Morgunblaðið - 02.08.1991, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1991
41
Þessir hringdu ...
Fólkið komi sjálft með
tillögur
Reynir hringdi:
Það er eitt sem mér finnst oft
gleymast í allri umræðu um
spamað í ríkiskerfinu. Víða t.d.
í Bandaríkjunum em starfandi
hugmyndabankar þar sem menn
geta komið með hugmyndir og
fengið greitt fyrir þær sem reyn-
ast einhvers virði. Hví ekki að
taka slíkt upp hér? Fáir munu
betur að sér um óþarfa eyðslu í
ríkiskerfinu en starfsmenn þess.
Þess vegna væri þjóðráð að aug-
lýsa eftir hugmyndum frá þeim
um hvar skera megi niður algjör-
an óþarfa. Eflaust fengjust
margar góðar spamaðartillögur
með þeim hætti.
Aumkunarvert yfirklór
Hallbera hringdi:
Ég er sammála Hólmfríði sem
skrifaði í Velvakanda um daginn.
Þjónustu SVR fer stöðugt hrak-
andi og það er kominn tími til
að breyta til hjá þeirri stofnun.
Jafnframt finnst mér leiðrétting-
in frá SVR sem birtist í Velvak-
anda s.l. miðvikudag vera aumk-
unarvert yfirklór. Allir vita að
það er hárrétt hjá Hólmfríði að
áttan og nían hafa gengið á hálf-
tíma fresti í mörg ár þó SVR séu
nýbúnir að breyta þvi. En verður
það ekki einungis um sumartím-
ann? Munu vagnarnir fara á
stundarfjórðungs fresti eins og
aðrir vagnar næsta vetur?
Frímerki með skáldjöfrum?
Torfi hringdi:
Ég sá í Tímanum í dag að nú
eru komin út ný frímerki, falleg
að vanda. Eitt af þessum nýju
frímerkjum ber mynd hins ágæta
listvinar Ragnars í Smára. Þetta
minnir mig á að Ragnar gaf út
margt ágætra höfunda á sinni
tíð. Er ekki kominn tími til að
gefa út frímerki með myndum
af Halldóri Laxness og öðrum
mestu rithöfundum íslendinga,
s.s. Þorbergi Þórðarsyni? Ég veit
að yfírleitt eru ekki gefín út frí-
merki með myndum af lifandi
mönnum en eigi einhver slíkan
heiður skilinn er það Nóbels-
skáldið okkar sem verður níræð-
ur á næsta ári.
Torfþök ekki úðuð með eitri
Björk Þórisdóttir, safnvörður
í Árbæjarsafni hafði samband
við Velvakanda:
Af gefnu tilefni vilja starfs-
menn Árbæjarsafns benda á að
torfþök á safninu eru ekki úðuð
með eitri. „Dökkbrúnn vetrarlit-
ur“ þeirra stafar af.langvarandi
þurrki fyrri hluta sumars, ekki
eiturnotkun.
Eyrnalokkur
Lítill eyrnalokkur með slípuð-
um steini og silfurumgjörð (frá
Jens) tapaðist fimmtudaginn 25.
júlí í Hafnarfirði, annað tveggja
á homi Strandgötu og Linnet-
stígs eða við Bæjarbakaríið.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band við síma 51308.
Dónaleg framkoma
Lilja hringdi:
Ég vinn í verslun í miðbænum
og hringdi um daginn í hið ný-
stofnaða Kattholt út af litlum
kettlingi sem virtist vera villtur
í nágrenni við verslun mína. En
þeir vildu ekkert gera. Konan
sem ég talaði við sagði bara: Það
er fulit af köttum að flækjast í
miðbænum, og skellti síðan á.
En kettir geta týnst í miðbænum
líka. Sjálf er ég kattaeigandi og
bý skammt frá miðbænum og
mig óar við hvað gerast myndi
ef ég týndi kettinum mínum ef
þetta eru viðbrögð þeirra sem
segjast ætla að hjálpa.
Þakkir til Páls Helgasonar
Dóra Guðmundsdóttir hringdi:
Ég var í Vestmannaeyjum
22-23. júní á vegum Páls Helga-
sonar. Það var yndisleg helgi og
þjónustan alveg til fyrirmyndar.
