Morgunblaðið - 10.08.1991, Qupperneq 39
f&infTt
(41
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 10. AGUST 1991
39
KNATTSPYRNA
■ ^ A v
Ú \ 'síT ;
Guðni og Sigurður
mætast á Wembley
MorgunblaðiðA/alur Jónatansson
Guöni og Sigurður mætast í Lundúnarorustunni.
I DAG fer fram leikur um
Góðgerðarskjöldinn í Eng-
landi milli meistara Arsenal
og bikarmeistara Tottenham.
Sigurður Jónsson verður f
leikmannahópi Arsenal og
Guðni Bergsson íleikmanna-
hópi Tottenham.
Sigurður Jónsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær
að hann væri bjartsýnn á að fá
að spreyta sig í dag þó svo að
hann yrði sjálfsagt ekki í byrjun-
arliðinu. „Eg er kominn í góða
æfingu og hef spilað sjö leiki á
þremur vikum. Það verður gaman
að mæta Guðna á Wembley,"
sagði Sigurður.
Guðni Bergsson hefur verið
fastamaður í liði Tottenham í
æfingaleikjum að undanförnu,
leikið í stöðu miðvarðar. „Ég er
vongóður um að fá að spila. Ann-
ars veit maður aldrei. Ég er alla-
vega í leikmannahópnum og er
að fara með liðinu inná á hótel í
dag,“ sagði Guðni í gær.
Ef Guðni og Sigurður fá að
leika í dag er það í fyrsta sinn
sem íslendingar leika með ensk-
um liðum á þessum gamalkunna
velli.
Stórsigur Skagamanna
SKAGAMENN eru á góðri leið
með að tryggja sér sæti í 1.
deild á næsta ári. í gærkvöldi .
unnu þeir Tindastólsmenn á
Sauðárkróki með sex mörkum
gegn engu og hafa nú 33 stig.
URSLIT
Knattspyrna
2. DEILD
Tindastóll - Akranes.........0:6
Alexander Högnason 3, Þórður Guðjónsson
2, Arnar Gunnlaugsson.
Grindavík - Haukar...........3:0
Arnar Bjamason (7.), Einar Daníelsson 2
(52. og 60.)
Selfoss - Þróttur R..........0:1
; Ingvar Ólafsson (9.)
ÍR-Fylkir....................3:1
Pétur Jónsson 2 (63., 88.), Tryggvi Gunn-
arsson (78.) - Finnur Kolbeinsson (20.
vítasp.)
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍA 13 11 0 2 42: 8 33
ÞÓR 12 8 1 3 28: 16 25
ÍBK 12 7 3 2 29: 10 24
ÍR 13 7 1 5 33: 23 22
ÞRÓTTUR 13 6 3 4 15: 14 21
GRINDAV. 13 6 2 5 20: 15 20
FYLKIR 13 3 5 5 16: 18 14
SELFOSS 13 4 2 7 21: 26 14
HAUKAR 13 1 2 10 11: 45 5
TINDAST. 13 1 1 11 12: 52 4
Markahæstir
Amar Gunnlaugsson, IA............11
Tryggvi Gunnarsson, ÍR............10
Halldór Áskelsson, Þór........... 9
EinarDaníelsson, UMFG..............9
Þórður Guðjónsson, ÍA..............9
Júlíus Tryggvason, Þór...........9/6
3. DEILD
Dalvík-Bf...................... 1:2
Ágúst Sigurðsson - Ámundi Sigmundsson,
Stefán Tryggvason
Reynir Á. - Völsungur............0:0
Skallagrímur - KS...............1:1
Finnur Thorlacíus - Hafþór Kolbeinsson
Fj. leikja U J T Mörk Stig
LEIFTUR 12 8 2 2 31:11 26
DALVÍK 13 7 3 3 27: 19 24
SKALLAGR. 13 6 4 3 32: 30 22
Bí 13 6 3 4 20: 13 21
VÖLSUNGUR13 4 5 4 13: 19 17
ÞRÓTTUR N. 12 3 5 4 22: 20 14
ÍK 12 3 5 4 20: 23 14
REYNIRÁ. 13 3 3 7 18: 34 12
MAGNI 12 3 2 7 28: 36 11
KS 13 2 4 7 12: 18 10
4. DEILD
Leiknir R. - TBR................2:0
Jóhann Viðarsson og Róbert Magnússon
Austri - Leiknir................1:2
Siguijón Kristjánsson - Kári Jónsson, Ágúst
Sigurðsson
Einherji - Huginn...............6:2
Lýður Skarphéðinsson 2, Helgi Þórðarson,
Hallgrimur Guðmundsson, Björn Heiðar
Sigurbjömsson, Einar Björn Kristbergsson
- Halldór Ingi Róbertsson, Kristján Jónsson
V-Þýskaland
Wattenscheid - Bayer Leverkusen..3:0
Mönchengladbach - Duisburg......0:0
Hamburger - Dynamo Dresden......2:0
Frakkland
Marseille - París St. Germain...0:0
Körfuknattleikur
Undankeppni Evrópumóts unglingalands-
liða i Lissabon í Portúgal:
Portúgal - ísland.......60:73 (30:30)
Stigahæstu menn: Sigfús Gizurarson 13,
Jón B. Stefánsson 11, Bergur Eðvarðsson 9.
