Morgunblaðið - 10.08.1991, Page 40
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
i'
Tíu athuga-
semdir vegna
aðalskipulags
’Reykjavíkur
FRESTUR til að gera athuga-
semdir vegna endurskoðaðs
aðalskipulags Reykjavíkur-
borgar rann út nú í vikunni.
Síðdegis í gær höfðu Borgar-
skipulagi borist 10 athuga-
semdir, flestar vegna umferð-
ar- og gatnamála.
Bjarni Reynarsson, arkítekt hjá
Borgarskipulagi, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að tíu
athugasemdir hefðu borist stofn-
uninni vegna aðalskipulagsins.
Aðallega væri verið að gera at-
^hugasemdir við gatnakerfi borgar-
innar, þótt aðrir þættir skipulags-
mála hafi einnig verið nefndir.
Meðal athugasemdanna hafi til
dæmis verið athugasemd frá sam-
tökunum Líf í Fossvogsdal um
framtíð dalsins og frá Kópavogsbæ
um ýmis mál.
Bjarni segir að kynning á aðal-
skipulaginu hafi staðið yfir í 6 vik-
ur og að því loknu hafi gefist
tveggja vikna frestur til að skila
kinn athugasemdum. Um 200
manns hafi komið í húsnæði Borg-
arskipulags til að skoða sýningu á
skipulaginu og auk þess hafi það
verið kynnt á tveimur borgara-
fundum.
Skaut sig í lær-
ið við slátrun
Selfossi.
SLÁTRARI hjá Sláturfélagi
Suðurlands á Selfossi skaut sig
í lærið í gærmorgun er hann
var að aflífa kálf.
r
Slátrarinn var með kálfinn við
hlið sér og um leið og hann hleypti
af byssunni rykkti- kálfurinn til
hausnum og byssan hrökk yfir á
lærið á slátraranum. Hann fékk
tveggja sentimetra djúpt sár á
lærið eftir fleininn sem skýst út
úr byssunni þegar skotið er, en
hann er 6 sentímetra langur. Gert
var að sári slátrarans á Sjúkrahúsi
Suðurlands á meðan starfsfélagar
hans gengu frá kálfinum.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Bjami
Unnið að fræðslumynd um sjóslys
Undanfarið hafa tökur staðið yfir á nýrri fræðslumynd um sjóslys
af völdum kulda sem sýnd verður í Sjónvarpinu bráðlega. Þar eru í
fyrsta sinn sviðsett nokkrar af algengustu slysaaðstæðum. í gær fylgd-
ist Morgunblaðið með sviðsettu slysi þar sem maður fer fyrir borð
með trollinu eins og stundum hendir á sjó. Á myndinni sést kvikmynda-
tökumaður í bát frá Slysavarnarfélaginu í óða önn að festa „slysið“
á filmu.
Sjá frétt á bls. 4.
Norrænt þing um umferðarlækningar:
Fyrsta hjálp skiptir sköpum
fyrir þá sem fá hjartastopp
Akureyri. Frá Margréti Þóru Þórsdóttur,
ÞAÐ GETUR skipt sköpum að
kunna skil á skyndihjálp, það
sannar könnun sem gerð var á
afdrifum fólks sem fékk hjarta-
stopp í Reykjavík á árunum 1982
til 1986. Lífslíkur fólks sem fékk
fyrstu hjálp frá vegfaranda eða
öðrum er atviksins varð var áður
en sjúkrabifreið kom á vettvang
blaóamanni Morgunblaðsins.
voru mun meiri en þeirra sem
enga slíka hjálp fengu. Þetta kom
fram í erindi sem Gríma Huld
Blængsdóttir læknir flutti í gær á
sjötta norræna þinginu um um-
ferðarlækningar á Akureyri.
Á þinginu kom einnig fram að
höfuð- og andlitsáverkum eftir um-
ferðarslys hefur fækkað nokkuð
síðustu ár, eða eftir að notkun
bílbelta jókst. Á tímabilinu 1974 til
1990 hlutu 6.800 manns slíka áverka
eftir umferðarslys í Reykjavík og
tæplega 1.600 voru lögð inn á sjúka-
hús, eða um 90 á ári að meðaltali.