Það urðu smábrengl af okkar
hálfu, þ.e. við urðum færri en
um hafði verið talað en þegar ég
bauðst til að borga mismuninn
var það ekki til að tala um. Ég
vil þakka fyrir þessa góðu þjón-
ustu.
Taska tapaðist
Bleik íþróttataska í brúnum
plastpoka tapaðist af toppgrind
bíls milli Markarfljótsbrúar og
Hellu s.l. sunnudag. Taskan var
merkt Bryndísi Jónu en í henni
voru barnaföt. Finnandi hringi í
síma 92-15074.
Ekki dýrt á Blönduósi
Örn Clausen hringdi:
Ég er ekki sammála mannin-
um sem kvartaði undan dýrri
sjoppu á Blönduósi í Velvakanda
s.l. miðvikudag. Mér fínnst ekk-
ert mikið að borga 310 krónur
fyrir tvær ristaðar brauðsneiðar,
ostsneiðar og smjör og kaffí. Það
er ódýrara en i Reykjavík. Nú
ferðast ég oft um þessar slóðir
og hef oft komið við bæði í þess-
ari sjoppu og Krútthúsinu. Og
mér fínnst ekki dýrt þar en þjón-
ustan aftur á móti mjög góð.
Gott tímakaup
Anna hringdi:
Ég fór nýlega í timbursölu
BYKO og keypti timbur sem ég
þurfti að láta saga niður. Það tók
tíu mínútur og kostaði 72,30
krónur á mínútuna eða 723 krón-
ur alls. Ég verð að segja að það
yrði ansi dýr klukkutími og þætti
gott tímakaup. Næst ætla ég að
hvetja þann sem sagar fyrir mig
að vera röskari.
Ónæði af fótboltavelli
Kona í Granaskjóli hringdi:
Ekki ætla ég að kvarta undan
kappleikjum KR en hins vegar
er það rétt hjá Sigurði Guttorms-
syni sem nýlega skrifaði í Velvak-
anda að bílum er oft lagt ólög-
lega í kringum völlinn og Frosta-
skjólið er t.d. ekki nógu breitt
fyrir umferð í tvær áttir þegar á
kappleikjum stendur því bílum
er lagt báðum megin við götuna.
Síðan borgaryfírvöld létu loka
Granaskjólinu í annan endann er
hins vegar bara um eina leið til
og frá heimilum okkar að ræða
fyrir okkur í götunni og hún er
um Frostaskjólið sem er illfært
vegna kappleikja. Þetta er ekki
nógu gott.
Hótel Borg
Selma hringdi:
Fyrir mína hönd og annarra
aðila að brúðkaupsveislu á Hótel
Borg s.l. laugardag langar mig
til að þakka Jóhanni hótelstjóra,
Guðrúnu veitingastjóra og öðru
starfsfólki hótelsins fyrir einstak-
lega ánægjuleg samskipti og fyr-
irtaksgóða þjónustu.
Hjálmur týndur - dúkka
fundin
Kristín hringdi:
Bleikur barnareiðhjólahjálmur
með Velúráklæði tapaðist frá
Rekagranda 8, sennilega ein-
hvern tímann í júni. Hjálmurinn
er sennilega ekki merktur. Á
sama stað er rauðhærð dúkka í
gulköflóttum kjól búin að vera í
óskilum lengi. Upplýsingar um
þetta tvennt fást í síma 14357.
Gullhringur
Hvítur gullhringur með litlum
demanti tapaðist á leið frá
Laugavegi niður á Hlemm
(Hverfísgötumegin) aðfaramótt
s.l. sunnudags. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 620166
(Silla). Fundarlaun.
Þakkir til ríkisskattstjóra
Helga hringdi:
Það er þakkar vert hvernig
hinn almenni borgari fær nú í
hendur álagningarseðil sem er
skiljanlegur. Slíkt hefur ekki
gerst fyrr í þau 30 ár sem ég
hef greitt skatta. Ég sendi emb-
ættismönnum ríkisskattstjóra
bestu kveðjur og þakka þeim
þessa einföldun á annars
óskiljanlegu plaggi.
