Morgunblaðið - 10.08.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
Kirkjumiðstöð Aust-
urlands fullbúin
eftir Vigfús Ingvar
Ingvarsson
Nú er sumar verður Kirkjumið-
stöð Austurlands við Eiðavatn vígð.
Þarna við austanvert vatnið, um 2
km norðan við skólasetrið Eiða, eru
risnar myndarlegar byggingar sem
hýsa munu sumarbúðir kirkjunnar
á Austurlandi og ýmsa aðra kirkju-
lega starfsemi svo sem mót og nám-
skeið. Húsin er hægt að nota allt
árið en fyrst um sinn verður sumar-
ið aðal annatíminn. Umsjón með
þessari uppbyggingu hefur sam-
nefnd sjálfseignarstofnun sem
Múlaprófastsdæmi, Austfjarðapró-
fastsdæmi og Prestafélag Austur-
lands standa að.
Aðdragandinn
Æskulýðsmái voru mjög á döf-
inni innan kirkjunnar um og fyrir
1960 en það ár varð til embætti
æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar.
Norðlendingar stofnuðu ÆSK
(Æskulýðssamband . kirkjunnar í
Hólastifti) og hófu að reisa sumar-
búðir við Vestmannsvatn og Presta-
félag Austurlands (PA) byijaði með
fermingarbamamót á Eiðum 1958.
Sumarið 1963 hafði Vilhjálmur
Einarsson, síðar skólameistari, for-
göngu um að boða til fundar full-
trúa frá ÚÍA (Ungmenna- og
íþróttasambandi Austurlands), PA
og Sambandi, austf. kvenna. Hug-
myndin var að þessi þrenn samtök
stæðu að uppbyggingu sumarbúða
sem jafnframt yrði íþróttamiðstöð
(skíði). Unnið var nokkuð með þessa
hugmynd en ekki fannst staður sem
einig varð um. Prestar lögðu m.a.
áherslu á að byggja við vatn. Á
aðalfundi PA sumarið ’64 var
ákveðið, að tillögu Þórarins Þórar-
inssonar, skólastjóra (sem var guð-
fræðingur og áhrifamaður í PA),
að prestar hefðu einir forystu í
þessu máli. Benti Þórarinn á heppi-
legt land við norðurenda Eiðavatns,
(Gröf). Áður en árið var liðið hafði
PA fengið þarna vilyrði fyrir landi
og árið- eftir er ákveðið að hefja
byggingarundirbúning en reyna
jafnframt að leigja húsnæði, til
bráðabirgða, undir sumarbúðir.
Það var þó ekki fyrr en 1968 að
slíkt húsnæði fékkst, með leigu
barnaskólans á Eiðum. Síðan hafa
þar verið starfræktar sumarbúðir
öll sumur, að einu undanskildu
vegna framkvæmda við skólann.
Engir langtímasamningar voru þó
um þetta húsnæði og það ekki að
öllu leyti hentugt til þesarar starf-
semi. Áðstaða til útivistar og íþrótta
er hins vegar mjög góð á Eiðum.
Gönguferð niður í Asinn, til að njóta
umhverfisins þar og sigla út á
Húsatjörn, er sannarlega fyrirhafn-
arinnar virði. Ennfremur hafa feng-
ist afnot af íþróttavelli ÚÍA.
Það var hins vegar ekki fyrr en
1976 sem byggingarframkvæmdir
hófust við Eiðavatn og þá við vatn-
ið austanvert sem virðist heppilegur
staður þó það hafi valdið óánægju
á sínum tíma er Menntamálaráðu-
neytið dró til baka vilyrði fyrir landi
við norðanvert vatnið (Gröf). Ymiss
konar undirbúningsvinna varð
tímafrek og fjárskortur háði m.a.
vegna síminnkandi framlaga ríkis-
ins (að raungildi) til sumarbúða
kirkjunnar. En þau framlög höfðu
verið mikilvæg við sumarbúðabygg-
ingar annars staðar. Ennfremur
töldu ýmsir óráð að byggja nema
fyrir lægju meiri not af húsum en
aðeins fyrir sumarbúðir.
