Morgunblaðið - 10.08.1991, Qupperneq 9
9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
Þakka öllum, sem glöddu mig á 60 ára af-
mœli mínu þann 27. júlí sl. Sérstakar þakkir
fyrir hjálpina fá Biggi kokkur iísal og nágrann-
ar mínir í Hlíðartúnshverfi, Mosfellsbœ.
Guð blessi ykkur öll.
Þorsteinn Kr. Guðmundsson,
Lækjartúni 11, Mosfeilsbæ.
AÐEINS ÞAÐ BESTAl
Hvort sem um nýsmíði eða
endurnýjun er að ræða.
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
BAÐINNRÉTTINGAR
SKÁPAINNRÉTTINGAR
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. Sími 671010
M
ELDHÚS
Borðstofuborð + 6 stólar kr. 179.800,- stgr.
Veggskápur m/bar kr. 129.860,- stgr.
Standlampi kr. 24.630,-
t—t ■ .1
Ástandið í Albaníu
Fjörutíu ára stjórn kommúnista er búin
að færa Albaníu niður á stig fátækustu
þriðjaheimslanda: allir sjóðir uppurnir,
verksmiðjur úr sér gengnar og ónýtar,
galtómar verslanir, aðeins örfáar vöru-
bílabeyglur ökufærar og efnahagslífið í
rúst. I júlíhefti breska læknatímaritsins
Lancet fjallar höfundurinn, Leo Offer-
haus, um ástandið í Albaníu eins og það
kom honum fyrir sjónir, meðan hann
dvaldist í landinu í hópi heilsugæslufólks,
sem Sameinuðu þjóðirnar sendu þangað
til hjálparstarfa. Aðstoðin var veitt að
beiðni samsteypustjórnarinnar, sem tók
við völdum eftir fall kommúnistastjórnar-
innar.
• •
Omurleg að-
koma
„I aðflugiiiu til Tirana
komumst við ekki h já því
að sjá víðar lendur
ríkisbúanna, þar sem
engin merki voru um
ræktun, og raðir lítilla
vamarvirkja á víð og
dreif um landið. Við vor-
um með fyrstu hjálpar-
sveitunum, sem Samein-
uðu þjóðirnar sendu til
Albaníu, og bjuggumst
við hinu versta, ekki síst
þar sem nýja samsteypu-
stjómin hafði ítrekað
beðið stofnunina um
neyðaraðstoð. Fjörutíu
ára stjóm kommúnista
er búin að færa landið
niður á stig fátækustu
þriðjaheimslanda: allir
sjóðir uppurnir, verk-
smiðjur úr sér gengnar
og ónýtar, galtómar
verslanir, aðeins örfáar
vömbílabeyglur ökufær-
ar og efnahagslífið í
rúst.“
Einsogöllum
sé orðið sama
Ennfremur segir í
Lancet „Heilsugæslu-
þjónusta er enn nokkur,
en ákaflega misjöfn að
gæðum. Nútímatækni,
sem fáeinir sérfræðingar
í hópi lækna hafa innleitt
eftir dvöl erlendis, nýtur
ekki lengur við vegna
skorts á hráefni, vara-
hlutum, leiðslum og efna-
samböndum til rann-
sókna. I læknabókasöfn-
um getur að líta fáem
vestræn tímarit, sem ætt-
ingjar erlendis hafa sent,
en fyrir utan þau er ekki
annað að finna í hilhmum
en ritsöfn [Envers] Hoxa
[fyrmrn leiðtoga komm-
únistaflokksins] og
Leníns. Áhersla er lögð
á fyrirbyggjandi heilsu-
gæslu, en smám saman
hefur dregið úr bólusetn-
ingum, sem eitt siim voru
stolt landsins, af því að
jafnvel glersprautur eru
torfundnar, sóttlireins-
unarbúnaður er allur
40-50 ára gamall og
ísskápar fokdýrir. Ryk
og óhreinindi eru ails
staðar, en það er eins og
öllum sé orðið sama um
það. Ef bam kastar upp
á sjúkrastofunni, hreins-
ar enginn upp eftir það.
Baraadeildimar vekja
upp minningar um mynd-
irnar frá Rúmeniu af
smáböraum sem liggja í
rúminu sinu (í 35 stiga
hita) útötuð í blóði og
saur, fá blóð í gegnum
margnotaðar plast-
leiðslur og stara á er-
lenda gesti með stóram
augum úr innföllnum
ásjónum. Þarna er engin
afþreying, enghi leik-
föng. í 500 rúma baraa-
spítala í Tirana fyrir-
finnst einn hitakassi og
ein öndunarvél. Einn
hitakassi til viðbótar hef-
ur verið keyptur upp á
krít í krafti loforða
Bakers, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna.
