Morgunblaðið - 18.08.1991, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
SKÓÚTSALA
0CCO Skóverslun Þórðar
Laugavegi 41, Borgarnesi Kirkjustræti 8,
sími 13570. Brákarbraut 3, sími 14181.
sími 93-71904.
Islenskt landslag
IVIyndlist
Bragi Asgeirsson
Það skal segjast, að litla listhús-
ið „Gallerí einn-einn“ á Skólavörð-
ustíg 4a stendur vel fyrir sínu um
sýningaframkvæmdir.
Sýningar þess ei-u vel kynntar
nokkuð fram í tímann og flestir
reyna að búa bærilega að einstök-
um sýningum, þótt innan um séu
slæmir fingurbrjótar, sem á stund-
um gerir almenna umíjöllum með
öllu tilgangslausa.
Geri ég ráð fyrir, að þrátt fyrir
að húsnæðið þrengi mjög að öllum
umsvifum, leggi svipaður fjöldi
fólks leið sína þangað og t.d. í SÚM
galleríið forðum daga og tel ég það
gott, þar sem nýjabrumið er löngu
horfið af athöfnum nýlistafólksins.
Það er eðlilegt að fólk almennt
streymi ekki á sýningar, sem ein-
ungis bjóða upp á tvö til sex verk
og það stundum lítil, og án þes
að um nokkra útskýringar séu á
athöfnum viðkomandi.
Sem betur fer er stundum öðru-
vísi staðið að hlutunum og t.d.
sýnir um þessar mundir Guðbergur
Auðunsson ijórtán lítil verk sem
Njóttu þess besta
-útílokaðu regnið, rokið og kuldann
íslensk veðrátta er ekkert
lamb að leika við. Þess vegna
nýtum við hverja þá tækni sem
léttir okkur sambúðina við veðrið.
LEXAN ylplastið er nýjung
sem gjörbreytir möguleikum okkar
til þess að njóta þess besta sem
íslensk veðrátta hefur að bjóða
- íslensku birtunnar.
LEXAN ylplastið er hægt að nota
hvar sem hægt er að hugsa sér að Ijósið
fái að skína, t.d. í garðsofur, yfir
sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir
húsagarð, anddyri og húshluta.
Möguleikamir eru óþrjótandi.
LEXAN ylplast
Flytur ekki eld. Er viðurkennt
af Brunamálastofnun.
Mjög hátt brotþol. DIN 52290.
Beygist kalt.
Meiri hitaeinangrun en gengur
og gerist.
Hluti innrauðra geisla ná í gegn.
GENERAL ELECTRIC PLASTICS
LEXAN ylplast
- velur það besta úr veðrinu.
SINDRI
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22
Guðbergur Auðunsson
eiga að vera stef við íslenzkt lands-
lag.
Myndirnar vann hann erlendis á
síðastliðnu ári og hafa þær verið
sýndar í Menningarhúsinu í Stokk-
hólmi og „Allied Arts Gallery",
Belllingham, Washington.
Guðbergur hefur komið víða við
í myndrænum athöfnum á umliðn-
um árum og haldið nokkrar einka-
sýningar hér í borg, sem athygli
vöktu. Stíll hans var áður mjög
knappur og móderne eða jafnvel
postmóderne, en nú hefur hann
söðlað yfir í ljóðrænari vinnubrögð
þar sem hann byggir á ýmsum
hughrifum úr sjónreynslu sinni.
Þetta minnir dálítið á það tíma-
bil, er hann reif snifsi úr vegg-
spjöldum og límdi upp eftir því sem
hugurinn bauð, ásamt tilfinning-
unni fyrir samspili forma og lit-
rænu hrynjandi.
Guðbergur viðist vera mjög
þenkjandi um listræn vinnubrögð
um þessar mundir og hefur víða
lagt land undir fót, skoðað og num-
ið í skólum erlendis. Hann er meira
að segja á förum utan með haust-
nóttum í enn einn slíkan leiðangur
og nú til San Francisco.
Þetta er ágæt aðferð til að sjóa
sig í listinni því listaháskólarnir
eru yfirleitt prýðilegur starfsvett-
vangur fyrir alla sem vilja hagnýta
sér þá á verksviðinu, og stefna að
æðri markmiðum en nafnbótum,
sem allir virðast geta fengið er svo
er komið.
Á sýningunni í listhúsinu einn-
einn kemur þessi leitandi hvöt
Guðbergs greinilega fram. Hér er
ekki um átakamikil verk að ræða
og er meira glímt við hin þýðari
form og veikari litbrigði ásamt
efnislegri dýpt.
Þessi þættir málverksins eru þó
ekki síður vandasamir en að notast
við ábúðamikil form og hvella lita-
samhljóma.
Þær myndir sem ég tók aðallega
eftir við fyrstu skoðun fyrir hnitm-
iðuð og sannfærandi vinnubrögð
voru „Draumurinn“ (3), „íslenzkt
landslag“ (9) og „Landið siglir“
(11).
Er auðséð á sýningunni að Guð-
bergur hefur bæst í hóp þeirra
núlistamanna, sem eru mjög þenkj-
andi vegna náttúrunnar og vilja
legga sitt lóð á vogarskálina á ör-
lagaríkum tímum.