Morgunblaðið - 10.08.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
13
forgöngu um ábyrgð á erlendum
lántökum. Stöðugt gengi íslensku
krónunnar getur þá orðið niður-
staða af efnahagslegum forsend-
um.“
Eins og fram kemur í þessum
orðum dregur Verzlunarráðið
hvorki taum eins né annars í gengis-
málum. Sjónarmið þess er að ná
þurfi verði gjaldmiðils í jafnvægi
miðað við framboð og eftirspurn.
Rétt verð er þegar viðskiptajöfnuð-
ur er í jafnvægi þannig að ekki
þurfi að greiða meira fyrir vörur
og þjónustu erlendis frá en selt er
fyrir úr landinu. Verð gjaldmiðilsins
á að ráðast á frjálsum markaði.
Vilji Seðlabanki íslands stuðla að
stöðugleika í gengismálum getur
hann gert það með því að eiga
öflugan gjaldeyrisvarasjóð, og selt
eða keypt gjaldeyri eftir því hvernig
ástandið á gjaldeyrismarkaði er
hveiju sinni. Efnahagsstefna
stjórnvalda hefur mikil áhrif á
gengisskráninguna. Verðtrygging
með lánskjaravísitölu er öflugt tæki
til þess að ná jafvægi. Því er nauð-
syn að notast við lánskjaravísi-
töluna þar til gott jafvægi hefui
náðst í ríkisfjármálum.
Eins og ástandið er í dag er staða
ríkisfjármála nánast eins og
dínamítsprengja, sem myndi
sprengja efnahagslegan stöðug-
leika í loft upp um leið og slakað
væri á lánskjaravísitölunni. Þessi
stefna í gengismálum er hlutlaus
gagnvart atvinnugreinum. Hún
skapar mestan hagnað í þeim grein-
um sem standa sig best. Ef sá at-
vinnuvegur er sjávarútvegur, þá á
ekki að refsa honum með sérstöku
veiðigjaldi. Tekju- og eignarskattar
og samræming annarra skatta s.s.
byggingargjalds og fasteignaskatta
er nægilegt fyrir þá hít. Það á að
leyfa hagnaði að myndast í sjávar-
útvegi, sem fyrst og fremst verður
notaður til hagræðingar, aukinnar
vöruvöndunar og öflugri markaðs-
sóknar, til þess að skila meiri verð-
mætum í þjóðarbúið. Hagnaður
umfram það því svo í fjárfestingu
í öðrum atvinnugreinum.
Ef gróði í sjávarútvegi yrði hins
vegar „allt of mikill“ fengju menn
loksins skemmtileg „vandamáT* að
glíma við.
Höfundur er formaður
Verslunarráðs íslands.
Álver á röngum stað?
eftir Jón Hálfdánarson
Nú þegar dregur að lokum í
samningum við Atlantálshópinn
virðist gerð hafnar fyrir hið nýja
álver ætla að verða mönnum tals-
verður þröskuldur. Keilisnes liggur
óvarið fyrir opnum Faxaflóa og því
verður hafnargerð þar mjög dýr.
Kostnaður er áætlaður nærri einum
milljarði króna. Þennan kostnað
vilja hin erlendu stórfyrirtæki ekki
bera og því fellur hann væntanlega
á ríkissjóð að hluta.
Því er rétt að minna á það að
horft var fram hjá Grundartanga
þegar nýju álveri var ákveðinn stað-
ur. í skjóli Hvalfjarðar við aðdýpið
á Grundartanga verður hafnargerð
miklu ódýrari en á Keilisnesi. Fjár-
hagsstaða Grundartangahafnar er
auk þess mjög traust svo hún gæti
hugsanlega borið sjálf kostnað við
nauðsynlega stækkun á hafnar-
mannvirkjum. Á Grundartanga eru
einnig allar aðrar aðstæður mjög
góðar til að reisa stóriðjuver.
Og ef svo heldur sem ho.rfir um
framkvæmdir við göng undir Hval-
fjörð verður vegalengd frá Grund-
artanga til Reykjavíkur aðeins 34
Jón Hálfdánarson
km. Það gæti orðið að veruleika
innan þriggja ára svo ekki þarf að
óttast að vinnusvæðið yrði of fá-
mennt og skortur yrði á fólki til
að reisa og reka verksmiðjuna.