Vannæring og niður-
gangur era algengustu
dánárorsakirnar.
Skjaldkirtilsstækkun
[stafar af joðskorti eða
ofvirkni skjaldkirtils] i
nýburum og kyrkingur
[meðfæddur ágalli sem
stafar af of lítilli starf-
semi skjaldkirtils — kem-
ur fram í andlegum og
líkamlegum vanþroska]
eru að sögn útbreiddir
kvillai' í fjallahéraðun-
um; framleiðslu joðsalts
(selt á þrisvar sinnum
hærra verði en venjulegt
salt) hefur verið hætt.
Fáir spítalar hafa fyrir-
liggjandi nauðsynleg lyf
og birgðir hins opinbera
eru orðnar hættulega litl-
ar. Ef utanaðkomandi
hjálp berst ekki, verður
ekkert insúlín til eða bún-
aður til skurðlækninga
(hanskar,
sárasaumsþráður, svæf-
mgalyf) um miðjan júlí.“
Aliiæmi getur
breiðst hratt
út
Loks segir i greininni
í Lancefc „Slæmt hrein-
lætisástand á spitölum og
skortur á rannsóknarað-
stöðu hafa skapað ákjós-
anlegan jarðveg fyrir
farsóttir. Lifrarbólgu-
veira finnst þegar í blóði
yfir 10% íbúanna (80% í
sumum héruðum); ung-
barnadauði, sem fallið
hafði úr 43 niður í 25 af
þúsundi árið 1985, komst
upp í 34 á liðnu ári; búist
er við hastarlegum niður-
gangshvelli síðla sumars.
Frést hefur um fáein al-
næmistilfelli hjá fólki
sem snúið hefur heim
erlendis frá, en alnæmis-
prófanir hafa verið n\jög
takmarkaðar og aðstæð-
ur allar era þaimig að
vírusinn getur breiðst
hratt út, þar sem landa-
mærin við Rúmeníu eru
nú opin og smokkar fást
ekki nema á svörtum
markaði. Vegna rangrar
notkunar fúkkalyfja á
spítölum, þar sem að-
staða til einangrunar er
ekki fyrir hendi og rann-
sóknarþjónusta hæggeng
og óáreiðanleg, hefur
nokkuð borið á minni
háttar sýkingahrmum."
Larig-t í land
„Albanskir læknar
geta ekki komist út úr
þessum ógöngum af eig-
in rammleik; þörf er á
umfangsmikilli endur-
menntunarherferð og
bættri upplýsingaþjón-
ustu. Barnahjálparsjóður
Sameinuðu þjóðanna hef-
ur þegar sent neyðarbún-
að til landsins, einnota
sprautur, bamamat og
leikföng, og Alþjóða heil-
brigðisstofnunin hefur
lagt á ráðin um frekari
aðstoð. Útvega verður
nýjan bókakost í lækna-
bókasöfn og nauðsynlegt
er að gefa albönskum
læknum kost á styrkjum
til framhaldsnáms. Heil-
brigðisstéttir á Vestur-
löndum verða að gera
allt sem í þeirra valdi
stendur til að endurreisa
heilsugæsluþjónustuna í
Albaniu. Þar i Iandi vant-
ar hvorki góðan vilja né
vitsmunalega getu, en
mörg ár kuiina þó að líða
áður en ástandið verður
orðið sambærilegt við
það, sem þekkist í Evr-
ópubandalaginu."
3ja sæta + 2 stólar kr. 197.640,- stgr. Sófaborð kr. 17.640,- stgr.
Hliðarborð kr. 17.640,- stgr. Borðlampi kr. 21.420,- stgr.
Barborð kr. 35.460,- stgr. Barstóll m/baki kr. 9.570,- stgr.
Barhilla kr. 21.360,- stgr.
HÚSGAGNAVERSLUN
Síðumúla 20 — sími 688799
HEFJUM GAMLA ÍSLENSKA
BYGGINGALIST TIL VEGS Á NÝ...
MEGA bárulaga álið ryðgar
ekki né tærísL Fæst í
fjölmörgum Iftum, einnig
ólitað. Mjög gott verð.
LANGTÍMALAUSN
SEM ÞÚ LEITAR AÐ
SPARAÐU VIÐHALD
NOTAÐU ÁL
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík
Pósthólf 1026, 121 Reykjavík.
Sírni 91-680606. Fax 91-680208.