Morgunblaðið - 02.08.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
fclk f
fréttum
Steingrímur
St. Th. Sig-
urðsson.
MYNDLIST
Farinn að keppa við sjálfan sig
að er orðin hefð að Steingrímur
St. Th. Sigurðsson listmálari
sé með sýningu á verkum sínum í
Eden í Hveragerði um verslunar-
mannahelgina og verður þessi helgi
engin undantekning. Nú í vikunni
opnaði Steingrímur 71. sýningu
sína og er hún sú 15. sem hann
heldur í Eden.
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins sagði Steingrímur að hon-
um þætti mun ánægjulegra að sýna
í Eden en í viðurkenndum listhús-
um. í Eden væri stöðugur straumur
fólks sem gaman væri að ræða við
yfir kaffibolla eða ís eftir að það
hefði séð sýninguna. Mörgum
ferðalöngum þætti iíka þægilegt að
koma við í Hveragerði, dusta af sér
ferðarykið og njóta listarinnar áður
en haldið væri áfram.
Sýningin tileinkuð Perlunni
Steingrímur er nýkominn frá
París en margar myndanna sem eru
á sýningunni málaði hann þar.
Steingrímur sagði að hann vildi til-
einka sýninguna Perlunni á
Öskjuhlíð. „Þegar ég kom til íslands
frá París var þýskur ferðamaður
samferða mér frá Keflavíkurflug-
velli. Þegar til Reykjavíkur var
komið, blasti Perlan við og lét þá
Þjóðvetjinn svo um mælt að nú
hefðu íslendingar eignast sinn Eif-
fel-turn eða Empire State bygg-
ingu. Ég fór seinna til að skoða
Perluna að innan og þá heillaðist
ég af byggingunni sem minnir mig
nú reyndar mest á Pompidou-safnið
í París,“ sagði Steingrímur.
Að gera enn betur
Steingrímur sagði að hann stæði
á tímamótum á ferli sínum sem list-
málari. „Ég hef málað svo mikið
og sýnt svo oft að ég er kominn í
mikla samkeppni við sjálfan mig.
Það er mér mikið metnaðarmál að
gera alltaf betur og betur og öll
fyrri verk mín veita mér strangt
aðhald. Á sýningunni í Eden eru
42 málverk og ég valdi þau með
það í huga að þau gæfu sem besta
mynd af því sem ég er að fást við
núna,“ sagði Steingrímur að lokum.
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og geröir
Vesturgðtu 16 - Símar 14680-13280
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
UTSALA