Þegar fyrsta skóflustungan var
tekin 24. júní, lá fyrir að þarna risi
Kirkjumiðstöð Austurlands. Hús-
in standa í lyngbrekku upp af svo-
nefndri Prestavík en það er gamalt
ömefni en tengist ekki umsvifum
presta þarna síðari árin svo sem
sumir halda. Vitundin um þörf
Austurlands fyrir kitjulega miðstöð
— sem mikilvægar em í kirkjulífi
víða annars staðar á landinu —
mótaði áformin í vaxandi mæli.
Jóhannes Ingibjartsson, bygg-
ingafræðingur, á Akranesi teiknaði
húsin og hefur veitt ýmsa ráðgjöf
í gegnum árin. Gunnar Auðbergs-
son, trésmíðameistari, á Eskifirði
smíðaði húseiningamar sem síðan
vora reistar á staðnum.
Tii fjármögnunar leitaði PA til
sveitarfélaga, sýslna og félaga og
almennar fjársafnanir hafa verið
með ýmsu formi. Kristnisjóður hef-
ur stutt verkið og síðar hefur stuðn-
igur Jöfnuarsjóðs sókna skipt sköp-
um. Afgangur af farsælum sumar-
búðarekstri hefur einnig runnið til
Kirkjumiðstöðvarinnar. Mikil sjálf-
boðávinna, einkum framan af árum
þegar unnið var að einfaldari verk:
þáttum, hefur drýgt fjármagnið. í
þessum efnum eiga margir þakkir
skildar bæði fyrir ijárframlög og
vinnu.
Ekki var eðlilegt að Prestafélag
Austurlands væri til lengdar eitt í
forsvari fyrir uppbyggingu Kirkju-
miðstöðvar Austurlands. Því var
ákveðið að mynda sjálfseignar-
stofnun og 10. júní 1985 staðfesti
forseti íslands skipulagsskrána. PA
afhenti stofnuninni, sem hlaut nafn-
ið Kirkjumiðstöð Austurlands,
byggingarnar við Eiðavatn. Þá var
búið að gera grannana og skálinn
sem hýsir eldhús og sal fokheldur
ásamt tengibyggingunni. Skuldir
voru engar en þeirri óvenjulegu
stefnu hafur jafnan verið fylgt að
safna ekki skuldum vegna fram-
kvæmdanna.
Fyrsti stjórnarformaður Kirkju-
miðstöðvarinnar var Sigurður
Helgason, sýslumaður á Seyðisfirði
en er hann flutti af svæðinu tók
núverandi formaður, sr. Davíð
Baldursson á Eskifirði, við.
Núverandi staða framkvæmda
Með sjálfseignarstofnuninni
styrktist staðan. Vösk sveit leik-
manna gekk til liðs við þetta upp-
byggingarstarf ogtengslin við söfn-
uðina urðu skýrari. Stjóm Kirkjum-
iðstöðvarinnar er kosin til 2ja ára
þannig að héraðsfundir prófast-
dæmanna, sem að henni standa,
kjósa 2 fulltrúa hvor og PA 1. Eft-
ir því sem nær hefur dregið verka-
lokum hefur verið auðveldara að
kynna þessa hugsjón og afla henni
stuðnings. Á síðasta ári var svo
ákveðið að ljúka framkvæmdum nú
í sumar. Það var gert í skjóli þess
að samstilltari krafta og meira ör-
lætis mætti vænta af ýmsum þar
sem um lokaáfanga væri að ræða.
Auk þess var ekki talið óeðlilegt
að eitthvert lán yrði tekið til að ljúka
byggingunni þar sem engar eldri
skuldir hvíldu á henni. Góð orð
kirkjuyfirvalda um myndarlegan
stuðning vógu og þungt varðandi
þesa ákvörðun.
