Morgunblaðið - 10.08.1991, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. AGUST 1991
Rykkrokk ’91
ÁRLEGT Rykkrokk við Fellaskóla verður haldið í dag. Að þessu
sinni taka tólf sveitir þátt í tónleikunum, en að auki verður barna-
og fjölskylduskemmtun.
Rykkrokk hefur verið haldið á
vegum Fellahellis frá 1984, í
fyrstu sem einskonar karnival,
en síðan sem rokktónleikar ann-
að hvert ár, sem helst voru ætl-
aðir ó- eða líttþekktum rokksveit-
um. Á síðasta ári var ákveðið að
hafa tónleikana árlegan viðburð.
Síðustu ár hefur Rás 2 sent út
frá tónleikunum og gerir einnig
núna. Að þessu sinni koma fram
á Rykkrokki eftirfarandi sveitir í
þessari röð, en tónleikarnir hefj-
ast kl. 17.00 og þeim lýkur kl.
24.00:
Synir Raspútfns, Tolstoy,
Rotþró, Bleeding Volcano, Sor-
oricide, Bootlegs, Bless, Ham,
Vinir Dóra, Gildran, GCD og
Júpi'ters. Fyrstu fjórar sveitirnar
hafa haldið nokkra tónleika, en
verða að teljast lítið þekktar, þó
Bleeding Volcano hafi verið búin
að vinna sér nafn sem Boneyard.
Rotþró kemur frá Húsavík og
sendi nýverið frá sér kassettuna
Haltu kjaft, éttu skít, boraðu gat
á Reykjavík, sem Erðanúmúsík
gaf út. Sororicide, sem sigraði í
Músíktilraunum Tónabæjar undir
nafninu Infusoria, kemur fram
með nýjum söngvara, en sveitin
er að undirbúa sig fyrir upptökur
á breiðskífu sem gefa á út fyrir
jól. Bootlegs hefur ekki spilað
mjög víða, en sveitin er að gera
sig klára fyrir þátttöku í tónlist-
arráðstefnunni CMS í Kaup-
mannahöfn í næsta mánuði.
Bless, sem sent hefur frá sér tvö
lög á árinu, annað á vegum
Skífunnar, hitt á ástralskri plötu,
hyggst halda í hljóðver fljótlega
til aðtaka upp „demó". Ham, tók
fyrir skemmstu upp nokkur lög í
hljóðveri með hmum nafntogaða
upptökustjóra Roli Mosiman, en
upptökurnar á að nota í kvikmynd
Óskars Jónassonar Sódóma
Reykjavík, hvar hljómsveitin kem-
urfram undir nafninu Helia. Vinir
Dóra átti drjúgan þátt í blús-
disknum Blue lce, sem fengið
hefur góðar viðtökur hér á landi
og erlendis, en síðustu fregnir
herma að sveitin hyggi á hljóð-
versplötu fyrir jól. Lftið hefur
borið á Gildrunni upp á síðkastið,
en GCD verið á allra vörum, enda
plata sveitarinnar, sem Bubbi
Morthens og Rúnar Júlíusson
leiða, lang söluhæsta plata
landsins um þessar mundir. Af
Júpíters er það að frétta að sveit-
in vinnur nú að breiðskífu, sem
koma á út í haust.
Bootlegs
Ham
Bless
GCD
Sororicide.
ÞAÐ VERÐUR
FJÖR í KVÖLD !
§ffQómsoeitinSmeUir
ogMagnarfi&jamason
Smellir og Raggi Bjarna eru til alls
líklegir í kvöld og flakka vítt og
breytt um dægurlönd á leikandi
léttum nótum.
BREYTT OG BETRA DANSHÚS !
Aögangseyrir kr. 800,- Snyrtllegur klæönaftur.
Oplö frá kl. 22 - 03.
DANSHÚSIÐ GLÆSIBM SÍMI686220
Metsölublað á hverjum degi!
LIFANDI TÓNLIST
FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD
GARÐATORGI 1, GARÐABÆ • SÍMI 657676 20 ára
■^U‘STaji
staður blúsara!
VITASTIG 3
SÍMI 623137
Blússveitin frábæra
VINIR DÚRA
& GESTIR
M.a. kynnt efni af nýútkomnum CD
BLUEICE
sem verður til sölu við innganginn
á sérstöku tönleikaverði
kr. 1500,- (kostar kr. 1899,-)
„HAPPY HOUR" kl. 22.30-23.30
Þar sem blúsfaraldurinn virðist síst i
rénum og stemmingin í gærkvöldi var
gífurleg þá mælum við með að fólk
mæti tímanlega i kvöld.
HVERJIR VERÐA GESTIR
VINA DÓRA í KVÖLD?
PÚLSINN
STOPP!
MOULIN ROUGE
í KVÖLD
Laugavegi 1 1 ó
Opið frá kl. 23 - 03.
Ath. Frítt inn til kl. 24. Miðaverð aðeins kr. 700.-
Ath. Snyrtilegur klæðnaður
OLI
BLAÐASALI
HELDUFt UPPIDAMPI
OPIÐ FRÁ KL. 18-03
Munið hádegisbarinn laugardag og sunnudag!