Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 24
JMfógmtMtifcifr ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVINNUAUGÍ YSINGA Sendill óskast Heilsuhraustur, sporléttur unglingur óskast allan daginn í vetur á bókhald Morgunblaðsins. Upplýsingar ekki í síma. Bílamálarar Óskum eftir að ráða bílamálara frá 1. sept. Nánari upplýsingar í síma 685898. Verkstjóri í sal Fiskiðja Sauðárkróks hf. óskar eftir að ráða salarverkstjóra frá 1. september 1991. Umsókharfrestur er til 1. september. Upplýsingar gefnar í síma 95-35207. íþróttakennari óskast til starfa við grunnskóla Raufarhafnar. Auk íþróttakennslu er gert ráð fyrir hús- vörslu í félagsheimilinu og umsjón með æskulýðsstarfi. Góð laun og húsnæði í boði. Upplýsingar gefur Líney Helgadóttir í síma 96-51225. Fræðslufulltrúi Jafnréttisráðs Laus er til umsóknar staða fræðslufulltrúa Jafnréttisráðs. Starfið felur í sér ritstjórn fréttabréfsins Vogarinnar og almenna fræðslu á vegum ráðsins. Um er að ræða tímabundna ráðningu til sex mánaða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Hlutastarf kemurtil greina. Háskólamenntun áskilin. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Jafnréttisráði, pósthólf 996, Reykjavík, fyrir 1. september nk. í samræmi við ákvæði laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, eru karlar jafnt sem konur, hvattir til að sækja um. Heilsugæslustöðin, Húsavík óskar að ráða hjúkrunarforstjóra til afleys- inga í 1 ár frá. 1. september '91, Einnig er laus staða hjúkrunarfræðings til afleysinga í 1 árfrá 1. október '91 við heilsu- gæslustöðina í Mývatnssveit. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum 96-41333 og 96-41855. Heilsugæslustöðin, Húsavík. Flakari Vanan flakara vantar í hálfsdagsstarf til að byrja með. Góð laun (samningsatriði). Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. september, merktar: „F - 12206“. Matreiðslumaður óskar eftir framtíðarstarfi Umsjón og rekstur mötuneytis. Önnur störf koma einnig til greina, þó helst ekki vaktir. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „M - 140“. Fiskvinnslufólk Vant fiskvinnslufólk vantar til starfa í frysti- hús Fiskiðjunnar Dvergasteins hf., Seyðis- firði. Hafið samband við framkvæmdastjóra í síma 97-21400. Listasafn íslands Ræstitæknir Starf ræstitæknis við Listasafn íslands er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um starfs- reynslu sendist Listasafninu í pósthólf 668, 121 Reykjavíkfyrir23. ágúst næstkomandi. Bessastaðahreppur Fóstrur Krakkakot er leikskóli í Bessastaðahreppi á Álftanesi, sem starfað hefur í eitt ár í nýju húsnæði. Okkúr vantar leikskólastjóra og fóstru sem fyrst. Upplýsingar gefur Sigurður Valur, sveitar- stjóri, í síma 653130 og Erla Thomsen, leik- skólastjóri, í síma 651388. Bókhald - fjármál Vaxandi innflutnings- og verslunarfyrirtæki, sem selur húsgögn, vantar starfsmann í heilsdagsstarf til að sjá um bókhald og dag- leg fjármál fyrirtækisins. Starfið býður upp á sjálfstæði og ábyrgð, góða vinnuaðstöðu og sanngjörn laun. Nauðsynlegt er að umsækj- endur hafi reynslu af svipuðu starfi, séu sam- viskusamir, geti unnið sjálfstætt, hafi hald- góða menntun og geti vísað á góð meðmæli. Þeir, sem uppfylla ofangreind skilyrði, eru vinsamlega beðnir um að skila eiginhandar- umsóknum til auglýsingadeildar Mbl. fyrir kl. 17.00 fimmtudaginn 22. ágúst, merktum: „Sem fyrst - 3989“. RAFSÓL. Rafvirkjar Okkur vantar rafvirkja til framtíðarstarfa. Þarf að geta byrjað sem allra fyrst. Aðeins vanir menn, sem geta unnið sjálfstaétt, koma til greina. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir24. ágúst merktar: „Reyklaus- 14014“. LANDSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar athugið! „5 daga deild“ Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækninga- deild 11B sem er 21 sjúkrarúma deild, sem lokuð er um helgar. Um fullt starf eða hlutastarf getur verið að ræða. Ýmiskonar vaktafyrirkomulag kemur til greina. Mikið fræðslustarf er í gangi á deildinni. Einstaklingshæfð aðlögun er í boði. Umsóknarfrestur er til 1. september nk. Upplýsingar gefur Anna Lilja Gunnarsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 601290 og 601300. Barnaspítali Hringsins Hjúkrunarfræðingar! Tvær stöður aðstoðardeildarstjóra eru lausar til umsóknar nú þegar. Á barnadeild 3, 13E. Deildin er handlækningadeild fyrir 13 börn á aldrinum 21/2árs til 16 ára. Á barnadeild 4, 13E. Deildin er ungbarna- deild fyrir 12 börn. Ný uppgerðar deildir og þægileg vinnuaðstaða. Góður aðlögunartími með reyndum hjúkrunarfræðingi. Unnin er 3ja hver helgi. Ráðningartími fyrir báðar stöð- urnar er til 31. júlí 1992. Upplýsingar gefur Agnes Jóhannesdóttir, sími 601035, Rannveig Björnsdóttir, sími 601030 og Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri, sími 601033 eða 601300. Rannsóknarstarf Líffræðingur - meinatæknir Líffræðingur eða meinatæknir óskast um óákveðinn tíma. Reynsla af sameindalíffræði æskileg; ellegar í boði þjálfun á því sviði. Viðfangsefni eru rannsóknir á krabbameini. Upplýsingar gefa Valgarður Egilsson og Sig- urður Ingvarsson, Rannsóknarstofu Háskól- ans í meinafræði (frumulíffræðideild) sími 601905 og 601906.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.