Þegar þetta er ritað er vinna við
Vigfús Ingvar Ingvarsson
„Þjóðkirkjan hefur
gert þennan áratug að
tíma safnaðaruppbygg-
ingar. Til þess að ná því
marki verður að virkja
leikfólk innan kirkjunn-
ar í langtum ríkara
mæli en hingað til. Þá
skipta námskeið og
samvinna safnaða afar
miklu máli.“
frágang húsa og lóðar komin á loka-
stig. Um er að ræða svefnskála (um
230 mz) með kojum fyrir 40 manns.
Þá er um 80 m2 tengibygging (af-
greiðsla, anddyri og snyrting) og
skálinn næst vatninu (um 265 mz)
hýsir eldhús og matvælageymslur,
herbergi fyrir starfsfólk og stóran
sal sem mætti tvískipta. Verið er
að ljúka kaupum á ýmsum búnaði
til rekstursins. Og treyst er á já-
kvæð viðbrögð fjölmargra aðila,
sem til hefur verið leitað um stuðn-
ing í ýmsu formi, nú á lokasprettin-
um.
Sumarbúðastarfið
Góð aðsókn hefur verið.að sumar-
búðaflokkum bama á Eiðum og
börnin komið víða að úr fjórðungn-
um. Síðari árin hafa jafnan verið
fjórir slíkir flokkar og þá alls um
170 börn á sumri. Fallegt og fjöl-
breytt umhverfi hefur átt góðan
þátt í vinsældum búðanna og geta
má þess að flest börnin hafa tekið
þátt í að gróðursetja tijáplöntur á
framtíðarsvæðinu við Eiðavatn. Vel
hefur tekist til með starfsfólk sem
hefur komið úr ýmsum áttum, m.a.
hafa nokkrir prestar hér eystra
sinnt þessu starfi mikið. Það var
líka mikill stuðningur þegar kirkjan
á Austurlandi eignaðist sameigin-
legan starfsmann,- fræðslufulltrúa
(áður æskulýðsfulltrúa), sem mun
tengjast Kirkjumiðstöðinni í vax-
andi mæli.
Sumarið 1986 var boðið upp á
dvalarflokk fyrir aldraða og öll sum-
ur upp frá því. Þess er að vænta
að vaxandi eftirspurn verði eftir
slíkum flokkum og gott að geta
brátt boðið úrvalsaðstöðu fyrir fólk
sem á við ferlivandamál að stríða.
Allmörg ár eru síðan fatlaðir ein-
staklingar tóku þátt í sumum
barnaflokkunum eftir því sem að-
stæður leyfðu. Síðastliðið sumar var
svo enn stigið nýtt skref með því
að hafa sérstakan flokk fyrir fatl-
aða, í samvinnu við Svæðisstjórn
um málefni fatlaðra á Austurlandi.
Og stefnt er að vaxandi samvinnu
við stofnanir sem vinna fyrir fatlaða
á komandi árum. Hve lengi hefur
dregist að fullgera nýju bygging-
arnar, gaf reyndar svigrúm til að
haga innréttingu við hæfí fatlaðra.
Framtíðin
Auk sumarbúðaflokka er ætlunin
að Kirkjumiðstöðin hýsi ýmsa sam-
eiginlega starfsemi kirkjunnar' á
Austurlandi. Þar má nefna ýmis
námskeið, svo sem fyrir fermingar-
börn, kirkjukóra, sóknamefndir
o.s.frv. og mót til að glæða áhuga
á kirkjulegu starfi og efla kynni
fólks. Þjóðkirkjan hefur gert þenn-
an áratug að tíma safnaðarupp-
bygginar. Til þess að ná því marki
verður að virkja leikfólk innan kirkj-
unnar í langtum ríkara mæli en
hingað til. Þá skipta námskeið og
samvinna safnaða afar miklu. Þörf-
in fyrir slíkan samastað kirkjunnar
á Austurlandi, sem nú er að verða
til, er því enn brýnni en frumhetj-
arnir gátu séð fyrir.