Skagamenn fengu óskabyijun
er þeir skoruðu strax á 3.
mínútu. Það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks var jafnræði með liðunum
og ekki mátti þá á
Björn milli sjá hvort liðið
Bjömsson var á toppnum.
skrífar Heimamenn áttu þá
nokkur færi, en
mistókst að skora.
Bæði lið byijuðu af miklum krafti
í síðari hálfleik. En á 60. mín. gerðu
gestirnir annað markið og þá var
ekki aftur snúið. Þeir bættu við fjór-
um mörkum til viðbótar. Vörn
heimamanna var slök á lokakaflan-
um og stóð varla steinn yflr steini.
Tindastólsliðið barðist vel framan
af, en átti við ofurefli að etja í
síðari hálfleik. Það virðist fátt sem
getur komið í veg fyrir að Tinda-
stóll leiki í 3. deild næsta keppn-
istímabil, liðið hefur fengið' á sig
13 mörk í tveimur síðustu leikjum.
Alexander Högnason var besti
leikmaður IA og eins var Luka
Kostic mjög öflugur í vörninni og
mataði samheija sína á góðum
sendingum. Dómari leiksins var
Gísli Guðmundsson og var hann
slakur.
Maður leiksins:
Alexander Högnason, ÍA.
ÍR nálgast
toppliðin
IRfærði sig nærtoppliðum 2.
deildarinnar með3:1 sigriá
Fylki f gærkvöldi í leik þar sem
Fylkir hafði frumkvæðið á miðj-
unni en ÍR-ingar voru grimmari
ívítateignum.
Fylkir náði fljótlega undirtökum
á miðjunni og náði forystunni
á 20. mínútu. Lúðvíki Bragasyni
var brugðið innan vítateigs og Finn-
ur Kolbeinsson skor-
Frosti aði af öruggi úr
spyrnunni. ÍR komst
meira inn í leikinn
eftir markið en
Fylkir hafði sem fyrr undirtökin í
tíðindalitlum hálfleik. I síðari hálf-
leiknum dró til tíðinda og eftir átján
mínútna Ieik kom jöfnunarmarkið.
Pétur Jónsson tók knöttinn við-
stöðulaust á lofti utarlega í víta-
BIKARKEPPNI FRI
Eiðsson
skrifar
teignum hægra megin og skaut
föstu skoti í íjærhornið. Tryggvi
Gunnarsson, markaskorarinn mikli
sem var á varamannabekk Breið-
holtliðsins vegna meiðsla í ökkla,
kom stuttu síðar inná sem varamað-
ur og það tók hann aðeins nokkrar
mínútur að komast á blað. Tryggvi
skoraði með skoti sem fór í Indriða
Pálsson varnarmann Fylkis og í
netið. Pétur átti síðan síðasta orðið
þegar boltinn fór af honum og í
markið á 88. mínútu eftir „tækl-
ingu“ við markteig Fylkis.
Jón Þór Eyjólfsson og Pétur Jóns-
son voru bestu menn IR í leiknum
en þeir Finnur Kolbeinsson, Indriði
Pálsson og Kristinn Tómasson voru
bestu hjá Fylki.
Maður leiksins:
Pétur Jónsson, ÍR.
Alexander Högnason skoraði þijú
mörk fyrir Skagamenn.
Þróttarar
sigruðu
á Selfossi
Þróttarar sigruðu Selfoss með
einu marki gegn engu á Selfo^^
velli í leik sem einkenndist af hröðum
sóknum af beggja hálfu. Þrátt fyrir
mörg góð færi náðu
Sigurður Selfyssingar ekki að
Jónsson jafna en urðu að
skrifar sætta sig við tap.
