Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 29
_____ MORGUNEÍLAÐIÐ ATV1I\II\IA/RAÐ/SMÁ sunnudagur-is. ágúst 1991_'_ ^VTVl MIIHWAÁ/GT ýsi^ig^ap Vantar eldri konu til að hugsa um okkur. Erum 9, 11 og 41 árs. Þarf að geta flutt til okkar. Upplýsingar á morgnana s. 642224. Kennara vantar Kennara vantar að Skólaseli á Króksfjarðar- nesi í Reykhólahreppi. Um er að ræða kennslu 6-9 ára barna (samkennsla). Einbýl- ishús og flutningsstyrkur í boði. Nánari upplýsingar í símum 93-47794 og 47786. Sveitarstjóri Reykhólahrepps. Annast silkiprentun, skiltagerð og bílmerkingar. Starfskraftur óskast Við óskum eftir að ráða starfsmann, helst vanan silkiprentun. Aðeins duglegur starfs- maður með framtíðarvinnu í huga kemur til greina. Vinnuvika hjá okkur er 35 stundir á viku og væntanlegur starfsmaður þarf að geta unnið aukavinnu þegar svo ber við. Upplýsingar sendist skriflega til Silkiprents hf., Vagnhöfða 14, 112 Reykjavík. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Kona óskast Kona óskast til starfa í raftækjaverslun í Austurbænum. Ekki yngri en 30 ára. Umsókn er greini aldur og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „K - 1026“. fyr- ir föstudaginn 23. ágúst nk. Gott fólk AUGLÝSINGASTOFA Gott fólk vantar fleira gott fólk Auglýsingastofan Gott fólk óskar eftir drífandi fólki til að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni. Auglýsingahönnuður Okkur vantar hugmyndaríkan vinnufélaga, sem hefur reynslu af auglýsingagerð og grafískri hönnun. Þarf að geta unnið sjálf- stætt. Reynsla í hönnun með Macintosh tölvu æskileg. Viðskiptafulltrúi Við leitum einnig að viðskiptafulltrúa til að sjá um samskipti milli auglýsingastofunnar og viðskiptavina, gerð markaðsáætlana og annast verkefnastjórnun. Þarf að vera hug- myndaríkur, geta sýnt frumkvæði og verið góður í mannlegum samskiptum. Reynsla æskileg. Bókari Óskum eftir bókara með reynslu í hálft starf til að annast fjárhagsbókhald o.fl. Þarf að geta hafið störf strax. Ef þú hefur áhuga á að prófa eitthvað nýtt og spennandi, sendu þá umsókn til auglýsinga- deildar Mbl., merkta: „Gott fólk - 3991“. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál. Iþróttakennarar íþróttakennara vantar að Þelamerkurskóla í Z/3 stöðu. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 96-26555. íþróttakennari Laus er staða íþróttakennara við framhalds- skólann í Austur-Skaftafellssýslu og Nesja- skóla í Hornafirði. Mjög gott tækifæri fyrir áhugasamt fólk. Nánari upplýsingar veita Zophonías Torfa- son, skólameistari, í síma 97-81176 eða Kristín Gísladóttir, skólastjóri, í síma 97-81443. Atvinnurekendur/starfsfóllc Ég vinnfyrirykkur Persónuleg ráðgjöf og ráðningarþjónusta. Teitur lÁRUSSON -4r STARFSMANNAÞJÓNUSTA hf. HAFNARSTRÆTI20, VIÐ LÆKJARTORG, 101 REYKJAVÍK, SÍMI624550. Kennarar Kennara vantar að Steinsstaðaskóla í Skaga- firði. Steinsstaðir eru 10 km (bundið slitlag) frá hringvegi, hitaveita á svæðinu og 2 km í næstu verslun. Sundlaug er við skólann. Nemendum, sem eru um 50, er ekið dag- lega. Hálfsdagsmötuneyti er í skólanum. Húsnæði fyrir kennara er í nýjum einbýlishús- um. Daggæsla. Ókeypis flutningur innan- lands er í boði. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma .95-38033, formaður skólanefndar í síma 95-38018, og oddviti í síma 95-38068 eða 95-38035. Rafmagnstækni- fræðingur Óskum eftir að ráða rafmagnstæknifræðing til starfa sem fyrst. Starfið er fólgið í eftirfarandi: 1. Að geta tekið-við hönnuðu og teiknuðu verkefni og annast efnisval og efnispant- anir erlendis frá sem innanlands. 2. Hafa innsýn yfir framleiðslu og tilboðs- verk og sjá um alla efnisútvegun. 3. Hafa yfirstjórn með birgðakerfi og öllu lagerhaldi fyrirtækisins. 4. Hafa eftirlit með vörugæðum. 5. Hafa umsjón með afgreiðslu og pökkun framleiðsluvara. 6. Þátttaka í vöruþróun og hönnun. Nánari upplýsingar um starfið verða veittar á skrifstofu Rafboða hf., Skeiðarási 3, 210 Garðabæ. Umsóknir er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, berist fyrir 24. ágúst 1991. MSaFBOOÍ % Skeiðarási 3, 210 Garðabæ. Sími 52537, fax 652150. Grunnskólinn á ísafirði Kennarar Enn eru lausar nokkrar kennarastöður við Grunnskólann á ísafirði. Meðal kennslu- greina: Tónmennt, raungreinar, sérkennsla, kennsla í 2. bekk, tölvukennsla. Upplýsingar veitir skólastjóri í símum 94-3044, 94-3146 (skólinn) og 94-4649 (heima). Skólastjóri. Launadeild Opinber aðili í austurborginni óskar að ráða starfskraft til almennra starfa í launadeild. Starfið er laust strax. Viðkomandi þarf að vera töluglöggur og nákvæmur og hafa góða framkomu. Laun samkv. samningum opinberra starfs- manna. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 22. ágúst nk. Gl JDNT TÓNSSON RÁF> C | ö r ö RÁÐ N I N L.A R f | O N II STA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22 Húsvörður Þjónustuíbúðir aldraðra, Hraunbæ 103, Reykjavík óska að ráða húsvörð til starfa sem fyrst. Starfið felst m.a. í almennu eftirliti, sjá um þrif, fylgjast með öryggiskerfi og skyld störf. Leitað er að reglusömum og laghentum starfs- manni (helst hjón) á aldrinum 45-55 ára. 67 fm íbúð fylgir starfinu. Laun samningsatriði. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðu- blöð fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, og skal umsóknum skilað þangað fyrir 22. ágúst. GudntTónsson RÁÐCJÓF & RÁÐN I NCARÞIÓN USTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 REYKJALUNDUR Viljum ráða starfsfólk til starfa í eftirfarandi deildum Reykjalundar: Hjúkrunardeildir Lausar eru tvær hlutastöður hjúkrunarfræð- inga. Ennfremur vantar tvo hjúkrunarfræðinga á fastar næturvaktir. Athugið að næturvaktir eru greiddar með sérstökum álagsgreiðslum. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 666200. Heilsugæslustöð Mosfellslæknisumdæmis Viljum ráða hjúkrunarfræðing til starfa sem fyrst. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á heilsu- gæslustöðinni í síma 666100. Iðjuþjálfunardeild Iðjuþjálfa vantar á iðjuþjálfunardeild Reykja- lundar frá 1. september nk. Möguleiki á barnaheimilisplássi á barnaheimili á staðnum. Upplýsingargefur Ingibjörg Pétursdóttir, yfir- iðjuþjálfi, í síma 666200-102. Iðnaðardeildir Við leitum að starfsmönnum til vélgæslu í\ röra- og filmudeild. Unnið er á þrískiptum vöktum. Upplýsingar veitir Gunnar Þórðarson, fram- leiðslustjóri, í síma 666200-150.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.