Það hlýtur líka að vera skynsam-
legri stefna að teygja byggð á Suð-
vesturhluta landsins frekar norður
„Það hlýtur líka að vera
skynsamlegri stefna að
teygja byggð á suðvest-
urhluta landsins frekar
norður fyrir eldvirk
svæði en suður í ný-
runnin hraun.“
fyrir eldvirk svæði en suður í nýr-
unnin hraun. Það er ekki víst að
máttarvöld hafi biðlund í þúsund
ár áður en þau bæra næst á sér á
Reykjanesi. Þau höfðu það ekki í
Heimaey og öllum virist koma það
á óvart. Slíkt gæti gerst hvenær
sem er á svæðinu sunnan við
Reykjavík.
Það er eins í lífinu og í skákinni
að nauðsynlegt er að breyta um
áætlun þegar mál horfa illa við,
hversu góð sem hugmyndin var í
upphafi. Ríkissjóður virðist hafa
þörf fyrir einn milljarð króna,
gleymum heldur ekki eldvirkninni í
landinu. Væri ekki ráð að hrókera
álverinu upp á Grundartanga?
Höfundur er formaður stjórnar
Grundartangahafnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
22 ungir fiðluleikarar halda tón-
leika í Tónskóla Sigursveins á
morgun, sunnudag.
Suzuki-
börn halda
tónleika
HIÐ islenska Suzukisamband
gengst fyrir tónleikum á morgun,
sunnudag, í Tónskóla Sigursveins
í Hraunbergi 2. Á tónleikunum,
sem hefjast kl. 13.30, leika 22
börn á fiðlu, en þau hafa öll ver-
ið á námskeiði á vegum Suzuki-
sambandsins i þessari viku.
I fréttatilkynningu frá Suzuki-
sambandinu segir að öllum sé heim-
ilt að fylgjast með síðasta hluta
námskeiðsins í dag frá kl. 10 til 15,
en það fer fram í Tónskóla Sig-
ursveins í Hraunbergi 2 í Reykjavík.
Á námskeiðinu eru 22 börn á aldrin-
um 3 til 9 ára, sem eru mislangt
komin í fiðlunámi og munu þau á
morgun slá botninn í námskeiðið
með því að halda tónleika. Aðgang-
ur að tónleikunum er ókeypis.
werzalitr íglugga
SÓLBEKKIR Ma
fyrirliggjandi. vatn.
Samningar um skiptingu sameiginlegra fiskistofna:
Fyrst og fremst um viðræð-
ur vísindamanna að ræða
JÓN B. Jónasson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, segir
að töluvert skorti á um að fullnægjandi vitneskja sé fyrir hendi
varðandi sameiginlega fiskistofna Islendinga og Grænlendinga og
viðræður um skiptingu þeirra hafi því fyrst og fremst verið fólgnar
í því að vísindamenn hafi skipst á upplýsingum. Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segist vonast til að þær viðræður
fari að komast á lokastig.
Jakob segir að vísindamenn
reyni nú að átta sig á stærð hinna
sameiginlegu stofna og skiptingu
þeirra milli fiskveiðilögsagna. Til
dæmis hafi staðið yfír miklar at-
huganir á karfastofninum í sam-
starfi íslendinga, Grænlendinga,
Færeyinga og Norðmanna. Enn
fremur hafí sérfræðingar reynt að
komast að niðurstöðu um það
hvernig rækjustofninn skiptist um
miðlínuna milli íslands og Græn-
lands á Dohrnbanka.
Jakob segir að samkomulag hafi
ríkt um skiptingu loðnustofnsins í
þijú ár, en hins vegar renni það
út á næsta án. Varðandi þorsk-
stofninn séu Islendingar í nánu
sambandi við þá vísindamenn, sem
vinni fyrir Grænlendinga, en ekki
hafi verið rætt um neina skiptingu
þorskstofnsins í líkingu skiptingar
loðnustofnsins.
KK SENDUM I PÓ8TKRÖFU
*CO Þ. Þ0R&RÍMSS0N & G0
Ármúla29 • Reykjavík • sími 38640
fJORHJOLÁDRItlN
FJÖLNOIÁBIFREIÐ
FINNDU MUNINN
HAGSTÆÐARI
DOLLAR
HAGSTÆÐARA
VERÐ
Ford Aerostar
- skemmtilega knár, sterkur,
glæsilega búinn og frábær í akstri.
AfGRÉlÐSLO
stra^
Lágmúla 5. sími 681555