Morgunblaðið - 18.08.1991, Page 11
ÖRKIN/SÍA 1013-40
MORGUNBLAÐtÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
^ll
ÓDÝRA LEIQUFLGQIÐ OKKAR
OPNAR ÞÉR ÓTAL FERÐALEIÐIR
Kr. 18.900
Alla miðvikudaga kl. 17:00
(Endanlegt staðgreiðsluverð án
flugvallargjalds og forfallatryggingar)
Kaopmannahöfn
Alla miðvikudaga og föstudaga kl. 08:00
(Endanlegt staðgreiðsluverð án
flugvallargjalds og forfallatryggingar)
Kr. 19.750
Hægt er að velja um fjölmörg hótel, mismunandi bílaleigubíla og framhaldsferðir á sérkjörum okkar með 20 - 50% afslætti.
Ódýra leiguflugið okkar í sumar hefur notið gífurlegra vinsælda og nú þegar hafa um 7000 ferðalangar notfært sér það.
Takmarkaður sætafjöldi eftir í nokkrum septemberferðum. Nú fer hver að verða síðastur að nýta sér lágu fargjöldin okkar til London
og Kaupmannahafnar, áður en samkeppni okkar linnir og almenn fargjöld hækka á ný.
/ / /
SKEMMTILEGAR OG 0DYRAR SIÐSOMARSFERÐIR
Kaupmannahöfn og Rínarlönd
28. ágúst - 15 dagar
Dvalið í kóngsins Kaupmannahöfn og farið í 7 daga rútuferð til Rinarlanda,
þar sem dvalið verður í 5 daga í glaðværum Rínarbyggðum og
vínuppskeruhátíðir sóttar.
London, París og enska Rivieran
4. sept. - 15 dagar
Dvalið í London og farið þaðan yfir til Parísar, þar sem dvalið verður i 4 daga, og
endað á ensku Rivierunni, í Torquay, sem rómuð er fyrir baðstrendur sínar,
skemmtanalíf og verslanir.
Kaupmannahöfn og Bornholm
28. ágúst og 4. sept. - 15 dagar
Dvalið í kóngsins Kaupmannahöfn í nokkra daga. Ekið um fagrar byggðir
Suður-Svíþjóðar og siglt með ferju yfir til hinnar fögru og sérkennilegu
Bornholmseyjar. Par verður dvalið í nokkra daga og eyjan skoðuð.
Kaupmannahöfn og Berlín
4. sept., 11. sept., 18. sept. og 25. sept. - 8 dagar
Dvalið í Kaupmannahöfn, borginni við sundið og síðan farið í fjögurra daga ferð
til Berlinar, þar sem ævintýri hinna miklu þjóðfélagsbreytinga blasir hvarvetna
við. Austur- og vesturhluti Berlínar skoóaðir og farið um næsta nágrenni
þessarar sögufrægu borgar.
Kaupmannahöfn og þriggja daga
skemmtisigling til Osló
4. sept., 11. sept., 18. sept. og 25. sept. - 8 dagar
Kaupmannahöfn og Hamborg
4. sept., 11. sept., 18. sept. og 25. sept. - 8 dagar
Dvalið í hinni glaðværu Kaupmannahöfn. Þaðan verður haldið með bíl og ferju í
þriggja daga skoðunarferð til Hamborgar, mva. siglt um Alstervatn.
London og enska Rivieran
4. sept., 11. sept. og 18. sept. - 15 dagar
Dvalið í eina viku í Torquay, sem flestir telja fegurstu borg í Suður-Englandi. Dvalið
á Manor House, glæsilegu, fyrsta flokks kastalahóteli, með öllum þægindum, svo
sem upphitaðri innisundlaug, sauna og þrekþjálfunartækjum.
Enska Rivieran - Torquay
4. sept., 11. sept., 18. sept. og 25. sept. -8 dagar
Dvalið á hinu stórglæsilega kastalahóteli Manor House í Torquay sem víðfræg er
fyrir baðstrendur sínar, skemmtanalíf og verslanir. Eigandi og hótelstjóri er Magnús
Steinþórsson. Þar starfa einnig fleiri íslendingar, svo tungumálavandræði eru engin
fyrir íslensku gestina, sem eyða glöðum dögum við góðan aðbúnað á þessu
frábæra hóteli við Ermasundið. Þarna er frábær baðströnd, innisundlaugar og
stórt verslunar- og veitingahúsasvæði. Hægt er að velja um fjölbreyttar skemmti-
og skoðunarferðir og verðlag í verslunum er afar hagstætt.
Jersey og London
4. sept., 11 sept., 18 sept. og 25. sept.
8 eða 15 dagar.
Hægt er að velja viku eða hálfsmánaðarferð. í vikuferðum verður dvalið 3 daga í
London og 4 daga á Ermasundseynni Jersey sem er skammt undan
Frakklandsströndum. Þar er milt veður og mikil náttúrufegurð, og ódýrt að versla
því allt er tollfrjálst. í tveggja vikna ferðunum getur fólk dvalið í eina viku eða 10
daga á Jersey og allt að einni viku í London.
= FLUGFERÐIR
=■ SDLHRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 1 5331