Bjóðið upp á óáfenga drykki
Mig langar til að taka undir með
henni Guðbjörgu, sem skrifar um
vínlistann í Viðey. Alltof fá veit-
ingahús bjóða upp á óáfenga
drykki, sem valkost í staðinn fyrir
hefðbundin borðvín. Ég er hér að
sjálfsögðu ekki að tala um gos-
drykki heldur eitthvað, sem gæti
komið í staðinn fyrir borðvín. Veit-
ingahúsið Argentína hefur boðið
upp á óáfengan drykk, sem heitir
Aqua Libra, og er sá drykkur það
næsta, sem getur komið í staðinn
fyrir borðvín.
Þar fyrir utan er drykkur þessi
sagður mjög hollur og veitir vellíð-
an. Ég skora á önnur veitingahús
að taka Argentínu sértil fyrirmynd-
ar og bjóða upp á Aqua Libra eða
sambærilega drykki.
Gunnar
Forsetinn o g stjórn-
málamennirnir
Ein algengasta setning margra
stjómmálamanna fyrir kosningar
er þessi: „Ég hef ákveðið að gefa
kost á mér.“ Sjálfsánægja þessara
manna hefur oft vakið furðu vegna
lélegs árangurs í starfi. Undanfar-
in ár hafa þessir menn fjarlægst
þjóðina og orðið nokkurskonar ríki
í ríkinu, metnaður og eigin hags-
munir þeirra stangast á við þjóðar-
hag.
Margir forsvarsmenn krata, og
einhveijir úr Sjálfstæðisflokknum,
hafa fengið þá flugu í höfuðið að
án afsals fullveldis og samruna
við þjóðir EB eigi Island litla
möguleika. Það er svo sem ekki
oftrú á íslenskri þjóð fyrir að fara
hjá þessum mönnum.
En einn er sá málsvari þjóðar-
innar sem ber höfuð og herðar
yfír aðra, trúir á manneskjurnar,
sér fram á veginn og berst því
gegn allri frelsisskerðingu, Vigdís
Finnbogadóttir, forsetinn okkar,
sem öll þjóðin virðir og dáir. Hún
tók þá mikilvægu ákvörðun að
starfa áfram fyrir þjóð sína, ef
eftir væri leitað, og léttir það mikl-
um áhyggjum af landsmönnum.4
dag er forsetinn okkar, frekar en
nokkru sinni fyrr, verndari full-
veldisins og manneskjan sem ís-
lendingar treysta best. Uppistaðan
í málflutningi forsetans okkar hef-
ur alltaf verið hvað landi og þjóð
er fyrir bestu en frelsið hefur ver-
ið efst á blaði og skerðing þess
ekki föl fyrir peninga.
Það er trú mín að verði einhveij-
ir óláns þingmenn til þess að bera
upp í þinginu frelsisskerðandi
samning við erlendar þjóðir, og
meirihluti náist, krefjist hún þjóð-
aratkvæðis um málið.
Albert Jensen
POIVRE BLANC*
FRANSKIR BÓMULLARBOUR.
EITT AF VINSÆLUSTU MERKJUNUM í DAG í
FRAKKLANDI. FRÁBÆRIR LITIR.
MEIRIHÁTTAR MYNDIR.
FYRSTA FLOKKS BÓMULL.
Útsölustaðin
Reykjavík og nágr: Útilif, Rvk; Bangsi, Rvk; Hummel-búðin,
Rvk; Sportlínan, Kópavogi; Músik og sport, Hafnarfirði.
Landið: Sportbúð Óskars, Keflavík; Óðinn, Akranesi;
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi; Sportúsið, Akureyri;
Sporthlaðan, ísafirði; Litli bær, Stykkishólmi; Krakkakotið,
Sauðárkróki; Torgið, Siglufirði; Við lækinn, Neskaupstað;
Axel Ó, Vestmannaeyjum; Orkuverið, Höfn; Blómsturvellir,
Hellissandi.
Heildversl.
SPÖRT
(Jtscilca í dcag og ó morgun
á klassískri tónlist.
Mikid úrval
SPRENGIDAGAR
A
LAUGAVEGI 96 (HLJOðFÆRAHUS REYKJAVIKUR)
-