Algengast er að karlmenn hljóti slíka
áverka og stærsti hluti þeirra sem
höfuð- og andlitsáverka fengu voru
Náttúruverndarráð afturkallar
rannsóknaleyfi Landsvirkjunar
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur afturkallað leyfi til Landsvirkjunar
til rannsókna á friðlýstu svæði á hálendinu og verður haldinn fund-
ur þessara aðila um málið á mánudaginn. Landverðir Náttúruvernd-
arráðs á Norð-Austurlandi héldu sérstakan fund i Hrossaborg á
Mývatnsöræfum í gær og mótmæltu leyfinu og fóru fram á fund
með formanni og framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs um sam-
skipti þeirra og landvarða og trúnaðarbrest þar i milli.
Þóroddur F. Þóroddsson, fram- eftir enn frekari leyfum og þá
kvæmdastjóri Náttúruverndarráðs,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að síðastliðinn fímmtu-
dagsmorgun hefði Landsvirkjun
verið veitt leyfi til rannsókna á við-
kvæmum gróðursvæðum á hálend-
inu vegna fyrirhugaðrar lagningar
Fljótsdalslínu. Síðar um daginn
hefði komið í ljós í símtali við full-
trúa Landsvirkjunar að þeir óskuðu
meðal annars að flytja hús á tiltek-
inn stað. Þá hefði verið óskað eftir
nánari upplýsingum um hvað
Landsvirkjun fyrirhugaði að gera,
og síðan ákveðið að afturkalla áður
veitt leyfi. Þóroddur sagði að land-
verðirnir hefðu að vissu marki mis-
skilið stöðu málsins, þar sem búið
hefði verið að afturkalla leyfið þeg-
ar þeir héldu fund sinn í gær og
þeim hefði átt að vera það kunn-
ugt. Aðspurður hvort trúnaðar-
brestur væri milli formanns og
framkvæmdastjóra Náttúruvernd-
arráðs annars vegar og landvarð-
anna hins vegar sagði Þóroddur
að farið hefði verið fram á skýring-
ar á yfirlýsingum landvarðanna þar
að lútandi.
Sólveig Jónsdóttir landvörður
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það væri rangt, að landverðir
hefðu vitað að leyfíð hefði verið
afturkallað þegar fundurinn var
haldinn í gær.
í samþykkt landvarðanna er
mótmælt „þeirri ákvörðun fram-
kvæmdastjóra og formanns Nátt-
úruverndarráðs að leyfa utanvega-
akstur og jarðrask á friðlýstu
landi“. Sólveig sagði að þetta mál
með Landsvirkjun hefði bara verið
kornið sem fyllti mælinn. Alvarleg-
ir samskiptaörðugleikar væru milli
landvarða og yfirmanna þeirra.
„Við landverðir höfum orðið að
þola margt frá þessum mönnum
undanfarin ár,“ sagði Sólveig.
Þorgeir Andrésson frá Lands-
virkjun sagði ljóst að ef drægist
mjög úr hömlu að Landsvirkjun
fengi þetta leyfi gæti það haft veru-
leg áhrif á framkvæmdir á svæð-
inu.
ökumenn bifreiða. Þetta er m.a. nið-
urstaða rannsóknar Kristins Guð-
mundssonar yfirlæknis.
I erindi Gunnars Þórs Jónssonar
yfirlæknis á slysadeild Borgarspítal-
ans kom fram að 93 af hveijum 10
þúsund íbúum á höfuðborgarsvæðinu
geta búist við að slasast í umferðar-
slysum á hverju ári.
Fjöldi slasaðra í umferðinni í
Reykjavík er fimmfalt meiri en opin-
berar tölur gefa til kynna og segir
Gunnar hinar opinberu tölur ómark-
tækar. Fleiri konur en karlar slösuð-
ust í umferðinni í Reykjavík og hálsá-
verkar voru algengasti áverkinn er
menn hlutu í bifreiðaslysum, oftast
eftir aftanákeyrslur. Állstór hluti
þessara sjúklinga fer fram á slysa-
bætur vegna áverkanna, sem Gunnar
segir erfítt að greina og valdi í fæst-
um tilvikum vinnutapi.
Á þinginu voru flutt um 35 erindi
um umferðarslys á landi, sjó og lofti,
afleiðingar slysa, sjúkraflutninga og
björgunaraðgerðir. Þátttakendur
voru um 70 af öllum Norðurlöndun-
um. Forseti þingsins var Ólafur Ól-
afsson landlæknir, en hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að þingið
hefði tekist með ágætum og mikið
hefði verið rætt um fyrirbyggjandi
aðgerðir. Hann sagði það valda
mönnum þungum áhyggjum að á
íslandi væri hæst hlutfall dáinna og
slasaðra ungra ökumanna og vekti
það spurningar um hvort ökukennslu
hér á landi væri ábótavant.
Sjá einnig fréttir á bls. .3.