Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991 WIÆKWÞAUGL YSINGAR ÝMISLEGT Hugmyndasamkeppni Búnaðarbanki íslands efnir til hugmynda- samkeppni um útlit og skipulag afgreiðslu- sala í útibúum bankans í samvinnu við Arki- tektafélag íslands. Þar sem þróun í bankamálum hefur verið talsverð nú á síðastliðnum áratug hefur það leitt til þess að afgreiðsluhættir breytast stöðugt. Á næstu árum er því fyrirsjáanlegt að endurnýja þarf afgreiðslusali bankans með tilliti til nýrra tíma. Viðfangsefni þessarar samkeppni er því að leita nýrra hugmynda að yfirbragði af- greiðslusala Búnaðarbankans, sem gæti endurspeglað þá reisn og það vandaða yfir- bragð, sem aðalbygging bankans í Austur- stræti 5 hefur. Heimild til þátttöku hafa félagar Arkitekta- félags íslands og félagar í Félagi hús- gagna- og innanhússarkitekta. Keppnislýs- ing liggur frammi hjá Arkitektafélagi íslands, Freyjugötu 41, en önnur keppnisgögn fást hjá trúnaðarmanni keppninnar, Guðlaugi Gauta Jónssyni, arkitekt, vs. 622324, hs. 20789, og skal skila tillögum til hans eigi síðar en 5. nóvember nk. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Verkfræðingar - tæknifræðingar Af sérstökum ástæðum leitar rótgróin arki- tektastofa eftir samstarfsaðila á tæknisviði. í boði er leiga eða sala á hluta af skemmti- legu húsnæði með sameiginlegri móttöku, fundarherberi o.fl. Einnig eru til staðar jaðar- tæki td. prentarar, plotter o.fl. sem tengd eru tölvuneti. Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu í hönnun burðarvirkis og lagna. Umsóknum ásamt meðmælum skilist til aug- lýsingadeildar Mbl. fyrir 23. ágúst nk. merkt- um: „Tölvuvæðing - 9506“. TIIKYNNINGAR Hafnarfjörður Einarsreitur - breytt aðalskipulag Samkvæmt ákvörðun skipulagsstjórnar ríkis- ins með vísan til 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1986 er lýst eftir athugasemdum við tillögu skipulagsdeildar Hafnarfjarðarbæjar dags. 21.06 ’91 að breytingu á staðfestu aðalskipulagi, frá 8.12. ’82, á Einarsreit í Hafnarfirði, milli Reykjavíkurvegar, Arnar- hrauns, Smyrlahrauns og Álfaskeiðs. Breytingin felur í sér, að í stað blandaðrar byggðar íbúða- og þjónustubygginga ásamt opnu grænu svæði, komi hrein íbúðabyggð, dagvistarstofnun og opið svæði stækkar og færist til. Tillagan liggurframmi á skipulagsdeild Hafn- arfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði, frá 16. ágúst 1991 til 27. september 1991. Athugasemdum við tillöguna skal skila til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 11. október 1991. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna innan tilskilins frests, telj- ast samþykkir henni. Hafnarfirði, 8. ágúst 1991. Skipulagsstjóri ríkisins. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. iiiiiuii siwi'iniii (IIIIIÍI!!! metiiim Líffræðinemar athugið! Vegna haustprófa verður grasafræðihluta sumarnámskeiðs í líffræði, sem vera átti vik- una 19.-23. ágúst, frestað og það haldið fyrstu helgar haustmisseris. Hafnarfjörður Hólshraun - breytt aðalskipulag Samkvæmt ákvörðun skipulagsstjórnar ríkis- ins með vísan til 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/196J9 er lýst eftir athugasemdum við tillögu skipulagsdeildar Hafnarfjarðarbæjar dags. 21.06. ’91 að breytingu á staðfestu aðalskipulagi frá 8.12. '82 við Hólshraun í Hafnarfirði. Tillaga er gerð um að fella niður tengingu Hólshrauns við fyrirhugaða tengibraut norð- an svæðisins og að breyta landnotkun úr verslun og þjónustu í þjónustu-, verslunar- og iðnaðarsvæði. Tillagan liggurframmi á skipulagsdeild Hafn- arfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði, frá 16. ágúst 1991 til 27. september 1991. Athugasemdum við tillöguna skal skila til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 11. október 1991. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna innan tilskilins frests, telj- ast samþykkir henni. Hafnarfirði, 8. ágúst 1991. Skipulagsstjóri ríkisins. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. ÞJÓNUSTA Þjónusta á Norðurlöndum Við flytjum erindi á öllum Norðurlöndunum fyrir íslensk fyrirtæki og einstaklinga. Við öflum upplýsinga og önnumst kaup og sölu á m.a. tækjum, véium og varahlutum, notuð- um sem nýjum. Vanti þig eða fyrirtæki þitt upplýsingar eða aðstoð, þá hikaðu ekki við að hafa samband. D.P. Service H.B., Kattebacksvagen 4, 231-66 Trelleborg, Sverige, Fax: (0410) 15877. Bókhald Ertu á eftir með bókhaldið? Vantar þig að- stoð? Ertu tilbúin(n) að láta vinna það síðdeg- is og/eða um helgar? Ef svo er, er til boða eigin tölva, eða vinna það á staðnum. Góð og áreiðanleg þjónusta. Þeir, sem hafa áhuga, sendi nafn og heimilis- fang til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Bókhald - 1307“. ATVINNUHÚSNÆÐI Atvinnuhúsnæði til leigu Til leigu er 55-80 fm atvinnuhúsnæði á jarð- hæð í verslunar- og skrifstofuhúsnæði okkar á Skúlagötu 63. Stórir götugluggar. Laust fljótlega. Upplýsingar í síma 618560. G.J. FOSSBERG, vélaverslun hf., Skúlagötu 63. Iðnaðarhúsnæði til leigu 250 m2 húsnæði við Smiðjuveg í Kópavogi er til leigu. Upplýsingar í síma 687862. ÓSKAST KEYPT Fyrirtæki með skattalegt tap Fyrir hönd umbjóðanda okkar óskum við eft- ir að kaupa heildsölu, smásölu eða annan verslunarrekstur í hlutafélagsformi með yfir- færanlegt, skattalegt tap. Þeir, sem áhuga kunna að hafa, eru beðnir um að hafa sam- band við skrifstofu undirritaðs fyrir 24. ágúst. JónasA. Aðalsteinsson, hrl., Lögmannsstofan Lágmúla 7, sími 91-812622. Heildsala með nauðsynjavöru Höfum mjög fjársterkan umbjóðanda, sem óskar eftir að kaupa innflutningsfyrirtæki, heildsölu eða umboðsfyrirtæki, sem versla með matvöru og/eða annan nauðsynjavarning. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu und- irritaðs fyrir 24. ágúst. Jónas A. Aðalsteinsson, hrl., Lögmannsstofan Lágmúla 7, sími 91-812622. BÁTAR-SKIP Fiskiskip Höfum til sölu 185 rúmlesta stálskip með 1000 hestfla Wartsila aðlalvél. Skipið selst án aflaveiðiheimilda. SKIPASALA- SKIPALEIG A, JÓNAS HARALDSSOK LÖGFR. SÍMI: 29500 Fiskiskiptil sölu 10 tonna enskur plastbátur, kvóti 56 tonn. 9,5 tonna Agva Star plast, kvóti 80 tonn. 9,5 tonna stálbátur, kvóti 80 tonn. 17 tonna frambyggður eikarbátur, kvótalaus. 9 tonna yfirbyggður plastbátur, kvótalaus. 9,9 tonna yfirbyggður stálbátur, kvótalaus. 9,9 tonna Gáski 1000, kvótalaus. 15 tonna plastbátur, kvótalaus. 9 tonna Bátalónsbátur, tré, kvótalaus. Ýmis skipti. Önnumst sölu á öllum stærðum fiskiskipa, einnig kvótamiðlun. Skipasalan Bátar og búnaður, Tryggvagötu 4, sími 622554. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Landsfundur Landsfundur Þjóðarflokksins verður haldinn á Laugarbakka í Miðfirði 23.-25. ágúst. Mæting á föstudag kl. 20.00-22.00. Fundarslit á sunnudag kl. 17.00. Gisting á Hótel Eddu, Laugarbakka. Allir stuðningsmenn eru velkomnir á fundinn. Nánari upplýsingar á flokksskrifstofunni í síma 96-11424. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.