Þróttarar skoruðu
fyrsta markið á níundu mínútu eftir
mistök hjá varnarmönnum Selfoss.
Það var Ingvar Ólafsson sem fékk
boltann á auðum sjó og skoraði með
skoti nokkuð utan vítateigs.
Selfyssingar sóttu mun meira allan
fyrri hálfleik og áttu hvert herið^rr'
öðru og jöfnunarmark lá í loftinu það
sem eftir lifði af hálfleiknum. Tvisvar
sinnum voru sóknarmenn Selfoss
komnir einir innfyrir en tókst ekki.
að skora.
Síðari hálfleikur var niarkalaus en
ieikurinn mjög opinn og allt gat
gerst. Selfyssingar sóttu af miklu
kappi undir lok leiksins en varnar-
menn Þróttar voru vel á verði.
Það sem mesta athygli vakti í
leiknum voru hinar löngu skógarferð-
ir Antons Hartmannssonar, mar-
kvarðar Selfoss, sem stundum fór
allt fram undir miðju á móti sóknar-
mönnum Þróttar þegar sókn Selfoss
var.sem þyngst í seinni hálfleik.
Maður leiksins:
Sævar Sverrisson, Selfossi.
Blautur leikur
Leikur Grindvíkinga og Hauka
bauð ekki upp á burðuga knatt-
spyrnu og í seinni hálfleik setti mikil
rigning og rok mark sitt á leikinn.
Heimamenn sigruðu
Frímann með þremur mörkum
Útafsson gegn engu. Amar
skrifar Bjarnason skoraði
fyrsta markið fyrir
Grindvíkinga beint úr aukaspyrnu á
7. mínútu og kom markið eins og
köld vatnsgusa framan í Hauka sem
höfðu byijað ágætlega í leiknum.
Einar Daníelsson kom heimamönn-
um í 2:0 á 52. mínútu með skoti úr
vítateig og hann gerði endanlega út
um leikinn á 60. mínútu með góðu
marki eftir sendingu frá Hjálmari
Hallgrímssyni. \
Maður leiksins:
Þorsteinn Bjamason, UMFG.
lfÆtlum að veija titilinn
U
segir Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri Héraðssambands Skarphéðins
BIKARKEPPNI FRÍ, 1. og 2.
deild, fer fram á Varmárvelli í
Mosfellsbæ um helgina.
Keppni í 3. deild fer fram á
Akureyri. Keppni hefst báða
dagana kl. 14. HSK er núver-
andi bikarmeistari FRÍ og er
talið að keppnin komi til með
að standa nú milli HSK og FH,
sem varð í öðru sæti í fyrra.
II. deild keppa HSK, FH,
UMSE, ÍR, KR og Ármann. HSK
hlaut 154 stig í fyrra, FH varð í
Öðru sæti með 143, ÍR í þriðja með
142 og UMSE í 4. sæti með 128.
Þá féllu UMSS og UMSK í 2. deild,
en sæti þeirra tóku KR og Ármann.
Engilbert Olgeirsson, fram-
kvæmdastjóri HSK, sagði í samtali
við Morgunblaðið að Iiðsmenn HSK
væru ákveðnir í að veija titilinn.
„Við teflum fram svipuðu liði og í
fyrra og stefnum að sjálfsögðu. á
sigur eins og reyndar alltaf. Ég
reikna með að keppnin komi til með
að standa milli okkar og FH og hún
verður tvísýn. Úrslitin gætu ráðist
í boðhlaupunum. Við höfum haft
gott klapplið með okkur undanfarin
ár og vonandi verður engin breyting
á því núna,“ sagði Engilbert.
Sigurður Haraldsson, þjálfari
FH, sagði að FH og HSK myndu
beijast um sigurinn og væru þau í
nokkrum sérflokki. „Við erum með
sterkara lið en í fyrra og ætlum
okkur sigur. Ég hef þó trú á því
að úrslitin ráðist ekki fyrr en í
síðustu grein,“ sagði Sigurður.
Keppni í 2. deild fer fram
samtímis keppni í 1. deild. Þar eig-
ast við UMSS, USAH, UMS«Í
HSÞ, UMSB og UDN. Ljóst er að
þar verður um harða keppni að
ræða, en tvö efstu félögin fara upp
í 1. deild en tvö neðstu falla niður
í 3. deild.
í 3. deild, sem fram fer á Akur-
eyri, keppa aðeins þijú lið; HSH,
UFA og USÚ. Keppni þar hefst i^.
13 í dag og verður framhaldið ki.
12 á sunnudag.