Morgunblaðið - 02.08.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
opcíi-
«ð Hlíðarvelli, Morfelhbœ
gunnudaginn 4. ágúst 1991
Glœsileg verðlaun
Skráning í síma 91-667415
VERKSMIÐJAN VIFILFELL HF.
Paraghurt getur komið í veg fyrír
meltmgaitmflanir í fninu.
Einn munnbiti getur hæglega eyðilagt gott sumar-
frí. Oft þarf ekki meira til að koma af stað
meltingartruflunum.
Paraghurt hjálpar meltingarfærunum að
venjast framandi gerlum og getur þannig
komið í veg fyrir meltingartruflanir.
2 töflur þrisvar á dag er nóg til
að halda maganum í jafnvægi.
Paraghurt fæst í lausasölu
í apótekum.
Taktu Paraghurt með í fríið.
Góða meltingu - Góða ferð!
Einkaumboö á íslandi:
Pharmaco
HÖRGATÚNI 2,
GARÐABÆ
SÍMI 44811
í'-i -ní- . .« , ...
■ • -ú'. ; - .. ' . .
VERSLUNARMANNAHELGIN
Atak gegn nauðgunum
á útiskemmtunum
Sverrir
Það er Ijóst að nei verður ekki meyjar já um verslunarmannahelgina.
Stígamót eru fræðslu- og ráðgjaf-
armiðstöð fyrir þá sem hafa
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Miðstöðinni var komið á fót fyrir
einu og hálfu ári og að henni standa
sérfræðingar og áhugafólk um kyn-
ferðisafbrot ásamt þolendum. Þessir
aðilar hafa sérstakar áhyggjur af
hinum mikla fjölda unglinga sem
munu sækja útiskemmtanir um
verslunarmannahelgina og hvetja
fólk til þess að vera á varðbergi
gagnvart nauðgurum.
Ingibjörg Guðmundsdóttir starfs-
kona Stígamóta, sagði í samtali við
biaðamann Morgunblaðsins að það
væri óhugnanlegt að heyra hve
margar nauðganir ættu sér stað um
verslunarmannahelgina og því hefði
verið ákveðið að hrinda af stað sér-
stöku fræðsluátaki gegn þeim. „Við
prentuðum til dæmis sérstakt vegg-
spjald með áletruninni: Nei þýðir
nei - Nauðgun er glæpur.Með
þessu viljum við koma því til skila
að neiti stúlka kynmökum er það
ekkert annað en nauðgun að beita
hana ofbeldi til þess að koma þeim
fram. Einnig er það nauðgun ef
höfð eru kynmök við stúlku sem er
í áfengisdái. Við teljum nauðsynlegt
að hamra á því að nauðgun er alvar-
legur glæpur. Það kemur alltof oft
fyrir að nauðganir eru ekki kærðar.
Til dæmis getur stúlka haldið að
ekki hafi verið um nauðgun að ræða
vegna þess að hún hafi ekki getað
varið sig sökum ölvunar. Einnig
getur verið að stúlkur þori ekki að
kæra vegna þess að þær séu hrædd-
ar við allt umstang sem fylgir mála-
rekstri og það orð sem þær geta
fengið á sig,“ segir Ingibjörg.
Að sögn Ingibjargar má oftast
skipta nauðgunum sem eiga sér stað
á útiskemmtunum, í tvo flokka.
„Annars vegar er um að ræða
nauðganir drýgðar af mönnum sem
leita uppi dauðadrukknar unglings-
stúlkur með það í huga að nauðga
þeim, og hins vegar svokallaðar
kunningjanauðganir sem eru mun
algengari. Þegar um slíka nauðgun
.COSPER
- V-a-á, hver blés þig upp?
Ujl^COSPER^
er að ræða þekkir stúlkan gerandann
og hefur því borið til hans ákveðið
traust. Það eru einmitt þessar kunn-
ingjanauðganir sem við erum hrædd-
Þær eru ráðgjafar á vegum Stígamóta og verða í Húnaveri og Her-
jólfsdal um helgina. Frá vinstri: Björg Marteinsdóttir, Sigrún Gísla-
dóttir og Jónína Gunnlaugsdóttir.
ar um að séu sjaldan kærðar og er
það miður. Mikilvægast er þó að
leggja aherslu á fyrirbyggjandi að-
gerðir og þess vegna viljum við beina
því til fólks sem verður saman í för
að fylgjast vel hvert með öðru og
koma til hjálpar en ekki að líta í
aðra átt verði það vart við kynferðis-
lega áreitni eða nauðgun."
Um helgina verða Stígamót með
sérstaka ráðgjafa á þjóðhátíðinni í
Vestmannaeyjum og á rokkhátíðinni
í Húnaveri. Þeir verða með aðstöðu
hjá lögreglu og heilsugæslu á þess-
um stöðum og getur fólk leitað til
þeirra verði það fyrir kynferðislegri
misnotkun.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Metsölublað á hverjum degi!