllum til mikillar ánægju.
Þær em margar og góðar minn-
ingarnar sem við eigum eftir ára-
tuga kynni og erum þakklát fyrir.
Við vottum Valgerði og öllum í
fjölskyldu Gunnars okkar dýpstu
samúð.
Fjölskyldan Heiðarbæ 11.
HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK.
Pöntunarlistinn kostar250kr. + póstburöargjald
PÖNTUNARLÍNA
fiCQAAfl
BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFIRÐI