Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
Morgunblaðið/Siguröur Jónsson Tryggvi L. Skjaldarson Norður-Nýjabæ blandar
Pa.ll Guðbrandsson 1 Havarðarkoti. lyfi í úðunartank.
Kartöflubændur:
Myglu á kartöflugrös-
um eytt með lyfjaúðun
Bændur fengu sína mygluprófraun í fyrra
Selfossi.
KARTÖFLUBÆNDUR á Suðurlandi fylgjast vandlega með görðum
sínum vegna kartöflumyglu sem orðið hefur vart. Bændur eru
mun betur í stakk búnir að mæta myglunni en var í fyrra og eru
meira á varðbergi gagnvart henni núna. „Ef við sjáum að sveppur
er á ferð þá úðum við með varnarlyfi sem verkar á 2-3 dögum,“
sagði Páll Guðbrandsson í Hávarðarkoti í Þykkvabæ.
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum:
Ragnar komst í
úrslit í fímmgangi
Snúður haltur o g Tómas úr leik
A síðastliðnu hausti olli myglu-
sveppurinn mörgum bændum
verulegu tjóni. Nú hafa menn vitn-
eskju um það hvemig á að bregð-
ast við og hafa búið sig undir að
mæta myglunni með kaupum á
varnarlyfjum. Verði myglunnar
vart í þeim mæli að hún sé farin
að skemma grasið þá er úðað með
lyfi sem drepur það niður.
Grasagarðurinn:
Ekkert hefur verið tekið upp
úr görðum þar sem myglu hefur
orðið vart en í fyrrahaust voru
bændur grandalausir fyrir mygl-
unni og tóku upp kartöflurnar með
myglusveppinn á grasinu þannig
að þær smituðust og skemmdust
síðan eftir nokkum tíma í
geymslu.
Páll Guðbrandsson sagði að það
væri ótrúlega víða sem myglunnar
hefði orðið vart, hún virtist vera
allstaðar. Það var í kringum versl-
unarmannahelgina sem menn urðu
fyrst varir við mygluna í Villinga-
holtshreppi og skömmu síðar í
Þykkvabænum.
„Menn hafa ekki stórkostlegar
áhyggjur af þessu,“ sagði Tryggvi
L. Skjaldarson í Norður-Nýjabæ.
„Þetta var mikil prófraun í fyrra,
bæði í görðunum og við geymslu
á kartöflunum en menn fylgjast
mjög vel með görðunum núna og
við vitum betur hvemig á að
bregðast við,“ sagði Tryggvi.
Erlendis þá er kartöflumygla
algengasti sjúkdómurinn í kartöfl-
um og reglubundið úðað gegn
honum. Myglan smitast mjög hratt
og er talið að ein kartafla geti
jafnvel smitað 10 ferkílómetra
svæði.
Sig. Jóns.
_________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
„Ég HAFÐI reiknað með að
hanga kannski inn í B-úrslitum
en svo þegar Tómas og Snúður
féllu út ákvað ég að fara
lengra,“ sagði Ragnar Hinriks-
son eftir að hann hafði hafnað
í öðru sæti á Gammi frá Ingveld-
arstöðum í forkeppni fimm-
gangs. Var hann með feikna
góða sýningu og kom þessi
árangur öllum á óvart og Ragn-
ari sjálfum mest.
Það var á föstudagskvöldið að
í Ijós kom að Snúður var orðinn
haltur og ekki keppnisfær. Var
þetta mikið áfall því Tómas var
okkar stærsta von og átti að sigra
fimmganginn. En maður kemur í
mannsstað og mun Ragnar fá hlut-
verk Tómasar. Efstur í fimmgangi
varð Carine Heller frá Þýskalandi
á Glaumi frá Sauðárkróki. Það er
sami hestur og Jón Pétur Ólafsson
var á er hann varð Evrópumeist-
ari í gæðingaskeiði í Danmörku á
síðasta móti. Hlaut hún 6,83 í ein:
kunn en Ragnar var með 6,57. í
þriðja sæti varð Eric Anderssen,
Noregi, á Mekki frá Varmalæk
Dómsmálaráðherra hefur
skipað Þröst Eyvinds lögreglu-
fulltrúa við almenna rannsókna-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Fimm rannsóknalögreglumenn
sóttu um stöðuna og mælti Böðvar
með 6,40. Ulf Lindgren, Svíþjóð,
varð fjórði á Hrafnkatli frá Sauð-
árkróki með 6,33 og Johannes
Hoyos, Austurríki, varð í fimmta
sæti með 6,20. Jón Pétur Ólafsson
varð í tólfta sæti á Byr frá Akur-
eyri með 5,60.
Gott veður var í gær, bjartviðri
með hlýindum en dálítil vindgjóla.
I dag fara fram úrslit í tölti fjór-
gangi og fimmgangi og verðlaun
kynbótahrossa verða afhent.
Metþátttaka í
maraþoninu
ÁTTUNDA Reykjavíkurmara-
þonið verður þreytt á götum
borgarinnar í dag og hefst kl.
12 á hádegi.
Ljóst er að þátttakendur verða
fleiri en nokkru sinni. Um hádegis-
bil í gær höfðu um 2.100 manns
skráð sig til keppni. 1.590 gerðu
það í fyrra en þá hlupu um 1.300
manns. Boðið er upp á þrjár vega-
lengdir, maraþon sem er rúmlega
42 kílómetrar, hálf-maraþon og
skemmtiskokk, sem eru 7 km.
Bragason, lögreglustjóri með því
að hún yrði veitt Reyni Kjartans-
syni.
Aðrir umsækjendur voru Hörð-
ur Jóhannesson, Þórður Hilmars-
son og Bertram Möller.
Þröstur Eyvinds skipaður lög-
reglufulltrúi í Reykjavík
30ára
afmæli
Grasagarðurinn í Laugardal
er 30 ára í dag. Hann var stofn-
aður á 175 ára afmæli
Reykjavíkurborgar 18. ágúst
1961.
Garðurinn var stofnaður með
200 plöntutegundum sem hjónin
Katrín Viðar og Jón Sigurðsson,
skólastjóri, gáfu Reykjavíkurborg
á afmælinu. Upphaflega landið
keypti borgin af Eiríki Hjartarsyni
í Laugardal 1955 en tólf árum
seinna var garðurinn stækkaður.
Nú eru í garðinum 4-5000
plöntutegundir þar af 400 íslensk-
ar og er garðurinn afar íjölsóttur
að sögn Jóhönnu Þormar, garð-
yrkjufræðings.
I fyrra var opnaður garðskáli i
Grasagarðinum auk þess sem
komið var á fót sýningarsvæði
fyrir tijákenndan gróður. Með
nýja sýningarsvæðinu stækkaði
garðurinn um helming.
Þrír fastir starfsmenn eru í
garðinum. Sigurður Albert Jóns-
son, sem hefur verið forstöðumað-
ur frá upphafí, Dóra Jakobsdóttir,
líffræðingur, og Jóhanna Þormar,
garðyrkjufræðingur. Þá vinnur
ungt fólk í garðinum á sumrinn.
Grasagarðurinn í Laugardal eru
formlega opinn frá 1. júní til 1.
október, alla daga milli klukkan
10 og 22, en fólk er velkomið
þangað allan ársins hring. Að-
gangur er ókeypis.
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
■
Byrjað að veiðast í Kálfá
„Ég var í Kálfánni í gær og við
fengum tvo laxa. Þetta eru fyrstu
laxarnir, enda fer nú í hönd hinn
hefðbundni veiðitími Kálfár, en
síðustu þijú árin höfum við verið
að fá þetta 100 til 120 laxa í henni
á tvær stangir frá 20. ágúst og
út tímabilið. Þetta er hrein síðsum-
arsá og laxinn er oft vænn,“ sagði
Vilhjálmur Garðarsson leigutaki
árinnar í samtali við Morgunblaðið
í gærdag. Kálfáin er í eðli sínu eins
og Stóra og Litla Laxá sem renna
um völlu skammt frá Kálfá, þ.e.a.s.
laxagöngur hefjast mjög seint á
veiðitíma. Er hún ein áin sem jafn-
an er nefnd er umræðan fer af
stað um meiri sveigjanleika í veið-
itíma einstakra áa. Vilhjálmur
sagði ennfremur, að á annað
hundrað silungar hefðu veiðst í
ánni til þessa, bæði urriði og
bleikja. Sumt af urriðanum væri
sjóbirtingur og nema að hefðin
brysti myndi sjóbirtingsveiði fara
vaxandi er á haustið liði. Þarna
væru til stórir sjóbirtingar, sjálfur
hefði hann veitt allt að 20 punda
físka, en þá hafi hann reyndar ver-
ið að næla sér í klakfisk eftir veið-
itíma.
Hér og þar
Við nefndum óstaðfesta tölu úr
Þverá og Kjarrá í blaðinu í gær.
Nú hefur það borist til eyrna að
veiðin þar sé enn meiri og heyrst
hefur að komnir séu miili 1.700
og 1.800 laxar á land. Er áin því
lang efst á landinu og með tölu-
vert forskot á næstu ár sem allar
eru með milli 1000 og 1.100 laxa.
Nýlega heyrðist sú fískisaga, að
fyrsta hollið eftir útlendingana í
Kjarrá hefði veitt milli 160 og 170
laxa! Og mikill lax væri um alla
á, eins og í öllum Borgarfjarðarán-
um.
í miðri síðustu viku höfðu veiðst
um 770 laxar í Grímsá og áin er
sögð full af laxi. Ef skilyrði verði
áfram góð ætti veiðin að fara vel
yfír 1000 laxa. Þetta er meiri veiði
úr ánni heldur en allt síðasta sum-
ar sem var reyndar afleitt.
Það hefur heyrst að um 90 laxar
séu komnir á land úr Andakílsá,
þar sé talsverður lax, en gamla
sagan margendurtekna frá þessu
sumri: Hann tekur illa.
Svínafossá á Skógarströnd hefur
gefíð 31 lax, þann stærsta 12
punda. Þetta er stutt á með aðeins
einni dagsstöng, en silungsstöng
sem veiðir í ósnum og ofan foss
sem er ólaxgengur hefur aflað 23
bleikjur og 350 urriða sem eru upp
í 4 pund.
Hörðudalsá hefur gefið 40 laxa
og 350 bleikjur. Laxinn er af bland-
Agæt silungsveiði hefur verið á Arnarvatnsheiði í sumar. Þessar
fallegu bleikjur veiddust í Stóralóni.
Morgunblaðið/gg
Kjartan Sveinsson og frú
Hrefna voru í Kjósinni fyrir
skömmu og fengu þá meðal
annars þessa fallegu veiði úr
Bugðunni.
aðri stærð, allt að 11 pund, en
bleikjurnar eru vænar, yfirleitt 2
til 3 pund. Slatti af laxi er í ánni,
en mikið af bleikju. Síðasta holl
hélt heim með 5 laxa og 19 bleikj-
ur. Þarna er veitt á tvær stangir.
Kiðafellsáin þar sem mávar
blotna ekki í fætumar þótt þeir
spóki sig í ánni samkvæmt veiðisér-
fræðingum DV, hefur gefið rúm-
lega 30 laxa. Á DV er það helst
að skilja að laxinn í Kiðafellsánni
andi með lungum því hún sé svo
vatnslítil að það vatni ekki yfir físk-
ana. Þröstur Elliðason leigutaki
árinnar sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í sandkorninu í DV á
dögunum hafi verið rætnar blekk-
ingar. Það vissu allir að áin væri
vatnslítil og ekki hefði áhugasöm-
um veiðimönnum verið sagt annað.
Til þess að auðvelda laxi dvöl í
ánni hefði hins vegar mikið verið
gert, t.d. ýtt upp görðum víða til
að tryggja laxinum djúpa hylji til
að liggja í. „Og í rigningartíð er
þetta ekki ómerkilegri sþræna en
Korpa,“ sagði Þröstur. Hann sagði
töluvert af fiski komið í ána og
miðað við það laxamagn sem
sveimaði inn í ósinn á hveiju flóði
mættu þeir eiga von á góðu sem
ættu þar leyfi næst er vöxtur hleyp-
ur í hana við rigningar. „„