Á vígsludegi — 25. ágúst nú í
sumar — eignast kirkjan á Austur-
landi sitt safnaðarheimili. Það verð-
ur fagnaðar- og þakkargerðardag-
ur. Drottinn hefur leyft áformum,
sem mörgum virtust óraunsæ, að
ná fram að ganga. Framundan er
samt áframhaldandi byggingar-
starf, að byggja upp söfnuðina á
Austurlandi og miklu víðtækara
samstarf þeirra, landi og lýð til
blessunar.
Höfundur er sóknarprestur á
Egilsstöðum.
r -J0M .
íleðSur r a ■ Hjjaú I
UlUi^UIl V
Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra:
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Fyrirbænir eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA:: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjóns-
uta kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist-
insson. Organisti Jón Stefáns-
son. Kór Langholtskirkju syngur.
Molasopi að guðsþjónustu lok-
inni.
Farísei og
tollheimtumaður.
(Lúk. 18.)
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Organisti Ron-
ald V. Turner. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónusta. Fimmtudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur,
altarisganga, fyrirbænir.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Miðvikudag: Bæna-
rpessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Helgistund kl. 11 á vegum sókn-
arnefndar. Organisti Gyða Hall-
dórsdóttir.
Reykjavfkurprófasts-
dæmi eystra:
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Jón Mýr-
dal. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin
guðsþjónusta vegna sumarleyfis
sóknarprests, en bent á guðs-
þjónustur í Árbæjarkirkju kl. 11
og Fella- og Hólakirkju kl. 20.30.
Sr. Gísli Jónasson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Kristinn Ág-
úst Friðfinnsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30.
Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Þorbergur Kristj-
ánsson.
SELJAKIRKJA: Engin guðsþjón-
usta verður í Seljakirkju en vísað
á guðsþjónustur í Árbæjarkirkju
kl. 11 og Fella- og Hólakirkju kl.
20.30. Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30, stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18 nema laugar-
daga kl. 14. Laugardagskvöld kl.
20 er ensk messa.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.30 nema
fimmtudaga kl. 19.30 og laugar-
daga kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
koma kl. 11. Söng- og hljómleika-
samkoma í Fíladelfíukirkjunni.
Hljómsveit norskra Hermanna
leikur og Norðmaðurinn Hans
Inge Fagervik syngur og talar
ásamt meðlimum hljómsveitar-
innar NSB.
NÝJA Postulakirkjan: Guðsþjón-
usta kl. 11. Safnaðarprestur.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Mosfellskirkju kl. 11.
Organisti Guðmundur Ómar
Óskarsson. Einsöngur Margrét
Ponzi. Sr. Jón Þorsteinsson.
GARÐA- OG HAFNARFJARÐAR-
SÓKN: Guðsþjónusta í Garða-
kirkju kl. 11. Prestur sr. Gunnþór
Ingason. Kór Hafnarfjarðarkirkju
syngur. Organisti Helgi Braga-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10, lesin
á þýsku.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
Garða- og Hafnarfjarðarsóknir.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Krist-
jana Ásgeirsdóttir. Sr. Einar Eyj-
ólfsson.
KAPELLA St. Jósefsspftala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
k| g
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa
kl. 10.30. Sigrún Óskarsdóttir
guðfræðinemi prédikar. Sr. Tóm-
as Guðmundsson.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sr. Tómas Guðmundsson.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarpestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Sumartón-
leikar laugardag og sunnudag kl.
15. Messa kl. 17. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Þórir Jökull Þorsteinsson
guðfræðinemi prédikar. Organ-
isti Anna Magnúsdóttir. Kirkju-
kaffi verður að messu lokinni í
safnaðarheimili Oddakirkju. Sr.
Sigurður Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 11. Sóknar-
prestur.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.